07.04.1975
Efri deild: 63. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)
211. mál, hefting landbrots
Landbrh, (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Eins og ég gat um í ræðu minni áðan er frv. það á þskj. 404, sem hér er til 1. umr., um heftingu landbrots og varnir gegn ágangi vatna einnig samið af landgræðslu- og landnýtingarnefnd. Um þessi ákvæði hafa ekki verið sérstök lög áður að undanteknu því, sem er um þau fjallað í vatnalögum frá árinu 1923. Það hafa að vísu verið sett lög um ákveðnar fyrirhleðslur svo sem um fyrirhleðslu Þverár og Markafljóts árið 1932 og um fyrirhleðslu á Héraðsvötnum 1945, og fleiri ákvæði munu ganga í þessa átt í löggjöf. Hins vegar hefur ríkið veitt árlega ákveðnar fjárhæðir til þessara verkefna og hefur það verið gert við afgreiðslu fjárl. hverju sinni og hefur þá verið stuðst við það að vegamálastjóri hefur verið ráðunautur ríkisins um þessar framkvæmdir og gert athugun á þeim að miklu leyti, um réttmæti þeirra till. um fjárveitingu hverju sinni. Með þessu lagafrv. er stefnt að því að koma þessum málum í fast form og að fylgst verði með þeim á skipulegan hátt, svo að ekki þurfi að vera um handahófskenndar framkvæmdir að ræða eins og gat átt sér stað skv. því formi sem áður gilti.
Í hverju héraði yrði tveimur mönnum falið að fylgjast með þessu, um landskemmdir af völdum vatna. Hér væri um að ræða héraðsráðuneyti í jarðrækt og umdæmisverkfræðing Vegagerðar ríkisins. Það er talið eðlilegt að þessir tveir aðilar verði matsmenn í þessu sambandi og er það byggt bæði á þekkingu þeirra og kunnugleika.
Samkvæmt því yfirliti, sem landgræðsluáætlunin byggði á, mun vera eitthvað um það í flestum héruðum landsins að um fyrirhleðslu sé að ræða, þó að það sé mismikið. Talið er að 40 vatnsföll valdi verulegu tjóni ef ekkert hefði verið að gert, og á fjárl. 1975 er varið 25 millj. kr. til fyrirhleðslna og er það á 65 stöðum.
Þetta eru aðalatriði þessa frv., að gera ráð fyrir því að sett verði löggjöf um framkvæmd á þessum atriðum, og má um það segja eins og við fyrra frv. sem ég talaði fyrir áðan, að það er afleiðing þeirrar stefnumörkunar um landvernd, landgræðslu og landnýtingu, sem mörkuð var með stofnun nefndarinnar í nóv. 1971 og starfi hennar þar um. Þess vegna eru þessi frv. fram borin, í þessu tilfelli til að koma í veg fyrir að vatnið geti eyðilagt það, sem fyrirbyggt er með öðrum hætti, og nauðsyn ber til að heildaraðgerð verði gerð í þessum efnum.
Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta mál fleiri orðum, því að það liggur ljóst fyrir. Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.