17.04.1975
Neðri deild: 68. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3022 í B-deild Alþingistíðinda. (2276)
130. mál, fóstureyðingar
Gunnlaugur Finnsson:
Hæstv. forseti. Ég tók ekki þátt í þessum umr. í gær. Þar sem mér þykir með þeirri brtt. sem var samþ. áðan og þar sem auk þess d-liður í þessum málslið er þess eðlis, að mér sýnist sjálfum heimildin opnuð upp á gátt og vera nálægt hinni fyrri útgáfu frv., sé ég mér ekki annað fært en að segja nei.