20.11.1974
Neðri deild: 9. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (195)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar kvöldumr. mikið. Frv. þetta var flutt snemma á síðasta þingi. Það var nokkuð rætt þá og reifað, kynnt þingheimi, en náði ekki fram að ganga.

Þetta er mjög mikilvægt hagsmunamál margra landsmanna. Það þarf því engan að undra þótt þessu máli sé aftur hreyft nú í þingbyrjun, og það þarf ekki að koma flatt upp á neinn að þetta frv. er flutt nú öðru sinni. Margir hafa tekið til máls þegar við 1. umr. málsins. Það sýnir að þetta mál vekur áhuga, snertir hagsmuni fjölda manna. Það sýnir enn fremur hversu óhemjumikil og margþætt verkefni við eigum fyrir höndum í vegagerð hér á landi.

Hv. alþm. tóku allir höndum saman á þessu ári um að beita sér fyrir því að hringvegur yrði lagður um landið. Það var vissulega mikið átak, einnig mikið takmark að stefna að, að hægt væri að aka hringinn í kringum landið eins og kallað er. En þó að það hafi nú tekist og þó að Norðurvegur verði lagður með varanlegri hætti en verið hefur, þá eru vissulega fjölmörg verkefni þar fyrir utan. Þó að ég sé einn af flm. þessa máls og þetta mál snertir vissulega kjördæmi mitt að hluta viðurkenni ég fyllilega að það eru margir aðrir vegir en hringvegurinn, Norðurvegur, hringvegur um Vestfirði o.fl. sem sinna þarf á komandi árum. Þetta sýnir að við höfum þarna ærin verkefni að vinna, en jafnframt lítið fé úr að spila.

Það eru ýmsir sem gerast talsmenn þess mikla máls að leggja vegi með varanlegu slitlagi í kauptúnum og annars staðar. Það þarf vissulega, þó að hringvegur hafi opnast og Vestfjarðavegur, víða að leggja vegi fyrir nes, víkur og voga. Þá má ekki heldur gleyma sýsluvegunum, en þær aðgerðir, sem m.a. alþm. ýmsir beittu sér fyrir á síðasta þingi, hafa orðið til þess að rýra mjög tekjustofna sýsluvegasjóða og að því máli þarf alveg sérstaklega að hyggja.

Ég ætla ekki að láta mörg fleiri orð falla um þetta mál. Það getur enginn borið á móti því að góður vegur milli höfuðborgar landsins og höfuðstaðar Norðurlands er mikið hagsmunamál margra, ekki einungis þessara fjölmennu byggðarkjarna, heldur einnig nokkurra kjördæma. Og hann á einnig að koma Vestfirðingum að haldi.

Ég vil láta það vera mín lokaorð við þessa umr. málsins að víkja að orðum þeim sem hv. 8. landsk. þm. lét falla í lok ræðu sinnar í kvöld þar sem hann var að velta því fyrir sér hvert yrði hagkvæmasta vegasamband Vestfjarða við Norðurveg, og ég vil benda honum á þessu leið. Það er leiðin af Vestfjarðavegi við Laxá í Dölum um Laxárdalsheiði á Strandir norður. Ég vil vonast til þess að hv. þm. Vestf. taki höndum saman við okkur þm. Vesturl. um að koma þessum vegi á hið fyrsta. Það hefur sýnt sig eftir að Heydalsvegur var lagður nú fyrir nokkrum árum þó að það tæki langan tíma að það er allra besta leiðin yfir Snæfellsnesfjallgarð. Með því að fá álíka veg yfir I.axárdalsheiði náum við miklum áfanga í samgöngumálum á þessum slóðum. Laxárdalsheiði er í ámóta hæð yfir sjó og Heydalsvegur og þess vegna full ástæða til þess að ætla að þar mundi nást örugg leið allan ársins hring.