21.11.1974
Neðri deild: 10. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (224)
33. mál, samræmd vinnsla sjávarafla
Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Ég verð að segja eins og er, að á mörgu átti ég von frá þessari hæstv. ríkisstj. öðru en því að eitt af hennar fyrstu verkum á Alþ. yrði að flytja frv. um fjárfestingarhömlur og opinbert eftirlit með fjárfestingu í landinu. Það er alveg rétt, sem hæstv. sjútvrh. sagði hér áðan, að 1. gr. þessa frv. felur ekki í sér ýkjamikið nýmæli. Þar er verið að feta troðna slóð. Það er ekki sama að segja um 2. gr., vegna þess að þar er hæstv. ríkisstj. að leggja til að teknar verði upp hömlur, að ríkisstj. taki upp leyfaveitingu til þeirra sem vilja byggja vinnslustöðvar varðandi humar og rækju. Það leynir sér ekki hvað hér er á ferðinni, eins og fram kemur í síðustu setningunni í 2. gr. þessa frv., þar sem segir að opinberum fjárfestingarlánasjóðum skuli tilkynnt um það þegar hæstv. ráðh. neitar um slíkt leyfi til manna sem æskja eftir leyfi til að fá að byggja vinnslustöðvar fyrir humar og rækju. Þarna er sem sagt verið að gefa rækilega undir fót með það að hinir opinberu fjárfestingarlánasjóðir fái tilkynningu frá hæstv. ríkisstj. þess efnis: Þessum megið þið veita lán og þessum megið þið ekki veita lán. — Á mörgu átti ég von frá Sjálfstfl., en ekki þessu. En e.t.v. er þetta merki þess að Framsfl. hafi einhver áhrif á stefnu stjórnarinnar sem komi þá fram í þessu máli.
Það er ósköp skiljanlegt að það séu settar hömlur á veiði humars og rækju. Hitt geta menn deilt meira um, hvort réttlátt sé að ráðh. skipti rétti á milli manna þannig að mönnum sé mismunað eftir búsetu um að nýta sameiginlegar náttúruauðlindir. Ég spyr: Nú leggur hæstv. ríkisstj. fram frv. um hömlur á fjárfestingar varðandi vinnslu á rækju og humri, má þá ekki vænta þess að innan skamms verði svipað frv. lagt fram frá hæstv. ríkisstj., þar sem hún tilkynni að hún ætli að taka sér það vald í hendur að heimila þessum að reisa frystihús, en hinum ekki? Það getur vel verið að það verði þörf á því að taka upp nánara eftirlit með bolfiskveiðum við Ísland. Blasir þá ekki við eftir að þetta frv. hefur verið lagt fram að ríkisstj. muni þá væntanlega setja haftaregluna þar í gildi líka?
Mér mun gefast tækifæri til að kynna mér þetta mál frekar í þeirri n. sem ég á sæti í og fá mun þetta mál til meðferðar. En ég vil leggja áherslu á annað atriði í þessu sambandi og það er það, að svo virðist sem hæstv. sjútvrh. sé farinn þegar að framkvæma í anda þessa frv. áður en Alþ. hefur lögleitt það. Ég vísa í því sambandi til mikilla blaðaskrifa sem hafa orðið út af deilum rækjuvinnslumanna við Húnaflóa. Þar virðist vera, ef rétt er frá skýrt í blöðunum, að sjútvrn. hafi þegar farið að meina ákveðnum aðilum byggingu vinnslustöðva á einum ákveðnum stað við Húnaflóa, jafnvel þó að frv. um slík höft sé ekki komið lengra en á borð þm. í þessari hv. d. Deilurnar, sem risið hafa upp um það mál, eru e.t.v. fyrirboði þess hvað gerast muni, ef þetta frv. verður samþ. þar sem fólkinu úti á landsbyggðinni finnst í hæsta máta óeðlilegt að íbúum eins staðar sé heimilað að setja upp slíka vinnslustöð, en íbúum annars bannað það.
Ég tek undir með hæstv. ráðh. að það er nauðsynlegt að hafa mikið og ríkt eftirlit til að koma í veg fyrir ofveiði. Ég held að allir íslendingar séu sammála um það. Um hitt má deila, hvort eigi að mismuna mönnum eftir búsetu varðandi nýtingu þessara sameiginlegu náttúruauðlinda. Í 3. gr. segir: „Ráðherra getur sett nánari fyrirmæli um framkvæmd þessara laga“. Auðvitað veltur á öllu í sambandi við þetta mál hvernig ráðh. setur þau fyrirmæli. Það kemur ekki fram hér, en um það munu menn spyrja og deila síðar.
Eins og ég sagði áðan tek ég ekki afstöðu til þessa frv. fyrr en að lokinni rækilegri athugun á því í nefnd, en ég vildi varpa fram þessum orðum sem ég býst við að eigi heima við þessa 1. umr.