22.04.1975
Sameinað þing: 67. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3112 í B-deild Alþingistíðinda. (2321)

199. mál, fjarskipti við Siglufjörð og talsamband milli Reykjavíkur og Norðurlands

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Þegar hv. fyrirspyrjandi gerði hér grein fyrir fsp. sinni í Sþ. hafði mér ekki borist svar frá póst- og símamálastjórninni við fsp., en hafði ekki reiknað með að hún kæmist að vegna þess að niður yrðu felldar þær fsp. sem á undan voru. Þá gerði frsm. grein fyrir fsp. sinni Svar póst- og símamálastjórnarinnar, sem mér hefur borist, er á þessa leið:

„Á fjárfestingaráætlun Pósts og síma fyrir árið 1975 er gert ráð fyrir byggingu 5 metrabylgjustöðva á Vestur- og Norðurlandi. Niðurskurður á fjárveitingu framkvæmda gæti haft áhrif á það hvort af þessari framkvæmd yrði. Hins vegar áætlar tæknideild Pósts og síma að hægt verði á þessu ári að setja upp eina stöð sem afgreidd yrði frá loftskeytastöðinni í Siglufirði. Til þess að þjónustusvæði stöðvarinnar verði sem stærst er ráðgert að hún verði staðsett í Grímsey og tengd Siglufirði með línu á radíófjölsímasambandi.

Á árunum 1973 og 1974 voru neistar örbylgjustöðvar milli Blönduóss og Akureyrar og hafa sambönd við þessar stöðvar verið í prófun að undanförnu og reyndar í notkun að takmörkuðu leyti. Jafnframt hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að hægt væri að tengja 30–60 línur áfram frá Blönduósi til Reykjavíkur um strengi og radíósambönd. Línur þessar verða að líkindum teknar í notkun á næstunni. Nú stendur einnig yfir bygging stöðvar í örbylgjukerfi milli Blönduóss og Reykjavíkur, og þegar þeim framkvæmdum verður lokið í byrjun næsta árs verður bægt að fjölga enn línum og þar að auki leggja niður helstu samböndin milli Reykjavíkur og Akureyrar. Er þess að vænta að bilanir og truflanir verði minni á hinum nýju samböndum:

Þetta er svar við fsp. þessari og sé ég ekki ástæðu til þess að bæta neinu við.