03.04.1975
Neðri deild: 62. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2711 í B-deild Alþingistíðinda. (2046)
95. mál, vegalög
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég skal ekki hefja neinar illdeilur um þetta frv. og margt af því er sjálfsagt til bóta eins og fram kom í ræðu hæstv. samgrh. En þó eru viss atriði sem ég vil gera aths. við, og ég geri það þó ekki þannig að ég flytji brtt. nú, heldur ætlast ég til þess að það verði rætt í n., samgn., og í samráði við ríkisstj. og er það í samræmi við viðtöl okkar hæstv. forsrh. og ég hygg samgrh. líka.
Það er nú fyrst og fremst við 11. gr. frv. sem segir að „af heildarframlagi því, sem veitt er til lagningar þjóðvega í kaupstöðum og kauptúnum samkv. 32. gr., skal árlega halda eftir 25%, og skal því fé ráðstafað eftir till. vegamálastjóra,“ sem einhver breyting hefur verið gerð á í Ed. og athugað nánar. Nú bið ég menn um að athuga það að þetta er auðvitað ekki sérstaklega mál Reykjavíkur því að það eru fleiri þéttbýlisstaðir en Reykjavík á þessu landi. En það er sagt í grg. þessa frv. við 11, gr., að þetta sé lagt til til þess að auðvelda fámennum kaupstöðum og kauptúnum að flýta gerð þéttbýlisvega með bundnu slitlagi samkv. 30. gr. Á sérstaklega að ýta undir það að þar sem fæst fólk býr verði komið á góðum þéttbýlisvegum, eða á að leggja meiri áherslu á það þar sem fleiri eru og er það ekki þaðan sem fyrst og fremst tekjurnar koma til þessa hluta? Er ekki eitthvað athugavert við röksemdarfærsluna í þessu, enda segir í byrjun aths. við frv.:
„Með frv. þessu er, lagt til, að gerðar verði nokkrar breytingar á vegalögum, sem nauðsynlegt er talið að gera, í flestum tilfellum að fenginni reynslu, m. a. til að efla sýsluvegasjóðina vegna breyttrar tækni við mjólkurflutninga, styrkja gerð þjóðvega í þéttbýli og ná betra samhengi í samgöngukerfið.“
Fá nú þessi rök staðist í byrjun grg, og við 11. gr.? En ég held hins vegar að það fari langbest á því að n. athugi þetta mál og eins og ég sagði í samráði við ríkisstj., og 11. gr. gæti verið betur útfærð eða orðuð heldur en hún hefur verið fram að þessu að öðru leyti en hvað snertir hlutfallið, sem ég hef talað um, 11% og 25% og 35%, sem hæstv. samgrh. vék að, að fram hefði komið í Ed. Borgarstjórinn í Reykjavík, Birgir Ísl. Gunnarsson, hefur sent mér og öðrum þm. og samgn. bréf, dags. 12. mars, sem ég vil leyfa mér að lesa hér upp, með leyfi hæstv, forseta, en það er svo hljóðandi:
„Á fundi borgarráðs í gær var gerð eftirfarandi ályktun:
„Borgarráð beinir því til Alþingis að hlutur Reykjavíkurborgar í fé, sem ætlað er til þjóðvega í þéttbýli, verði ekki skertur. Í þessu sambandi er rétt að vekja athygli á að breyting sú á vegal., sem nú hefur verið samþ., í Ed. Alþingis, mun hafa í för með sér a. m. k. 18 millj. kr. skerðingu á hlut Reykjavíkurborgar í því fé sem ætlað er til þjóðvega í þéttbýli.“
Borgaryfirvöld hafa að sjálfsögðu reiknað með þessari fjárhæð óskertri við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 1975, sem samþ. var fyrir liðin áramót, svo sem lög kveða á um. Það atriði eitt út af fyrir sig að gera till. um breytingu til lækkunar á veigamiklum tekjustofnum sveitarfélaga, eftir að þau hafa gengið frá sínum fjárhagsáætlunum í samræmi við ákvæði laga, ætti að vera nægilegt til að hindra samþykkt slíkrar tillögugerðar. Enn fremur er rétt að vekja athygli á að þjóðvegakerfi Reykjavíkur er fjarri því að vera fullbyggt og að auki þarf á næstu árum að endurbæta verulega þann hluta þess, sem þegar hefur verið gerður, til að geta kannað vaxandi umferð. Í þessu sambandi má nefna að mikilvægustu gatnamót í öllu umferðarkerfi landsins, á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, munu kosta um 200 millj. kr. En þau gatnamót tengja umferð frá gervöllu Reykjanesi og þéttbýlissvæðum sunnan Reykjavíkur við þjóðvegakerfið í heild.
Ályktun borgarráðs var gerð einum rómi og er tilkynnt samgrh., formanni samgn. Nd. Alþ., kjörnum þm. Reykv., svo og þeim landskjörnum þm., sem sæti áttu á framboðslista í Reykjavík við síðustu kosningar til Alþingis:
Og undir skrifar Birgir Ísl. Gunnarsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Eins og ég sagði áðan er þetta ekki málefni, sem snertir eingöngu Reykjavík, því að það eru fleiri þéttbýlisstaðir en Reykjavík í landinu. En ég vildi ekki láta hjá líða að fram kæmi þetta bréf borgarstjórans hér í þinginu úr því að hann hefur sent það til svo margra aðila og ég heyrði nú ekki að neitt um það kæmi fram í máli hæstv. samgrh. en því miður heyrði ég ekki nema lítið af ræðu hans, og lagði ég mig þó fram. En ég býst ekki við að hann hafi nefnt það. Þess vegna álít ég að rétt væri að n., sem fær málið til meðferðar, skoði í heild breytingu á þessari 11. gr., e. t. v. fleiri breytingar, sem ég hef ekki sérstaklega gert að umtalsefni, og hafi um það samráð einnig við ríkisstj.
Þetta er frv. frá síðasta þingi, eins og fram kemur, og mér er kunnugt um það að þetta atriði var alls ekkert rætt í núv. ríkisstj., þessi breyting úr 10% og upp í 25%, eins og það er núna. Sannleikurinn er sá að við þm. yfirleitt — ég held mér sé óhætt að segja það — bæði þéttbýlisþm. og einnig úr strjálbýlinu viljum kappkosta að ná samkomulagi um mál, en ekki deila um það að hlutur annars hvors aðilans sé meira fram dreginn heldur en hins. Ég efast um að svo þurfi að vera eða svo hafi verið en vil vekja á þessu athygli og biðja hv. n. með þeim hætti, sem ég hef talað um, að veita þessu sérstaka athygli.