19.03.1975
Efri deild: 61. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)
174. mál, áburðarverksmiðja á Norðausturlandi
Flm. (Stefán Jónason) :
Herra forseti. Ég flyt hér í d. till. til þál. um áburðarverksmiðju á Norðurlandi í sambandi við Kröfluvirkjun, svo hljóðandi :
„Alþ. ályktar að láta nú þegar hefja undirbúning að gerð verksmiðju er nýti orku frá fyrirhugaðri Kröfluvirkjun til framleiðslu á tilbúnum áburði. Verði verksmiðjan reist í Norður-Þingeyjarsýslu, annað tveggja á Kópaskeri eða við Fjallahöfn, eftir því hvor staðurinn þykir heppilegri með tilliti til hafskipahafnar.“
Grg. með þáltill, flyt ég svo hljóðandi:
„Nú eru góðar horfur á því að takast muni að leysa úr brýnustu þörf norðlendinga fyrir raforku til húsahitunar og annars heimilishalds með því að flýta Kröfluvirkjun og þá fyrst og fremst með því, að fá til afnota þegar á næsta sumri lítinn hverfil, er nýti orku úr tilraunaborholu sem þegar hefur verið gerð, en síðan, þegar á árinu 1976, að virkja nýjar borholur fyrir 30 mw. gufuhverfil, og svo loks á árinu 1977 að tengja annan 30 mw. hverfil við gufuaflið. Líkur benda til þess, að þá sé enn ónytjað mjög mikið gufuafl á Kröflusvæðinu og taka megi með sama hætti og tiltölulega litlum tilkostnaði tuga mw. orku, þannig að unnt verði að nytja raforku á þessu svæði til iðnaðarframleiðslu.
Nú er svo komið að mikið vantar á að Áburðarverksmiðja ríkisins í Gufunesi anni áburðarþörf landsmanna. Tilbúinn áburður hefur hækkað svo mikið í verði á síðustu missirum að til stórvanræða horfir og raunar sýnt að fjöldi bænda stendur nú þegar ráðþrota gagnvart þessu vandamáli. Líkur benda til þess að áburðarkostnaður á hvert kg af þurrkuðu heyi verði 11–12 kr. á sumri komanda. Ljóst er að raforku verður ekki varið til hagkvæmari nota svo að sæmilegt sé en til áburðarframleiðslu, hvort heldur miðað er við innlendan markað eða útflutning, þar eð hér er um að ræða undirstöðuvörur til matvælaframleiðslu í sveltandi heimi. Það er einnig sýnt að moð skynsamlegri stefnu í virkjunarmálum ættum við að geta orðið aflögufærir um raforku í þessu skyni í sívaxandi mæli á næstu árum.
Enn fremur má telja það auðsætt af áætlunum, sem gerðar hafa verið um hafnargerð við Grundartanga í Hvalfirði, að okkur á að vera tiltækt lánsfé til hafnargerðar á Kópaskeri eða við Fjallahöfn í N.-Þingeyjarsýslu. Þangað er skammt að leiða rafmagn frá Kröflusvæðinu og brýn þörf fyrir höfn í þágu þjóðlegra atvinnuvega sýslubúa. Yrði hafnargerð á þeim slóðum hin mesta lyftistöng fyrir dreifbýlið, andstætt því sem yrði um hafnargerð við Grundartanga.“
Þannig hljóðar sem sagt till. til þál. og grg. sem ég flyt með henni.
Skv. upplýsingum, sem ég hef aflað mér frá Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi, mun framleiðsla verksmiðjunnar í fyrra hafa numið u. þ. b. 36 þús. tonnum. Ætla má að hún verði svipuð í ár, en áburðarþörfin skv. áætluðum pöntunum 50–60 þús. tonn. Þá eru ekki reiknaðir með þeir tugir þús. tonna af áburði sem þarf til nota á afrétti landsins. Það vantar enn tugi þús. tonna af áburði til þess að kaupa fyrir milljarðinn sem ætlaður var til landgræðslu, með samþykkt Alþ. á s. l. sumri, þó að jafnað sé yfir á fleiri sumur.
Menn kunna að spyrja, hvaða nauðsyn beri til þess að reisa þá áburðarverksmiðju, sem hér er gerð grein fyrir, á Norðurlandi og þó enn fremur á Norðausturlandi eða í N.-Þingeyjarsýslu, hvort ekki væri hagkvæmara að byggja við áburðarverksmiðjuna í Gufunesi. Því er til að svara, að um það bil fjórðungur af verði tilbúins áburðar, sem kominn er til Norðurlands eða öllu fremur til Norðausturlands, liggur í flutningskostnaði. Í öðru lagi er því til að svara, að það er eðlilegt að við dreifum áburðarverksmiðjum, sem við reisum af þessari stærð, um landið. Sú þriðja kann að bætast við. Við skulum vona að við sýnum það framtak við jarðrækt á Íslandi að við þurfum þriðju áburðarverksmiðjuna, álíka að stærð, og það er þjóðarnauðsyn að við dreifum þessum verksmiðjum um landið, ekki bara vegna flutningskostnaðar á áburði, heldur líka í öryggisskyni og í þriðja lagi til þess að efla með því byggðir landsins.
Við þm. Norðurl. e. ræddum fyrir skemmstu við kaupfélagsstjóra og forsvarsmenn kaupfélaga úr N.-Þingeyjarsýslu, þar sem þeir röktu fyrir okkur vandræði sín í sambandi við útvegun á áburði á komandi vori, fyrst og fremst vegna kostnaðar — geigvænlegs kostnaðar — og skorts á lausafé til ráðstöfunar til áburðarkaupa. Þeir lýstu því fyrir okkur hversu veðrátta í þeim héruðum útheimtir miklu meiri áburðarnotkun en jafnvel í öðrum landbúnaðarhéruðum landsins vegna þess hve sumur eru skömm, hlýindatíminn skammur, vaxtatími jarðargróðans skammur, oft ekki nema vika til hálfur mánuður., og þá er allt í húfi að nægur sé áburður í jörðinni til þess að þessi skammi vaxtartími geti nýst.
Ég segi í grg. að í ljós hafi komið í sambandi við fyrirhugaða útreikninga um höfn á Grundartanga í Hvalfirði, að fáanlegt ætti að vera fjármagn til hafnargerða á þessum tímum. Maður skyldi ætla að hægt væri að fá fé til þess að gera höfn í N.-Þingeyjarsýslu, hafnleysunni allar götur frá Raufarhöfn til Húsavíkur. Ég er þess fullviss, að ef skynsemi réði, ef réði tillitssemi við þjóðlega atvinnuvegi okkar, þá mundi eigi síður takast að útvega lánsfé til þess að gera höfn á þessum slóðum. Það er ráðgerð 500–600 millj. kr. fjárveiting til hafnargerðar á Grundartanga, hérna á milli Reykjavíkur og Akraness, í sambandi við málmblendiverksmiðju í Hvalfirði. Ég er sannfærður um það, að ef sams konar áhugi ríkti fyrir því að leysa úr þörfum fólksins í N.-Þingeyjarsýslu, á hafnleysusvæðinu, þá væri hægt að útvega það fé sem til þyrfti að koma upp leguplássi fyrir hafskip og þá jafnframt fiskiskipahöfn á Kópaskeri eða í Fjallahöfn.
Því hefur verið haldið fram, að til þess að áburðarverksmiðja hér á landi gæti orðið samkeppnisfær við áburðarverksmiðjur sem notuðu jarðgas, t. a. m. við Persaflóa eða fyrir botni Miðjarðarhafs, þá þyrfti hún orku sem fást mundi úr þrefaldri Dettifossvirkjun. Þess háttar verksmiðja, ammoníakverksmiðja, mundi þurfa alla orku Jökulsár á Fjöllum eins og hún er hugsuð af hálfu verkfræðinga þegar Jökulsá yrði veitt ofan í Fljótsdal. Það er ekki þess háttar áburðarverksmiðja, sem flm. þessarar till. hefur í huga, ekki verksmiðja, sem ætlað væri að keppa við Saud Arabíukonung um framleiðslu á ammoníaki til sölu á heimsmarkaði, heldur áburðarverksmiðja sem til þess væri ætluð að fullnægja þörfum landsmanna til framleiðslu á grasi, til áburðar á tún og í garða og á afrétti landsins. Ég hygg að við gerum rétt í því um sinn, þegar við hugsum um áburðarframleiðslu hér innanlands, að miða hana við okkar eigin þarfir og þó fyrst og fremst það að verða sjálfum okkur nógir á þessu sviði. Ef við hugleiðum nýtingu orku okkar í landinu, hvort heldur hún kemur úr fallvötnum eða heitum hverum, ef við hugleiðum eingöngu í sambandi við heimsmarkað og markaðseftirspurn úti í löndum, þá munum við fyrr eða síðar leiðast til þess að fara að hugsa um aðra atvinnuvegi okkar frá sömu grundvallaforsendum.
Það er rétt, að landbúnaðarafurðir okkar munu ekki verða um sinn samkeppnisfærar við landbúnaðarafurðir þeirra þjóða, sem sunnar búa á jarðarkringlunni, við hagstæðara loftslag og við betri möguleika til stóryrkju en hér. En ef við hættum framleiðslu á íslenskum landbúnaðarafurðum af þeim sökum eða hættum að hlúa að íslenskum landbúnaði af þeim sökum, þá gæfi ég ekki mikið fyrir þann stutta spotta sem eftir yrði af sjálfstæðu lífi þessarar þjóðar eða menningarlífi í þessu landi.
Ég hef vikið að því í tali mínu um orkumálin, að okkur íslendingum bæri siðferðileg skylda til þess að nota allt vinnuafl okkar og alla orku okkar til matvælaframleiðslu í sveltandi heimi. Á sviði landbúnaðar hef ég nefnt í því sambandi, fyrir utan áburðinn, grænfóðurrækt eða fóðurbætisræktun og ylrækt. Og þá er spurt hvort flm. þessarar till., sem hér um ræðir, ímyndi sér að íslendingar geti séð hinu soltna fólki úti í heimi fyrir landbúnaðarafurðum, fyrir matvælum ræktuðum á þurru Íslandi til þess að seðja hungur þessa fólks. Ég er eflaus um það, að íslendingar gætu látið mjög mikið að sér kveða meðal þessa soltna fólks til þess að seðja hungur þess, ekki bara með því að verka allan þann fisk sem hér kemur á land til manneldis í staðinn fyrir að verka rúmlega helming hans sem svínafóður, heldur líka með matvælum sem hægt er að framleiða á landi hér. Svörin, sem við fáum frá peningaglöggum stjórnmálamönnum okkar er á þetta er minnst, eru yfirleitt þau að þetta fátæka fólk, sem nú er að svelta, sem nú skortir eggjahvítuefnaríka fæðu, sé svo fátækt að það geti ekki keypt matinn okkar. Þetta er að því einu leyti rétt, að þetta sveltandi fólk í Afríku og Asíu á ekki dollara eða rúblur eða pund til þess að kaupa fyrir matvælin okkar. En það á vörur sem við höfum mjög mikil not fyrir, ýmiss konar vörur. Okkur er innan handar að taka upp vöruskiptaverslun við þessar þjóðir í stórum stíl.
Fyrir tveimur vikum fékk ég bréf frá kunningja mínum sem ég kynntist á stríðsárunum, en nú er hv. þm. í lýðveldinu Kamerún, þar sem hann sagði mér frá því að þeim þætti það í Kamerún, að þeir fengju lágt verð fyrir timbrið sitt sem fyrst og fremst er selt til Vestur-Evrópu á vegum Unileaver, og hann spyr hvort ekki geti hugsast að þeir í Kamerún, sem vantar mjög mikið eggjahvíturíka fæðu og hafa komist lítillega upp á lag með að borða skreið sem þeir fá frá grannríki sínu, Nígeríu, keypta héðan að norðan frá Íslandi og Noregi, — hvort það gæti ekki hugsast, að íslendingar vildu kaupa timbur í Kamerún og borga það með skreið. Ef þarna væri um að ræða meira timbur en þeir gætu notað sjálfir í sínu skóglausa landi, þá gætu þeir vafalaust selt það með mjög góðum hagnaði í Vestur-Evrópu. Að vísu sagðist hann reikna með því, að Kamerúnbúar, þ. á m. hann sjálfur, sem er skógareigandi, vildu fá öllu hærra verð fyrir timbrið sitt en Unileaver borgar fyrir það í skiptum fyrir íslenska fiskinn. En hann sagðist fullyrða það að eigi að síður yrði þetta mjög ódýrt timbur, því að þeir fylgjast með því í Kamerún á hvaða verði þetta timbur er selt í Vestur-Evrópu. Ef reiknað væri með vöruskiptaverslun, þá kynni svo að fara að jafnvel það, sem nú er kallað umframframleiðsla okkar af kjöti og mjólk, — að maður minnist nú ekki á fiskinn okkar sem nú er verslaður í svínafóður, — jafnvel umframframleiðsla okkar af kjöti og mjólk gæti komist í sæmilega hátt verð ef við hefðum fyrir því að taka við greiðslu í timbri eða annarri vöru frá þeim þjóðum sem skortir mat og eiga ekki dollara eða rúblur eða pund til þess að borga fyrir hann, en ágætis vörur.
Ég hafði að vísu heyrt oftar en einu sinni í hér um bil aldarfjórðungsstarfi við fréttaöflun, þá hafði ég heyrt jafnvel hv. alþm. ýja að því að eitt af aðalvandamálum þessarar þjóðar væri dugnaður bændastéttarinnar við að framleiða mat, með öðrum orðum offramleiðsla á landbúnaðarafurðum í sveltandi heimi. Þessi kennisetning var jafnvel sett í harða fræðilega formúlu á þá lund að bændastéttin væri orðin helsti dragbítur á það sem kallað var hagvöxtur þjóðarinnar. Það má vel vera að það sé sökum þekkingarskorts í hagfræði að ég get ekki fengið mig til að trúa því enn í dag að bóndi, jafnvel með smærra bú en vísitölubúið, sé ekki þjóðhagslega séð öllu skárri matvinnungur en t. d. ýmsir þeirra manna sem mestar hafa áhyggjurnar af því að bændastéttin dragi úr hagvexti þessarar þjóðar.
Það er enn þá staðföst skoðun mín, að það sé til mikillar fremdar, ekki aðeins fyrir bændastéttina sjálfa, heldur þjóðina alla, að við ýtum undir aukna framleiðslu í íslenskum landbúnaði, að því gefnu að við sýnum þá jafnframt þá dáð að koma ágætum afurðum íslensks landbúnaðar í verð og þó umfram alla aðra muni að við sjáum til þess að þeir íslendingar, sem ekki vinna sjálfir að landbúnaðarframleiðslu, að borgarfólkið okkar, fólkið í bæjunum, hafi efni á því að borðá þá hollu fæðu sem íslenskir bændur framleiða. Það er fyrir neðan allar hellur bókstaflega fyrir neðan allar hellur — að íslenskir bændur skuli á þessum vordögum, sem nú blasa við okkur í landsynningsþíðunni, þurfa að kvíða fyrir sumri vegna þess að svo hefur verið að þeim hert að telja má nokkurn veginn víst að þeir fái ekki áburð til þess að bera á túnin sín.
Það væri fáránlegt af okkur að reikna orkuframleiðslu á tilbúnum áburði hér á landi á heimsmarkaðsverði, ekki síst með tilliti til þess að við höfum nú á næstliðnum vikum verið að reikna raforku til framleiðslu á málmblendi á verði sem nemur u. þ. b. 1/10 af heimsmarkaðsverði á raforku og hið lága verð verið afsakað með því, að við þurfum að borga með þessari orku vegna þess hvað landið sé afskekkt.
Ég ætlaði ekki að halda langa tölu með þessari þáltill. minni um nýtingu íslenskrar orku, innlendrar orku til framleiðslu á tilbúnum áburði. Ég ætlaði aðeins að ítreka það, sem fram kemur í grg. sem hér liggur fyrir framan mig, að allar líkur benda til þess að fáanleg verði á Kröflusvæðinu næg raforka til þess að leiða um skamman veg til sjávar í N.-Þingeyjarsýslu á annan tveggja staða, þar sem telja má nokkuð auðvelt að gera höfn, hafskipahöfn, sem jafnframt muni nytjast sem fiskihöfn, og að á þessu svæði, nákvæmlega á þessu svæði er nú háð einhver hin harðasta barátta hér á landi til þess að halda blómlegum og góðum landbúnaðarhéruðum í byggð og að þörf er fyrir fyrirtæki á borð við áburðarverksmiðju á þessum slóðum til þess að efla fólkið í þessari baráttu.