18.03.1975
Sameinað þing: 53. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)

144. mál, lækkun á byggingarkostnaði

Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að endurflytja till. sem ég flutti ásamt fleiri þm. á síðasta þingi. Þessi till. miðar að lækkun á byggingarkostnaði. Vafalaust er það tilgangur sem allir geta fallist á. Sú leið sem stungið er upp á í þessari till. til þess að ná þessu markmiði, er að fela ríkisstj. að láta gera nákvæma skýrslu um þann hluta byggingarkostnaðar sem fólginn er í ýmiss konar gjöldum til ríkisins. Á grundvelli þeirrar skýrslu láti ríkisstj. gera till. um niðurfellingu eða verulega lækkun þeirra gjalda.

Fáum dylst að húsnæðiskostnaður er of þungur baggi á herðum margra. Ekki á þetta síst við um unga fólkið. Húsnæðið gleypir allt of stóran hluta af tekjum þeirra sem hafa nýlega stofnað heimili og sífellt sígur á ógæfuhlið í þessu efni. Þetta á við hvort heldur menn byggja sjálfir eða leigja hjá öðrum. Það hlýtur að vera nauðsynlegt að leita leiða til þess að gera mönnum það ódýrara að byggja. Það verður eina raunhæfa leiðin til að lækka húsaleigu og létta að tiltölu skuldabagga væntanlegra íbúðarbyggjenda. Ráðstöfun í þessa átt mundi líka verða mjög til þess að draga úr þenslunni í efnahagsmálum þjóðfélagsins, og ég hygg að þeir, sem með völdin fara, ættu að verða fegnir slíkum ráðum. Við höfum nú í alllangan tíma verið að berjast við sívaxandi verðbólgu og hún hefur ekki síst haft áhrif í byggingum fólksins, um leið og vaxandi byggingarkostaður eykur verðbólguna.

Það er sannanlega með ólíkindum að sumra orsakanna fyrir þessum háa byggingarkostnaði sé að leita í beinum ráðstöfunum ríkisins sjálfs. En sú er þó raunin því að allstór hluti af verði byggingar fer beint til ríkisins í formi skatta af efni og vinnu. Samkvæmt lauslegri áætlun, sem gerð var í fyrra, fara um 11–15% af byggingarkostnaði beint í ríkissjóð. Þar vega þyngst aðflutningsgjöld og launaskattur. Með því að ríkið sjálft lækki nú sínar kröfur um gjöld af byggingarefni eða um gjöld af vinnu manna í byggingum þá lækkar líka kostnaður ríkisins við þess eigin framkvæmdir. M. ö. o.: á því sviði er alveg augljóst að um einfalda aðgerð er að ræða til að draga úr verðþenslu. Ef við hugsum út í það að helmingur af allri fjármunamyndun í þjóðfélaginu eru byggingarframkvæmdir og helmingur af öllum byggingarframkvæmdum eru byggingar hins opinbera þá sýnist þetta vera nokkuð ljóst. Við sjáum líka að þetta hlýtur að hafa verulega þýðingu fyrir hagsmuni almennings í landinu. Enn ein röksemd, sem mætti sérstaklega tilfæra og þá fremur nú í ár heldur en í fyrra, er sú, að menn óttast að til nokkurs samdráttar á vinnumarkaði kunni að koma einhvern tíma síðar á þessu ári. Sú atvinnugrein, sem viðkvæmust er fyrir slíku, er byggingariðnaðurinn. Í því sambandi hefur mér dottið í hug að þá leið, sem bent er á í þessari till., mætti beinlínis nota sem hagstjórnartæki gegn slíku. Framkvæmd þessarar till. mundi draga úr hættu á samdrætti í atvinnu við byggingar.

Það er augljóst, herra forseti, að það eru fyllstu rök sem liggja til þess að kannað sé hvort ekki sé framkvæmanleg þessi einfalda leið til þess að lækka byggingarkostnað. En hitt er mér líka ljóst, að það þarf flókna útreikninga á ýmsum atriðum til þess að átta sig á því nákvæmlega hvaða þætti í byggingarkostnaðinum slíkar ráðstafanir mundu hitta. Sumar greinar í byggingum lenda svo margsinnis í sköttum og tollum að það verður að gera sérstakan útreikning að því er varðar þá þætti. Þetta á sérstaklega við um ýmiss konar byggingarefni sem unnið er hér innanlands. Það getur líka komið inn í þetta dæmi að athuga hvort skynsamlegt sé að hafa há aðflutningsgjöld á vélum sem notaðar eru til þess að vinna innlent byggingarefni úr erlendu hráefni, og fleira mætti til taka sem kynni að hafa áhrif á þessa útreikninga. Með því að skýrt hefur verið frá því opinberlega að hæstv. fjmrh. hafi skipað n. til að athuga sérstaklega fyrirkomulag tollamála, þá þykir mér ekki ólíklegt að það mætti sérstaklega í sambandi við afgreiðslu þessa máls frá Alþ. beina þessari till. og þeim ábendingum, sem í henni felast, til þeirrar n. í stað þess að skipa sérstaka n. í þetta verkefni eitt.

Ég vil geta þess að þessi till. hlaut ekki afgreiðslu í fyrra í allshn. Sþ. vegna þess hve áliðið var orðið þings þegar komið var að ýmsum málum okkar stjórnarandstæðinga. Þó held ég að það hafi verið vilji hjá mönnum til að afgr. þetta mál jákvætt. En ekki höfðu borist umsagnir frá öllum aðilum. Ég vil þó geta þess, að húsnæðismálastjórn ríkisins hafði sent um málið jákvæða umsögn þar sem sagði að þessi till. gengi vissulega í rétta átt. En húsnæðismálastjórn ríkisins gat líka í sinni umsögn um fleiri leiðir til lækkunar byggingarkostnaðar, svo sem ýmiss konar hagræðingu og sparneytni í sambandi við byggingar. Það eru mál sem allir eru vitanlega sammála um og unnið er þó nokkuð að. Það hefur m. a. samkv. lögum frá 1970 verið veitt á vegum húsnæðismálastjórnar fé í rannsóknir til þess að auka sparneytni í sambandi við byggingar, en vel má vera að þar sé enn meira og betur hægt að gera. En hvað sem öllu tali um sparnað og hagræðingu á þessu sviði líður og hversu sammála sem við erum þeim hugleiðingum öllum, þá virðist svo einhvern veginn vera að þær ráðstafanir, sem reynt hefur verið að gera í þessa átt, nái ekki nægilega langt og að það verði svo að menn hljóti að verða að fara einhverja slíka leið eins og bent er á í þessari till.

Ég held, að öllu samanlögðu, að það geti orðið niðurstaðan að menn sjái að það muni beinlínis borga sig fyrir ríkið að gera þá ráðstöfun sem hér er á bent. Það mundi ekki halda áfram að þenjast út kostnaðurinn við byggingar í jafnríkum mæli og verið hefur. Það mundi ekki kalla á jafnstórar fjárfúlgur í byggingarlánakerfið eins og verður annars að óbreyttum reglum, auk þess sem náttúrlega er aðalatriði þessa máls, en það er að gera sjálfum íbúum húsanna léttbærara að borga þann kostnað sem því fylgir annaðhvort að búa í eigin húsnæði eða borga húsaleigu.

Ég held, herra forseti, að ég þurfi ekki að flytja nein frekari rök fyrir þessari till. Ég held að málið sé í raun og veru alveg ljóst. Það, sem gera þarf, er einungis það, sem segir í þessari till., að fela ríkisstj. að láta gera nákvæma skýrslu um þann hluta byggingarkostnaðar sem felst í opinberum gjöldum. Leiði sú skýrsla til þeirrar niðurstöðu, sem mig grunar, að þau gjöld séu óskynsamlega há, þá vonast ég til þess að horfið verði að því ráði að stórlækka þau gjöld og fella þau a. m. k. sum niður með öllu. Þá lækkar byggingarkostnaður, dregur úr þenslu og minnkar hætta á atvinnuleysi.