19.03.1975
Efri deild: 61. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2524 í B-deild Alþingistíðinda. (1981)

146. mál, Framleiðslueftirlit sjávarafurða

Jón Árnason:

Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á l. nr. 108 frá 31. des. 1974, um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem hér er til umr., er nánast sagt aðeins leiðrétting á 4. gr. l. til þess að skýrt komi fram verkaskipting á milli Framleiðslueftirlits sjávarafurða og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. N. er sammála um það, enda flytur hún frv., að mæla með því að það verði samþ. eins og það liggur hér fyrir.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um málið, en legg til að það verði samþ.