04.04.1975
Sameinað þing: 57. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2744 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)
192. mál, heilsuræktar- og útivistarmiðstöð á Norðurlandi
Flm. (Heimir Hannesson) :
Herra forseti. Á þskj. 381 hef ég ásamt hv. þm. Ingvari Gíslasyni lagt fram till. til þál. um heilsuræktar- og útivistarmiðstöðva á Norðurlandi. Till. er eftirfarandi :
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að vinna að því að koma á fót heilsuræktar- og útivistarmiðstöð á Norðurlandi. Haft verði náið samráð við landshlutasamtök norðlendinga og bæjar- og sveitarfélög á Norðurlandi. Jafnframt felur Alþ. ríkisstj. að kanna hið fyrsta leiðir til að afla fjármagns til nauðsynlegra framkvæmda samhliða sérfræðilegri athugun málsins.“
Þessi þáltill þarf út af fyrir sig ekki sérstakrar langrar grg, við fram yfir það sem segir í þeirri grg. sem fylgir henni. Ég vil þó fara um hana nokkrum orðum þar sem er um að ræða þau meginsjónarmið sem að baki henni liggja.
Ég held að það þurfi ekki að fara um það mörgum orðum að það er mjög vaxandi skilningur á því bæði hér á Íslandi og úti í hinum stóra heimi að jafnframt vaxandi önnum hins daglega lífs og auknum hraða nútímalífsins, samfara margumtalaðri streitu hins daglega lífs, þá sé sífellt að aukast skilningur manna hérlendis sem erlendis á nauðsyn þess að sem flestir geti átt þess kost að njóta hvíldar og heilsuræktar. Ég held að mönnum sé að verða sú staðreynd ljós að hvíldin ein sé kannske ekki alveg nóg þó að góð sé heldur þurfi margt fleira að koma til og menn eru smám saman að leita að eins konar millileið í þessum efnum, eins konar samblandi á milli sjúkrahúss og hótels sem kallað er heilsuhæli eða heilsuræktarmiðstöð. Og eins og menn þekkja er þetta að verða æ algengara erlendis, bæði til notkunar fyrir þá, sem í þeim löndum búa, og eins þá gesti úr ýmsum löndum sem þessi lönd heimsækja. Á þann hátt hefur þetta tengst á vissan hátt ferða- og samgöngumálum og þess vegna er það m. a. tengt saman í þessari þáltill. þó að það sé að sjálfsögðu ekki neitt skilyrði og þarfnast nánari athugunar. Ein meginástæðan fyrir því, að í þessari þáltill. er þetta tengt ákveðnum till. um uppbyggingu og þróun ferðamála, er sú einfalda staðreynd að það er þegar fyrir hendi allnákvæm áætlum um þróun íslenskra ferðamála fram til ársins 1980 þar sem þessi þáttur er mjög veigamikill og fyrir liggja allvel unnar till. um framkvæmdahliðina jafnt sem fjármagnshlið þessara mála. Þess vegna liggur í augum uppi að það er mjög auðvelt að kanna þessi mál í samhengi þó að það sé hins vegar ekki verið að gera um það till. að það þurfi endilega að tengjast saman.
Ég held að í þessu sambandi sé rétt að vekja athygli á því að það, sem er á bak við tilgang þessarar þáltill., á annars vegar við þá, sem af ýmsum ástæðum þurfa á ýmiss konar endurhæfingu og heilsurækt að halda, og hins vegar um að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir að menn með fulla heilsu fái einhverja þá sjúkdóma sem geta orðið þeim til trafala síðar á lífsleiðinni þannig að að því leyti yrði hér um að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir. Í þessum tilvikum báðum gæti þessi aðstaða tengst þeirri þjónustu sem ég vakti athygli á áðan og erlendir sérfræðingar hafa gert till. um, En að sjálfsögðu þarf ekki að gera það og fer eftir vilja og ákvörðun þeirra aðila sem um þetta fjalla þ. e. a. s. ríkisstj. og viðkomandi sveitarfélaga.
Ég held að það sé öllum mönnum ljóst og áreiðanlega hv. þm, að hér á landi er mjög brýn þörf á stórauknu m átökum í þessum málum. Það er alkunna að sú virðingarverða starfsemi, sem þegar á sér stað í Hveragerði, annar ekki á neinn hátt, þeirri miklu eftirspurn sem hér ríkir og samra máli gegnir um starfsemina að Reykjalundi þar sem mér skilst að sé þegar langur biðlisti. Hins vegar hefur verið komið á fót virðingarverðri starfsemi á höfuðborgarsvæðinu sem má flokka undir heilsuræktarstarfsemi, að vísu í mjög smáum stíl. En af eðlilegum ástæðum er þessi starfsemi fyrst og fremst tengd íbúum höfuðborgarsvæðisins, eins og eðlilegt er, og gegnir vissulega mjög mikilvægu hlutverki. En eins og ég segi er hér um mjög litla og takmarkaða starfsemi að ræða og ekki neinar samræmdar aðgerðir. Því liggur það í augum uppi að í sambandi við þessi mál ríkir mjög alvarleg þjóðfélagsleg mismunun sem er á þá leið að þessi starfsemi, sem hér er við lýði, er fyrst og fremst fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins og fyrir þá fáu sem fá að njóta þeirrar aðstöðu sem er fyrir hendi í Hveragerði og Reykjalundi. Því er gerð um það till. hér á hv. Alþ. að hæstv. ríkisstj. athugi mjög gaumgæfilega hið fyrsta að það verði kannað að komið verði á fót heilsuræktar- og útivistarmiðstöð á Norðurlandi í tengslum við það þéttbýli sem þar er, sem mundi í senn gegna því landssvæði og miðað við stærðargráðu framkvæmdarinnar gæti væntanlega tengst og verið þjónustustarfsemi fyrir landið allt.
Í þessu sambandi er rétt að minna á eins og rakið er í grg. þessarar þáltill. að í allmörg ár hefur verið unnið að því að koma á fót heilsuhæli í nágrenni Akureyrar og er fyrirhugað að framkvæmdir hefjist á þessu ár. Hér er um að ræða samtök áhugamanna eða Náttúrulækningafélag Íslands og félagsdeildir þess, fyrst og fremst norðanlands, og hefur málinu þokað þannig að þegar er búið að úthluta þessum samtökum lóð við Skjaldarvík skammt fyrir norðan Akureyri. En þrátt fyrir mjög mikinn áhuga og ötula fjársöfnun þessa litla áhugamannahóps og með stuðningi heildarsamtakanna eru framkvæmdir ekki hafnar, en munu hefjast á árinu. Fjármagn er mjög af skornum skammti, þannig að það er því miður borin von að þessu miði nokkuð áleiðis sem heitið getur nema annað komi til.
Í framhaldi af því sem sagt var hér áðan um að tengja þetta við uppbyggingu ferðamálanna, þá er þess að geta að erlendir sérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna og opinberra aðila hafa unnið að þróunaráætlun ferða- og samgöngumála á Íslandi í samráði og samvinnu við samgrn. Þessari athugun er ekki lokið, en mér skilst að till. verði skilað fljótlega, eftir nokkrar vikur. En þegar síðustu till. sáu dagsins ljós voru kynnt nokkur þróunarsvið sem voru valin af ríkisstj. á þeim tíma til sérstakrar athugunar fyrir þessa erlendu sérfræðinga og fyrir þá innlendu sérfræðinga sem með þeim unnu. Þessi þróunarsvið voru: skíðasvæði, vötn, ár og sjór til fiskveiða, ráðstefnu- og fundaraðstaða og jarðhiti til heilsuræktar. Það var meginsjónarmið hinna erlendu sérfræðinga og ég býst við að það hafi verið að höfðu samráði við samgrn. á þeim tíma að því var lýst yfir sem meginmarkmiði að öll hugsanleg fjárfesting í sambandi við ofangreind þróunarsvið yrði við það miðuð að þjóna ekki síður íslendingum sjálfum um leið og styrktar væru stoðir innlendna ferða- og samgönguþjónustu. Ekki síst með þetta sjónarmið og þetta markmið að leiðarljósi sameina hinir erlendu sérfræðingar tvö ofangreind þróunarsvið sem reifuð eru í hinni erlendu skýrslu. Þar er reifuð allítarlega hugmynd um það sem þeir kalla ferðamannamiðstöð, en gæti í rauninni heitið hvaða nafni sem er, sem — með leyfi forseta: „tengdi Ísland við náttúruauðlindir sínar þar sem fram gæti farið margvísleg starfsemi, m. a. í einangruðu samfélagi yfirbyggðra garða og húsa sem byggðust á nýtingu jarðhita. Í slíkri miðstöð er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir fólk sem hefur áhuga fyrir einum eða öllum þáttum starfseminnar: skíðaiðkunum, fiskveiðum, ráðstefnum eða heilsurækt. Reksturinn byggðist á því að heilsuræktaraðstaðan sé rekin allt árið, íslendingar noti skíðaaðstöðuna að vetrinum, ráðstefnur séu vor og haust og almennir ferðamenn, væntanlega innlendir sem erlendir, yfir sumarmánuðina.“
Á þessu stigi er ekki gerð nein endanleg till. um staðarval, en í þessari grg. er reifuð hugmynd um staðarval við Botnssúlur sem reyndar skv. síðari reifun málsins fluttist að Kleifarvatni, m. a. vegna nábýlisins við Reykjavík, Mér er hins vegar kunnugt um að fleiri valkostir voru ræddir í ofangreindri skýrslu, m. a, ákveðnir staðir á Norðurlandi, þannig að hér er ekki um neinar endanlegar till. að ræða. Ég vil sérstaklega fagna því í þessu sambandi að hæstv. samgrh., sem hér mun reyndar ekki viðstaddur, lýsti því yfir sem sinni skoðun að hann hafnaði því staðarvali sem gert var ráð fyrir við Kleifarvatn. Í þessum hugmyndum var gert ráð fyrir fjárfestingum upp á, ef ég man rétt, rúma 3 milljarða kr. skv. þáv. gengi og var gert ráð fyrir því að rúmlega 90% af þeirri fjárfestingu færu í framkvæmdir hér á Suðurlandi, á Faxaflóasvæðinu.
Við flm. þessarar till. erum mjög ósammála þessum hugmyndum hinna erlendu sérfræðinga þó að þær séu ekki endanlegar, eins og fram var tekið, og auðvitað er ljóst að allar endanlegar ákvarðanir í þessu sambandi sem í öðru eru í höndum íslendinga sjálfra. En þó er það okkar skoðun að hér sé hreyft athyglisverðum hugmyndum sem kanna þurfi nánar. Við teljum útilokað að jafnstór hundraðshluti komi til ráðstöfunar á tiltölulega litlu landssvæði hér og aðrir hlutar landsins komi ekki til athugunar í þessu sambandi, enda trúi ég því varla að nokkrum detti það í hug í alvöru. Það er skoðun flm. að bæði frá sjónarmiði byggðastefnu og frá hreinum hagkvæmnisástæðum, m. a. vegna hinnar brýnu þarfar á heilsuræktaraðstöðu utan þéttbýlissvæðisins sem rakin var hér að framan, þurfi að kanna vandlega hvort ekki sé grundvöllur fyrir því að koma á fót þessari heilsuræktar- og útivistaraðstöðu á Norðurlandi sem bætti úr mjög brýnni þörf fyrir norðlendinga og raunar landsmenn alla. Það verður síðan að vera framkvæmdaratriði og athugunaratriði hjá hæstv. ríkisstj. hvort þessi framkvæmd verður í tengslum við tillögur hinna erlendu sérfræðinga eða hvort aðrar sjálfstæðar leiðir verða farnar í þessum efnum. Það er framkvæmdar- og ákvörðunaratriði, en ástæðan fyrir því, að þetta er svo nátengt saman í okkar hugmyndum, er sú að hinir erlendu sérfræðingar hafa komið fram með mjög athyglisverðar till. um fjármagnsútvegun sem sannarlega veitir ekki af á þessum erfiðleikatímum í fjármálum. Þessar tillögur um fjármagnsathuganir eru þess efnis að ég held að þurfi að gefa þeim mjög gaum, einmitt í þessu sérstaka sambandi, enda er lögð áhersla á það í upphafi þessarar þáltill. að ríkisstj. kanni þessar sérstöku leiðir hið fyrsta, hvaða seiðir eru framkvæmanlegar í sambandi við þessar framkvæmdir.
Það eru ekki gerðar neinar ákveðnar till. um sérstakt staðarval á Norðurlandi, enda er það skoðun okkar að áður en það kemur alvarlega til athugunar þurfi að fara fram sérfræðileg athugun á aðstæðum á ýmsum þeim stöðum sem helst koma til greina. Þó er það skoðun okkar að við fyrstu sýn komi Akureyri eða nágrenni Akureyrar mjög til greina sem fyrsti valkostur í þessum efnum vegna þess að nú þegar eru fyrir hendi mörg þau skilyrði sem uppfylla þarf og að mörgu leyti hin ákjósanlegasta aðstaða. í því sambandi er þess fyrst að geta, eins og fram kom áðan að nú eru að hefjast framkvæmdir á heilsuræktarmálum á vegum þeirra samtaka sem minnst var á hér áðan og samningar hafa m. a. þegar verið gerðir eða eru á lokastigi um hítavatnsréttindi. Lóð hefur verið úthlutað o. s. frv. Eins og kunnugt er er Akureyri miðstöð vetraríþrótta og umrædda heilsuræktar- og útivistarnniðstöð mætti mjög tengja þeirri starfsemi og gætu þær styrkt hvor aðra. Það mætti vel hugsa sér að með tiltölulega litlum kostnaði mætti koma upp nýjum lyftu- og togbrautarbúnaði í Hlíðarfjalli sem mundu mjög verulega lengja skíðatímann fram á vor og jafnvel fram á sumar, Um þetta hafa þegar verið gerðar till. af bæjaryfirvöldum og íþróttayfirvöldum á Akureyri og slík framkvæmd gæti mjög vel tengst þessum sérstöku framkvæmdum, sem hér eru gerðar að umtalsefni. Á Akureyri og í nágrenni er auk þess hin ákjósanlegasta aðstaða til útilífsiðkana, svo sem fjallgangna, sjóstangveiði, hestaferða og þannig mætti lengi telja. Auk þess er, eins og allir vita, þegar fyrir hendi mjög fjölbreytt þjónusta sem þarf að vera á slíkum stað, svo sem samgöngur, læknisþjónusta, ýmiss konar ferðaþjónusta og sérfræðileg aðstoð sem ýmsir minni staðir hafa ekki upp á að bjóða, a. m. k. ekki enn sem komið er. Þar að auki er Akureyri miðsvæðis á Norðurlandi og tengist samgöngum í allar áttir í landi og lofti og í austur og vestur á sjó.
Þess ber þó að geta að Akureyri er að því leyti verr sett en aðrir staðir á Norðurlandi að bærinn hefur ekki greiðar aðgang að heitu vatni sem er vissulega ein mikilvæg forsenda allra framkvæmda í þessum málum, og eru aðrir staðir á Norðurlandi, sem þar hafa mun betri aðgang, m. a. margir staðir í Þingeyjarsýslu og í Skagafirði. Þess vegna dettur okkur ekki í hug að halda því fram að einn staður sé frekar kjörinn en annar í þessum efnum, heldun vil ég leggja áherslu á að áður en ákvörðun yrði tekin í þessum efnum færi fram vandleg könnun á öllum aðstæðum og kringumstæðum í þessum málum. Það skiptir mestu máli, að skoðun okkar flm., að hið opinbera hefjist sem fyrst handa í þessum efnum í samvinnu við alla hlutaðeigandi aðila, t. d. sveitarfélög á Norðurlandi, sveitar- og bæjarfélög, félög áhugamanna, áhugamannasamtök í heilsuræktar- og íþróttamálum og slíkur undirbúningur fari í gang skv. frumkvæði og forgöngu ríkisstj. samhliða þeirri fjármagnsathugun sem gerð var að umtalsefni hér að framan.
Við teljum að hér eigi alls ekki að ríkja nokkur hreppapólitík eða héraðarígur heldur verði ákvörðun um staðarval að byggjast á hlutlausu mati sérfræðinga, innlendra sem erlendra. Ég býst við að margir staðir í Þingeyjarsýslu gætu mjög vel komið til greina í þessu sambandi, m. a. vegna aðgangs að heitu vatni, einstakrar náttúrufegurðar, sérstakrar veiðiaðstöðu í ám og vötnum o. s. frv.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að hafa þessa framsögu öllu lengri. Ég vil leggja áherslu á að þar sem mjög mikla undirbúningsvinnu þarf að inna af hendi áður en lokaákvörðun er tekin í þessu mikilvæga máli, væri æskilegt að hæstv. ríkisstj. hraðaði afgreiðslu málsins eftir því sem tök eru á, ef hinu háa Alþ. líst þannig á þetta mál að það nái fram að ganga.