18.03.1975
Sameinað þing: 53. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2487 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)
67. mál, eignarráð þjóðarinnnar á landinu
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil biðja aðra hv. þdm. afsökunar sem raunverulega hafa verið á undan mér á mælendaskrá, þótt ég hafi beðið forseta þess að lofa mér að tala hér fyrst, vegna þess að mín og annarra þm. Sjálfstfl. mun nú beðið með óþreyju í ákveðnu öldurhúsi borgarinnar, hvar við eigum að svara til saka um það, þm. Reykv. úr okkar röðum, hvar við höfum verið á undanförnum árum. Hins vegar mun hv. þm., sem á undan mér var á mælendaskrá, hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, einnig hafa verið boðið þangað, en hann hefur enga óþreyju sýnt í sér til þess að mæta þar, en ég ætla að reyna að gera það, þegar ég hef lokið örstuttri aths. minni.
Sú aths. m. a. beinist að minni ágætu flokkssystur, frú Sigurlaugu, sem ekki í fyrsta sinn hefur komist að þeirri niðurstöðu hér á hv. Alþ. að suðvesturhorn okkar lands sé eiginlega með verstu hornum sem þjóð okkar byggir á okkar Íslandi. Þetta kom vel fram í skoðunum hennar í sjónvarpi og reyndar útvarpi líka, þegar talað var um það að þm. Reykv. mættu ekki hafa bílastyrk, þeir sem byggju t. d. í Árbæjarhverfi og Breiðholtshverfi, þótt jafnvel lengra væri þaðan heldur en úr Kópavogi eða Garðahreppi. Er það nú annað mál, en svona nokkuð til þess að benda á.
Ég vil þakka síðasta ræðumanni fyrir að hafa vitnað til. að ég held, einnar bestu grg. sem hefur verið flutt með því að landssvæði verði friðað, sem við fluttum á sínum tíma félagarnir, Matthías Bjarnason, núv. hæstv. ráðh., og ég, þegar við lögðum til að friðað væri allt norðursvæði Vestfjarða og Stranda. Við skulum samt sem áður ekki gleyma því og það var auðvitað rangt hjá hv. síðasta ræðumanni að tala um að einhverjir fjársterkir aðilar héðan úr Reykjavík sérstaklega, að mér skildist á honum, hefðu stöðvað þetta mál. Sannleikurinn er sá, að þessir fjársterku aðilar voru víða til um land, þó líklega sérstaklega í kringum Ísafjarðardjúp. En það var ekki spurningin, hvort þeir væru fjársterkir og þeir væru að sölsa undir sig landið, heldur hitt, að þetta voru erfingjar að landinu. Þetta voru menn sem voru komnir til fullorðinsára, en höfðu alist upp á þessu landi og töldu sig hafa og höfðu skyldu til þess að halda þarna ræktun við og jafnvel húsum og húsakynnum og það verður að meta við þá. Okkar mistök voru líklega sú í okkar frumvarpsflutningi að taka ekki skýrt fram, að að sjálfsögðu áttu þessir menn og erfingjar þeirra að hafa fullkominn rétt til þess að dveljast þarna í þessum húsakynnum og jafnvel þótt þeir vildu byggja ný húsakynni fyrir sig og fyrir sína fjölskyldu, en við vildum forðast að þar væri mannvirkjagerð í fjárplógsog auðgunarskyni. Þá erum við líklega sammála, við flm. þessa frv. á sínum tíma og hv. síðasti ræðumaður. Við vildum vernda þetta land og við vildum gera það að alþjóðareign. En sannleikurinn er sá að þessu hefur verið náð í dag. Það er búið að friðlýsa þetta svæði. Það má ekkert gera í þá átt sem við vildum vara við að gert yrði. Það er búið að friðlýsa svæðið og það er komið undir lög Náttúruverndarráðs. Og ég tel það vera mál málanna.
Ég er einn af þeim sem hafa oft horft til þessarar till. þeirra Alþfl.- manna, og ég tel, að það, sem þar kemur fram, eigi mikinn rétt á sér í einu tilfelli sérstaklega. Ég tel þó að eignarréttur bænda á landi, sem hægt er að rekja til fyrri tíðar og er í eigu þeirra sem þar búa í dag, verði ekki af þeim tekinn nema almenningsheill krefji að svo verði að gera og þá auðvitað komi fullar bætur fyrir. En ég tel að sú till., sem hér er til umr., ætti frekar að mótast efnislega af því að fá úr því skorið, hvar hinir gömlu almenningar séu sem eru skilyrðislaust eign alþjóðar og til afnota fyrir alþjóð, þ.ám. fyrir okkur sem í þéttbýlinu búum. Auk þess eigum við að sjálfsögðu skilyrðislausan rétt á því, að þegar fellur úr byggð jarðnæði, ég tala nú ekki um það sem keypt er fyrir ríkisfé til þess að halda í eigu ríkisins, það verði jafnframt til afnota fyrir almenning, hvort sem um er að ræða borgarbúa til afdreps að sumarlagi eða fyrir bændur til þess að nýta til afnota fyrir sinn búrekstur. En að þetta séu einhliða afnot bænda, það kemur auðvitað ekki til mála og veit ég að þeir halda því ekki heldur fram. Ég hef enga trú á því og hef ekki heldur heyrt það. En almenningurinn, það er búið að vera stríð um þetta í sumum sýslum og sveitum landsins nú um fjöldamörg ár, og ég held að Alþ. íslendinga ætti að fara að ganga í það að skera úr um hvað það er sem heitir almenningur í fornum lögum. Tilheyrir þetta að einhverju leyti okkur sem í þéttbýlinu búum, eða er þetta eingöngu í þeirra eigu sem leiða fé sitt á afrétti, sem við svo erum að reyna að myndast við af okkar skattfé að græða upp vegna þess að við viljum okkar landi vel og viljum þar með vel búskap okkar bænda? Ef hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, tæki málið þessum tökum, þá held ég að það gæti orðið almenn samstaða á milli a. m. k. borgarbúa og bænda um það að áratuga þrætumáli yrði til lykta leitt.
En ég endurtek mín orð um það, að ég tel ekki rétt að bændur séu sviptir sínum eignarrétti eða þeir sem á jörðunum búa í dag. Auk þess mótmæli ég harðlega því, sem hefur komið fram í ræðum hv. þm., ekki aðeins á þessu þingi kannske, heldur og á fyrri þingum, eins og t. d. hjá hv. 7. landsk. þm., Helga F. Seljan, sem taldi það hina mestu goðgá að borgarbúar eða þéttbýlismenn mættu eignast landssvæði í sveit. Þetta er svo forkastanlegt hafandi það í huga að hann er einn af þeim þm. sem telja sig forsvarsmann verkalýðsflokka svokallaðra, þegar líka er haft í huga að það eru einmitt þeir hinir sömu, fulltrúar launþega í þessu landi, sem hafa lagt sig eftir því á undanförnum árum að eignast jarðnæði til þess að byggja yfir sína félagsmenn til þess að koma þeim úr þéttbýlinu svokallaða, hvar við höfum öll hin félagslegu stóru vandamál sem allflestir úti um land hafa ekki við að búa. En þessi hv. þm. taldi að þetta væri forkastanlegt, að borgarbúar úr Reykjavík gætu eignast slík lönd og komið sér upp slíkum bústöðum, eftir orðanna hljóðan í ræðu hans á þeim tíma. Vera má að hann hafi eitthvað breytt um skoðun síðan.
Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta, enda mín sjálfsagt beðið með óþreyju. Ég vildi aðeins benda á það, að mér finnst meginatriði um það, sem kveðið er á um í gildandi íslenskum lögum og okkar elstu lögum um eign alþjóðar, að úr því verði skorið nú á næstu árum, hvar séu mörkin. Ég tel að þéttbýlismenn eigi ekki minna í því heldur en þeir sem hafa beitt sínu fé og nautpeningi á þetta land.