14.04.1975
Neðri deild: 65. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2903 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)
206. mál, verðlagsmál
Flm. (Svava Jakobsdóttir):
Virðulegi forseti. Aðalástæðan til þess að ég kvaddi mér hljóðs á ný var sú að þakka hæstv. viðskrh. fyrir góðar undirtektir. Ég sé að hann er horfinn úr salnum og veit ekki hvort hann er í húsinu, en ég verð þá að vænta þess að sunnanvindurinn beri honum kveðju mína og þakklæti. Ég fagna því, sem kom fram í ræðu hans, að hann muni við undirbúning nýrrar löggjafar um verðlagsmál leggja sérstaka áherslu á aukið eftirlit og auknar verðmerkingar og þær breytingar, sem hann mundi leggja áherslu á að þar kæmu fram, yrðu neytendum til hagsbóta. Ég fagna því sérstaklega að hann lýsti yfir að þetta frv., sem hér er til umr., yrði haft til hliðsjónar við gerð nýrrar löggjafar. Þá er tilgangi okkar flm. náð.
Tveir síðustu ræðumenn, hv. þm. Sjálfstfl., töluðu nokkuð í öðrum dúr og sá síðari af óskiljanlegum hugsjónahita og gerði mér upp ýmiss konar orð og fullyrðingar sem ég kannast ekki við að hafa sagt. Um málflutning hv. ræðumanns vil ég aðeins segja þetta, að ef hann telur það láglaunafólki til hagsbóta að það skuli greiða allt að því helming tímakaups eingöngu til kaupmanneins vegna álagningarinnar, þá er varla ástæða fyrir okkur að vera yfirleitt að ræða saman, því að þar eru skoðanir mjög skiptar og svo skiptar um það, hvað láglannafólki kemur að gagni, að á þeim grundvelli er varla unnt að ræða. Hann var einnig að leggja áherslu á að það ætti að efla samtök neytenda, en manni virtist að kaupmenn og atvinnurekendur við verslun væru svo saklausir að það væri í rauninni hvergi hægt að hrófla við neinu þar. Ég vil minna hv. þm. á það, að hann tók þátt í því ásamt öðrum stjórnarliðum við afgreiðslu fjárl. að veita Kaupmannasamtökunum 3 millj. kr. fjárstyrk. Neytendasamtökin fengu ekki nema 250 þús. í sinn hlut. Hér verða menn að sýna nokkra samkvæmni í málflutningi og gerðum.
Ég vil þá aðeins víkja örfáum orðum að málflutningi hv. 11. þm. Reykv., Ellert B. Schram. Þar kom að vísu ýmislegt það sama fram og hjá hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni, þó að þar væri mildara orðalag. Ég ætla ekki að elta ólar við sumt af því sem þessi hv. þm. sagði, því að þar gætti svo mikils misskilnings að það var engu líkara en hann hefði ekki hlustað á framsöguræðu mína. En hann var þó uppi með sama söng um nauðsyn frjálsrar álagningar. Þetta sýnir vitaskuld það eitt að milli stjórnarflokkanna tveggja er mikið bil. Skoðanir þeirra fara engan veginn saman um hvernig halda skuli á verðlagsmálum. Ég vona bara að hæstv. viðskrh. beri gæfu til að láta ekki undan þeim þrýstingi sem hann verður auðsjáanlega fyrir af hálfu hv. þm. Sjálfstfl.