19.03.1975
Neðri deild: 60. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2589 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Jónas Árnason:

Hæstv. forseti. Þau orð, sem hæstv. iðnrh. lét hér falla áðan út af ræðu minni, gefa ekki tilefni til langrar svarræðu af minni hálfu. Þetta verða aðeins fáeinar setningar.

Ég hélt að ég hefði verið að gera hæstv. iðnrh. greiða með því að veita honum þessar upplýsingar um Union Carbide, — upplýsingar, sem svo sannarlega er ekki að finna í grg. með því frv. sem hér er til umr. — upplýsingar sem mér vitanlega hafa ekki verið lagðar fram af hálfu þeirra manna sem hafa fjallað um þetta mál á vegum hæstv. ráðh., engu að síður mjög nauðsynlegar upplýsingar. Það er svo sannarlega ekki vanþörf á að við íslendingar gerum okkur ljóst, þegar við erum að gera samninga við jafnvoldugan aðila og Union Carbide, hvers eðlis þessi auðhringur er.

En þetta reyndist vera misskilningur hjá mér. Ráðh. tók þetta ekki sem greiða og góðvild af minni hálfu, vanþakkaði þetta allt saman. Og eins og er að verða því miður siður íslendinga, þá tók hann upp hanskann fyrir auðhringinn, ávítaði mig fyrir óhróður um Union Carbide og skort á þjóðlegu stolti að láta ekki nægja það sem íslendingar segja okkur um þennan Union Carbide, tala við útlendinga, sem þekkja feril þessa auðhrings, fá hjá þeim upplýsingar um hvers eðlis hann er. Þetta á að vera skortur á þjóðarstolti.

Ég verð að segja alveg eins og er að ég tek ekkert mark á fullyrðingum þeirra íslendinga sem hafa fjallað um þetta mál á vegum hæstv. ráðh. Þeir hafa greinilega einblínt á vissar hliðar þessa máls sem gætu orðið brúklegar til að koma því fram sem þeir hafa alltaf verið ákveðnir í frá byrjun. Þeir hafa, að því er mér virðist, ekki staðið uppréttir í samningum sínum við þennan auðhring. Og það væri ekkert þjóðarstolt þegar maður horfir á landa sína standa í keng, að halda því þá fram að þeir gangi uppréttir.