16.04.1975
Neðri deild: 66. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2945 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)
130. mál, fóstureyðingar
Frsm. meiri hl. (Jón Skaftason) :
Virðulegi forseti. Frv. þetta um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir fjallar um efni sem eðli málsins samkvæmt er mikið tilfinningamál og mannréttindamál og varðar því miklu að um þau gildi skynsamleg lög er hafi stuðning í almenningsálitinu.
Gerð slíkra laga hlýtur að verulegu leyti að markast af þjóðfélagsástæðum á hverjum stað. Offjölgunarvandamál sumra þjóða knýr valdhafa til að lögleiða frjálsar fóstureyðingar. Alrátt ríkisvald tekur fyrst og fremst mið af stjórnarstefnunni, t. d. ef fjölga þarf í herjum viðkomandi lands, við gerð slíkra laga.
Við íslendingar erum ekki neyddir til slíks. Mannfjöldinn hér mætti gjarnan vera meiri. Það mundi bæta lífskjörin. Og við höfum engan her sem betur fer. Sjónarmið okkar, sem að lagasetningu um þessi efni vinnum, hljóta því að mótast af þörfinni fyrir mannúðleg og skynsamleg lög í þessum efnum. Við erum vel vitandi að hér erum við að fjalla um rétt einstaklingsins til lífsins, en hann er undirstaða allra mannréttinda. Við setningu slíkra laga getum við gjarnan litið til reynslu þeirra þjóða sem næstar eru okkur og skyldastar.
Heilbr.- og trn. þessarar d, hefur undanfarna mánuði haft frv. þetta til athugunar og meðferðar og hefur niðurstaðan orðið sú, að n. hefur klofnað í afstöðu til frv. Meiri hl., sem skipaður er 5 nm., leggur til að frv. verði samþ. með nokkrum breyt. sem við flytjum á sérstöku þskj., en minni hl., hv. 3. þm. Reykv., Magnús Kjartansson, skilar séráliti sem hann gerir grein fyrir hér á eftir
Áður en ég geri frekari grein fyrir frv. og þeim brtt. sem n. flytur, þykir mér hlýða að skýra í stuttu máli gildandi lög um þessi efni og skýra í nokkrum atriðum frá framkvæmd þeirra.
Lög nr. 38 frá 1935 fjalla um leiðbeiningar fyrir konur um varnir gegn því að verða barnshafandi og um fóstureyðingar. Lög nr. 16 frá 1938 heimila í viðeigandi tilfellum aðgerðir á fólki er komi í veg fyrir að það auki kyn sitt. Lögin frá 1935 fjalla um:
1. Varnir gegn því að verða barnshafandi.
2. Um vananir.
3. Um fóstureyðingar.
Lög þessi eru nú úrelt á margan hátt sem eðlilegt er og í þau vantar ítarleg ákvæði um ráðgjöf og fræðslu um kynlíf og barneignir. Fóstureyðing skv. þeim er því aðeins heimil að lífi konu sé hætta búin af því að ganga með og ala barn. Sé fóstur eldra en 8 vikna þurfa knýjandi ástæður að vera fyrir hendi til þess að fóstureyðing sé heimil. Félagslegar ástæður einar heimila ekki fóstureyðingu skv. þessum lögum. Aðgerð skal fara fram á viðurkenndu sjúkrahúsi og vera rökstudd með grg. tveggja lækna um nauðsyn aðgerðarinnar og sé annar þeirra yfirlæknir viðkomandi sjúkrahúss.
Lögin frá 1938 fjalla um:
1. Afkynjanir.
2. Vananir.
3. Fóstureyðingar.
Samkv. þessum l. er fóstureyðing leyfð ef ástæða er til að ætla að afkvæmi fæðist vanskapað eða fáviti eða þess háttar eða ef konu hefur verið nauðgað, enda hafi hún þá kært ofbeldisverkið. Í l. er gengið út frá því að 3 manna nefnd sérfróðra manna ásamt landlækni úrskurði beiðnir um fóstureyðingar, afkynjanir og vananir.
Á tímabilinu frá 1950–1970 urðu fóstureyðingar skv. þessum lögum fæstar 45 á ári, en flestar 107. Á árabilinu 1950–1960 voru þær að meðaltali 57 á ári, en árin 1961–1970 83 að meðaltali á ári. En ef við tökum tímabilið frá 1964–1974, þá urðu þær að meðaltali 123 á ári. Árið 1971 urðu fóstureyðingar 143, 1972 152, 1973 223 og 1974 hef ég upplýsingar um að þær muni hafa verið eitthvað í kringum 220.
Samkvæmt upplýsingum frá breskum heilbrigðisyfirvöldum voru auk þess framkvæmdar í Bretlandi á árunum 1971–1974 115 fóstureyðingar á íslenskum konum eða að meðaltali 23 á ári. En síðasta árið, árið 1974, urðu þær þó aðeins 16. Langflestar fóstureyðingar hér á landi hafa verið framkvæmdar á Fæðingardeild Landspítalans, en nokkrar á sjúkrahúsum á Akureyri, Ísafirði, Akranesi, Neskaupstað og nokkrum stöðum til viðbótar.
Ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um synjanir á umsóknum um fóstureyðingar skv. l. frá 1935, en skv. töflu nr. 10 á bls. 46 í riti heilbr.og trmrn., nr. 4 frá 1973, um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, hafa á árabilinu frá 1964–1970 borist 259 umsóknir um vananir og fóstureyðingar á grundvelli laganna frá 1938, og upplýsingar er að finna um það að á þessum tíma hafi 22 af þessum beiðnum um fóstureyðingar verið synjað.
Af framangreindum upplýsingum svo og öðrum, sem í riti þessu má finna, er ljóst að fóstureyðingum hefur fjölgað ár frá ári hin síðari árin þrátt fyrir nokkuð þröngan lagagrundvöll. Ræður þar sennilega mestu um sú staðreynd að læknar virðast í vaxandi mæli taka tillit til félagslegra aðstæðna þeirra kvenna, er sækja um fóstureyðingu.
Þrátt fyrir talsvert frjálslyndi í framkvæmd þessara laga fer ekki á milli mála þörfin á nýrri lagasetningu um þessi efni, ekki síst fyrir þá sök að nærri öll ákvæði um ráðgjöf og fræðslu um kynlíf og barneignir vantar í þessi lög og er ástand þessara mála hér á landi í hinum mesta ólestri. Að koma í veg fyrir óvelkomna þungun er að sjálfsögðu miklu æskilegra fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið heldur en eyðing fósturs sem flestir telja algert neyðarúrræði. Nm. eru allir algerlega sammála um þetta og um þörfina á nýjum lögum er bæti m. a. úr þessari vöntun.
Hinn 19. nóv. 1973 fylgdi þáv. heilbr.- og trmrh. Magnús Kjartansson úr hlaði frv. til l. um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Frv. þetta var samið af n., sem upphaflega var skipuð 6. mars 1970 af þáverandi heilbr.- og trmrh. Eggert G. Þorsteinssyni. Ekki skal starfsemi n. þessarar tíunduð hér, heldur vísast til rits heilbr.- og trmrn., nr. 4 frá 1973, um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Þar er að finna álit n., grg. og frv. það er að ofan greinir frá. Að lokinni 1. umr. um frv. þetta var því vísað til heilbr.- og trn. Frv. þetta olli miklum deilum, jafnt utan þings sem innan. Einkum var deilt um 9. gr. frv., en þar var lagt til að fóstureyðing yrði heimiluð að ósk konu væri hún búsett hérlendis eða ætti hún íslenskt ríkisfang, væri aðgerðin framkvæmd fyrir 12. viku meðgöngu og ef engar læknisfræðilegar ástæður mæltu gegn slíkri aðgerð. Var hér lagt til að svokallaðar frjálsar fóstureyðingar yrðu leiddar í lög. Margar skriflegar athugasemdir bárust til heilbr.- og trmrn. og til Alþ. Voru þær langflestar á þá leið að óvarlegt væri að heimila algerlega frjálsar fóstureyðingar hér á landi. Að öðru leyti voru athugasemdir lítt færðar fram og yfirleitt var lýst yfir stuðningi við aðrar gr. frv. og þær taldar til mikilla bóta. Afdrif þessa frv. urðu þau að það kom aldrei til 2. umr. hér á hv. Alþ. og nál. frá heilbr.- og trn. sá aldrei dagsins ljós
Hinn 1. nóv. 1974 skipaði heilbr.- og trmrh. Matthías Bjarnason n. til að undirbúa endurframlagningu þessa frv. N. var ætlað að kanna athugasemdir þær, sem fram hefðu komið við upphaflega gerð frv., og gera till. til rn. um hvort og að hve miklu leyti taka skyldi tillit til einstakra athugasemda. N. skipuðu Ingimar Sigurðsson fulltrúi í heilbr.- og trmrn., Ellert B. Schram alþm. og Halldór Ásgrímsson alþm. N. hélt 8 fundi, viðaði að sér öllum skriflegum athugasemdum sem borist höfðu rn. og Alþ., haldnir voru fundir með landlækni og fengin voru gögn og upplýsingar frá embætti hans. Einnig hélt n. fundi með stjórn Læknafélags Íslands. Till. n. hafa mótast af því, að nauðsyn nýrrar löggjafar sé knýjandi, og með hliðsjón af því þurfi að vera einhverjir möguleikar á því að frv. geti orðið að lögum.
Því frv., sem ég er hér að mæla fyrir, endurskoðaða frv., var vísað til heilbr: og trn. 29. jan. s. l. og hefur það verið til meðferðar og athugunar í n. í rúma tvo mánuði. Frv. var að þessu sinni ekki sent út til umsagnar þar sem fyrir lágu umsagnir 11 aðila frá því í fyrra um frv. sama efnis. Aðilar þessir eru: Læknafélag Íslands, Hjúkrunarfélag Íslands, Félag ísl. kvensjúkdómalækna, Félag heimilislækna, Kvenfélagasamband Íslands, Félagsmálaráð Reykjavikurborgar, Ljósmæðrafélag Íslands Prestafélag Íslands, Samtök heilbrigðisstétta, Geðlæknafélag Íslands og Rauðsokkahreyfingin. Í öllum þessum umsögnum er um ótvíræðan stuðning við 9, gr. 1 í frv. frá í fyrra, þ. e. um stuðning við heimild til fóstureyðinga að ósk konu, aðeins að finna í tveim þessara umsagna. Allar hinar umsagnirnar lýsa andstöðu við það ákvæði eða vilja veigamiklar breytingar á því eins og það var í frv.
Þrátt fyrir það að heilbr.- og trn. sendi þetta frv. ekki út bárust henni fjöldi erinda, bréfa og undirskriftalista, sem nm. hafa kynnt sér. Í einu erindi, frá Kvenréttindafélagi Íslands, er lýst fylgi við fóstureyðingar að ósk konu. Þá hefur borist fjöldi bréfa frá einstaklingum og félagasamtökum til n. og þó miklu fremur til nm. sem slíkra, þar sem kemur fram bæði andstaða og stuðningur við fóstureyðingar að ósk konu.
Ég vil þá þessu næst víkja að efni fyrirliggjandi frv. og þeim breyt. sem í því er að finna frá fyrra frv., svo og brtt. þeim sem heilbr.- og trn. gerir við frv. og liggja hér frammi á þskj. 431.
I. kafli frv. fjallar um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir. Sú breyt. er gerð í þessu frv. frá því sem var í fyrra, að lagt er til að landlæknir hafi með að gera yfirumsjón með framkvæmd slíkrar ráðgjafar og fræðslu. Er það eðlilegt þar sem hann er æðsti yfirmaður, næst heilbrrh., heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa þar sem ráðgjafarþjónusta á að fara fram skv. 3. gr. frv. Ráðgjafarþjónustan skv. þessari gr. á m.a. að veita fræðslu um notkun getnaðarvarna og útvegun þeirra, ráðgjöf fyrir fólk sem íhugar fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerðir, upplýsingar um kynlífs- og sambúðarráðgjöf, fjölskylduvernd og fræðslu um kynlíf, líffræðilega og siðferðilega fræðslu og fræðslu um ábyrgð foreldrahlutverks. Að mínu viti ætti á þessum stöðum einnig að hafa getnaðarvarnameðul til sölu á vægu verði, eins og dæmi eru um annars staðar frá.
Við eftirrannsókn 76 kvenna á Fæðingardeild Landsspítalans, sem fóstri var eytt hjá árið 1966 og 1967, kom í ljós að þær höfðu ekki notað getnaðarvarnarmeðul í 82.9% tilfella og í 17.1% tilfella höfðu þessi getnaðarvarnarmeðul brugðist að sögn umræddra kvenna. Það kom líka í ljós við þessa rannsókn að 35% þessara kvenna, sem fengu fóstureyðingu framkvæmda, notuðu engar getnaðarvarnir áfram, en 43% þeirra höfðu tekið upp notkun getnaðarvarnarmeðala. Ég tel að þessar upplýsingar segi nokkra sögu.
Heilbr.- og trn. leggur til að bætt verði nýjum staflið við 2. gr. frv. er verði tölul. 4 í 2. gr., svo hljóðandi:
„Ráðgjöf og fræðslu varðandi þá aðstoð sem konunni stendur til boða í sambandi við meðgöngu og barnsburð“
Það er eðlilegt að konur, sem vilja ganga með og ala sín börn, eigi kost þessarar fræðslu og ráðgjafar ekkert síður en hinar, sem æskja fóstureyðingar.
Þá leggur heilbr.- og trn. enn fremur til, að orðalagi 7. gr. verði breytt og hún orðist þannig: „Fræðsluyfirvöld skulu í samráði við skólayfirlækni veita fræðslu um kynlíf og siðfræði kynlífsins á skyldunámsstigi í skólum landsins. Einnig skal veita þessa fræðslu á öðrum námsstigum.“
Nm. telja eðlilegt að fræðsluyfirvöld beri alfarið ábyrgð á þessari fræðslu í skólum landsins og að þessi fræðsla fari fram í sambandi við annað almennt námsefni bæði á skyldunámsstigi og á öðrum námsstigum. Mætti fella þessa kennslu inn í t. d. heilsufræðinám, náttúrufræðinám og jafnvel nám í félagsfræðum, sem eðlilegan hluta af þessu námsefni. Enginn vafi er á því að ástand þessara mála í skólum landsins er víðast hvar mjög bágborið og þar sem kennsla kann að vera í sæmilegu lagi sé það að þakka fremur framtakssemi og skilningi einstakra kennara sem leggja sig fram í þessum efnum umfram laga- og kennsluskyldu.
Ég lít svo á að ákvæði frv. í I. kafla þess séu e. t. v. þau mikilvægustu sem í þessu frv. felast yfirleitt og takist framkvæmd þeirra vel eða jafnvel þótt það yrði ekki nema sæmilega, þá hygg ég að margt gott mundi af því leiða að lögfesta þessi ákvæði. M. a. yrði þá væntanlega færra um fóstureyðingar en ella. En eins og ég hef áður getið um, þá erum við í n. allir sammála um að fóstureyðingar séu hreint neyðarbrauð.
Ég kem þá að II. kafla frv., um fóstureyðingar, en einmitt um hann og þá fyrst og fremst um ákvæði 9. gr. 1 ríkir ágreiningur í n. 8. gr. frv. eins og það er nú skilgreinir við hvað sé átt með fóstureyðingu. Við hana hefur verið bætt frá því, sem var í fyrra frv., orðunum: „áður en fóstrið hefur náð lífvænlegum þroska“. 9. gr. 1 í frv. hljóðar nú þannig:
„Fóstureyðing er heimil:
1. Félagslegar ástæður:
Þegar ætla má, að þungun og tilkoma barns verði konunni og hennar nánustu óbærileg vegna óviðráðanlegra félagslegra ástæðna. Við slíkar aðstæður skal tekið tillit til eftirfarandi:
a) Hafi kona alið mörg börn með stuttu millibili og skammt er liðið frá síðasta barnsburði.
b) Eigi konan við að búa bágar heimilisaðstæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu.
c) Þegar konan getur ekki vegna æsku og þroskaleysis annast barnið á fullnægjandi hátt.
d) Annarra ástæðna, séu þær fyllilega sambærilegar við ofangreindar ástæður.“
Í frv. í þeirri mynd, sem það var í fyrra, hljóðaði tilsvarandi gr., 9. gr. l., þannig: „Fóstureyðing er heimil að ósk konu, sem búsett er hér á landi eða hefur íslenskan ríkisborgararétt, ef aðgerðin er framkvæmd fyrir lok 12. viku meðgöngutímans og ef engar læknisfræðilegar ástæður mæla á móti aðgerð. Skilyrði er að konan hafi verið frædd um áhættu samfara aðgerð og hafi hlotið fræðslu um hvaða félagsleg aðstoð stendur til boða í þjóðfélaginu fyrir þungaða konu og við barnsburð.“
Mér finnst það nokkuð athyglisvert að í frv. frá í fyrra fæ ég a. m. k. ekki séð í frvgr. eða í grg. þessar læknisfræðilegu ástæður skilgreindar nánar, svo sem ég tel þó að nauðsynlegt hefði verið að gera. Verður að ætla að höfundar frv. hafi haft í huga fyrst og fremst bráða, tímabundna sjúkdóma, t. d. eins og lungnabólgu, eða smitsjúkdóma sem hár hiti fylgir og þegar fóstureyðingu gæti verið hættulegt að framkvæma.
Breyting á 9. gr. 1, frá því sem hún var í fyrra og til þess sem hún er nú, er í því fólgin að í stað þess að heimila fóstureyðingu að ósk konu að uppfylltum vissum skilyrðum, þ. e. um lengd meðgöngutíma, um að engar læknisfræðilegar ástæður mæli gegn aðgerð, að konan hafi verið frædd um áhættu samfara aðgerð og um hvaða félagsleg aðstoð standi henni til boða vilji hún fæða barnið, er í þessu frv. lagt til að heimila fóstureyðingu af félagslegum ástæðum þegar ætla má að þungun og tilkoma barns verði konunni eða hennar nánustu mjög erfið vegna félagslegra aðstæðna og eru taldar upp stafaliðum a–d nokkrar slíkar ástæður, þó hvergi tæmandi, sbr. d-lið, er segir: „Annarra ástæðna séu þær fyllilega sambærilegar við ofangreindar ástæður.“
Við 9. gr. 1 í frv. hefur heilbr: og trn. gert tvær minni háttar brtt. á þskj. 431. Sú fyrri er að í stað orðsins „óbærileg“ í upphafi komi: of erfið — og að orðið „fátæktar“ í b-lið falli brott. Er hér um minni háttar breytingar að ræða, sem enginn styr stendur um í n. að því er ég tel, heldur er deiluefnið sjálft efni 9. gr. 1.
Ég hef áður vikið að því að flestar þær umsagnir, sem heilbr.- og trn. bárust í fyrra, voru andvígar heimild til fóstureyðinga að ósk konu. Ég hef vikið að því, að ég telji mikilvægt að löggjöf um jafnviðkvæmt efni og fóstureyðingar eru byggi á traustum grunni og fylgd meiri hl. þeirra þjóðfélagsþegna sem við þau ákvæði eiga að búa. Þótt erfitt sé að sanna hver meirihlutavilji frjálsra borgara sé í máli sem þessu, þá gefa þó umsagnir þessar nokkra vísbendingu í þeim efnum, og persónulega er ég alveg sammála þeirri skoðun sem fram kemur í grg. frá stjórn Læknafélags Íslands, þar sem segir að frv. í sinni núverandi mynd sé skynsamlegur meðalvegur og gengið sé í því eins langt og hugsanlegt sé við ríkjandi aðstæður til móts við óskir konunnar um sjálfsákvörðunarrétt í þessum efnum. Ég vil rökstyðja þessa skoðun mína. Aðrir nm. er skipa meiri hl. munu setja fram rök sín fyrir afstöðu sinni í þessum efnum ef þeim svo sýnist.
Í fyrsta lagi er ég fylgjandi frjálslyndri fóstureyðingarlöggjöf, en á móti frjálsum fóstureyðingum, eins og það er kallað. Ég hygg, að sú meginstefna eigi miklu fylgi að fagna í réttarvitund almennings á Íslandi í góðum takt við þróun þjóðfélagsmála og framfara í læknavísindum. Ekki verður með rökum deilt um að með ákvæðunum um að félagslegar ástæður einar sér nægi til þess að fá fóstureyðingu gerða er löggjöfin verulega rýmkuð frá því sem er og framkvæmd öll gerð auðveldari og samræmdari um allt land og skriffinnskuminni en verið hefur til þessa.
Í stað þess að endanleg ákvörðunartaka um fóstureyðingu var skv. l. frá 1935 að langmestu leyti í höndum yfirlækna á Fæðingardeild Landsspítalans í Reykjavík og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og skv. l. frá 1938 í höndum læknisnefndarinnar svokölluðu, þá munu eftir lögfestingu þessa frv. kvensjúkdómalæknar eða skurðlæknar á 12–13 sjúkrahúsum utan Reykjavíkur og nokkrum sjúkrahúsum í Reykjavík, að því er ég best veit 3–4, hafa þetta úrskurðarvald í fullri samvinnu við þá konu, sem fóstureyðingar æskir, sem getur rökstutt óskir sínar með skýrum ákvæðum í lögum. Ef þetta fyrirkomulag verður sjálfsákvörðunarrétti konunnar verulegur fjötur um fót í framkvæmd, þá verð ég a. m. k. hissa. En tveggja lækna vottorð er að mínu viti nauðsynlegt frá samfélagslegu sjónarmiði, m. a. vegna þess að sjúkrahúsakerfi landsins og starfslið sjúkrahúsanna er ekki undir það búið að mæta stórauknum kröfum um fóstureyðingar án þess að það komi niður á þjónustu við konur, sem geta verið haldnar alvarlegum sjúkdómum. Ég óttast nefnilega að frjálsar fóstureyðingar leiði til meira skeytingarleysis um notkun getnaðarvarna og að á fóstureyðinguna verði nánast litið sem getnaðarvörn í sjálfu sér, og ég óttast mikla fjölgun fóstureyðinga sem afleiðingu þess að lögtaka frjálsar fóstureyðingar. Þetta er ekki út í bláinn sagt því að erlend reynsla, þar sem löggjöf hefur verið breytt í þessa áttina, leyfir mér að álykta á þennan veg. Vil ég fara inn á nokkur dæmi þessu til sönnunar.
Í 41. og 42. tbl. sænska læknablaðsins frá 1973 eru greinar eftir kvensjúkdómalækninn Elisabet Sjövall sem athugað hefur áhrif frjálsra fóstureyðinga á notkun getnaðarvarna í Gautaborg. Kemst hún að þeirri niðurstöðu að skeytingarleysi um notkun þeirra hafi verulega aukist þar. Af konum, segir hún, á aldrinum 16–19 ára, sem fengu fóstureyðingu 1971, fengu 24.5% fóstureyðingu aftur innan 11/2 árs frá því að fóstureyðing var gerð. Þrátt fyrir hátíðlegar yfirlýsingar um að slíkt gerðist aldrei á Íslandi er fróðlegt að hugleiða afleiðingarnar ef svo yrði. Á Íslandi eru nú um 42 000 konur á aldrinum 15–44 ára. Skv. upplýsingum, sem fengist hafa við rannsóknir á krabbameinsstöðinni hér í Reykjavík, notuðu um 40% þeirra pilluna og um 15% þeirra lykkju eða samtals 55%, þ. e. 23 þús. konur með öruggar getnaðarvarnir. Ef frjálsar fóstureyðingar mundu leiða til 1% minnkaðrar notkunar getnaðarvarna getum við af þeim sökum fengið 230 óvelkomnar þunganir á einu ári. Og hugsuðum við okkur 5% minnkun í notkun getnaðarvarna væri möguleiki á 1150 óvelkomnum þungunum á einu ári. Þannig gæti löggjöf sem ætlað væri að leysa vanda fyrir fámennan hóp kvenna orðið til að skapa sama vanda fyrir mörgum sinnum stærri hóp kvenna. Kæruleysið í þessum efnum er vitanlega ekki sök konunnar einnar, heldur ekkert síður karlmannsins.
Fjölgun fóstureyðinga í mörgum löndum hefur verið mjög mikil þar sem fóstureyðingar í reynd hafa verið gefnar frjálsar. Sem dæmi um þetta vil ég geta þessara dæma:
Árið 1969 voru fóstureyðingar í Danmörku 7 474, en 1973, eftir að löggjöf hafði verið færð mjög í frjálslyndisátt, 18 750. Í Finnlandi voru fóstureyðingar 1969 8175, en 1973 23 200, í Noregi 6 270 árið 1969, en 14000 árið 1973, og í Svíþjóð voru þær 1969 13 735, en 26 000 árið 1973. Af upplýsingum, sem má finna í heilbrigðisskýrslum sem Sameinuðu þjóðirnar gefa út, má sjá, að í New York-ríki í Bandaríkjunum var árið 1970 löggjöf um fóstureyðingar breytt í þá áttina, að frjálsar fóstureyðingar voru uppteknar. 1971 voru skráðar fóstureyðingar í New Yorkríki 173 900. Árið 1972 urðu þær 228 100. Í Japan voru lög um fóstureyðingar færð í það horf að þar voru heimilaðar fóstureyðingar að ósk konu árið 1949. Á árunum 1949–1972 voru skráðar leyfðar fóstureyðingar í Japan um 20 millj., og við rannsókn, sem gerð var í höfuðborg Japans, Tokíó, á 1 284 konum, sem fengið höfðu fóstureyðingu gerða á árunum 1967–1972, kom í ljós að 60% þeirra höfðu fengið fóstureyðingu einu sinni áður og 31% þeirra höfðu fengið fóstureyðingu tvívegis eða oftar áður. Í upplýsingum í þessu riti er talið að fóstureyðingar í Japan svari til um 30% eða nálægt 1/3 af fæðingartakmörkunum þar í landi.
Ég hef eins og aðrir nm. fengið fjölda bréfa frá einstaklingum þar sem skorað er á mig að tryggja fullan sjálfsákvörðunarrétt konunnar um það hvort hún ali barn það, sem hún elur undir belti, eða ekki. Af því, sem ég hef áður sagt, er ljóst að frv. þetta er mjög frjálslegt í þessum efnum, og reynslan af framkvæmd hinna eldri laga bendir einnig til mikils frjálslyndis, sbr. fjölgun fóstureyðinga í landinu sem ég hef vikið að. Landlæknir upplýsir að aðeins um 2% þeirra kvenna, er sótt hafa um fóstureyðingu s. l. tvö ár skv. l. 1938, hafi gengið bónleiðar til búðar.
Takmarkanir á sjálfsákvörðunarrétti kvenna til fóstureyðinga skv. þessu frv. eru að mínu mati ekki miklar, en eru nauðsynlegar vegna þjóðfélagshagsmuna. Dæmi slíkra takmarkana á sjálfsákvörðunarrétti einstaklinganna, bæði meðal okkar þjóðar og í öðrum siðmenntuðum löndum, eru mörg og sér þess vott í löggjöf þeirra. Það leiðir af þeirri einföldu staðreynd að einstaklingurinn verður í athöfnum sínum að taka tillit til annarra einstaklinga og þess þjóðfélags, sem hann lifir og hrærist í, og ýmissa annarra atriða, sem viðurkennt er að ríkisvaldið verði að skipa um sambúðarháttu manna á meðal með löggjöf sem í mörgum tilfellum takmarkar sjálfsákvörðunarrétt þeirra sem við lög þurfa að búa. Ég fæ ekki betur séð en að kona, sem eftir að við höfum samþ. þetta frv. æskir fóstureyðingar á grundvelli þess, eigi skýran, lögvarinn rétt til þess að fá hana framkvæmda, ekki einasta af læknisfræðilegum ástæðum, heldur og af mjög mörgum félagslegum ástæðum. Konan þekkir þennan rétt sinn og hún getur rökstutt kröfur sínar með því að vitna til þessara laga. Hún hefur það tryggt á marga vegu skv. frv. að læknar geti ekki tekið þennan rétt af henni á ólögmætan hátt. Það er konan sem eftir samþykkt frv. tekur ákvörðunina um að leita læknis til þess að fá fóstureyðingu. Hún hefur að mínu viti nánast sjálfdæmi um þá ákvörðun ef hún vill. Það er mat konunnar á eigin aðstæðum sem lagt yrði til grundvallar þegar um er að ræða mat á félagslegum ástæðum. Mér finnst að við karlmenn mættum öllu frekar örvænta um rétt barnsföðurins í þessum efnum, og hefði kannske verið ástæða fyrir okkur til þess að gera einhverjar breytingar á frv. þó að við höfum látið vera að gera það enn sem komið er a. m. k. Og ég hef þá skoðun að fóstrið eigi líka vissulega nokkurn rétt í þessu efni.
Í öðru lagi er fóstureyðing ekki hættulaus aðgerð og hefur áhrif á heilsu konu, líkamlega og sálarlega. Afstaða lækna og hjúkrunarkvenna, sem gerst þekkja til fóstureyðinga, hefur haft mikil áhrif á skoðanir mínar um þetta deiluefni í frv. Óhætt er að fullyrða að stærstur hluti þessara heilbrigðisstétta sé andvígur frjálsum fóstureyðingum. Aðalfundur læknafélags Íslands s. l. haust lýsti einróma andstöðu við frjálsar fóstureyðingar. Félagsfundur sérfræðinga í kvennasjúkdómum, haldinn 10. jan. 1974, lýsti einróma andstöðu við frjálsar fóstureyðingar. Fjöldi starfandi hjúkrunarkvenna hefur einnig lýst andstöðu við frjálsar fóstureyðingar. Og hingað til Alþ. hafa fyrir nokkrum dögum borist undirskriftir 190 hjúkrunarkvenna í Reykjavík og nágrenni þar sem þær mótmæla eindregið ákvæðum um rétt til fóstureyðinga að ósk konu. Vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa örstuttan kafla úr inngangsorðum að þessum undirskriftarlista, en þar segir svo:
„Skyldustörf hjúkrunarkvenna við fóstureyðingu fela í sér eyðingu á lífi. Því teljum við að fyrir fóstureyðingu þurfi að liggja gildar heilsufars- og félagslegar ástæður. Að öðrum kosti teljum við að vinna við þessi störf sé brot á þeim siðareglum sem okkur ber að virða. Í alþjóðasiðareglum hjúkrunarkvenna segir: „Hjúkrunarkona skal nota þekkingu sína og þjálfun til þess að vernda líf, lina þjáningar og efla heilbrigði og einnig að taka ábyrgan þátt í störfum annarra þjóðfélagsþegna til eflingar heilbrigðismála og annarra velferðarmála.“ Verði frv. samþ. í sinni upprunalegu mynd munum við mælast til þess að inn í frv. verði felld ákvæði um að hjúkrunarkonan þurfi ekki að vinna við framkvæmd umræddra aðgerða.“
Læknar og hjúkrunarkonur eru í reynd beinir aðilar að fóstureyðingum því að þessar heilbrigðisstéttir eiga að framkvæma þá aðgerð. Á rök þeirra tel ég því skylt að hlýða og leggja nokkuð upp úr.
Í þriðja lagi tel ég frv., eins og það er nú, hæfilegan áfanga í þróun fóstureyðingarlöggjafar hér á landi. Þegar ég segi: hæfilegur áfangi, tek ég mið af þróun þessara mála meðal þjóða sem okkur eru skyldastar og þjóðfélagshættir líkastir, þ. e. á Norðurlöndum. Því marki, að fóstureyðing að ósk konu sé heimil skv. l., er þar nýlega náð, og sums staðar eru þessar heimildir ekki ennþá í l., eins og t. d. í Noregi. Ég tel eðlilegt að bíða frekari reynslu þaðan áður en við stígum skrefið á enda, m. a. fyrir þá sök að við höfum fréttir af því að sumar þjóðir, eins og pólverjar, rúmenar og búlgarar, sem lögleitt höfðu frjálsar fóstureyðingar, séu nú horfnar frá þeirri leið. Sé maður í vafa um ágæti einhvers er góð regla að hafa skrefið styttra en lengra.
Í apríl á síðasta ári lagði norska ríkisstj. fram í Stórþinginu frv. um fjölskyldumál og fleira, þar sem ráð var gert fyrir því að konan gæti sjálf ákveðið fóstureyðingu á fyrstu 12 vikum meðgöngutímans, en það frv. náði ekki fram að ganga. Nú er unnið þar í landi að því að rýmka gildandi lög um fóstureyðingar og gera þannig úr garði, að viðurkenndar verði félagslegar ástæður sem grundvöllur fóstureyðinga og að samþykki eins læknis dugi til að fá fóstureyðingu gerða á 12 fyrstu vikum meðgöngutímans. Í Finnlandi eru félagslegar ástæður grundvöllur fóstureyðinga að ósk konu. Sé konan eldri en 40 ára eða yngri en 17 ára eða hafi hún alið 4 börn nægir samþykki eins læknis til að fá fóstureyðingu á sjúkrahúsi. Annars þarf samþykki tveggja lækna eða heilbrigðisyfirvalda. Þetta gildir til 16. viku meðgöngutímans. Þessar reglur eru í lög teknar í Finnlandi árið 1970. Í Svíþjóð hefur konan ákvörðunarrétt til þess að láta eyða fóstri á 12 fyrstu vikum meðgöngutímans eftir að hafa haft samráð við lækna og fram að 18. viku meðgöngutímans eftir að hafa haft samráð við félagsráðgjafa og lækni. Þessar reglur eru skv. nýjum 1. og gilda aðeins frá byrjun þessa árs, 1975. Í Danmörku hefur konan fullan ákvörðunarrétt til þess að láta eyða fóstri á 12 fyrstu vikum meðgöngutímans. Þær reglur gilda frá 1. okt. 1973. Það er því rangt, sem við höfum heyrt iðulega í umr. um þessi fóstureyðingamál hér á landi, að á Norðurlöndum sé það viðtekin regla að fóstureyðingar að ósk konu séu heimilar. Þessar upplýsingar, sem ég flyt þingheimi um efni gildandi laga í þessum löndum skera þar alveg ótvírætt úr.
Deilan um ákvæði 9. gr. í frv., eins og það er nú og eins og það var í fyrra, er e. t. v. í reynd meiri í orði en á borði. Úr því mun reynslan skera. Deilan stendur um það hvort aðgerðarlæknir eigi að hafa rétt til þess að neita um fóstureyðingu sjái hann enga frambærilega ástæðu fyrir nauðsyn aðgerðar. Ég held og trúi, að enginn ábyrgur læknir taki slíka ákvörðun nema að vel athuguðu máli, og hlýtur afstaða hans að mótast af áhættunni, sem aðgerð er samfara, og hins vegar því hvaða vanda fóstureyðingin eigi að leysa. Telji kona úrskurð læknis rangan getur hún áfrýjað honum til n. þriggja manna, skv. 28. gr. frv., er úrskurðar ágreiningsefnið innan viku. Ég tel þetta ákvæði eðlilegt, um sinn a. m. k., af ástæðum sem ég hef þegar gert grein fyrir.
Heilbr: og trn. flytur brtt. við 11. gr. frv. til þess að gera ákvæði hennar skýrari. Brtt. er þannig:
„Við 11. gr. 1. málsgr. orðist þannig:
Áður en fóstureyðing má fara fram verður að liggja fyrir skrifleg rökstudd grg. tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa sé eingöngu um félagslegar ástæður að ræða, enda sé hann starfandi í viðkomandi heilsugæsluumdæmi. Annar þessara lækna sé sérfræðingur í kvensjúkdómum eða almennum skurðaðgerðum við það sjúkrahús þar sem aðgerðin fer fram, en hinn að jafnaði sá læknir eð félagsráðgjafi sem ráðlagt hefur konunni að leita sjúkrahúss þessara erinda.“
Skv. þessu þarf skrifleg grg. tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa, sé hann starfandi í því heilsugæsluumdæmi sem aðgerð fer fram í, að liggja fyrir áður en fóstureyðing er framkvæmd. Skv. því yrði annar aðilinn að grg. að vera starfandi sérfræðingur í almennum skurðlækningum eða kvensjúkdómum við þá stofnun, sem aðgerðin er fyrirhuguð á. Það er öryggi að mínu viti í því að tveir aðilar fjalli um umsóknina og ætti að tryggja réttlátara mat á aðstæðum. Fáir aðilar hafa eins góða innsýn í heimilishagi fólks og héraðs- og heimilislæknar sem oftast eru tíðir gestir á mörgum heimilum við fjölbreyttar aðstæður og kynnast persónulegum vandamálum fjölskyldumeðlima.
5. brtt. heilbr.- og trn. er við 12. gr. Hún er aðeins til leiðréttingar á prentvillu, sem þar var að finna. Brtt. er um það, að í stað orðsins „óhlutlægan“ í niðurlagi gr. komi: óhlutdrægan.
6. brtt. n. lýtur að breyt. á 13. gr. Leggur n. til að 5. tölul. 2. málsgr. orðist þannig:
„Hætti konan við aðgerð ber henni að staðfesta þann vilja sinn skriflega. Sé konu synjað um aðgerð á sjúkrahúsi skal henni og þeim, er undir grg. rita, tilkynnt það strax skriflega. Getur konan þá tafarlaust leitað þeirra úrræða sem kveðið er á um í 28. gr., og er þeim, sem undir grg. hefur ritað, skylt að aðstoða hana í þeim efnum.“
Niðurlagsgr. sem er í frv. er þannig: „Hafi konu verði synjað um aðgerð í einu sjúkrahúsi er ekki heimilt að framkvæma aðgerðina á öðru sjúkrahúsi nema leyfi n. komi til“ — fellur skv. þessari breytingu niður.
7. brtt. n. er við 15. gr. frv., en n. leggur til að hún orðist þannig:
„Einungis læknar mega framkvæma fóstureyðingu. Fóstureyðingu má aðeins framkvæma í sjúkrahúsum, þar sem sérfræðingar á sviði kvenlækninga eða sérfræðingur í almennum skurðlækningum starfar og ráðh. hefur viðurkennt í þessu skyni.“
Ég hef þá gert grein fyrir þeim brtt. sem n. flytur við ákvæði í II. kafla þessa frv. um fóstureyðingar.
III. kafli frv. fjallar um ófrjósemisaðgerðir. Aðalbreytingin í þessum kafla frá fyrra frv. er sú að ófrjósemisaðgerð er heimil að ósk viðkomandi hafi hann náð 25 ára aldri, enda mæli engar læknisfræðilegar ástæður gegn slíku. Sé viðkomandi yngri en 25 ára þarf að fylg ja beiðni rökstudd, skrifleg grg. tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa. Annar þessara lækna, sá sem aðgerðina framkvæmir, skal vera sérfræðingur í kvensjúkdómum, þvagfæraskurðlækningum eða almennum skurðlækningum. Undanþágu frá þessu ákvæði má þó veita skv. 2. málsgr. 23. gr. frv.
8. brtt., sem n. flytur, er til samræmis við 19. gr. og hljóðar þannig, að á eftir orðunum „ástæður fyrir aðgerð“ í 2. málsgr. bætist: enda sé hann starfandi í viðkomandi heilsugæsluumdæmi.
IV. kafli frv. fjallar um almenn ákvæði. Litlar breytingar eru gerðar í honum frá því sem frv. í sinni fyrri mynd hafði að geyma. Þó er breyt. gerð á 28. gr., þar sem fjallað er um að ef ágreiningur rísi um hvort framkvæma eigi fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð, þá skuli málinu vísað til landlæknis, — í stað þess að í fyrra frv. stóð „heilbrigðisyfirvalda“ stendur nú: landlæknis.
Heilbr.- og trn. flytur svo brtt. við 26. gr. frv. er hljóðar þannig:
„Heilbrigðisyfirvöldum ber að hafa eftirlit með framkvæmd l. og sjá um að á sjúkrahúsum ríkisins sé hægt að framkvæma þær aðgerðir sem l. gera ráð fyrir, sbr. þó 15. gr. Stuðla ber að samræmi í framkvæmd þeirra í öllum landshlutum. Þeim, er starfa að framkvæmd laganna, skal því veitt fræðsla og leiðbeiningar í þessu skyni.“
Ástæðan fyrir þessari brtt. er sú að nm. vilja tryggja það með að taka beint upp í l. að aðstaða, tækjabúnaður og annað, sé fyrir hendi í þeim sjúkrahúsum sem viðurkenningu hljóta af hálfu heilbrigðisyfirvalda til þess að framkvæma þessar aðgerðir.
Síðasta brtt. n. er svo við 28. gr. frv. Það eru tvær smávægilegar breyt. sem n. gerir við 28. gr. Í fyrsta lagi, að í stað orðanna „skal hann þá“ — þ. e. a. s. landlæknir þegar honum berst kæra — í 1. málsgr. komi: skal hann tafarlaust. Og í öðru lagi að á eftir orðinu „þrír menn“ — um skipun úrskurðarnefndar skv. 28. gr. — bætist: og jafnmargir varamenn. Þessar brtt. eru fluttar til þess að tryggja sem mestan hraða í afgreiðslu slíkra kærumála út af neitun fóstureyðinga og til að tryggja að kæru eða beiðni, sem herst til landlæknis, sé skilað strax til n. og n. geti verið starfhæf þó að einn eða fleiri af aðalmönnum falli frá, með því að skipa jafnframt varamenn til þess að taka sæti í forföllum aðalmanna í nefndinni.
Ég hef þá lokið að mæla fyrir áliti meiri hl. heilbr: og trn. sem leggur, sem fyrr segir, til að frv. verði samþ. með þeim breyt. sem ég hef lýst. Ég vil að lokum draga saman í nokkrum meginatriðum ástæðurnar fyrir afstöðu minni til frv. Ég hef gert grein fyrir afstöðu n., en vildi leyfa mér til viðbótar því að taka þetta fram um afstöðu mína í þessum efnum:
1) Ég er fylgjandi frjálslyndri fóstureyðingarlöggjöf, en andvígur frjálsum fóstureyðingum.
2) Ég er fylgjandi tveggja lækna vottorði sem skilyrði fóstureyðinga. Ég lít á það sem skyldu læknis að vernda sjúkling gagnvart utanaðkomandi hættu, hvort sem hún stafar frá umhverfinu eða sjúklingnum sjálfum. Það verður að reikna með þeim möguleika að undir vissum kringumstæðum — ég endurtek það — undir vissum kringumstæðum viti læknir betur en jafnvel konan, hvað henni er fyrir bestu.
3) Verði kunngert fyrir fram, að konur geti á fyrstu 12 vikum meðgöngutíma fengið fóstureyðingu án þess að færa fram nokkur frambærilegar ástæður fyrir slíkri ósk, eru miklar líkur að mínu viti að það leiði til misnotkunar.
4) Slíkt fyrirkomulag frjálsra fóstureyðinga gæti mjög auðveldlega leitt til mikillar fjölgunar þeirra og það mundi að mínu viti draga úr þörfinni og viðleitninni til fræðslu um þessi mál, eins og reynt er að bjóða af hálfu þjóðfélagsins með ákvæðum í 1. kafla frv. Undir mikla fjölgun fóstureyðinga er hvorki að mínu viti sjúkrabúsakerfi landsins né starfslið þess undirbúið án þess að það kæmi niður á einhverju öðru.
Að síðustu vil ég lýsa þeirri skoðun minni að fóstrið sem slíkt eigi nokkurn rétt til vaxtar og til þess að verða að sjálfstæðum einstaklingi, og ég tel að sá réttur væri fyrir borð borinn með frjálsum fóstureyðingum, eins og ég hef raunar áður vikið að. Ég tel afar mikinn misskilning þegar það er talið vantraust á konum og skerðing á sjálfsákvörðunarrétti þeirra ef sjálfdæmi þeirra um líf fóstursins er ekki virt. Þá er ekki litið á fóstur sem sjálfstætt líf, heldur aðeins sem hluta af lífi og líkama móðurinnar.