17.04.1975
Neðri deild: 68. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3023 í B-deild Alþingistíðinda. (2280)

240. mál, ríkisreikningurinn 1972

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Hæstv. forseti. Frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1972 liggur hér fyrir á þskj. 458. Einnig hefur verið lagt fram frv. til fjáraukalaga vegna sama árs og verður gerð sérstök grein fyrir því.

Aðalyfirlit A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1972 var afhent þm. vorið 1973 og reikningurinn í heild með sundurliðunaryfirlitum A-hlutans og öllum yfirlitum B-hlutans frágenginn af hálfu ríkisbókhaldsins til meðferðar hjá yfirskoðunarmönnum Alþ. afhentur þm. í okt. 1973.

Við 1. umr. fjárlagafrv. fyrir árið 1974 var gerð ítarleg grein fyrir afkomu ríkissjóðs á árinu 1972 skv. ríkisreikningi og jafnframt lögð fram grg. ríkisbókhaldsins þar um. Með fyrrnefndu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1972 mun ég gera stutta grein fyrir helstu frávikum ríkisreiknings og fjárlaga 1972. Því tel ég ekki ástæðu til þess nú að rekja efni þessa frv. að öðru leyti en því að geta niðurstöðutalna A-hluta ríkisreikningsins. Áður en ég get þeirra vil ég minna á tvær meginreglur við uppgjör A-hluta ríkisreiknings skv. núgildandi lögum, nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Önnur er sú, að álagðar tekjur og áfallin gjöld eru lögð til grundvallar við uppgjör rekstrarreiknings, en ekki greiðsluhreyfing þessara liða, þ. e. innheimta tekna og útgreiðsla gjalda. Af því leiðir að í efnisyfirliti eru óinnheimtar tekjur meðal eignaliða og ógreiddar gjaldskuldbindingar meðan skuldaliða. Hin meginreglan er sú, að fjárfestingarútgjöld A-hlutans eru talin með gjöldum þess árs þegar til þeirra er stofnað, en þeim ekki dreift með afskriftum á þann árafjölda sem gert er ráð fyrir að fjárfestingin endist.

Gjöld rekstrarreiknings A-hlutans námu 18 milljörðum 395 millj. 421 þús. kr. Tekjur námu 18 milljörðum 530 millj. 347 þús. kr., eða 134 millj. 926 þús. kr. umfram gjöld. Endurmatsjöfnuður var neikvæður um 61 millj. 536 þús. kr., einkum vegna gengismunar á skráningu skulda í erlendri mynt. Samtals jafnaðar rekstrar- og endurmatsreikninga var hagstæð um 73 millj. 390 þús. kr. og samsvarar aukningu eignaliða umfram aukningu skuldaliða í efnahagsreikningi. Sú breyt. kom fram í bættri stöðu sjóðs og óbundinna bankareikninga um 120 millj. 534 þús. kr., þegar undan er skilin bætt staða á bankareikningi ríkissjóðs í Seðlabankanum um 1 milljarð vegna sérstakrar lántöku í bankanum til 4 ára. Bætt staða annarra greiðslujafnaðarliða nam nettó 569 millj. 83 þús. kr. Í þeirri fjárhæð kemur fram aukning óinnheimtra tekju- og eignarskatta um 710 millj. 314 þús. kr., einkum vegna skattalagabreyt. til hækkunar á tekjuskatti að frádregnum breytingum ógreiddra gjalda og ýmissa skammtíma kröfu- og skuldaliða um 141 millj. 226 þús. kr. Á móti þessum greiðslujafnaðarliðum kemur lánajöfnuður. Hann fól í sér hækkun hlutabréfaeigna og stofnfjárframlag um 79 millj. 434 þús. kr. og skuldaaukningu vegna nýrra lántaka umfram afborganir og hreyfingu veittra lána um 695 millj. 666 þús. kr. ef áður greind 1000 millj. kr. lántaka í Seðlabankanum er talin með bankareikningi. Nýjar lántökur voru einkum vegna vegagerðar.

Ef litið er lítið eitt nánar á gjöld ríkisreiknings kemur í ljós, að um helming þeirra má rekja til þriggja þátta. Í fyrsta lagi eru framlög til Tryggingastofnunar ríkisins og Atvinnuleysistryggingasjóðs að fjárhæð 5 milljarðar 608 millj. 748 þús. kr. Í öðru lagi niðurgreiðslur á vöruverði 1 milljarður 681 millj. 52 þús. kr., auk uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir 314 millj. 909 þús. kr., eða samtals 1 milljarður 991 millj. 961 þús. kr. Í þriðja lagi gjöld vegna vegamála 1 milljarður 610 millj. 52 þús. kr. Þessir þrír þættir námu samtals 9 milljörðum 282 millj. 761 þús. kr., eða 50.5% af gjöldum A-hlutans. Gjöld skóla- og fræðslumála, er falla undir menntmrn., auk bændaskólanna námu 2 milljörðum 791 millj. 666 þús. kr., eða um 15% heildarútgjalda. Þessir fjórir þættir námu því 2/3 hlutum gjalda A-hluta ríkisreikningsins fyrir árið 1972.

Með hliðstæðum hætti má draga fram stærstu liði tekna á árinu 1972. Þrír stærstu liðirnir voru almenn aðflutningsgjöld 4 milljarðar 502 millj. 843 þús. kr. Söluskattur 4 milljarðar 300 millj. kr. og tekjuskattur 4 milljarðar 20 millj. 101 þús. kr., eða samtals 12 milljarðar 823 millj. 72 þús. kr., sem svarar til um 69% heildartekna A-hluta ríkisreikningsins 1972.

Á árinu 1972 tók ríkissjóður á sig ýmsa gjaldaflokka sveitarfélaga og átti tekjuskattsbreyt. að vega þar á móti.

Ég mun ekki gera nánari grein fyrir niðurstöðutölum ríkisreikningsins 1972. Um frávik reikningsins og fjárl. mun ég fjalla, eins og áður sagði, í framsögu um frv. til fjáraukalaga fyrir sama ár.

Að lokum vil ég vekja athygli á því, að í ríkisreikningi er að finna eins og áður aths. yfirskoðunarmanna Alþ. við ríkisreikninginn, svör við þeim aths. og till. yfirskoðunarmanna á grundvelli þeirra, þar sem þeir gera m. a. grein fyrir því hvað athuga þurfi framvegis af ýmsum málum í starfsemi ríkisins. Er þess að vænta að svo verði gert.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meira um frv., en legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.