25.11.1974
Efri deild: 10. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (235)
61. mál, Hótel- og veitingaskóli Íslands
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þetta frv. var lagt fram á síðasta reglulegu Alþ. í sömu mynd og það er lagt hér fram nú. Með því að málið er einnig í sjálfu sér ákaflega einfalt þarf ekki að hafa fyrir því langa framsögu. Hér er um að ræða breytingu á 2. gr. l. um Hótel- og veitingaskóla Íslands. Breytingin er sú ein að nemendur þessa skóla fái aðild að skólanefndinni á svipaðan hátt og átt hefur sér stað um nokkra skóla áður.
Ég tel ekki þörf á að skýra þetta frekar, en vil leyfa mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn. Þetta er einfalt mál og þætti mér vænt um ef n. gæti tekið það til athugunar við fyrsta hentugleika, þannig að afgreiðslu þess gæti orðið lokið á fyrri hluta þingsins, ef ekki koma upp sérstök ágreiningsatriði.