18.03.1975
Sameinað þing: 52. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2437 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)

165. mál, hitaveituframkvæmdir

Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson) :

Herra forseti. Þessi fsp. er búin að vera lengi hér á dagskrá, það er langt síðan hún var lögð fram, en ég held að það hafi gildi að ræða um málið fyrir því, en hún hljóðar þannig:

„1. Hvað má ætla að kostnaður sé mikill við þær framkvæmdir við hitaveitu í Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði er nú er talað um að stöðva um óákveðinn tíma?

2. Hvernig var fjármögnun þessara framkvæmda fyrirhuguð?

3. Hvað má reikna með miklum olíukostnaði miðað við ársnotkun hjá íbúum á því svæði sem þessar framkvæmdir í hitaveitu áttu að ná til?

4. Hvers vegna er ekki hafist handa um framkvæmdir við Hitaveitu Suðurnesja og hvað líður lánsútvegun vegna hitaveitunnar?“

Þessi hitaveitumál hafa verið rædd mjög á Alþ. á sínum tíma, en engu að síður hefur ekki fengist sú lausn á þessu, sem menn áttu von á að lægi fyrir á s. l. ári, vegna ýmissa atvika, vegna gengisfellinga og erfiðleika í lánsútvegun. Ætla ég ekki að hafa um þetta fleiri orð að sinni, en vænti þess að hæstv. ráðh. geti upplýst okkur um stöðu þessara mála nú og hvernig fram undan líti út fyrir að geti orðið.