20.03.1975
Sameinað þing: 54. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2617 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)
169. mál, nýting á áveitu- og flæðiengjum landsins
Flm. (Þórarinn Sigurjónsson) :
Herra forseti. Á þskj. 308 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um nýtingu á áveitu- og flæðiengjum landsins, sem hljóðar á þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fram fara athugun á því, hvort ekki sé unnt og tímabært að nýta betur en nú er gert áveitu- og flæðiengi landsins til fóðurframleiðslu.“
Eins og fram er tekið í grg., eru nú ekki nýtt nema að litlu leyti áveitu- og flæðiengi landsins, vegna þess að allir bændur landsins hafa nú tekið upp ræktunarbúskap, þar sem heyskapur er í flestum tilfellum fljótteknari og auðveldari með þeim vélakosti, sem nú tíðkast, heldur en á engjalöndum sem yfirleitt gefa minni uppskeru og eru erfiðari til heyskapar. Víða um land hafa mýrarnar verið þurrkaðar með því að ræsa þær fram með opnum skurðum og lokræsum. Breytist þá gróðurfar þeirra á 4–5 árum. Heilgrösin ná yfirhöndinni, en hálfgrösin, starirnar, hverfa og verða þessi lönd þá eftirsóttari af búpeningi landsmanna, en er jafnframt meiri hætta búin í kalárum. Mikið af framræstum mýrum hefur verið tekið til ræktunar á undanförnum árum og eru nú víða stór ræktunarlönd, þar sem áður voru blautar engjar. Enn eru þó stór áveitu- og flæðiengi til sem ástæða væri til að rannsókn færi fram á og þá sérstaklega með það í huga, hvort ekki væri hægt með þeirri tækni, sem nú er fyrir bendi, að nýta betur þessi lönd og fá því svarað, hvort hér sé ekki um eins gott fóður að ræða og af sumum ræktunarlöndum sem nú eru notuð til fóðuröflunar. Öll tæki til þess að nýta þessi engjalönd, þótt blaut séu, eru nú svo miklu meiri en áður hefur þekkst, að mér finnst ósennilegt að það muni valda verulegum erfiðleikum. Meðal annars er möguleiki á að losna við vatn með ýmsum hætti af mjög blautum engjum, t. d. með stórvirkum dælum ef um það væri að ræða að ekki fengist frárennsli á yfirborðsvatni meðan á heyskap stæði. Vegi er auðveldara að leggja en áður var og sláttutæki eru öll margfalt fullkomnari, þó að ekki hafi verið kannað svo að ég viti til, hvaða tæki og aðferðir henti best á mjög blautum engjum. Belti, sem notuð eru í snjó, gætu komið til greina á dráttarvélar, þar sem engjar eru mjög fúnar og blautar. Væri mjög nauðsynlegt að þessi athugun gæti orðið sem viðtækust, t. d. að efnainnihald og fóðurgildi yrði rannsakað á ýmsum þroskastigum og yrðu til athugunar algengustu starategundirnar og sérstaklega t. d. gulstör og mýrastör sem sennilega eru líka bestu fóðurgrösin. Einnig mundi það gefa þessari athugun meira gildi ef hægt væri að kanna hvort það komi til greina að hraðþurrka þessar starategundir, þar sem þá væri hægara að geyma og dreifa fóðrinu um landið eftir því sem á þyrfti að halda.
Vitað er að allt fram að árinu 1932 var meiri hl. heyöflunar landsmanna tekinn af óræktuðu landi og sennilega að stærstum hluta á engjalöndum. Fyrstu heyöflunarskýrslur, sem ég veit um, eru frá árinu 1882 og var þá engjaheyið 2/3 hlutar heymagnsins. Árið 1932 er það orðið rúmlega helmingur af heymagninu sem aflað er á landinn, en 40 árum seinna eða árið 1972 er það ekki nema 0,5% af heyskapnum. Hefur því stöðugt dregið úr fóðuröflun af engjalöndum og þá sérstaklega eftir að tilbúinn áburður kom á markaðinn og stórvirkar vélar og tæki voru tekin í þágu ræktunar og heyöflunar. Nú, þegar við ráðum yfir stöðugt betri og meiri vélakosti til þess að nýta engjalöndin og tilbúinn áburður hefur farið stöðugt hækkandi í verði og aldrei meira en nú, er fyllilega ástæða til að þessi athugun fari fram sem hér er lagt til með flutningi þessarar þáltill., svo og vegna þess að ekki hefur farið fram, svo að ég viti, gagngerð athugun á því, hvort þessar harðgerðu fóðurjurtir séu ekki samkeppnisfærar við aðra fóðurframleiðslu með þeirri tækni sem við nú ráðum yfir. Jafnframt því, að gerð væri athugun á efnainnihaldi fóðurs af engjalöndum væri æskilegt að fram færi athugun á því, hvort raunhæft væri að nota einhverja tegund af tilbúnum áburði til þess að auka uppskeruna, t. d. með því að blanda honum í áveituvatn eða dreifa honum á annan hátt.
Telja má víst að áveitur séu elstu jarðræktarframkvæmdir sem þekktar eru, eða svo hefur verið talið. Hér á landi munu áveitur hafa verið stundaðar síðan á landnámsöld og þá aðallega til frjóvgunar, þó að eitthvað hafi þær verið notaðar til vökvunar. Ekki er mér kunnugt um að hér á landi hafi farið fram vísindalegar áveitutilraunir. Má það þó merkilegt heita, þar sem þjóðin hefur varið miklu fé í áveitufyrirtæki á liðnum árum. En þrátt fyrir vankunnáttu okkar um hagnýtingu áveituvatns hafa áveitur þó um aldirnar verið hinar traustustu stoðir landbúnaðarins, þar sem þær hafa verið notaðar. Mest hefur verið veitt á mýrarlönd og flóa og hefur uppskeran jafnan stóraukist við áveiturnar og mun algengast að fengist hafa 10–30 hestburðir af hektara en þó í sumum tilfellum meira.
Fyrstu áveiturnar munu hafa verið einstaklingsfyrirtæki og mun hugur manna hafa verið meiri fyrir áveituframkvæmdum en túnrækt allt fram á 20. öld og hafa áveitur tíðkast um allt land meira og minna. Stærsta áveita landsins var Flóaáveitan, en á henni var byrjað 1922 og var veitt á Flóann í fyrsta sinn 1927 og var hún þá talin stærsta áveita í Evrópu norðan Alpafjalla. Lengd skurða í Flóaáveitunni mun hafa verið um 300 km. Flóðgarðar voru um 800 km og ábúendur, sem bjuggu við þetta áveitusvæði, voru um 200. Áveitan á Flóann jók uppskeruna mjög mikið og varð til þess að búskapurinn tók miklum framförum. Gróðurfarið tók miklum breytingum. Mýrastörin og gulstörin voru algengastar og reyndust að flestra dómi gott fóður og ódýrt þangað til þurrkun mýranna og tilbúinn áburður komu til sögunnar. Eftir það hefur stöðugt dregið úr nýtingu áveitunnar. Uppskeran á áveitusvæðinu varð árvissari og höfðu vetrarhörkur og vorkuldar lítil áhrif á uppskeruna. Nú er Flóaáveitan lítið sem ekkert notuð til áveitu, en skurðakerfið meira og minna notað til framræslu, en í Ölfusi mun enn þá vera heyjað í flestum árum eitthvað á engjum, sem veitt hefur verið á, og eflaust víða um landið. Tel ég að sjálfsagt sé að nú þegar verði undirbúin sem víðtækust athugun á þessari fóðuröflunarleið svo að úr því fáist skorið, hvort æskilegt sé að auka aftur þessa fóðurframleiðslu. Með flutningi till. til þál. um landgræðslu og gróðurverndaráætlun til minningar um 1100 ára búsetu þjóðarinnar í landinu, sem samþ. var á 95. löggjafarþingi, er gert ráð fyrir að auknar verði rannsóknir og bætt landnýting. Tel ég að þessi athugun gangi í sömu átt og er mjög æskilegt að hún geti farið fram sem allra fyrst.
Herra forseti. Að endingu þetta: Við búum í harðbýlu landi og stundum hefur veðráttan valdið okkur miklum erfiðleikum svo að þjóðin og búpeningur landsmanna hafa goldið verulegt afhroð þegar verst hefur gengið. En sennilega hafa áveitur og flæðiengi alltaf stutt að lífi dýra og manna í þessu landi og sennilega gæti svo orðið enn um langa framtíð, og með það í huga er þessi þál. flutt hér.
Herra forseti. Ég vil svo ljúka máli mínu og gera það að till. minni, að að þessari umr. lokinni verði málinu vísað til atvmn.