15.04.1975
Sameinað þing: 64. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2930 í B-deild Alþingistíðinda. (2223)

108. mál, breyting fjárlagaárs

Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um breyt, á tímasetningu fjárlagaárs. Ályktunin felur í sér að ríkisstj. athugi hvort ekki sé unnt að breyta hinu almenna uppgjöri ríkisreikninga, opinberra fyrirtækja, ríkisbanka og stofnana, þannig að reikningsárið hefjist 1. júlí ár hvert í stað 1. jan. og ljúki 30. júní í stað 31. des., fjárlög miðist við sama tíma.

Ástæðurnar fyrir því, að þessi þáltill. er flutt, eru margþættar. En meginástæðan er sú að fjárlög og umsvif hins opinbera eru orðin svo mikil og hafa svo víðtæk áhrif á flestöll svið þjóðlífsins að óhjákvæmilegt er að staldrað sé við og athugað gaumgæfilega hvort opinberi geirinn, ríki, sveitarfélög, opinber fyrirtæki og stofnanir, tefli ekki framtíðarþróun atvinnulífsins, sem allt þetta bákn hvílir á, í hættu og þar með verði grundvellinum kippt undan ríkjandi þjóðskipulagi.

Augljóst er að það getur ekki verið vilji Alþ. að haga þannig störfum sínum í þágu þjóðarheildarinnar að niðurstöður þess starfs og ákvörðunartöku, sem á sér stað á þingi, valdi landsmönnum tjóni. En því miður getur sú þróun átt sér stað, sé ekki full aðgát höfð, að meiri hluti Alþingis vanmeti svo raunverulega stöðu og getu þeirra gjaldstofna sem opinbera kerfið byggir á að afturkippur verði í atvinnustarfsemi þjóðarinnar með þar af leiðandi samdrætti í þjóðarframleiðslunni og almennri rýrnun lífskjara alls almennings.

Ýmislegt bendir til þess að ef á Íslandi á að þróast blómlegt atvinnulíf frjálsra manna í framtíðinni verði að endurskoða afstöðu löggjafar- og framkvæmdavaldsins varðandi umsvif og stærð hins opinbera með tilliti til greiðsluþols og getu fyrirtækja hins frjálsa atvinnulífs og hinna almennu skattborgara. Ef of langt er gengið í því að auka stöðugt hlutdeild hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, í þjóðartekjunum, eins og átt hefur sér stað á síðustu árum, getur svo farið að raunverulega megi segja, að meginhluti þjóðarteknanna hafi verið þjóðnýttur í bókstaflegri merkingu þess orðs. Í því felst að svo hafi verið gengið á tekjur einstaklinga og fyrirtækja vegna opinberra álaga og opinberrar tilfærslu að nettóráðstöfunartekjur dugi rétt fyrir brýnustu nauðsynjum frá degi til dags. Þar með væri svigrúm þessara aðila til sjálfstæðrar ákvörðunartöku um neyslu og framkvæmdir frá þeim tekið og þeir orðnir háðir ríkiskerfinu í öllum meiri háttar athöfnum.

Hér áður fyrr var það draumur sósíalista að stefna að þjóðnýtingu framleiðslutækjanna. Í flestum lýðræðisríkjum hefur þeim ekkert orðið ágengt í þessum efnum. Í seinni tíð hafa hugmyndafræðingar róttækra vinstri manna tekið upp ný vinnubrögð og boðað að heppilegri leið að settu þjóðnýtingartakmarki sé fólgin í því að þjóðnýta sem mest af tekjum manna og stýra þannig eftirspurninni eftir hinum ýmsu gæðum og ákveða þar með ofan frá forgangsröð lífsgæðanna. Eftir því sem hlutdeild hins opinbera í þjóðartekjunum eða þjóðarframleiðslunni eykst vex sú hætta að þessi áform takist og að frjálsum markaðsbúskap verði komið fyrir kattarnef, en á því kerfi byggist aflgjafi frelsis og framfara í lýðfrjálsum löndum. Svíar, sem hafa gengið hvað lengst vestrænna ríkja í uppbyggingu svokallaðs velferðarþjóðfélags, eru farnir að óttast þessa þróun þar í landi. Í Svíþjóð fór árið 1971 um 51% þjóðartekna eða þjóðarframleiðslu í og um opinbera geira. Skiptist það þannig að opinber neysla eða útgjöld og opinberar framkvæmdir voru um 30% miðað við þjóðarframleiðslu, tekjutilfærsla um 18% og opinber sparnaður 2–5%. Þrátt fyrir það að svíar hafa búið við efnahagslegt öryggi og jafnan og árvissan hagvöxt í áratugi og þrátt fyrir það að þjóðarauður svía er mikill hafa ráðamenn þar í landi, sem vilja viðhalda frelsi og lýðræði, miklar áhyggjur af hinni miklu hlutdeild hins opinbera í ráðstöfun og skiptingu þjóðarteknanna. Óttast er, að svigrúm skattborgaranna, fyrirtækja og neytenda, til frjálsrar ráðstöfunar tekna sé að verða of þröngt. Verði lengra gengið í þessum efnum í þessu auðuga þjóðfélagi er hætta á að valfrelsið viki, að valfrelsið verði frá fólkinu tekið, athafnahvötin brotin á bak aftur og þjóðin þar með hneppt í fjötra ofskipulags og ófrelsis á öllum sviðum. Fleiri þjóðir í Vestur-Evrópu standa frammi fyrir sömu hættu. Veldur það frjálshuga og lýðræðissinnuðum mönnum áhyggjum vegna þeirrar frelsisskerðingar og lífskjararýrnunar sem óhjákvæmilega fylgir í kjölfar ríkissósíalisma.

Þótt framangreind kerfisbreyting til hins verra ætti sér ekki stað í jafnríkum mæli og átt hefur sér t. d. stað í Svíþjóð verkar stöðugt aukin hlutdeild og afskipti hins opinbera lamandi á alla atvinnustarfsemi auk þess sem hún hefur mjög verðbólguhvetjandi áhrif í för með sér, jafnvel þótt nokkurt atvinnuleysi sé, svo sem þróun í Bretlandi síðustu árin sannar. Takmörk eru fyrir því hversu nærri skattborgurunum er hægt að ganga með opinberum álögum, skattlagningu og þess háttar, hversu þarflegar sem hinar opinberu framkvæmdir eða útgjöld kunna að vera. Opinberar álögur, er fara fram úr ákveðnu hámarki, rýra lífskjörin stórlega. Erfitt er að segja til um hversu stór hinn opinberi geiri megi vera án þess að hið þunga álag fari að skaða þjóðarheildina. Fer það að sjálfsögðu eftir þjóðfélagsaðstæðum, þjóðarauði, þjóðartekjum o. s. frv. En vert er að taka tillit til þess að þegar komið er í 50% eins og í Svíþjóð fara hættumerkin að koma í ljós.

Í vestrænum ríkjum, sem byggja á frjálsum markaðsbúskap, er víða álitið að hlutdeild hins opinbera í þjóðarframleiðslunni megi ekki fara fram úr 25–30% ef vel á að vera, algert hámark sé um 1/3 þjóðarframleiðslunnar. Í Bretlandi er opinberi geirinn farinn að nálgast 50%. Sjást afleiðingar þessa þegar í efnahags- og atvinnulífi þessarar þjóðar sem hefur hnignað mikið á síðustu áratugum. Augljóst er að þegar hið opinbera er farið að ráðstafa eða stýra 40–50% af þjóðartekjunum, þá eru þessir aðilar orðnir afgerandi í allri þróun fjár- og peningamála. Það, hvernig haldið er á þessum málum, ræður þróun hagvaxtar, verðbólgu, launa- og kjaramálum o. s. frv. í viðkomandi þjóðfélagi. Eftir því sem þjóðarbúskapurinn er minni og einfaldari í sniðum og tekjumöguleikar eru takmarkaðri er of mikil hlutdeild ríkisgeirans í þjóðartekjunum hættulegri frá sjónarmiði þeirra sem aðhyllast frjálsan markaðsbúskap. Fyrir þá, sem aðhyllast sósíalisma, þar sem almætti ópersónulegrar ríkisforsjár skipar fyrirrúmið, er það æskileg þróun að stöðugt sé tekinn meiri og meiri hluti tekna einstaklinga og fyrirtækja í þágu hins opinbera. Niðurstaða slíkrar þróunar getur ekki verið nema á einn veg. Fólkið, almenningur, á ekki annars kost en að snúa sér til ríkisins, opinberra aðila, með flest sín mál. Í stuttu máli sagt, ríkið, valdamenn og kerfið ákveða stöðu manna og örlög svo sem tíðkast í einræðisríkjum. Sá eða þeir, sem ekki hlýða eða lúta kerfinu, eru settir til hliðar með ýmsum hætti. Það, hvort þessi þróun á sér stað í skjóli vopnavalds eða vegna hægfara þróunar svo sem að framan hefur verið lýst, skiptir í sjálfu sér ekki aðalmáli, heldur hitt, að það skuli vera hugsanlegur möguleiki að hún geti átt sér stað án þess að alþýða manna fái rönd við reist.

Það ber að forða íslensku þjóðinni frá þessari hættu. Það má ekki hlekkja þessa sjálfstæðu og frelsisunnandi þjóð í kerfi hægfara ríkissósíalisma. Þess vegna er orðið tímabært að hv. alþm. staldri ögn við og spyrji sjálfa sig hvar þeir og íslenska þjóðin séu nú á vegi stödd í þessum efnum. Hversu stór hluti þjóðarframleiðslunnar fer til hins opinbera? Hvernig hafa fjárlög þróast samanborið við þjóðarframleiðslu? Hafa umsvif hins opinbera aukist of mikið á síðustu árum? Getur þjóðin risið undir þeim miklu skuldbindingum sem hið opinbera leggur henni á herðar? Eru þessar skuldbindingar í samræmi við eðlilegar þarfir fólksins og geta atvinnuvegirnir staðið undir þeim? Hafa fjárlög þróast ár frá ári á grundvelli skemmri tíma sjónarmiða eða á grundvelli lengri tíma stefnumörkunar? Ræður Alþ. eða hv. alþm. raunverulega þróun þessara mála? Hver er hlutur hins svo kallaða kerfis, áhrif embættismanna, hagsmunahópa o. s. frv. í þessum efnum?

Þannig mætti lengi spyrja. Vafalaust er erfitt að gefa viðhlítandi svör við öllum þessum spurningum og ótal fleiri tengdum þessu efni. En einföld staðreynd virðist blasa við öllum. Þegar erfiðleikar steðja að í þjóðarbúskap íslendinga virðist algerlega skorta sveigjanleika í fjármálaaðgerðum hins opinbera. Útilokað virðist að færa ríkisútgjöld og ríkisframkvæmdir til samræmis við minnkandi þjóðarframleiðslu. Á sama tíma sem áætlað er að þjóðarframleiðslan dragist saman og einkaneyslan minnki um 9–10% milli áranna 1974 og 1975 er áætlað að samneyslan aukist um 2–3%. Opinberi geirinn stækkar jafnt og þétt, bæði beint og óbeint, og þá ýmist fyrir aðgerðir Alþ. og ríkisstj. eða vegna aðgerðarleysis þessara aðila um hag þeirra sem eru utan kerfisins, þ. e. a. s. þess hluta þjóðarinnar, sem enn er í meiri hluta, er starfar úti í hinu frjálsa atvinnulífi við margvísleg og þjóðnýt störf. Margt er hægt að telja er undirstrikar þessa neikvæðu og óæskilegu þróun sem hv. Alþ. hlýtur að verða að taka afstöðu til með öðrum og þjóðfélagslega æskilegri hætti en gert hefur verið undanfarin ár.

Alþ. er skylt að taka upp ný og virkari vinnubrögð gagnvart ofvexti ríkisgeirans til þess að tryggja og vernda hagsmuni alls almennings í landinu. Aðilar atvinnulífsins eiga ekki og mega ekki verða hornrekur þjóðarinnar sem stöðugt er gengið á, en hinir, þ. e. a. s. þeir sem eru á vegum hins opinbera, hvort sem er í starfi eða við nám, einhvers konar yfirstétt sem tekur sitt á þurru og lætur lönd og leið hvernig það er að búa við erfiði og áhættu íslenskra atvinnuhátta, hvort sem er til sjós eða lands. Ég er ekki þar með að segja að sá kjarni opinberra embættismanna, sem þjóðinni hlýtur að vera nauðsynlegur, þessi kjarni eða þetta fólk búi við of góð kjör eða skili ekki sínum störfum vel.

Það, sem nauðsynlegt er að fjalla um og taka til meðferðar, er m. a.:

1. Stærð ríkisgeirans sem greinilega er orðinn of stór.

2. Sveigjanleiki í fjármálastefnu hins opinbera, en þar virðist skorta eðlilegan sveigjanleika. En slíkt fær ekki staðist til frambúðar við verðbólguaðstæður og óvissu í efnahags- og atvinnumálum.

3. Hvert er raunverulegt vald Alþingis yfir mótun og gerð fjárlaga. Það virðist á skorta að það sé sem skyldi. Neikvæð þróun í þessum málum, sem felur í sér minnkandi völd og dvínandi áhrif Alþ. í stefnumótun og ákvarðanatöku í peningamálum og fjármálum þjóðarinnar, getur orðið þingræðinu hættuleg. Takist ekki að minnka hlutdeild opinbera geirans í þjóðartekjunum, m. a. með raunhæfri stefnumörkun í fjárl. og samdrætti í ríkisgeiranum, mun það hafa þjóðhagslega óæskileg og skaðleg áhrif þegar til lengdar lætur.

Er þessi ótti ekki ástæðulaus? Hví skyldi vera meiri hætta í þessum efnum nú en oft áður? Er hlutdeild hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, í þjóðarframleiðslunni óæskilega mikil? Við íslendingar erum enn frekar skammt á veg komnir í söfnun og úrvinnslu tölfræðilegra upplýsinga um þjóðarbúið í heild. Stafar það fyrst og fremst af því, að söfnun frumupplýsinga hefur oft á tíðum verið ábótavant af ýmsum ástæðum. Á síðustu áratugum hefur þó orðið á þessu breyting til hins betra, og rétt er og skylt að geta þess að Hagstofa Íslands hefur í áraraðir safnað saman miklum og góðum upplýsingum um landshagi almennt auk nokkurra sérstofnana sjávarútvegs og landbúnaðar. En hvað sem því líður hefur lengi vantað á að unnt væri að setja upp ábyggilega þjóðhagsreikninga er sýndu árlega þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur með tilheyrandi sundurliðun. Á síðustu árum hefur nokkur bót orðið á þessu vegna starfsemi Efnahagsstofnunarinnar á sínum tíma og nú síðast vegna starfa Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka Íslands. Mikið skortir þó enn á í opinberri skýrslugerð varðandi undirliði helstu þátta í yfirlitum þessara stofnana um þjóðarframleiðsluna, því að ekki er að vita hversu traustar þær upplýsingar eru sem stuðst er við við samningu umræddra skýrslna. En við annað er ekki að styðjast þegar reynt er að gera sér grein fyrir stærð og hlutdeild hins opinbera á grundvelli fjárl., ríkistekna og útgjalda sveitarfélaga samanborið við verga þjóðarframleiðslu.

Það hefur að því er virðist verið almenn regla á Alþ. í áraraðir við gerð fjárlaga að ganga fyrst frá og ákveða í samráði við embættismenn og opinberar stofnanir ríkisframkvæmdir og upphæð ríkisútgjalda, án þess tillits til breytinga á þjóðartekjum, hvort tekjur hafi raunverulega minnkað eða aukist. Eðlilegra virðist vera að ákveða fyrst hæð fjárlaga og opinberra framkvæmda og setja þeim ákveðið þak og ákveða síðan skiptingu innan fjárlaga eða þess ramma sem settur er á hverjum tíma á grundvelli raunverulegra þjóðartekna og þjóðarframleiðslu. Þessi háttur hefur greinilega ekki verið á hafður, enda ekki gert ráð fyrir því í afgreiðslu fjárl., sem hefur árlega tekið rúmlega tvo mánuði og fjárlög yfirleitt verið samþ. 10–15 dögum áður en þau eiga að koma til framkvæmda. Slíkt er algert einsdæmi í lýðræðisríkjum, að því er ég best veit, og stenst ekki miðað við þýðingu fjárl. fyrir þjóðarbúið, bæði með tilliti til þess mikla valds sem hið opinbera hefur á Íslandi, og einnig með tilliti til áhrifa fjárl. á alla atvinnustarfsemi í landinu.

Að mínu mati ber þróun fjárl. síðustu árin öll einkenni þess að réttir valdhafar í þessum efnum, þjóðkjörnir alþm., hafi ekki fjallað um þau sem skyldi. Þar af leiðir að þeir hafa oft á tíðum ekki getað staðið við loforð sín í veigamiklum málum sem fjármálastefna ríkisins getur ráðið um, auk þess sem stefnufestu með lengri tíma sjónarmið í huga hefur skort. Afleiðingar þessa eru m. a. þær að íslendingar eru komnir með umsvifamikinn ríkisgeira sem mun að mínu mati sliga þjóðarbúskapinn ef efnahagsástand og viðskiptakjör batna ekki á næstu árum. Þótt margt af því, sem ríkið gerir með þjónustu sinni og tekjutilfærslu, sé nauðsynlegt og æskilegt má ekki ganga svo langt í álögum á aðila atvinnulífsins að þeir sligist undir byrðunum, athafnahvötin hverfi og fólkið flýi frá framleiðsluatvinnuvegunum. Fari svo hrynur öll spilaborgin og um leið verða pólitískir spilagosar afhjúpaðir, þ. e. a. s. þeir sem hafa hrópað hæst um aukna samneyslu án þess að vilja gera sér og öðrum grein fyrir að greiðsluþoli fámennrar þjóðar eru ákveðin takmörk sett í þessum efnum.

Ef litið er á hækkun fjárl. annars vegar og aukningu þjóðarframleiðslunnar hins vegar síðustu árin kemur í ljós að fjárlög hafa hækkað hlutfallslega mun meira en þjóðartekjur og þjóðarframleiðsla. Er greinilegt að fjárl. hafa hækkað óeðlilega, og að því er virðist óskipulega, miðað við þróun annarra þátta þjóðarbúsins. Sem dæmi má nefna að tímabilið 1970–1975 hækkuðu fjárlög árlega sem hér segir: Árið 1970 18.3%, árið 1971 37.4%, árið 1972 46.5%, árið 1973 30%, árið 1974 33.9% og árið 1975 61.9%. Á þessum árum var uppgangur í atvinnulífi þjóðarinnar. Framleiðsla var mikil til lands og sjávar, viðskiptajöfnuður mjög hagstæður og atvinnustarfsemi mikil. Hefði því átt að afgreiða fjárlög með samdráttaráhrif í huga til þess að vinna gegn verðbólguhvetjandi áhrifum, hins mikla góðæris úti í atvinnulífinu. Illu heilli fyrir íslensku þjóðina var fjármálastefna hins opinbera mjög verðbólguaukandi samtímis því sem hið opinbera stórjók hlutdeild sína í þjóðarkökunni, eins og best sést á því að frá árunum 1970–1974 hækkaði hlutdeild ríkistekna miðað við verga þjóðarframleiðslu úr 20.4% árið 1970 í 25.7% árið 1974. Kæmi mér ekki á óvart þó að þessi hlutdeild væri komin í eða yfir 30% í ár. Ef hlutdeild sveitarfélaga er bætt við er ekki ósennilegt, að hlutdeild þessara tveggja aðila, ríkis og sveitarfélaga, í þjóðarframleiðslunni sé komin í 33–35% árið 1974 og hærri verður hún væntanlega árið 1975. Ef lífeyrisgreiðslur til annarra en þeirra, sem eru í opinbera geiranum, eru teknar með er ekki óvarlegt að áætla að yfir 40% af þjóðarframleiðslunni hafi farið í hinn svo kallaða „socialsector“ eða félagsgeira árið 1974. Er það mjög hátt hlutfall fyrir smáþjóð sem býr við tiltölulega óstöðuga atvinnuvegi og er mjög háð utanríkisviðskiptum og þeim sveiflum sem slíkum viðskiptum fylgja.

Nýverið sagði einn merkasti hagfræðingur þjóðarinnar á fundi sem ég var staddur á, að sér reiknaðist til að 35–40% af þjóðartekjunum færu til ríkis og sveitarfélaga. Fer það saman við það sem ég sagði hér áðan. Þessi hagfræðingur var þó ekki með lífeyrisgreiðslur einkaaðila í þeim tölum, en með þeim yrði félagsgeirinn eða ríkisgeirinn um það bil 40–45%, sem er gífurlega hátt og nálgast það hlutfall sem talið er hættulegt í Svíþjóð, Bretlandi og Danmörku. Vert er að vekja athygli á að jafnvel þessar tiltölulega auðugu þjóðir stynja undan þessu þunga ríkis- og tilfærslukerfi. Hvað má þá segja um þjóð í harðbýlu landi sem á allt sitt undir 20–30 þús. manna framleiðslustétt í sjávarútvegi, fiskiðnaði, landbúnaði, iðnaði og verslun? Á viðreisnarárunum svokölluðu, tímabilinu 1960–1971, var hlutdeild hins opinbera í þjóðartekjunum um 30% og fannst mörgum nóg um. Þetta tímabil einkenndist af nokkuð jöfnum árlegum hagvexti með ákveðnum og alvarlegum afturkipp, tímabilið 1967–1969, sem þjóðin komst yfir vegna öruggrar forustu þáv. ríkisstj. Því miður verður að segja eins og er að með þeirri stefnumörkun í fjármálum hins opinbera sem ákveðin var síðla árs 1970, hófst sú þróun, sem stöðugt hefur haldið áfram síðan, að ríkiskerfið hrifsar sífellt stærri hluta af þjóðarframleiðslunni til sinna þarfa eða vegna tilfærslu gegnum ríkiskerfið innan þjóðarbúsins. Mest verður þó stökkið milli áranna 1971 og 1972, en þá eru ríkistekjurnar 25.6% miðað við þjóðarframleiðslu.

Oft gerir almenningur sér ekki grein fyrir því hvernig að honum er þrengt. Þróun hins opinbera á Íslandi er skýrt dæmi um það hvernig unnt er að þrengja smátt og smátt að einkaneyslu í skjóli oft á tíðum góðra mála, eins og t. d. trygginga- og heilbrigðismála, skólamála o. s. frv. En fólk áttar sig oft ekki á að jafnframt eru lagðar á álögur vegna annarra ríkisútgjalda og framkvæmda sem betur væri að aðrir önnuðust.

Annað dæmi um óæskilega þenslu ríkisins má nefna aukningu starfsmanna hjá opinbera geiranum. Frá 1963 til 1972 fjölgaði opinberum starfsmönnum um 75%. Á sama tíma jókst vinnuafl framleiðsluatvinnuveganna um 30%. Sú aukning varð einkum í iðnaði og verslun. Landbúnaður og fiskiðnaður stóðu í stað í þessu atriði.

Þá má nefna að á síðari árum hefur þjóðarframleiðslan aukist um rúm 5% að meðaltali á ári, þ. e. a. s. fram til ársins 1974. Á sama tímabili hafa fjárlög ríkisins aukist 4–5 sinnum meira á hverju ári. Misræmið milli aukningar framleiðslunnar og ríkisútgjalda er ein af ástæðum hinnar miklu verðbólgu á Íslandi í dag. Fleiri dæmi mætti nefna en þetta skal látið nægja að svo stöddu þótt full ástæða hefði verið til að fjalla hér nokkuð um áhrif þeirrar stefnu sem rekin hefur verið í peningamálum þjóðarinnar, sérstaklega í gegnum opinbera sjóði, ríkisbanka o. s. frv. Mun væntanlega gefast tækifæri til þess síðar.

Í ljósi þeirrar þróunar, sem hér hefur verið lýst, stöðugum vexti ríkisgeirans á kostnað atvinnuveganna og alls almennings, er óumflýjanlegt þegar til lengdar lætur að hv. Alþ. taki upp ný og betri vinnubrögð við gerð fjárl. ef tryggja á og viðhalda þingræði og lýðræði í landinu. Hv. Alþ. verður að nálgast þetta veigamikla tæki í efnahagsmálum, sem fjárl. eru, með öðrum hætti en gert hefur verið á undangengnum árum. Meðal þess, er ég álít að helst þurfi að færa til betri vegar í þessum málum til þess að styrkja trú fólksins í landinu á valdið og þýðingu Alþ., er:

1. Alþingi þarf að verða virkara í mótun og gerð fjárl. en verið hefur.

2. Með tilliti til þess þarf undirbúningur og ákvörðun um fjárlög að taka lengri tíma.

3. Setja þarf fjárlögum ákveðið þak með tilliti til lengri og skemmri tíma markmiða í efnahagsmálum er grundvallast á spám um afkomu atvinnuveganna.

4. Stefnumótun í gerð fjárl. þarf að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í framkvæmd þeirra en nú er.

5. Fjalla þarf af meiri nákvæmni um einstaka liði fjárl.

6. Endurskoða verður oftar lög sem fela í sér bindandi skuldbindingar af hálfu ríkisins hvað útgjöld áhrærir og þurfa slík lög raunverulega að vera í stöðugri endurskoðun.

7. Til greina kæmi að hafa opnar umr. um einstaka þætti fjárl. þar sem forsvarsmenn hins opinbera gerðu þingnefndum og almenningi grein fyrir störfum viðkomandi stofnana og öðru er lýtur að framkvæmd fjárl. og þróun þeirra.

Eigi skal farið frekar út í einstök atriði sem bent hefur verið á sem leiðir til úrbóta við gerð fjárl., þannig að Alþ. hafi meira vald yfir þróun þessara mála og tryggi betur en nú er að fjárl., ríkisútgjöld og opinberar framkvæmdir verði ekki myllusteinn á hálsi þjóðarinnar. Athygli skal vakin á því að í flestum lýðræðisríkjum eiga árleg fjárlög sér lengri aðdraganda og eru lengur í meðförum hjá viðkomandi þjóðþingum en hér tíðkast. Sem dæmi má nefna að í Frakklandi er byrjað að vinna að undirbúningi fjárl. í jan. ári áður en fjárl. eiga að koma til framkvæmda. Áætlunardeild fjmrn. franska undirbýr þá fyrsta uppkast að útgjaldaáætlun fyrir n. k. ár, þ. e. a. s. fjárlagaár, og einnig útbýr þessi deild spár fyrir næstu 2 ár þar á eftir, þannig að hér er raunverulega verið að fjalla um þriggja ára tímabil, Í febrúar eru einstök rn. beðin um að skila sundurgreindum beiðnum um fjárþarfir viðkomandi rn. Eftir nákvæma meðferð, þar sem forsrh. hefur mikið vald til að samræma óskir viðkomandi aðila við þá möguleika, sem stefnan í skattamálum gefur, er uppkast að fjárl. ásamt fyrrnefndum tveggja ára spám lagðar fyrir ríkisstj. og franska þjóðaþingið, fyrst fyrir ríkisstj. um miðjan sept. Síðan er fjárlagafrv. lagt fyrir franska þingið fyrsta þriðjudag í okt. og afgreitt sem lög rétt fyrir jól ár hvert.

Kostirnir við franska fyrirkomulagið við gerð og mótun fjárl. eru:

1. Undirbúningur hefst heilu ári áður en fjárl. eiga að koma til framkvæmda.

2. Unnið er að fjárlagagerðinni allt árið.

3. Meðfylgjandi áætlanir um fjárlög næstu tveggja ára eftir þau fjárlög sem verið er að ákveða eða fjalla um eru einnig til meðferðar og gefur það aðilum vinnumarkaðarins og skattborgurum vísbendingu um við hverju sé að búast af hálfu ríkisvaldsins með tilliti til skattálagningar og ríkisútgjalda nokkur ár fram í tímann. Hlýtur það að skapa mikið aðhald.

1 Þýskalandi kynnir ríkisstj. fjárhagsáætlanir sínar fyrir næsta fjárlagaár venjulegast um mitt sumar í júlí. Uppkast að fjárl. er síðan lagt fyrir sambandsþingið í sept. og þá fer fram 1. umr. Síðan er það til meðferðar í fjvn. sambandsþingsins í nokkra mánuði. 2. og 3. umr. fóru t. d. fram á þessu ári 19. og 21. mars s. l. En samkv. lögum vestur-þýska sambandsþingsins skulu þessar umr. fara fram með þriggja daga millibili. Í þessum ríkjum eru fjárlög sveigjanlegri en við eigum að venjast.

Í þáltill. þeirri, er hér liggur fyrir, er gerð till. um að fjárlagaárinu verði breytt þannig að reikningsárið hefjist 1. júlí ár hvert og gildi til sama tíma að ári. Segja má að það skipti ekki höfuðmáli hvort reikningsárið hefjist 1. júlí ár hvert eða t. d. 1. apríl. Aðalatriðið er að afgreiðsla fjárl. íslenska ríkisins sé tekin úr þeirri spennitreyju sem afgreiðsla þeirra nú er í frá því um miðjan okt. og fram í miðjan des. ár hvert, jafnframt því sem hv. alþm. gefist betri tími til að fjalla um einstaka liði fjárl., m. a. með tilliti til nauðsynlegra lagabreytinga á gildandi útgjöldum, sem hafa mikil áhrif á niðurstöður fjárl. í núv. mynd. Síðast, en ekki síst hlýtur breytt tímasetning eins og hér um ræðir að gefa löggjafanum betra svigrúm til að hafa fjárl. með tilliti til afkomu þeirra atvinnugreina sem ráða úrslitum um endanleg lífskjör þjóðarinnar á hverjum tíma, sem eru sjávarútvegur og fiskiðnaður. Þarf ekki að hafa mörg orð um það að útkoma vetrarvertíðar á hverju ári ræður miklu um afkomu þjóðarinnar og greiðslugetu fólksins vegna sameiginlegra þarfa í gegnum hið opinbera.

Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að vekja máls á þessum þýðingarmikla þætti í störfum Alþ. sem fjárl. eru. Fjárlög hafa þróast með mjög hefðbundnum hætti á Alþ. með árunum. Breyttar þjóðfélagsaðstæður og ný lífsviðhorf kalla á nýjar vinnuaðferðir á mörgum sviðum. Vænti ég þess að þessi þáltill. geti eitthvað hreyft við breytingum í þessum efnum til betri vegar og þar með aukið á virðingu Alþ. í augum þjóðarinnar.

Hæstv. forseti. Ég legg til að þessari þáltill. verði vísað til allshn.