17.04.1975
Neðri deild: 68. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3022 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)
130. mál, fóstureyðingar
Karvel Pálmason:
Hæstv. forseti. Eins og ég gerði grein fyrir í umr. hér í gær er minn skilningur sá um 9. gr. 1, eins og hún er nú, að í framkvæmd verði um mjög sambærilegt að ræða við 9. gr. 1 í fyrra frv. Þetta virðist einnig vera skilningur þeirra aðila, sem koma til með að hafa mikil áhrif á framkvæmd löggjafarinnar, eins og stjórnar Læknafélags Íslands. Sami skilningur kom fram í ræðum nokkurra hv. þm. í gær. Þar sem ég er andvígur svo miklu frjálsræði í löggjöf um fóstureyðingar segi ég nei.