15.04.1975
Sameinað þing: 63. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2912 í B-deild Alþingistíðinda. (2209)

227. mál, erlend sendiráð á Íslandi

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Fyrirspurnum hv. 1. þm. Norðurl. e., Ingvars Gíslasonar, svarar utanrrn. á þessa leið:

1. Hve mörg eru ríkin, sem íslendingar hafa stjórnmálasamband við?

Svar: Ísland hefur formlegt stjórnmálasamband við 54 ríki.

2. Hvaða erlend sendiráð starfa í Reykjavík?

Svar: 12 ríki hafa sendiráð í Reykjavík: Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Frakkland, Kína, Noregur, Pólland, Þýska alþýðulýðveldið, Þýska sambandslýðveldið, Sovétríkin, Svíþjóð og Tékkóslóvakía.

3. Hve fjölmennt er allt starfslið hvers sendiráðs um sig, og hver eru stöðuheiti starfsmanna þeirra?

Svar: Fjöldi starfsmanna sendiráðanna í Reykjavík er sem hér segir og starfsheitaflokkun er samkvæmt Vínarsamningnum frá 1961 um stjórnmálasamband :

1) Sendiráð Bandaríkjanna. Stjórnarstarfsmenn 8, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 26, þar af 14 íslendingar. Samtals 34.

2) Sendiráð Bretlands. Stjórnarstarfsmenn 5, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 4, þar af 2 íslendingar, einkaþjónustustarfsmenn 1 íslendingur. Samtals 10.

3) Sendiráð Danmerkur. Stjórnarsendimenn 2, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 4, þar af 2 íslendingar, einkaþjónustustarfsmenn 1 og þjónustustarfsmenn 1 og það er íslendingur. Samtals 8 manns.

4) Sendiráð Frakklands. Stjórnarsendimenn 6, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 5, þar af 2 íslenskir, einkaþjónustustarfsmenn 1. Samtals 12.

5) Sendiráð Noregs. Stjórnarsendimenn 2, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 1, þjónustustarfsmenn 1. Samtals 4.

6) Sendiráð Póllands. Stjórnarstarsendimenn 1, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 2, þjónustustarfsmenn 1. Samtals 4.

7) Sendiráð Sovétríkjanna. Stjórnarsendimenn 14, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 9, þjónustustarfsmenn 9. Samtals 32.

8) Sendiráð Svíþjóðar. Stjórnarsendimenn 2, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 1, það er íslendingur, þjónustustarfsmenn 1. Samtals 4.

9) Sendiráð Tékkóslóvakíu. Stjórnarsendimenn 1, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 4. Samtals 5.

10) Sendiráð Þýska sambandslýðveldisins. Stjórnarsendimenn 4, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 4, þjónustustarfsmenn 2 íslendingar, einkaþjónustustarfsmenn 1 íslendingur. Samtals 11.

11) Sendiráð Þýska alþýðulýðveldisins. Stjórnarsendimenn 2, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 1. Samtals 3.

12) Sendiráð Kína. Stjórnarsendimenn 4, skrifstofu- og tæknistarfsmenn 10. Samtals 14. 4. Hverjar eru skráðar eignir erlendra sendiráða og sendiráðsfólks hér á landi:

a) fasteignir,

b) bifreiðar?

Svar: a) Fasteignir erlendra ríkja í Reykjavík vegna sendiráða eru sem hér segir:

1) Bandaríki Norður-Ameríku. 1 fasteign, Laufásvegur 21–23, 3 923 m3.

2) Bretland. 1 fasteign, Laufásvegur 33, 1 595 m3.

3) Danmörk. 1 fasteign, Hverfisgata 29, 3 065 m3.

4) Frakkland. 2 fasteignir, Túngata 22, 1 124 m3,

Skálholtsstigur, 1 630 m3. Samtals 2 754 m3.

5) Kína. 1 fasteign, Víðimelur 29, 2190 m3.

6) Noregur. 2 fasteignir, Hverfisgata 45, 1 344 m3, Fjólugata 15, 1 380 m3. Samtals 2 724 m3.

7) Pólland. Engin fasteign.

8) Sovétríkin. 4 fasteignir, Garðastræti 33, 2122 m3, Garðastræti 35, 1269 m3, Túngata 9, 2 058 m3, Túngata 24, 1 812 m3. Samtals 7 621 m3.

9) Svíþjóð. 1 fasteign, Fjólugata 9, 1 816 m3.

10) Tékkóslóvakía. Smáragata 16, 1 555 m3.

11) Þýska alþýðulýðveldið. 1 fasteign, Ægissíða 78, 1060 ms.

12) Sambandslýðveldið Þýskaland. 2 fasteignir, Túngata 18, 2 514 m3, Laufásvegur 70, 1 198 m3. Samtals 3 712 m3.

Fasteignir erlendra ríkja vegna sendiráða í Reykjavík eru því samtals 31655 m3.

Þá kemur svar við b-liðnum. Það er um bifreiðaeign sendiráðanna. Bifreiðaeign sendiráða og sendiráðsfólks er eftirfarandi: 1) Bandaríkjanna. 17 bifreiðar. 2) Danmerkur. 2 bifreiðar. 3) Bretlands. 8 bifreiðar. 4) Frakklands. 8 bifreiðar. 5) Noregs. 4 bifreiðar. 6) Póllands. 2 bifreiðar. 7) Sovétríkjanna. 22 bifreiðar. 8) Svíþjóðar. 4 bifreiðar. 9) Tékkóslóvakíu. 3 bifreiðar. 10) Vestur-Þýskalands. 10 bifreiðar. 11) Austur-Þýskalands. 2 bifreiðar. 12) Kína. 4 bifreiðar.

5. Hversu mikið fjölskyldulið fylgir erlendum sendiráðsstarfsmönnum hér?

Svar: Samtals 105 manns teljast til fjölskyldna sendiráðsstarfsmanna og skiptast þannig á milli sendiráða:

1) Bandaríkin 18. 2) Bretland 11. 3) Danmörk 2. 4) Frakkland 10. 5) Noregur 2. 6) Pólland 4. 7) Sovétríkin 39. 8) Svíþjóð 4. 9) Tékkóslóvakía 3. 10) Vestur-Þýskaland 9. 11) Austur-Þýskaland 2. 12) Kína 1.

6. Spurning og síðasta: Hvaða ríkisstjórnir erlendar eða aðrir erlendir aðilar starfrækja hér á landi fasta upplýsingastarfsemi og fréttamiðlun, og hve margt fólk vinnur að slíkum störfum á vegum hvers um sig?

Svar: Bandaríkin og Sovétríkin reka upplýsinga- og fréttastofnanir á Íslandi, þ. e. a. s. Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna og Sovésku fréttaþjónustuna Novosti. Starfsmenn Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna eru taldir með sendiráðsmönnum hér að framan. Hjá Novosti starfa 2 sovéskir ríkisborgarar sem ekki eru taldir með sendiráðsstarfsmönnum hér á undan.

Allar ofangreindar tölur miðast við árslok

Þetta er svar utanrrn. við fyrirspurn hv. 1. þm. Norðurl. e.