22.04.1975
Neðri deild: 71. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3124 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)

130. mál, fóstureyðingar

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki bæta mörgum orðum við þessar umr. Ég lít svo á að þær till., sem við fjórmenningar höfum flutt, séu síðasta tilraun til að bæta úr verstu ágöllunum sem á þessu frv. eru að okkar dómi hér í þessari hv. deild. Ég lít svo á að verði þær samþ. sé gengið nokkuð til móts við þá sem vilja þrengja ákvæði fóstureyðingarlöggjafar frá því frv., sem lagt var fram á Alþ. í fyrra, og frá því frv., sem lagt var fram nú á yfirstandandi Alþ. Ég dreg enga dul á það að ýmsir okkar hefðu viljað ganga lengra í að þrengja ákvæði þessa frv. Ég tel t. d. að ástæða hefði verið til þess að þess sæjust merki í löggjöf af þessu tagi að fóstureyðing væri neyðarúrræði. Nálega hver einasti ræðumaður sem tekið hefur til máls um þetta efni í umr. hér í hv. d., hefur lýst því að sín skoðun væri að fóstureyðing væri ævinlega neyðarúrræði. Hvers vegna má þessi skoðun ekki koma fram í löggjöf? Hvers vegna má þessi skoðun, sem lýst hefur verið af nm. í hv. heilbr.- og trn., ekki sjást í þeirri gerð frv., sem hv. n. skilar af sér að lokinni margra vikna athugun? Ég hefði t. d. kosið að 9. gr. hæfist á málsgr. er hljóðaði eitthvað á þessa leið: Fóstureyðingu ber ævinlega að líta á sem neyðarúrræði. Hún er þó heimil o. s. frv.

Þó að ýmis þannig atriði í þessu máli séu með þeim hætti að við, sem stöndum að flutningi brtt. á þskj. 491. hefðum viljað ganga nokkru lengra, þá eru þessar till. þó við það miðaðar að freista þess að þær nái samþykki meiri hl. þessarar d. Þær eru miðaðar við það, að með þeim sé gengið hið skemmsta í þá átt að þrengja ákvæði þessa frv. sem við, sem að þeim stöndum, getum sætt okkur við. Þess vegna er þetta lokatilraun okkar til að bæta úr því alvarlega slysi, þeim alvarlegu mistökum að okkar áliti, sem því fylgdu ef frv. þetta yrði afgr. í þeirri mynd sem það nú er.

Ég hefði kosið að fleiri hv. þm. hefðu séð sér fært að vera viðstaddir þá umr. sem fór hér fram fyrir nokkrum dögum, og ég hefði enn fremur kosið að fleiri hv. þm. í þessari d. hefðu hlýtt á þá ágætu ræðu sem var flutt áðan af hv. þm. Ingiberg J. Hannessyni. En ég skal ekki orða þetta meir. Ég álít þó að það hefði getað haft nokkur áhrif á þingheim, ef hann hefði fylgst með því í heild hvernig frv.-gerðin, eins og hún nú hljóðar, er túlkuð bæði af þeim sem skipa hv. heilbr.- og trn., og öðrum sem um þetta mál hafa talað. Sú túlkun er ekki síst orsök þess að við freistum þess nú að fá fram hér örfáar breytingar.