14.04.1975
Efri deild: 65. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2879 í B-deild Alþingistíðinda. (2168)

33. mál, samræmd vinnsla sjávarafla

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Í sambandi við þau orð, sem hv. 1. landsk. þm. lét falla um þetta frv. áðan, vil ég benda á að þetta frv. hefur ekki siglt hraðbyri gegnum Alþ. því að þetta er 33. málið, var flutt litlu eftir að þing kom saman á s. l. hausti. Það er búið að vera alllangan tíma fyrir sjútvn. þessarar hv. d. þó að tíminn sé ólíkt lengri sem það var í fyrri d. og fyrri n., en fyrri n. skilaði frv. frá sér í des. eða skömmu áður en Alþ. fór í jólafrí. Þar var það samþ. með yfirgnæfandi meiri hl. atkvæða, að mig minnir 29 og 27 atkv., eins og það liggur hér fyrir. 6 nm. í þessari hv. d. leggja til að frv. verði samþ. óbreytt. Síðasti ræðumaður leggur til, að umr. verði frestað, og vill nú blanda inn í þetta öðru máli sem ég tel að sé þessu algerlega óskylt.

Ég fyrir mitt leyti sé enga ástæðu til að tefja afgreiðslu þessa frv. til þess að taka ákvæði inn það um hvort banna skuli flotvörpu togaranna eða ekki. Það er n., sem starfar að því máli, og fyrir hana hefur verið lagt að skila áliti fyrir næsta Alþ. Það er ætlun mín um þessa n. sem starfar að heildarendurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar og er skipuð þannig að form. hennar er fiskimálastjóri og enn fremur eiga þar sæti menn frá Landssambandi ísl. útvegsmanna, annar frá Félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda, einn frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og einn frá Sjómannasambandi Íslands. Þegar þessi n. hefur rætt þessi mál um allt land og komið saman til þess að samræma, eftir því sem tök eru á, hin ólíku sjónarmið sem þarna eru uppi, er ætlun mín að óska eftir því að þingflokkarnir skipi fulltrúa í þessa n. til viðbótar til þess að vinna að undirbúningi málsins, þannig að frv. geti verið tilbúið þegar þing kemur saman að hausti og þá verði það frv. sem borið verður fram samræmt af fulltrúum sjávarútvegsins og jafnframt af fulltrúum hvers þingflokks fyrir sig og að því stefnt að frv. verði orðið að lögum áður en Alþ. fer í jólafrí. Ég tel að það sé útilokað og komi ekki til greina að tefja framgang þessa frv. af þessari ástæðu.

Ég vil láta það koma fram að það hafa verið í gildi og eru í gildi lög varðandi svokallaða loðnunefnd, sem hefur skipulag með loðnuveiðum, og þar tilnefna ákveðnir aðilar og ríkisvaldið fulltrúa til að skipuleggja þessar veiðar, þar með löndun á loðnu. Þessi n. tilkynnir skipum hvar löndunarpláss er og skip verða að fara og landa þar. En það hefur ekki verið gerð krafa um að ríkissjóður ábyrgist ef viðkomandi verksmiðjur standi ekki í skilum, þá beri ríkissjóði að greiða andvirði loðnuaflans. Það hef ég hvergi heyrt eða séð koma fram.

Með því að taka upp skipulag, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, er verið að samræma veiðarnar og vinnsluna. Þá er átt við að fjölga ekki vinnslustöðvum. Eftir því sem vinnslustöðvarnar eru færri, því traustari eru þær fjárhagslega, og það er um leið verið í raun og veru að hækka verð til sjómanna og útgerðar eftir því sem vinnslustöðvarnar eru færri sem vinna þennan takmarkaða afla. Það er vegna þess að aflinn er takmarkaður og eins og segir í 2. grein: „Rn. getur synjað um slík leyfi, ef ekki er fyrirsjáanleg aflaaukning á viðkomandi svæði né samdráttur í starfsemi annarra vinnslustöðva á svæðinu.“ Þetta er mjög auðvelt að skilja. Það, sem hér er átt við, er það að fyrir fram er ákveðið aflamagn sem má veiða á hverju svæði fyrir sig. Það ákveður rn. að fengnum till. Hafrannsóknastofnunarinnar, og þegar Hafrannsóknastofnunin hefur lagt fram sína till., að þetta mörg tonn megi veiða á þessari vertíð, hefur sú regla viðgengist að sjútvrh., hver sem hann hefur verið, hefur staðfest þessa reglu eða staðfest þetta magn. Þess vegna er engin hætta á því að hér verði um neitt handahóf að ræða að öðru leyti en því að það gæti komið fyrir að afli brygðist og næði alls ekki því magni sem Hafrannsóknastofnunin hefði lagt til að sé veitt á viðkomandi vertíð. Það er það eina sem getur breytt þessari ákvörðun.

Með því að sett eru ákvæði um hámarksafla á hverju svæði, eins og gert hefur verið, er með þessu frv. verið að skipuleggja það að verksmiðjurnar, sem vinna úr þessum hámarksafla, séu ekki of margar á hverju svæði. Það þýðir það að eftir því sem verksmiðjurnar verða fleiri, því hærri verður fastakostnaðurinn við vinnslu á þessum afla, því lægra verð fæst fyrir hráefnið sem sjómenn og útgerðarmenn eru að sækjast eftir og fiska. Þess vegna held ég að það sé ekkert áhorfsmál að það sé mikið atriði að koma á slíku skipulagi hvað snertir vinnsluna, vegna þess að við erum háðir ströngum reglum hvað veiðar snertir.

Við skulum svo bara líta á með örfáum orðum hvað hefur gerst í þessum efnum á undanförnum árum. Það hefur orðið verulegur samdráttur á veiðum á þeim svæðum sem rækjuveiðarnar hafa lengst verið stundaðar á, og það er sannarlega kominn tími til að takmarka eins og hægt er þessar veiðar, fækka bátunum, en ekki fjölga þeim sem þessar veiðar fá að stunda, og koma í veg fyrir að verksmiðjum fjölgi á þessum stöðum.

Nú eru ný rækjusvæði að finnast. Rækja hefur fundist í nánd við Grímsey og það er kominn mikill lyftingur í marga frá Siglufirði til Húsavíkur, að Eyjafirði meðtöldum, að reisa rækjuverksmiðjur. Ég skal ekki segja hversu margar beiðnir koma, en þær verða æðimargar, þó að ekkert liggi fyrir um hvað þessi mið þola og hvað hóflegt sé að veiða á þessum miðum við Grímsey. Það má bæta því við, sem er líka ánægjulegt, að nú fyrir nokkrum dögum fundust rækjumið á Axarfirði. Það er eins með þau, þau eru nýfundin, ekkert hægt að segja um hvað sá stofn eða þessi mið þola mikla ásókn. Þetta verður að fara varlega í, en ekki að hleypa ótakmörkuðum fjölda báta á þessi svæði og eyðileggja þau strax.

Við verðum að byggja á vísindalegum grunni hvað snertir veiðar. Ég get skilið að Hafrannsóknastofnunin hvorki eigi né vilji hafa nokkur áhrif á það hversu margar verksmiðjur eru byggðar til þess að vinna rækju á þessum ákveðnu svæðum. Hennar hlutverk er að skipuleggja veiðarnar, eingöngu veiðar og ekkert annað. Þess vegna verða stjórnvöld að koma á samræmi á milli þess skipulags, sem Hafrannsóknastofnunin leggur til varðandi veiðarnar, og þess skipulags sem nauðsynlegt er að viðhafa hvað snertir vinnslu.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en vil að síðustu segja að ég legg mikla áherslu á að þetta frv. nái fram að ganga og það sem allra fyrst. Það eru þegar komnar allmargar umsóknir, bæði formlegar og óformlegar, svo að ég hygg að það sé kominn tími til og þó að fyrr hefði verið að slíkt skipulag væri fyrir hendi. Þess vegna legg ég áherslu á að þetta frv. verði lögfest nú þegar.