19.03.1975
Neðri deild: 60. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2583 í B-deild Alþingistíðinda. (1991)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Forseti. Ég vil án þess að nota til þess langan ræðutíma svara nokkrum atriðum, sem fram hafa komið.

Hv. 5. þm. Vesturl., Jónas Árnason, hóf mál sitt með því að spyrjast fyrir um hvaða undur og stórmerki hefðu gerst í aðalstöðvum Union Carbide þar sem þeir íslendingar, merkir menn sem þangað hefðu farið, hefðu komið heim aftur með þeim ummerkjum að þeir hefðu sýnilega orðið fyrir heilögum anda og trúað því að nú væri allt í góðu ástandi með öll mengunarmál. Hann lýsti undrun sinni yfir þessu vegna þess að það væri upplýst að Union Carbide væri mesti mengunarvaldur í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Hann sagði að Union Carbide væri stjórnað af ofríkismönnum sem svifust einskis. Nú er það ekki ég eða núv. ríkisstj. sem hefur valið Union Carbide til samfélags í þessu máli og þess vegna má kannske spyrja hv. þm. á móti, hvaða undur og stórmerki hafi gerst í aðalstöðvum Alþb. að ráðh. bandalagsins í 3 ár skyldi einmitt velja Union Carbide úr hópi allra umsækjenda til félagsskapar um stóriðju hér á Íslandi. Allir vita að eftir að þessi ráðh. Alþb., Magnús Kjartansson, hafði skipað viðræðunefnd um orðufrekan iðnað til þess að ræða við erlend fyrirtæki um stóriðju hér og mikinn kaupanda orku, þá voru margir erlendir aðilar sem til greina komu. En að ákvörðun ráðh. varð einmitt þessi mesti mengunarvaldur, ofríkismenn sem svífast einskis, fyrir valinu. Þetta er mál sem þeir geta gert upp sjálfir í aðalstöðvum Alþb.

Varðandi mengunarhættuna er það næsta furðulegt að þessi hv. þm., sem talar hér af miklum þjóðernisanda og hefur náttúrlega mikla ást á öllu því sem íslenskt er, hann vitnar í ræðu sinni í hvern ameríkumanninn og aðra útlendinga eftir aðra um hvað þeir segja. Hann les hér upp alls konar óhróður eftir hina og þessa útlendinga um þetta fyrirtæki og tekur það sem sannleika sem eigi að gilda í þessum málum. Hann treystir þessum útlendingum, en hann treystir ekki íslendingum. Hann treystir ekki þeim íslendingum sem hafa skoðað þessi mál og hafa látið í ljós álit sitt á því, en það eru margir íslenskir sérfræðingar. Hann treystir því ekki heldur, að Heilbrigðiseftirlit ríkisins og aðrir þeir aðilar, sem munu setja reglur um mengunarvarnir, skilyrði fyrir rekstri fyrirtækisins, líti eftir því að því sé framfylgt. Þeim treystir hv. þm. ekki Hann setur allt sitt traust á útlendinga sem hafa skrifað óhróður um þetta fyrirtæki. Mér finnst þessi ummæli og þessi afstaða bera vott um litla þjóðerniskennd og harla lítið stolt fyrir þjóð sína. Um leið gleymir hv. þm. því að það, sem hér er fjallað um, er fyrirtæki þar sem íslendingar eiga meiri hl. í stjórn, — fyrirtæki sem er háð íslenskri lögsögu og löggjöf, heilbrigðiseftirliti og öllum þeim reglum sem lög og reglugerðir um þau mál setja. Það er harla leitt, þegar alþm. haga áróðri sínum og málflutningi í stórmálum þannig að þeir búa sér til forsendur, oftast falskar forsendur, eins og þessi hv. þm. gerir í þessu máli, og síðan er alltaf byggt á þessari fölsku forsendu, haldin ræða eftir ræðu, skrifuð grein eftir grein, alltaf haldið þessu sama fram, þó að grundvöllurinn sé jafnótraustur og hann er.

Í hinni ítarlegu ræðu hv. 2. þm. Austf. kom fram ýmislegt af því sama sem formaður Alþb. hélt fram í fyrradag í hv. Ed. En þau atriði eru í fyrsta lagi, að rafmagnsverðið sé óhagstætt, þannig að í rauninni sé samið um verð fyrir raforkuna sem sé langt undir kostnaðarverði, eins og hv. þm. Ragnar Arnalds, formaður Alþb. orðaði það, langt undir kostnaðarverði, þannig að íslendingar þurfi að borga stórfé með verksmiðjunni af þeim orsökum. Hv. 2. þm, Austf. var miklu orðvarari í þessu efni, en taldi að það orkuverð, sem ætti að greiða, lægi við kostnaðarverð og vel hugsanlegt að það yrði undir raunverulegu kostnaðarverði. Þetta mál liggur nú raunverulega þannig fyrir, að kostnaðarverð á forgangsorku frá Sigölduvirkjun er í útreikningum Landsvirkjunar áætlað 1.40 kr. á kwst. En samkv. samningsdrögunum við járnblendiverksmiðjuna á hún að greiða 1.42 kr. fyrir kwst. fyrstu 2 árin. Eftir það hækkar verðið, og eins og kunnugt er má endurskoða verðið á fjögurra ára fresti. Verðið á forgangsorkunni er því og verður hærra en kostnaðarverðið.

En varðandi afgangsorkuna mun Landsvirkjun í sínum útreikningum hafa miðað við 7.5 eyri á kwst., sem er þó vitað að er mjög ríflega áætlað. Í rauninni er kostnaður við afgangsorkuna miklu minni, lægri en þessi upphæð. Viðhaldskostnaður vegna aukinnar notkunar á vélaafli vegna þessarar auknu orkusölu er mjög óverulegur, þannig að í rauninni má segja, eins og einn verkfræðingur Landsvirkjunar hefur komist að orði í bréfi til mín, að sala á afgangsorku sé í rauninni hreinn gróði fyrir Landsvirkjun. En jafnvel þótt reiknað sé með 7.5 eyri sem kostnaðarverði á afgangsorku, þá er þess að gæta að í samningsdrögunum er einmitt gert ráð fyrir 7.5 eyri fyrir kwst. afgangsorku í byrjun, en verðið hækkar verulega, þannig að eftir 6 ár er það komið upp í 36 aura eða hefur nær fimmfaldast. Það er því ljóst að salan á afgangsorkunni er ákaflega hagstæð og færir Landsvirkjun miklar tekjur.

Í ræðu formanns Alþb., og að nokkru leyti í ræðu hv. 2. þm. Austf., kom fram verulegur misskilningur varðandi afgangsorkuna um það að í rauninni væri afgangsorkan a. m. k. að helmingi til jafngildi forgangsorku. Hv. þm. Ragnar Arnalds mun hafa orðað það þannig að Landsvirkjun skuldbindi sig til að afhenda 50% af afgangsorku á einstöku ári og þess vegna sé sú orka forgangsorka. Nú er hér um grundvallarmisskilning að ræða því að afhending afgangsorku verður auðvitað látin fara fram á þeim tíma árs þegar nægileg orka, mun meiri orka er í kerfinu en á mestu nýtingartímum. Það þýðir, að afgangsorka yrði aðallega seld yfir sumarmánuðina. Samkv. samningum væri jafnvel heimilt, ef Landsvirkjun teldi það æskilegt eða nauðsynlegt, að afhenda enga afgangsorku t. d. í 6 mánuði og láta verksmiðjuna fá þessa umsömdu afgangsorku í aðra 6 mánuði yfir sumartímann þegar ávallt er mun meiri orka í kerfinu heldur en þörf er á til annarra nota. Það er því á misskilningi byggt að jafna þessari afgangsorku og skuldbindingu um afhendingu hennar við forgangsorku. En á þessum misskilningi, þessari röngu grunnforsendu voru allir útreikningar hv. þm. Ragnar Arnalds byggðir sem nú hafa verið birtir í blaði að nokkru leyti.

Varðandi svo þriðja atriðið í þessu sambandi er því haldið fram að það sé full þörf allrar þeirrar orku, sem við höfum, til húshitunar og hér sé því um það að ræða að velja milli aukinnar húshitunar á Íslandi og hins vegar sölu til járnblendiverksmiðjunnar. Þessar fullyrðingar eru einnig alrangar. Hefur mjög oft í þessu máli verið vitnað í útreikninga og áætlanir Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens sem m. a. fyrrv. iðnrh. leitaði mjög oft til og vitnar oft í. Iðnn. Nd. óskaði umsagnar þessarar Verkfræðistofu um það 26. febr. s. l. hvernig þessi mál horfðu við, og niðurstaðan var sú að þó að húshitun væri efld eins og frekast væri tök á, þá væri samt sem áður nægilegt rafmagn til járnblendiverksmiðjunnar. Það segir í þessu bréfi frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens að ljóst sé að við þennan rafhitunarvöxt, sem við teljum að geti orðið, útilokar sala raforku til málmblendiverksmiðju ekki sölu raforku til húshitunar. Ég held að um þetta ætti ekki að þurfa að deila. Þarna er önnur forsenda sem sumir hv. ræðumenn gefa sér, en er röng. Hér er ekki um það að ræða að annaðhvort þurfi að tryggja rafmagn til húshitunar eða selja til járnblendiverksmiðjunnar. Það er alveg ljóst eftir áætlunum að þetta fer hvort tveggja saman þótt járnblendiverksmiðjan yrði reist og fengi sín 60–66 mw. af afli Sigölduvirkjunar, þá yrði engu að síður hægt að halda áfram af fullum krafti með húshitun.

Það er svo að lokum aðeins eitt atriði sem ég vildi hér minnast á, en það er það, að í eitt skipti enn leyfir hv. 3. þm. Reykv., Magnús Kjartansson, sér að viðhafa þær fullyrðingar að ég hafi stöðvað, eins og hann orðaði það núna, að Gunnar Thoroddsen lét verða sitt fyrsta verk sem iðnrh. að stöðva allar áætlanir um nýtingu innlendra orkugjafa og það sé ljóst, að fallið sé frá nýtingu innlendra orkugjafa af núv. ríkisstj.

Ég hef áður svarað hv. þm. og rekið þessi ósannindi ofan í hann, en hann hefur haldið áfram og notar m. a. forustugreinar Þjóðviljans, vegna þess að þær eru lesnar upp í útvarpi á morgnana, til þess að þylja þennan boðskap sinn yfir landslýðnum. Á hverju byggir hv. þm. þetta? Hann byggir það á því að í nóv. 1973 hafi hann falið Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens að framkvæma könnun á því hvernig unnt væri með sem skjótustum hætti að nýta innlenda orkugjafa í stað ollu til húshitunar og annarra þarfa. Verkfræðistofan skilaði áliti til ráðh. 14. mars 1974, hafði þá unnið að gagnasöfnun og álitsgerðum um þessi mál og skilaði ítarlegri skýrslu. Hún var lögð fyrir Alþ. sem þskj., prentuð ásamt till. frá iðnrh. Sú till. hans mun hafa átt að marka stefnu í þessum málum, um nýtingu innlendra orkugjafa, en það fór um þá stefnumörkun eins og um till. hans um stefnumörkun í raforkumálum að báðar döguðu uppi og náðu aldrei samþykki á þingi. Nú vill hv. þm. halda því fram að ég hafi stöðvað þessa áætlanagerð. Hver er sannleikurinn í því? Sannleikurinn er sá að eftir að Verkfræðistofan skilar þessari álitsgerð sinni 14. mars 1974, þá var henni ekki falið neitt frekar í því efni. Hv. þm., fyrrv. iðnrh., fól ekki Verkfræðistofunni að vinna frekar að þessu máli eftir þann tíma, enda hefur hún síðan um miðjan mars 1974 ekki skilað neinum grg. eða álitsgerðum, og í rauninni taldi hún ekki, að sér væri falið að gera slíkt. Hv. þm. var ráðh. eftir þetta í marga mánuði, þ. e. helminginn af mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, — hann er ráðh. í 51/2 mánuð eftir að þessari skýrslu er skilað, tæplega hálft ár, án þess að fela þessari Verkfræðistofu nokkrar frekari áætlanir. Ef einhver hefur stöðvað eitthvað í þessu efni þá er það iðnrh. Magnús Kjartansson. Það er furðuleg bíræfni að koma hér hvað eftir annað upp í ræðustól á Alþ. — látum vera, hvað hann skrifar í slíkt blað eins og Þjóðviljann — og halda því fram að ég hafi stöðvað þessar áætlanagerðir. Þetta eru auðvitað gersamlega staðlausir stafir. Ef einhver sök er í þessum efnum, þá er það sök Magnúsar Kjartanssonar sjálfs og einskis annars.

Hins vegar er rétt að geta þess hér af þessu tilefni að eftir stjórnarskiptin hefur að sjálfsögðu verið kostað kapps um að undirbúa hitaveitur og nýtingu jarðhita til húshitunar eftir því sem kostur hefur verið. Varðandi allan undirbúning slíkra framkvæmda var nauðsynlegt að fá aukin tæki til borunar. Við stjórnarskiptin kom í ljós að við bjuggum engan veginn nógu vel í þessum efnum sem er auðvitað grundvöllur undir nýtingu jarðhitans. Að því er snertir stórvirka gufubora kemur í ljós að það var aðeins einn gufubor til sem var sameign ríkisins og Reykjavíkurborgar og hafði verið keyptur til landsins fyrir 17–18 árum. Að vísu hafði fyrrv. iðnrh. eða Orkustofnun undirbúið útboð í nýjan stórvirkan gufubor sem reyndist tilgangslaust vegna þess að afgreiðslutími eða smíðatími á slíku tæki reyndist vera a. m. k. 2–3 ár. Eftir stjórnarskiptin var ákveðið af minni hálfu að freista þess þá þegar að festa kaup á notuðum gufubor, sem að dómi sérfræðinga væri þó vel nothæfur, það voru gerð nokkur tilboð í slíka og niðurstaðan varð sú að kaupa bor sem var um tveggja ára gamall, en í ágætu lagi. Hann er nú kominn til landsins. Hann á eftir að marka tímamót í rannsóknum á jarðhita hér á landi og nýtingu jarðhita. Hann hefur nú boranir innan skamms og í stað þess að hingað til hefur ekki verið borað meira en um eða rúma 2 km. niður í jörðina, þá getur þessi nýi gufubor borað 3 600 m niður. Þessa vil ég geta sem fyrsta atriðis, að hér var um grundvallaratriði að ræða, og þessar ákvarðanir og framkvæmdir núv. ríkisstj. eiga eftir að marka hér tímamót.

Varðandi einstakar hitaveitur má geta þess í fyrsta lagi að vitanlega er haldið áfram af fullu kappi lagningu hitaveitu í Kópavog, Garðahrepp og Hafnarfjörð, lög sett um Hitaveitu Suðurnesja og stjórn komin þar sem er að undirbúa framkvæmdir og verða þær hafnar á þessu ári. Af öðrum stöðum, þar sem hitaveitur eru í undirbúningi, má nefna bæði Akranes, Borgarnes og nágrannahéruð þar, Blönduós, stækkun hitaveitu á Sauðárkróki, Siglufjörð, Akureyri og svo hér austur í sveitum, bæði Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokkseyri, svo að ég nefni nokkra af þeim stöðum þar sem hitaveitur og undirbúningur þeirra er í fullum gangi. Einna lengst er á veg komin Hitaveita Siglufjarðar, sem ég vænti að verði hægt að byrja á nú alveg á næstunni.

Hitt er svo rétt, að mér hefur virst nauðsynlegra að reyna að framkvæma eitthvað, bæði afla tækja eins og ég gat um, og að framkvæma bæði jarðboranir og reyna að hrinda í framkvæmd nýjum hitaveitum og stækka þær sem fyrir eru, heldur en vera með sífellda tillögugerð, skýrslur og annað slíkt, en minna um framkvæmdir. Það einkenndi mjög feril fyrrv. iðnrh. og einnig það að ef eitthvað var á döfinni einhvers staðar þá var hlaupið upp í útvarp og sjónvarp og í fjölmiðla til þess að auglýsa það. Þær aðferðir hafa ekki verið viðhafðar nú, heldur lögð á það meiri áhersla að eitthvað yrði úr framkvæmdum.

Ég vildi segja þessi orð hér vegna hinna síendurteknu staðleysa frá hv. þm. og vil þó aðeins bæta því við að hv. þm. var nú svo smekklegur að halda því fram hér, að ég hefði tafið byggðalínuna eða norðurlínuna um hálft ár. Í sömu ræðu sagði þessi hv. þm., Magnús Kjartansson, að strax á árinu 1971, fyrsta ári vinstri stjórnarinnar, hefði hann lagt fram till. í ríkisstj. og hún verið samþ. um að tengja saman með raflínu Norður- og Suðurland. Mér er spurn: Fyrst hv. þm. hefur strax á árinu 1971 fengið það samþ. í ríkisstj. að leggja byggðalínu norður, hví í ósköpunum líða þá þrjú ár meðan hann er ráðh. án þess að hafist sé handa, byrjað á þessari linu? Eftir stjórnarskiptin var þetta mál allt saman tekið til rækilegrar skoðunar, orkumál Norðurlands og norðurlinan og stjórnin hafði ekki setið lengi að völdum þegar gefin voru ákveðin fyrirmæli til Rafmagnsveitna ríkisins um að hraða sem mest þessum framkvæmdum. Í fjárl. fyrir árið 1974 hafði verið gert ráð fyrir að vísu 300 millj. kr. til þessarar byggðalinu, en sú fjárveiting var að hálfu fjmrn. — ég held á fyrri hluta árs 1974 — lækkuð lítillega, hún var nefnilega lækkuð úr 300 millj. niður í 25 millj., enda fór það svo að engar framkvæmdir hófust. Það er því furðulegt að leyfa sér að koma hingað upp eftir þennan feril og ásaka mig um að hafa tafið norðurlínuna í hálft ár.

Það er enn eitt, sem fram kom í ræðu þessa sama hv. þm. Hann segir að hann hafi ráðgert, iðnrh. Magnús Kjartansson, að Hitaveitu Suðurnesja yrði lokið, hún yrði fullgerð á árinu 1976, en ég hafi hins vegar ákveðið að tefja framkvæmdina í 2 ár, þ. e. a. s. hitaveitunni ætti ekki að verða lokið fyrr en 1978. Það er auðvitað ágætt að setja fram slíkar fullyrðingar. Það minnir á það að eitt sinn bar einn ráðh. fram frv. um það að reist skyldi hús yfir Háskóla Íslands, þegar fé yrði veitt til þess í fjárl. Svo var ekkert veitt til þess í fjárl. um langan tíma, og það var ekki fyrr en mörgum árum síðar sem aðrir menn urðu til þess að gera till. um fjáröflun í þessu skyni. En auðvitað þakkaði ráðh. sér alltaf allt, það væri hans verk að hafa komið upp háskólabyggingunni.

Það er líka ágætt hjá hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni að segja að í hans ráðherratíð ákvað hann að Hitaveita Suðurnesja skyldi lokið árið 1976. En hann bara gerði ekkert til þess. Meira að segja liggur það fyrir að Orkustofnun skilaði til hans skýrslu í ársbyrjun 1973, þar sem hún taldi, að í Svartsengi væri nægileg orka fyrir Hitaveitu Suðurnesja, og mælti með því að í það yrði ráðist. Þrjú missiri liðu hjá þessum hv. þm. — eða ráðh. án þess að nokkuð væri aðhafst í því. Frv. um þetta efni var ekki lagt fram fyrr en eftir stjórnarskiptin. Jú, maður, sem hefur fyrst tafið málið í 11/2 ár, ekkert gert til þess að hrinda málinu í framkvæmd, kemur svo upp í ræðustól á Alþ. og segir: Ég hafði ráðgert að þessu yrði lokið öllu saman 1976, en núv. iðnrh. hefur ákveðið að tefja málið í tvö ár.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara út í fleiri atriði sem hér hafa fram komið þótt fullkomið tilefni væri til þess. Sérstaklega var margt í ræðu hv. 2. þm. Austf. sem væri full ástæða til þess að ræða nánar og rökræða við hv. þm., en væntanlega gefst tækifæri til þess síðar.