13.03.1975
Neðri deild: 56. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2379 í B-deild Alþingistíðinda. (1878)

186. mál, lántökuheimild fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Með þál. 16. des. 1972 var ríkisstj. heimilað að stofna til byggingar eða kaupa á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæsluna. Eftir að athugun hafði farið fram og leitað hafði verið tilboða, var að lokum samningur gerður við Århus Flydedok A/S í Danmörk um smíði á varðskipinu. Smíðaverð skipsins er samkv. samningi d. kr. 29 millj. 642 þús. og skyldi seljandi útvega lán fyrir 80% andvirðisins til 8 ára. Við þann hluta, sem lán er veitt til, bætist enn fremur kostnaður vegna viðbótarverka sem ákveðin voru eftir samningsgerðina, aðallega ýmiss konar búnaður. Verður sá hluti smíðaverðsins, sem lán verður veitt fyrir, alls að upphæð um 25 millj. og 500 þús. d. kr. Varðskipið, sem nefnt hefur verið Týr, verður afhent nú um næstu helgi, þ. e. a. s. 15. mars, og að því búnu ber að ganga frá lántökunni. Er því með frv. því, sem hér er til umr., leitað lántökuheimildar svo sem í 1. gr. frv. segir.

Ég vil, hæstv. forseti, að lokinni þessari umr. leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn., en vegna þess hve skammur tími er til þess að ganga verður frá hlutum, þá vildi ég mega vonast til þess að hv. n. og hv. þd. sjái sér fært að afgreiða þetta mál í dag og að hæstv. forseti boði síðar í dag til funda til þess að frv. þetta geti orðið að lögum í dag.