03.04.1975
Neðri deild: 62. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2716 í B-deild Alþingistíðinda. (2048)
95. mál, vegalög
Ólafur G. Einarsson:
Hæstv. forseti. Ég hafði hugsað mér við þessa 1. umr. að ræða einkum 11. gr. frv., en þar sem þeir tveir hv. þm., sem hér hafa talað, hafa einkum rætt hana get ég mjög stytt mál mitt. Ég tek undir þau rök, sem þeir hafa hér flutt, og skal reyna að forðast að endurtaka það sem þeir hafa sagt.
Ég er andvígur þeirri breyt., sem gert er ráð fyrir í 11. gr. frv., þ. e. a. s. að hækka þennan svonefnda 10% sjóð í 25%. Ástæðurnar fyrir því, að ég er þessari breyt. andvígur, eru einkum tvær. Það er í fyrsta lagi að með þessu er Alþ. enn að afsala sér raunverulega fjárveitingavaldinu með því að leggja meira í hendur fjvn. og vegamálastjórnarinnar en áður, og í öðru lagi er með þessari breyt. verið að draga úr fjárveitingum til þéttbýlisvega í hinum ýmsu kaupstöðum og kauptúnum landsins. Ég skal nefna hér nokkrar tölur máli mínu til stuðnings. Ég veit ekki hvort menn gera sér almennt grein fyrir því hvað þessi breyt. þýðir í krónum talið.
Ég hef hér tölur fyrir árið 1974, en þá var heildarsjóðurinn, sem 10% sjóðurinn var myndaður úr, 183.9 millj. kr. og 10% sjóðurinn var því 18 millj. 393 þús. og til skipta til hinna ýmsu þéttbýlisstaða komu því 165.5 millj., sem gerði á hvern íbúa liðlega 905 kr. Það þýðir að t. d. þéttbýlisstaður með 500 íbúa fékk í sinn hlut úr þéttbýlisvegasjóði liðlega 452 þús. kr. Ef nú þessi 25% regla hefði gilt árið 1974, þá hefðu komið til skipta 137 millj. eða tæpar 138 í stað 165 og framlag á íbúa hefði orðið liðlega 754 kr. 500 íbúa staður hefði þá fengið 377 þús. kr. liðlega í staðinn fyrir 452, eins og ég nefndi áðan, þ. e. um 83.3% af upphæðinni eins og hún raunverulega var.
Við höfum nú fyrir nokkru fengið í hendur áætlun um fjáröflun til vegagerðar fyrir árið 1975 og reyndar fleiri ár, 1976 og 1977, og samkv. þeirri töflu er gert ráð fyrir að til vega í kaupstöðum og kauptúnum komi árið 1975 285 millj. kr. Það er sem sagt hækkun úr 183.9 á árinu 1974. Ef lög væru óbreytt, þ. e. a. s. um væri að ræða 10% sjóðinn, þá kæmu 28.5 millj. í þann sjóð, en miðað við þessa breytingu koma 71.25 millj. þetta þýðir á íbúa að óbreyttu 1335 kr. rúmar, en með breytingunni 1 112 kr. Þetta þýðir raunverulega það að þéttbýlisstaðirnir fá 20% minna í sinn hlut miðað við þessa breyt. en þeir fengju ef l. væri ekki breytt. Ég tel að þarna þurfi að finna leið til úrbóta.
Ég held að menn séu einnig sammála um að þessi viðmiðunarregla, þ. e. a. s. að miða framlögin til þéttbýlisstaðanna við íbúafjölda, sé ekki rétt. Ég held að það, sem á að hafa til viðmiðunar, sé í fyrsta lagi umferðarþunginn um viðkomandi stað, það séu ólokin verkefni í gatnagerð og það sé í þriðja lagi íbúafjöldinn. Það þarf að kanna hversu mismunandi vægi á að vera á þessum líðum, sem ég hef hér nefnt, en ég held þó að menn hljóti að vera sammála um að það sé raunverulega umferðarþunginn sem ráði þörfinni fyrir framkvæmdir.
Ég hef orðið var við það hjá ýmsum mönnum, m. a. ýmsum hv. þm., að með þessari breyt. sé verið að rétta hag landsbyggðarinnar, og raunar kemur það beinlínis fram í grg. með frv. Ég held að þarna sé um mikinn misskilning að ræða. Það geta menn reyndar séð af þeim tölum sem ég nefndi áðan. Ég legg áherslu á að það er verið að skerða hlut allra, ekki bara Reykjavíkurborgar, eins og hér hefur reyndar komið fram. Hér hafa talað tveir hv. þm. Reykv. En Reykjavík á þarna ekki neinn sérstakan hlut að máli, þetta gildir um alla þéttbýlisstaði í landinu. En eins og ég sagði áðan, 10% sjóðurinn gefur raunverulega 20% meira til sveitarfélaganna en mundi verða ef 25% reglan yrði tekin upp.
En til hvaða framkvæmda á svo þetta fé að fara sem fjvn. og vegamálastjórnin eiga að ráðstafa? Ég er sannfærður um að það er hægt að sýna fram á að þörfin fyrir þetta fé er meiri hér í næsta nágrenni höfuðstaðarins en nokkurs staðar annars staðar á landinu. Það er hægt að sýna fram á meiri arðsemi framkvæmdanna en annars staðar. Þess vegna eru það ekki hagsmunir landsbyggðarinnar, sem þarna er verið að gæta, eins og kemur fram í máli sumra manna. Ef menn halda því fram að það sé verið að gæta sérstaklega hagsmuna landsbyggðarinnar og taka þetta fé frá t. d. Reykjavík, þá held ég að menn segi um leið að þetta fé eigi hreinlega að misnota, fara með það til staða sem ekki eiga rétt á auknu fjármagni umfram aðra.
Ég þarf ekki að hafa þessi orð mín öllu fleiri. Ég tek það fram að mér sýnist að sú breyt., sem gerð var á þessari gr. í hv. Ed., skipti engu máli í þessu sambandi. Það, sem skiptir máli, er að það er verið að hækka þarna ranglega að mínu viti úr 10% í 25%. Það skiptir ekki heldur máli hvernig þessi 10% sjóður hefur verið notaður á undanförnum árum. Það vita allir að hann hefur að langmestu leyti farið í framkvæmdir Hafnarfjarðarvegar um Kópavog, auk þess sem nokkur upphæð hefur farið til Selfoss. Ég hef ekki sundurliðun á þessu, en ég held að ég hafi tekið rétt eftir að það séu 84.8 millj. sem hafa runnið til þessara staða á undanförnum árum. Þetta skiptir ekki heldur máli. Það má um það deila hvort þessir vegir áttu nokkurn tíma að falla undir þéttbýlisvegi og ég held að það sé búið að viðurkenna það nú í raun að Hafnarfjarðarvegurinn um Kópavog átti aldrei að vera neinn þéttbýlisvegur. Hann er nú orðinn hreinn þjóðvegur, eins og hann átti alltaf að vera, og þess vegna átti Kópavogur ekki að þurfa að verja þéttbýlisvegafé sinn til þessara framkvæmda.
Ég vil hvetja hv. samgn., sem fær þetta mál til athugunar, að skoða það gaumgæfilega og ef hún treystir sér ekki til að breyta 11. gr., þá mun ég flytja brtt. við 2. umr.