20.03.1975
Sameinað þing: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2631 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)
Almennar stjórnmálaumræður
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Andstæðingar ríkisstj. halda því fram dag eftir dag að af ásettu ráði og með illum huga leitist stjórnin við að skerða kjör alls þorra landsmanna, eins og síðasti ræðumaður hélt fram hér áðan. Þetta er sennilegur áróður eða hitt þó heldur, og til þess eins fallinn að leiða stjórnmálaumr. inn á tilgangslausar brautir.
Hér er ekki aðeins um að ræða alvarlega ásökun á ríkisstj., heldur fyrst og fremst móðgun við almenning, vanmat á því að landsmenn búi yfir heilbrigðri skynsemi og beiti henni. Hverjum dettur í alvöru í hug að stjórnvöld í lýðræðislandi skerði viljandi lífskjör almennings sem þau hljóta að leita stuðnings hjá í næstu kosningum? Stjórnmálamenn freistast hins vegar áreiðanlega oft til, eins og dæmin sanna, að fegra myndina fyrir kjósendum og láta eftir óskhyggju sinni og almennings um það, sem unnt er að gera á hverjum tíma, án þess að forsendur séu til efnda. Þannig er ótvírætt meiri hætta á því, að stjórnmálamenn lofi upp í ermina og leyni almenning sannleikanum ef hann er óþægilegur, en að þeir beiti almenning, kjósendur sína, harðræðum.
Ríkisstj. berst nú við þá sem vilja ekki horfast í augu við staðreyndir efnahagslífsins, vilja ekki sætta sig við að gæði heimsins eru takmörkuð og fjármunum er ekki unnt að eyða til lengdar án þess að þeirra sé aflað. Fámenni okkar íslendinga ætti að auðvelda okkur, fremur en öðrum, að skilja að ríkisstj. og Alþ. geta ekki gert annað í þágu fólksins í landinu en fólkið sjálft verður að greiða fyrir að lokum.
Sá grunur læðist óneitanlega að manni, þegar því er haldið fram, að almenningur hafi misst traust og trú á stjórnmálamönnum, að það eigi rætur að rekja til þess að menn hafi staðið stjórnmálamenn að því að leyna raunverulegu ástandi þjóðarbúsins. Nú er svo komið að ekki er unnt, hvorki fyrir almenning né stjórnmálamenn að neita þeim staðreyndum sem við blasa í efnahagsmálum. Þegar svo er komið er eðlilegt að trú manna dvíni á þeim stjórnmálamönnum sem enn halda því fram, að unnt sé að halda veislu endalaust, og þora ekki að viðurkenna sannleikann.
Í byrjun síðasta árs bjuggu íslendingar við bestu viðskiptakjör sem saga okkar greinir frá. Engu að síður var öllum ljóst, eftir að kjarasamningar voru þá gerðir, að stefnt var til meiri kaupmáttar- og tilkostnaðarhækkana innanlands, en jafnvel þau góðu viðskiptakjör gátu undir staðið, hvað þá heldur ef tekið var tillit til hækkandi olíuverðs í heiminum. Þess vegna ákvað fyrrv. ríkisstj. að taka kaupgjaldsvísitöluna úr sambandi og greiða skyldi kaup samkv. óbreyttri kaupgjaldsvísitölu miðað við 1. mars 1974. Þess vegna og vegna versnandi viðskiptakjara þegar leið á síðasta ár voru allir stjórnmálaflokkar sammála um í stjórnarmyndunarviðræðum að þörf væri til viðbótar róttækra ráðstafana í efnahagsmálum sem hlytu að skerða óraunhæfan sýndarkaupmátt launa eins og hann var fyrst eftir kjarasamningana.
Sá vandi, sem stjórnmálamenn hafa staðið frammi fyrir frá því á liðnu ári, er að laga kjör almennings að versnandi viðskiptakjörum þjóðarinnar. Við gerð þeirra efnahagsráðstafana, sem nýmynduð ríkisstj. greip til á liðnu hausti, var gengið út frá ákveðnum forsendum um getu þjóðarbúsins, en frá þeim tíma hafa viðskiptakjörin versnað um 14–15% og frá því endanlega var gengið frá fjárl. skömmu fyrir jól hafa viðskiptakjörin versnað um 8–14%. Á aðeins einu ári hafa viðskiptakjörin versnað um 30%.
Nauðsynlegt er að hafa þessar staðreyndir í huga þegar rætt er um efnahagsvandann og kjaramálin almennt. Það, sem talið var nægilegt við stjórnarmyndunina s. l. haust, hefur ekki reynst fullnægjandi vegna þessarar neikvæðu þróunar.
Tæmandi má telja þau úrræði sem stjórnvöld hafa til lausnar þeim vanda sem við hefur verið að glíma á síðasta og þessu ári. Í fyrsta lagi gátu menn reynt að færa niður allt verðlag og kaupgjald í landinu. Í öðru lagi var sá kostur að leggja almenna skatta á landsmenn og verja tekjum af þeim í styrkveitingar til atvinnuveganna. Í þriðja lagi var sá kostur að auka tekjur atvinnuveganna í krónutölu íslensks gjaldmiðils með því að lækka gengi ísl. krónunnar gagnvart erlendum gjaldeyri. Önnur ráð en þessi þrjú er ekki um að ræða þegar við lendum í slíkri stöðu.
Fyrsta leiðin felst að vissu leyti í því, að treysta á lækkandi verðlag í kjölfar kaupgjaldslækkunar. Sannleikurinn er þó sá, að ég held að allir séu sammála um að þessi leið er ekki fær. Launþegasamtökin geta ekki gengist inn á lækkun kaupgjalds. Þar að auki er það álit þeirra, sem gleggst vita, staðfest af reynslu, að ekki er unnt að fylgja fram kröfunni um lækkað verðlag í kjölfar lækkandi kaupgjalds á nokkurn raunhæfan hátt.
Önnur leiðin, styrkja- og uppbótaleiðin svonefnda, hefur oft verið reynd hér á landi og hefur ávallt verið árangurslaus. Styrkja- og haftakerfið, sem þessi leið byggir á, hefur ávallt leitt til gengislækkunar að lokum, og þetta kerfi mismunar atvinnuvegum og verður til þess að framleiðsluþættirnir: vinnuafl, fjármagn og atvinnutæki, nýtast ekki á hagkvæmastan hátt. Í raun og veru er þess vegna ekki um annað að ræða, þegar gengi ísl. gjaldmiðils er fallið, en að skrá hann rétt, ef við viljum koma í veg fyrir vöruskort, skömmtun og höft í landinu og tryggja að atvinnuvegirnir séu reknir af fullum krafti.
Ef við viljum tryggja fulla atvinnu og koma í veg fyrir atvinnuleysi er einnig þýðingarlaust til lengdar að treysta á það að opinberir aðilar, hvort heldur ríki eða sveitarfélög, geti með einhvers konar atvinnubótavinnu eða aukningu opinberra framkvæmda tryggt atvinnuöryggi. Hjól atvinnulífsins sjálfs verða að snúast af fullum krafti. Þess vegna verða atvinnuvegirnir sjálfir að bera svo mikið úr býtum að þeir séu reknir hallalaust.
Sagt er að ríkisstj. hugsi meira um atvinnutækin og forstjórana en fólkið í landinu. En atvinnuvegirnir verða engu síður en aðrir að búa við lakari hluta á þessu ári en á velgengnistímum. Kvartanir forstjóranna bera um það vitni.
En fólkið í Neskaupstað komst að raun um í snjóflóðunum hve mikils virði atvinnufyrirtækin eru til að gera vinnu fólksins verðmætari. Og íslendingar almennt gera sér grein fyrir því að það er í þágu fólksins sjálfs að atvinnuvegirnir beri sig. Þjóðin getur ekki eytt meiru á hverjum tíma en afrakstur atvinnuveganna segir til um. Það er því fyrst og fremst hagur þeirra sem skammtar mönnum lífskjör og lífskjörin geta ekki orðið betri en atvinnuvegirnir þola til lengdar. Þetta er staðreynd, hvort sem um ríkis-, bæjar-, samvinnu- eða einkarekstur er að ræða.
Gengislækkun hefur, eins og niðurfærsluleiðin og uppbótaleiðin, ýmsa ókosti. Hún dregur úr vilja manna til sparnaðar, hún er ekki til þess fallin að draga úr verðbólgunni og framkvæmd hennar verður til þess að hagur ýmissa atvinnufyrirtækja, einkum í verslun, versnar.
Þegar til gengisbreytingar er gripið er nauðsynlegt jafnframt að gera aðrar ráðstafanir samhliða til að vega á móti þessum annmörkum og tryggja tilætlaðan árangur. Ríkisstj. hefur nú lagt fram frv., sem hefur að geyma ráðstafanir í því skyni. Það er flutt til þess að gengisbreytingin komi að haldi við að tryggja jafnvægi í viðskiptum við útlönd og samkeppnisstöðu íslenskra atvinnuvega. Frv. er ætlað að styðja gengisbreytinguna með aðhaldi í fjármálum ríkisins, peninga- og lánamálum og hófsemi í kjaraákvörðunum. Auk þeirra hliðarráðstafana, sem frv. gerir ráð fyrir, hefur ríkisstj. í kjölfar gengisbreytingarinnar í febr. hækkað innflutningsgjald af bifreiðum, hækkað áfengi og tóbak, söluskatt um eitt stig til að standa straum af kostnaði við bætur til Neskaupstaðar vegna náttúruhamfaranna þar, stöðvað útlánaaukningu banka umfram sparnað, og eftir páska verður lagt fram á Alþ. frv. sem hefur að geyma ákvæði um tekjuskiptingu innan sjávarútvegsins. En með öllum þessum heildstæðu aðgerðum er ríkisstj. að treysta grundvöll efnahagslífsins.
Skv. frv. er veitt heimild til þess að lækka fjárveitingar á fjárl. 1915 og útgjöld skv. sérstökum lögum um allt að 3 500 millj. kr. eða sem nemur 71/2% af heildarútgjöldum fjárl. í samráði við og með samþykki fjvn. Alþ. Því verða ekki raktar hér beinar till. um lækkun fjárveitinga. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að stemma stigu við því að áhrif gengisbreytingarinnar komi fram sem útgjaldaauki hjá ríkissjóði. Jafnframt verður leitast við að koma við frekari sparnaði í rekstri ríkisins á öllum sviðum.
Samdráttur þessi í útgjaldaáformum ríkisins er nauðsynlegur vegna þess að rýrnun viðskiptakjaranna um 8–10% frá því fjárl. voru samþ. dregur úr tekjum, svo og er gert ráð fyrir að minni eftirspurn innanlands í kjölfar gengisbreytingar og gjaldahækkana minnki innflutningsmagn og þar með tekjur þær sem ríkissjóður hefur af innflutningi, enda er það nauðsynlegt ef bæta á gjaldeyrisstöðu þjóðarbúsins.
Þá er nauðsynlegt að skapa svigrúm fyrir skattalækkunum, beinna og óbeinna skatta, til að greiða fyrir kjarasamningum og fyrirsjáanlegum útgjöldum til að standa undir kostnaði vegna áburðarverðhækkana og ábyrgða á afborgunum togaralána. Loks er samdráttur í ríkisútgjaldaáformum nauðsynlegur til að geta lagt aukna áherslu á ýmsar framkvæmdir á sviði orkumála.
Í frv. því, sem nú hefur verið lagt fram, er gert ráð fyrir lækkun tekjuskatts einstaklinga við álagningu 1975 um 850–900 millj. kr. og lækkun útsvars um 360 millj. kr. Einnig eru fjölskyldubætur almannatryggingakerfisins og aðrar barnaívilnanir ríkisins sameinaðar í skattaafslátt sem í frv. er nefndur barnabætur og greiðast út séu þær hærri en álögð gjöld. Þar með er stigið fyrsta skrefið til sameiningar tryggingabótakerfis og skattakerfis. Er þetta í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstj. þar sem segir: „Stefnt verði að sameiningu algengustu bóta almannatrygginga og tekjuskattsins, er tryggi þjóðfélagsþegnunum lágmarkstekjur og horfi til skýrari áhrifa á tekjuskiptinguna í réttlætisátt og aukinnar hagkvæmni.“ Og enn fremur, að „á almennar launatekjur skal ekki lagður tekjuskattur.“ Áfram verður haldið að vinna að framkvæmd stefnuyfirlýsingar ríkisstj. í skattamálum eins og hæstv. fjmrh. mun víkja að seinna í kvöld.
Breytingin á skattalögunum miðar að því, eins og ráðstafanirnar í heild, að bæta einkum stöðu þeirra sem lægst hafa launin.
Jafnframt lækkun á beinum sköttum hefur frv. að geyma heimild til lækkunar á söluskatti og afnáms tolla af nokkrum mikilvægum matvælum og hráefnum til matvælagerðar. Með beitingu heimildarákvæðanna mætti lækka óbeina skattheimtu ríkisins um 600–800 millj. kr. á heilu ári.
Ef litið er á lækkun beinna skatta, útsvara og óbeinna skatta í heild er lögbundið eða veitt heimild til að lækka þessa skattheimtu um tvo milljarða eða þar um bil. Ríkisstj. hefur í huga að beita heimildinni til lækkunar á óbeinum sköttum ef það verður til þess að stuðla að því að samningar náist milli aðila vinnumarkaðarins um lausn kjaramálanna.
Frv. hefur að geyma ákvæði um 5% skyldusparnað þeirra er höfðu tekjur í hærra lagi á árinn 1974. Með skyldusparnaðinum er stefnt að því að jafna sem sanngjarnast þeim byrðum, sem þjóðin í heild hlýtur nú að taka á sig, um leið og aflað er innlends fjármagns til þess að standa undir nauðsynlegum framkvæmdum ríkisins, þ. á m., í orkumálum. Undanþegnir spariskyldu eru þeir sem orðnir eru 67 ára á árinu 1974. Lagt er til að hjón með tvö börn greiði t. d. 5% af tekjum sínum umfram 1800 þús. kr. brúttótekjur á s. l. ári í skyldusparnað. Áætlað er að 5% skyldusparnaður skv. þessari grg. veiti ríkissjóði 200–250 millj. kr. tekjur á árinu. Skyldusparnaðurinn er verðtryggður og bundinn til tveggja ára.
Í fjárl. fyrir árið 1975 er áætlað að varið verði til flugmálastjórnar, rekstrar og viðhalds flugvalla svo og til fjárfestingar í flugvöllum um 440 millj. kr. úr ríkissjóði umfram þær tekjur sem flugvallarekstur ríkisins skilar ríkissjóði. Æskilegt er, að hver rekstrareining innan ríkiskerfisins standi undir sér að svo miklu leyti sem þess er kostur. Í samræmi við það hefur verið ákveðið að leggja á sérstakt flugvallargjald sem nemi 2 500 kr. fyrir hvern einstakling, verði gjaldið fellt inn í verð hvers farseðils. Með þessu gjaldi ættu tekjur ríkissjóðs að aukast um 225 millj. kr. Auk þess er ráðgert að hækka lendingargjöld á Keflavikurflugvelli sem skilað gæti ríkissjóði 70–75 millj. kr. á ári.
Í þessu frv. er lögð áhersla á það að útgjaldaáform ríkisins séu í samræmi við getu þjóðarheildarinnar og verði ekki til þess að skapa óeðlilega eftirspurn eftir erlendum gjaldeyri, heldur miklu fremur til þess að skapa svigrúm svo að myndun gjaldeyrisvarasjóðs geti á ný átt sér stað.
Með sama hætti er í þessu frv. skapaður ákveðinn rammi fyrir útlánaáform fjárfestingarlánasjóða og gerð grein fyrir hvernig fjármagna skuli útlánaáformin. Það verður að segjast eins og er að þessi áform um útlán eru og hafa verið hærri en geta sjóðanna leyfir. Í áætlunum ríkisstj. er gert ráð fyrir því, að íbúðarlánasjóðirnir og sjóðir atvinnuveganna hafi til útiána á árinu 1975 31% hærri upphæð en á síðasta ári. Innan þessa ramma verðum við að leitast við að halda okkur.
Í frv. er sett það hámark á erlendar lántökur til ríkisframkvæmda og fjárfestingarlánasjóða að þær nemi 3 000–3 500 millj. kr., en að þeirri lántöku meðtalinni er nú áætlað að nettóaukning erlendra skulda þjóðarbúsins á árinu muni nema um 12 þús. millj. kr. Við þurfum okkar sjálfra vegna að setja okkur ákveðin takmörk í erlendum lántökum vegna þess að greiðslubyrði afborgana og vaxta af lánum vex óðfluga og getur orðið okkur fjötur um fót í framtíðinni. Óhóf í þessum efnum er einnig til þess fallið að draga úr lánstrausti okkar erlendis og takmörk eru á lánsfjáröflunarmöguleikunum. Með frv. er sú stefna mörkuð að nauðsynlegt sé að draga úr almennum framkvæmdum hjá opinberum aðilum ef orkuframkvæmdir eigi að hafa forgang.
Að svo miklu leyti sem samþykkt frv. hefur í för með sér samdráttaraðgerðir í útgjaldaáformum ríkis og lánastofnana verður að fylgjast nákvæmlega með atvinnuástandinu á hverjum tíma og slaka á ef einhver hætta er á atvinnuleysi.
Enginn neitar þeirri staðreynd að kjaraskerðing hefur verið mikil frá því 1. mars á síðasta ári þegar vísitalan hætti að mæla launþegum sjálfkrafa kauphækkanir. Sagt er að kaupgjald væri nú 46% hærra í krónutölu ef kaupgjaldsvísitalan hefði ekki verið tekin úr sambandi og ekki er tekið tillit til launajöfnunarbóta. Hér er þó um algerlega óraunhæfan samanburð að ræða eins og best sést á því að allir flokkar á Alþ. hafa víst viðurkennt, að nauðsynlegt var eða beinlínis staðið að því, að kaupgjaldsvísitalan var tekin úr sambandi um lengri eða skemmri tíma.
Það breytir hins vegar ekki því að þeirri spurningu þarf nú að svara hvernig unnt er að draga sem mest úr kjaraskerðingu. Stefna ríkisstj. hefur verið sú að reyna að auka tekjur hinna lægst launuðu í krónutölu með launajöfnunarbótum og bæta hag þeirra nú með skattalækkunum. Um launajöfnunarbætur voru selt lög á síðasta hausti og þar mælt fyrir um skyldu stjórnvalda til að endurskoða þau lög ef framfærsluvísítalan færi yfir 358 stig. Ríkisstj. hafði tilbúnar till. um endurskoðun launajöfnunarbótanna, en þær till. hafa ekki verið lagðar fram vegna óska aðila vinnumarkaðarins sem vilja reyna að ná samkomulagi sín á milli um launahækkanir. Nú standa þeir samningar yfir. Allir hljóta að vona að þeir hafi farsælan endi þótt e. t. v. verði ekki samið til langs tíma. Sé litið til þess hvað hinir lægst launuðu geta fengið í sinn hlut, þá er talið að launajöfnunarbæturnar frá því í haust nemi um 9% kauphækkun. Ef skattalagabreytingarnar, sem nú eru ráðgerðar, ná fram að ganga jafngilda þær um 7% kauphækkun sé miðað við tekjulágar barnafjölskyldur og til viðbótar kemur svo það sem vonandi semst um. Þá má tilgreina 3% grunnkaupshækkunina frá 1. des. Að öllu þessu samanlögðu má gera ráð fyrir að menn með lægst laun geli fengið nokkra hækkun launatekna sinna.
Þá er ljóst að endurskoða verður elli- og örorkulífeyri og hækka lágmarkstekjutryggingu elli- og örorkulífeyris því að enginn gengur þess dulinn að þeir, sem við þær tekjur búa, standa einna verst að vígi.
Að öllu þessu er nauðsynlegt að hyggja um leið og hafa verður í huga að meiru verður ekki skipt en aflað er.
Herra forseti. Sá tími þarf að koma að íslenskir stjórnmálamenn og íslenska þjóðin geti einbeitt huga sínum og kröftum að langvinnari framtíðarverkefnum án þess að verða að láta allt snúast um lausn vandamála líðandi stundar frá degi til dags. Ég vil líkja stöðu okkar nú við skip í skerjagarði sem verður að stýra fram hjá einu skeri án þess að steyta á því næsta. Úrlausnarefnin eru mörg og viðkvæm, ekki síst við lausn kjaramálanna. Í þeim efnum verður að skírskota til skilnings og samhugar þjóðarinnar allrar.
Forgangsverkefnið er að tryggja fulla atvinnu og atvinnuöryggi og treysta þar með grundvöll þeirra góðu lífskjara sem þjóðin hefur búið við á undanförnum árum. Til þess að ná þessu markmiði, jafnframt því sem hamlað er gegn verðbólgunni, verðum við að halda í við okkur, sniða okkur stakk eftir vexti. Hlutskipti okkar er gott samanborið við flestar þjóðir aðrar. Þrátt fyrir andstreymi í efnahagsmálum er hér ekkert atvinnuleysi, ólíkt því sem er í ýmsum nálægum löndum. Mikil óvissa ríkir í efnahagsmálum heimsins um þessar mundir. Við ættum því að keppa að því allir sem einn að gæta í hvívetna þeirrar hófsemi sem er forsenda atvinnuöryggis. Hverju mannsbarni ætti að vera ljóst að þegar tekjur þjóðarinnar í heild minnka vegna versnandi viðskiptakjara eru ekki aðstæður til þess að ná raunverulegum kjarabótum. Sameiginleg áföll verðum við að bera sem heild og jafna þeim niður af félagslegri sanngirni.
Á það mun reyna nú hvort við verðum þess umkomin að snúast við þessum vanda af viti. Það liggur í eðli okkar þjóðskipulags að skilningur og stuðningur almennings og samtaka almennings er forsenda árangurs í þessum efnum. Ef við látum ekki sundurlyndi spilla fyrir okkur, stöndum saman og höldum friðinn, þá munum við sigrast fljótt á erfiðleikunum, komast út úr skerjagarðinum. Þá mun hagur okkar fljótt vænkast og hugsjónir rætast.