20.03.1975
Sameinað þing: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2637 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)
Almennar stjórnmálaumræður
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Góðir hlustendur. „Sýnum í verki að þrátt fyrir smæð þjóðarinnar kunnum við að hugsa stórt.“ Þannig mælti einn af forsrh. okkar fyrir allmörgum árum enda þótt við ættum þá við mikla efnahagsörðugleika að stríða. Þannig verða forustumenn íslensku þjóðarinnar jafnan að hugsa bæði á feitu árunum og hinum mögru.
Því miður verður ekki sagt að núv. ríkisstj. hafi lifað eftir þessu heilræði. Í nágrannalöndum okkar ýmsum þykir kurteisi að ætla nýrri stjórn svo sem hundrað daga til að ná valdi á verkefnum sínum og sýna fullmótaða stefnu í þjóðarforustu. Ríkisstjórn íhalds og framsóknar hefur nú setið á valdastólum tvisvar sinnum 100 daga og nokkru betur og ferill hennar hefur verið samfellt og óskipulagt undanhald undan erfiðleikum efnahagslífsins.
Það voru einhver fyrstu orð forsrh. að stjórnin mundi beita sér fyrir tímabundnum ráðstöfunum í efnahagsmálum, eins og hann orðaði það. Við þetta hefur vissulega verið staðið. En þjóðin hefur hrakist úr hverju víginu á fætur öðru. Gengi krónunnar hefur fallið, kjör heimilanna hafa versnað með hverri viku við bundið kaupgjald en 60–60% verðbólgu á ársgrundvelli.
Rekstur fyrirtækja og þar með atvinna býr við sífellda óvissu. Gjaldeyrissjóðir hafa tæmst og þjóðin er byrjuð að glata lánstrausti sínu erlendis. Ríkisstj. hefur búið til hvern pakkann af bráðabirgðaráðstöfunum á fætur öðrum, en henni hefur aldrei tekist að spyrna við fótum, hvað þá hefja gagnsókn, ekki einu sinni að stöðva undanhaldið.
Ríkisstj.fékk í vöggugjöf þá aðvörun frá sérfróðum ráðgjöfum sínum að í efnahagsmálum ríkti þá þegar hættuástand. Þeim er ekki tamt að nota svo stór orð. En ríkisstj. heyrði ekki eða skildi ekki. Hinar tímabundnu ráðstafanir hafa til þessa allar reynst vera of litlar og koma of seint. Verðbólgan s. l. ár hefur gert íslendinga að viðundri meðal þjóðanna í þessum hluta heims. Samt sem áður var í fyrra haldið áfram taumlausum austri á lánsfé sem að verulegu leyti var notað til eyðslu, bílakaupa, ferðalaga og fjárfestingar sem ekki verður kölluð annað en verðbólgubrask. Nú fyrst hafa verið settar harkalegar bremsur á útlán bankanna. Af hverju notaði ríkisstj. ekki hagstjórnartæki eins og Seðlabankann til að spyrna þarna við fæti þegar í fyrra? Hefði ekki verið skynsamlegra að stíga fyrr á bremsuna og hemla hægar, en snarstansa ekki útlán eins og nú hefur verið gert? Þegar svo harkalega er að farið sem nú er gert í bankakerfinu skapast þegar sú hætta að fyrirtækin komist í alger fjárþrot, neyðist til að draga saman seglin og atvinnuleysi geti á skömmum tíma komið til sögunnar.
Lítum á gjaldeyrismálin. Þau eru langalvarlegasti þátturinn í efnahagsvanda þjóðarinnar af því að þau snúa að umheiminum, á þeim byggist traust þjóðarinnar og efnahagslegt sjálfstæði hennar. Þær ráðstafanir, sem gerðar voru, gengislækkanir og fjárbinding, reyndust langt frá því að nægja á s. l. ári. Það þurfti að takmarka gjaldeyriseyðslu á mun róttækari hátt til þess að hindra að gjaldeyrissjóðurinn tæmdist, eins og gerðist í upphafi þessa árs, og gjaldeyrisbankarnir kæmust í 2000 millj. kr. yfirdrátt erlendis eins og nú mun vera. Ísland er að vísu aðili að ýmsum alþjóðlegum samtökum þar sem við erum skuldbundnir til að grípa ekki til aðgerða eða draga úr innflutningi, en reynslan hefur sýnt að þjóðir, sem búa við alvarlega erfiðleika, hafa samt sem áður gert slíkar ráðstafanir og jafnan komist upp með það.
Af hverju var ekki hægt að setja kvóta á bilainnflutninginn og segja: Bankarnir afgreiða gjaldeyri fyrir 5 eða 6 þús. bíla, en ekki meira, í stað þess að kaupa 12 þús.? Mátti ekki gera hið sama eða leggja aukagjald á fleiri sérstaka vöruflokka? Var ekki hægt að beita bankakerfinu til að draga úr gjaldeyrissölu eins og gert hefur verið á þessu ári? Jú, fjölmargt slíkt var unnt að gera án þess að setja upp gamaldags haftakerfi sem enginn óskar eftir. En þetta var ekki gert heldur skyldi ríkja stefna hinna frjálsu gjaldeyrisviðskipta hvaða afleiðingar sem það hefði. Sjálfstfl. krafðist þess að þeirri hugsjón hans yrði fylgt og forsrh. hefur verið óþreytandi að lofa þetta gjaldeyrisfrelsi, jafnvel á sama tíma og viðskrh. þeirra framsóknarmanna er kófsveittur við að skipuleggja leynihöft í bönkunum.
En hvað þýðir að tala um frelsi í gjaldeyrisviðskiptum þegar enginn gjaldeyrir er til? Ef gjaldeyrisnotkun þjóðarinnar hefði verið stillt í hóf í fyrra er líklegt að þetta frelsi væri enn fyrir hendi og enn væri til gjaldeyrisvarasjóður eins og nauðsynlegt er. En hinar tímabundnu ráðstafanir stjórnarinnar báru ekki árangur og það var hörfað aftur og aftur undan vaxandi erfiðleikum. Hik og ráðleysi settu svip sinn á landsstjórnina og nú er svo komið sem komið er.
Óánægja með þessa stjórnarhætti er að sjálfsögðu mikil innan beggja stjórnarflokkanna. Við þekkjum öll dagblöðin okkar: hvert um sig rammpólitískt málgagn, sem ekki sér sólina fyrir sínum eigin flokki og foringjum. Það er því orðið hart í ári hjá Morgunblaðinu er það birtir feitletraðar greinar til að draga úr óþreyju sjálfstæðismanna, eins og það var nefnt í blaðinu í gær. Í þeirri grein talar Geirs-unnandi um það að þjóðarvagninn standi klossfastur í sandbleytu. Stjórnarandstæðingar þurfa ekki miklu við slíka lýsingu að bæta. Og ekki er óánægjan minni innan Framsfl. sem tók svo skyndilegt heljarstökk í faðm íhaldsins að þess eru varla nokkur dæmi og flokksfólkið vissi ekki hvaðan á það stóð veðrið.
Ríkisstj. átti í fyrrasumar hlut að svokölluðum láglaunabótum, en að því undanteknu hefur sífellt stefnt í ógæfuátt um afkomu heimilanna í landinu, sérstaklega launþega þeirra sem hafa haft 40–60 þús. kr. fyrir dagvinnu og margir hverjir minnkandi eftirvinnu. Verðhækkanir hafa verið gegndarlausar, bæði af erlendum uppruna og innlendum, þannig að neytendur eru með öllu varnarlausir því að alltaf er það ný sending sem komin er með hærra verðinu. Það er næsta furðulegt, að nú síðustu vikur hafa fóðurvörur og matvörur farið ört lækkandi víða erlendis, eins og lesa má í fréttum, og af þessari ástæðu er okkur sagt að verð á fiskafurðum okkar hafi einnig lækkað, en á sama tíma fer verð á innlendum matvörum hér heima hækkandi og okkur er sagt að það stafi af því að erlend fóðurvara hafi hækkað. Hver á að skilja í öllu þessu?
Enda þótt launþegar hafi lítið getað gert til að verjast áföllum verðbólgunnar hefur verkalýðshreyfingin sýnt mikla biðlund undanfarna mánuði og verður með engu móti sagt að hún beri sök á því hvernig komið er. Öllu eru þó takmörk selt, sérstaklega þegar atvinnurekendur fást ekki til að sýna nema mjög takmarkaðan samningsvilja og enginn árangur verður af löngum viðræðufundum. Það er því von að þolinmæði bresti að lokum og hafa verkalýðsfélögin nú ákveðið verkfallsdag nokkru eftir páska. Ekki er þó svo harkalega að farið að enn sé ekki allgott svigrúm til að ná viðunandi samkomulagi ef atvinnuveitendur og ríkisstj. vilja, og vona allir að svo muni fara.
Ríkisstj. hefur í dag lagt fyrir Alþ. mikið frv. um ráðstafanir í efnahagsmálum og felast í því þær hliðaraðgerðir sem lengi hefur verið beðið eftir. Gert hefur verið ráð fyrir breyt. á skattakerfi, heimildir veittar til að lækka söluskatt og toll af nokkrum vöruflokkum, settur skattur á flugfargjöld og skyldusparnaður á háar tekjur, svo að eitthvað sé nefnt. Mun ég ekki ræða þessar hliðar málsins nánar að sinni, enda eru aðeins fáar klukkustundir síðan stjórnarandstöðunni barst frv. í hendur.
Eitt atriði vekur þó sérstaka athygli. Í 1. gr. er heimilað að spara 3500 millj. kr. af útgjöldum fjárl., en heildarupphæð þeirra er eitthvað nálægt 47 milljörðum. Hins vegar er ekki eitt orð í frv. eða grg. að finna um hvernig ríkisstj. ætlar að haga þessum sparnaði, hvaða útgjöld hún ætlar að minnka eða fella niður. Aðeins er sagt að þetta skuli gert í samráði við fjvn., en sú n. hefur ekkert um málið fjallað þó að nægur tími hafi verið til þess undanfarið og virðist því svo sem ríkisstj. hafi enn enga hugmynd um hvernig þetta eigi að gerast. Hér er um mikilsvert atriði að ræða. Ef þessi sparnaður reynist erfiður og lítið eða ekkert verður úr honum getur farið svo að hann leiði aðeins til aukins halla á ríkissjóði og aukinnar skuldar hjá Seðlabankanum. Það mundi aftur þýða að þetta fé yrði lagt á landsfólkið síðar og yrði þá ekki um neinn raunverulegan sparnað að ræða, heldur aðeins auknar álögur. Þjóðin yrði þá að greiða reikning fyrir þær ráðstafanir sem nú er verið að gera og sagt að séu fyrir hana. Hin stuttaralega 1. gr. frv. getur ekki annað en vakið grunsemdir í þessum efnum, enda er vitað að áhrifamenn í stjórnarliðinu hér á þingi hafa mjög takmarkaða trú á að slíkur sparnaður verði að veruleika.
Í hinni síharðnandi lífsbaráttu landsmanna hafa þeir orðið hvað harðast úti sem hita hús sín með olíu. Hækkanir olíuverðs hafa verið gífurlegar og er nú algengt um allt land að hitunarkostnaður venjulegra íbúða sé 10–15 og allt að 20 þús. kr. á mánuði. Þetta er útgjaldaaukning sem er næstum því óbærileg fyrir allt launafólk og óhjákvæmilegt að þjóðfélagið geri ráðstafanir til að létta þessa byrði. Þetta hefur verið gert um sinn með nokkrum styrk sem greiddur hefur verið. Greiðslukerfið virðist því miður vera misheppnað og finnst mörgum að þessar höfðatölubætur séu nánast ný útgáfa af fjölskyldubótum. Hitt er þó verra, að þessi aðstoð skuli raunverulega ekki hafa haldist í horfinu hvað verðmæti snertir því að hækkun bótanna, sem er örlítil, nær engan veginn hækkun olíunnar á árinu. Ríkisstj. hefur til ráðstöfunar allmikið fé sem innheimt er með gömlum og nýjum söluskattstigum og hefði getað allt að tvöfaldað þessar bætur, en stjórnin hefur neitað öllum till. í þá átt og haldið þessari aðstoð niðri með harðri hendi. Er þó erfitt að finna nokkurt þjóðfélagslegt misrétti sem brýnni nauðsyn er á að leiðrétta en einmitt á þessu sviði.
Eins og orkumálum er nú komið virðast allir vera sammála um að þjóðin hafi undanfarna áratugi treyst um of á ódýra olíu, en ekki rækt sem skyldi uppbyggingu á orkuverum til að nýta þær auðlindir sem land okkar á í fallvötnum og jarðhita. Enda þótt mikið hafi verið rætt um þessi mál á Alþ. og hart sótt á ríkisstj. hefur hún enn ekki lagt fram heildaráætlanir um röðun framkvæmda og fjárútvegun á þessu sviði. Fólki í hinum ýmsu landshlutum er lofað að sett verði löggjöf um virkjanir þar, en almenningur áttar sig ekki alltaf á því hve langur tími getur liðið frá því að löggjöf er sett uns framkvæmdir við virkjun hefjast. Það geta verið og eru venjulega mörg ár. Meiri hraði ætti að geta verið á byggingu hitaveitna svo að þúsundir heimila fái notið þeirra á allra næstu árum. En á því sviði hefur komið í ljós óvæntur þrándur í götu. Mörg lághitasvæði, sem kauptún og kaupstaðir þurfa á að halda til að hita hús sín, eru í einkaeign. Þegar samningsviðræður um hitaréttindi hafa byrjað hefur komið í ljós að ýmsir lögfræðingar landeigenda halda því fram að hitaorkan frá hverunum sé í raun og veru jafnmikils virði og hitaorka olíunnar. Ef svo fer, að húseigendur verði smám saman að greiða gjöld sem jafnast á við olíuverð fyrir heita vatnið, er hætt við að einhverjum þyki þrengjast fyrir dyrum. Þjóðin hefur um aldir lítið á heita vatnið sem ókeypis hlunnindi og í eðli sínu þjóðareign. Auðvitað er óhugsandi annað en gera hveraorkuna alla þjóðareign, eins og málum er nú komið. En íhaldsöflin í stjórnarflokkunum hafa aðrar hugmyndir ef dæma má eftir umr. á Alþ.
Alþfl. hefur nokkur undanfarin ár flutt till. um að landið allt verði gert þjóðareign nema hvað bændur eigi bújarðir sínar. Þetta er stórmál sem er í samræmi við þróun tímans og vart hugsanlegt að þjóðin geti lifað raunverulega frjálsu lífi í landi sínu og hagnýtt það á eðlilegan og hagkvæman hátt í framtíðinni, nema landið verði í þjóðareign. Þessar hugmyndir eru alls ekki árás á bændastéttina, eins og reynt er að halda fram, heldur munu þær er til lengdar lætur reynast landbúnaði margvíslegur styrkur. Undanfarna daga hafa tvívegis orðið um þetta mál miklar deilur á Alþ. og hafa bæði hörðustu íhaldsmenn, nokkrir framsóknarmenn og ótrúlegt en satt, einnig Alþb.- menn snúist gegn málinu. Það er furðulegt að heyra Alþb.- menn sameinast mesta afturhaldi þingsins í baráttu gegn þessu máli Alþfl., en vinstri menn um allan heim berjast fyrir sams konar málum hver í sínu landi. Hugsið um þetta mál hleypidómalaust og þið munuð komast að raun um, að Alþfl. hefur rétt fyrir sér. Landið okkar hlýtur að verða eign allrar þjóðarinnar fyrr eða síðar.
Alþfl. hefur á þessu þingi barist sem stjórnarandstæðingur, en jafnframt óháður öllum öðrum flokkum og hefur farið sínar eigin leiðir, fylgt sinni eigin stefnu, jafnaðarstefnunni, Stjórnarandstaða okkar hefur t. d. komið fram á svo til öllum sviðum efnahagsmála þar sem við höfum starfað í nánu samráði við verkalýðshreyfinguna. Þegar Alþb. brást að verulegu leyti barðist Alþfl. einn gegn síðustu hækkun söluskattsins, svo að dæmi sé nefnt.
Alþfl. hefur að vanda reynt að reka málefnalega stjórnarandstöðu og hefur fylgt þeim stjfrv. sem flokknum sýnast vera til bóta og samræmst geta stefnu jafnaðarmanna. Margvísleg frv. og till., sem flokkurinn hefur sjálfur flutt, bera vott um íslenska jafnaðarstefnu og baráttu fyrir hagsmunum launþega, aldraðra, öryrkja og annarra sem á einhvern hátt standa höllum fæti í lífsbaráttunni.
Alþfl. hefur verið óháður flokkur að því leyti, að hann hefur í einstökum tilvikum verið fús til samstarfs við alla hina flokkana um einstök mál og þá eftir málefnalegri aðstöðu hverju sinni. Að sjálfsögðu eiga stjórnarandstöðuflokkarnir þrír, Alþfl., Alþb. og SF, margt sameiginlegt og standa oft saman, bæði í stjórnarandstöðunni og flutningi mála eða afstöðu til mála. Enda þótt Alþb. hafi lýst því yfir á flokksþingi að það sé takmark bandalagsins að útrýma Alþfl. og skipa sess hans í íslenskum stjórnmálum vinna þessir flokkar samt oft saman á þingi. En við gleymum ekki hótuninni og heitum á alla þá sem vilja stöðva valdaskrið kommúnista á Íslandi að veita okkur stuðning því að það er Alþfl. sem fyrst og fremst stendur í vegi fyrir framtíðaráformum Alþb.- forustunnar.
Við höfum átt gott samstarf við hina tvo þm. SF og varamenn þeirra. En stundum hefur þetta samstarf brostið og því er ekki að leyna að SF halla sér nú sífellt meir upp að Alþb. og virðast vilja eiga samleið með því. Þeir, sem enn þá styðja SF eða hafa minnstu trú á þeim, ættu að minnast þess að e. t. v. er Alþb. reiðubúið til að útrýma öðrum flokkum en Alþfl.
Sú íhaldskreppa, sem nú gengur yfir þjóðina með algerri kyrrstöðu í menningar- og skólamálum, félagsmálum, heilbrigðismálum og raunar flestum öðrum velferðarmálum, ætti að færa þjóðinni heim sanninn um að jafnaðarstefnan hefur miklu hlutverki að gegna í íslensku þjóðfélagi. Afturhaldsöflin láta nú mikið til sín taka á Alþ. og vaða uppi í Sjálfstfl. Þau hafa ekki verið eins hávær og sterk í íslenskri pólitík í áratugi. Alþfl. er sterkasta vígi þjóðarinnar gegn hvers konar öfgaöflum. Út úr því vígi munu Alþfl.-menn sækja á komandi árum og efla flokk sinn til aukins styrks og áhrifa. — Góða nótt.