17.04.1975
Neðri deild: 68. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3022 í B-deild Alþingistíðinda. (2275)

130. mál, fóstureyðingar

Tómas Árnason:

Hæstv. forseti. Með hliðsjón af því, að frsm. meiri hl. heilbr.- og trn. gat þess í framsöguræðu að þegar félagslegar ástæður skv. 9. gr. frv. væru metnar yrði mikið tillit tekið til óska konunnar sjálfrar, segi ég já.