17.03.1975
Neðri deild: 59. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2413 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Magnús T. Ólafsson) :
Borist hefur svolátandi bréf:
„Reykjavík, 13. mars 1975. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþ. að óska þess að 1. varam. í Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Karl G. Sigurbergsson skipstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Gils Guðmundsson, 3. þm. Reykn.“ Karl G. Sigurbergsson hefur áður setið þingbekk á yfirstandandi Alþ. og býð ég hann velkominn til þingstarfa.