17.03.1975
Efri deild: 60. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2385 í B-deild Alþingistíðinda. (1892)
149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég ber fram brtt. á þskj. 378 og þykir mér hlýða að gera þegar í stað grein fyrir henni og það er einfalt mál, Það hefur komið í ljós að þegar frv. var upphaflega prentað, þá hefur fallið niður í prentun ein lína í 6. gr. frv. Ef menn lesa yfir vandlega 6. gr. frv., þá sjá menn glöggt að það vantar þarna inn í og till. mín gerir ráð fyrir að bæta úr þessu. Þetta er í fyrri málsgr. 6. gr. og á þá leið, eins og segir í brtt., að á eftir orðunum „og starfsemi þess“ bætist: „þ. á m. varðandi framkvæmd 7.–9. gr. að neðan“. — Síðan hefst ný setning á orðunum: „Gildistími ákvæða 7. og 9. gr.“ Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, en vildi gefa þessa skýringu.