03.04.1975
Neðri deild: 62. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2725 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)
95. mál, vegalög
Magnús Kjartansson:
Hæstv. forseti. Mér urðu það æðimikil vonbrigði hvað viðbrögð hæstv. samgrh. við eðlilegum og rökstuddum aths. voru neikvæð. Mér sýnist alveg einsætt að það er ekki unnt að framkvæma þessa breyt., sem 11. gr. fjallar um, á þann hátt sem gert er ráð fyrir í frv., þ. e. a. s. að ætlast til að þetta frv. taki gildi frá og með 1. jan. á þessu ári. Þetta er hreinlega ekki framkvæmanlegt, hvað sem menn vilja segja um breyt. sjálfa. Það er að sjálfsögðu svo, eins og borgarstjórinn í Reykjavík hefur gert grein fyrir í bréfi sínu, að Reykjavíkurborg hefur gert fjárhagsáætlun sina, þ. á m. um framkvæmdir í vegamálum. Ýmsar þær framkvæmdir eru hafnar, það er búið að gera áætlanir um aðrar og það er ekki hægt fyrir Alþ. að grípa inn í þegar allmargir mánuðir eru liðnir af árinu til þess að koma í veg fyrir að Reykjavíkurborg t. a. m. geti staðið við áætlanir sínar. Og það sama á að sjálfsögðu við um aðra þéttbýlisstaði. Ekki er nokkur leið að standa svona að málum.
Hæstv. ráðh. kom með þá réttlætingu að þetta frv. hefði verið borið fram á Alþ. 6. des. og þess vegna hefðu menn getað reiknað með því í sinni áætlanagerð. En auðvitað er þetta engin skýring, vegna þess að það að leggja fram frv. á þingi þýðir ekki að það sé orðið staðreynd, jafnvel þótt um stjórnarfrv. sé að ræða. Það kemur ákaflega oft fyrir að stjórnarfrv. er bæði breytt í meðförum og þau eru ekki afgr. Ef hæstv. ríkisstj. hefði verið alvara að koma þessari breyt. á, bar henni að sjálfsögðu að leggja þetta frv. fram svo tímanlega að það næði afgreiðslu svo fljótt að sveitarstjórnir gætu áttað sig á efni þess og hagað áætlunum sínum í samræmi við það.
Það er eflaust hægt að færa að því ýmis rök að gott sé að hafa sérstakan sjóð, þar sem hægt væri að nota peninga í meiri háttar verkefni, eins og þennan 10% sjóð sem verið hefur og nú er talað um að hækka. Í skýringum 11. gr. er sagt að þetta sé gert til að auðvelda fámennum kaupstöðum og kauptúnum að flýta gerð þéttbýlisvega með bundnu slitlagi. Ekki skal ég draga í efa hina miklu nauðsyn á því að þetta verði gert, en ég vil vara ákaflega alvarlega við því að þetta verði gert á þann hátt sem mundi verða með framkvæmd slíks frv. ef að lögum yrði, þ. e. a. s. að klípa þessa peninga af þéttbýlisstöðum og af þeim framkvæmdum sem þessir staðir eru þegar búnir að hefja á þessu ári. Þetta held ég að verði ákaflega háskaleg vinnubrögð.
Við höfum heyrt mjög á undanförnum árum og við höfum líka heyrt í þessum umr. meting á milli þéttbýlis og strjálbýlis á Íslandi og sérstaklega Reykjavíkur og annarra staða. Ég er alveg sammála hv. þm, Ingólfi Jónssyni um að þetta er ákaflega hættulegur metingur. Ég held að það sé ámóta mikil nauðsyn fyrir strjálbýlið á Íslandi að hafa hér myndarlega höfuðborg eins og fyrir höfuðborgina að tryggja að hinar dreifðu byggðir landsins haldist áfram og þar verði gott að búa. Ég held að við verðum að halda þannig á málum að við komum í veg fyrir að þessi metingur magnist og vaxi, eins og mér virðist hann því miður hafa verið að gera á undanförnum árum. Við heyrum oft talað um Reykjavíkurvald og við heyrum stundum farið hliðstæðum orðum um þá sem í strjálbýlinu búa. Slíkan meting verðum við að vera menn til að forðast. En ef við t. d. tækjum upp þennan hátt, sem felst í þessu frv., að grípa inn í framkvæmdaáætlanir Reykjavíkurborgar og taka af því fé sem búið er að ráðstafa með áætlunum til þess að rétta hlut fámennra kaupstaða og kauptúna, þá erum við einmitt að ýta undir sjónarmið af þessu tagi.
Ef hæstv. ríkisstj. vill gera átak á þessu ári til að auðvelda fámennum kaupstöðum eða kauptúnum að flýta gerð þéttbýlisvega með bundnu slitlagi, þá verður hún að gera það á annan hátt. Hún verður að afla til þess sérstakra fjármuna, en ekki þannig að það sé tekið af Reykjavík og öðrum stöðum. Þess vegna vil ég taka mjög undir það sem hv. þm. Jóhann Hafstein vék að hér í ræðu sinni, að þetta mál verði skoðað mjög gaumgæfilega af þeirri n. sem um málið fjallar. Ég held að það sé rétt að það sé ekki flutt nein brtt. við þessa 1. umr. Ég tel eins og hv. þm. Jóhann Hafstein að við eigum að reyna að ná samkomulagi um meðferð þessa máls, og ég hygg að það sé auðvelt að gera það ef góður vilji er fyrir hendi.
Hér hafa komið fram mismunandi frásagnir um það hvernig hæstv. ríkisstj. hafi fjallað um málið og vafalaust er það hvort tveggja rétt sem hæstv. samgrh. og hv. þm. Jóhann Hafstein segja. Það er nú oft svo, að þó að frv., séu afgr. formlega á ríkisstjórnarfundum, þá hafa ráðh. ekki haft tíma til að grandskoða efni þeirra eða einstakar greinar. (Gripið fram í.)
Í sambandi við þau ákvæði að þessu sérstaka fé, sem lagt er til að hækkað verði, verði ráðstafað af fjvn. Alþ., þá er það að sjálfsögðu hin ágætasta n. eins og allir vita og hefur starfað mjög vel. En ég vil minna á það í því sambandi að í þeirri n. á enginn reykvíkingur sæti. Við skulum einnig huga að því að við skulum reyna að vinna saman frá hvaða kjördæmi sem við erum og það á ekki síður við um Reykjavík en um aðra staði.
Mér þótti hæstv. ráðh. vera full neikvæður í viðbrögðum sínum og ég vil bera fram þá ósk til hans að hann endurskoði það viðhorf sitt.