22.04.1975
Neðri deild: 71. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3136 í B-deild Alþingistíðinda. (2350)
204. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Tómas Árnason:
Herra forseti. Ég á sæti í fjh.- og viðskn. og stend því að áliti og brtt. meiri hl. n. Við höfum ekki, þm. Framsfl., tekið þátt í umr. við 2. eða 3. umr., en vegna þess að það hafa komið fram nokkur atriði í málflutningi sumra hv. þm. sem hefur verið beint sérstaklega til okkar, þá vil ég leyfa mér að taka til máls og minnast auk þess á nokkur önnur atriði sem varða afgreiðslu þessa máls.
Það hefur verið gagnrýnt nokkuð að seinlæti hafi verið á meðferð þessa máls í þinginu. Þess ber þó að gæta að hér er um að ræða breyt. á skattalögum, talsverðar breyt. á tekju- og eignarskattslögum, breyt. á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, breyt. á lögum um almannatryggingar o. fl. Það er nokkurn veginn árlegur við burður hjá okkur íslendingum. Alþ. tekur til meðferðar svo að segja á hverju þingi, verulegar breyt. á skattalögum. Þegar ýmsar aðrar þjóðir fjalla um skattalög á sínum þjóðþingum þá tekur það mjög langan tíma. Mér er sagt eð endurskoðun skattalaga, t. d. í Noregi, hafi tekið mörg ár. Það er því í sjálfu sér ekkert óeðlilegt þó að nokkurn tíma taki í þinginu að fara með slík mál eins og það frv. sem hér liggur fyrir þar sem um er að ræða talsverðar breytingar á skattareglun. Ég álít að það sé ekki beint ástæða til þess að gagnrýna meðferð málsins að þessu leyti til.
Í frv. og brtt. eru ýmis ákvæði sem í raun og veru enginn pólitískur ágreiningur er um. Svo eru önnur atriði sem um er talsverður ágreiningur. Ég vil aðeins minnast nokkrum orðum. á brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. um ákvæði til bráðabirgða, þar sem heimild er til sérstakrar óbeinnar fyrningar vegna verðhækkunar á fjármunum, og vilja örlítið að málflutningi hv. 3. þm. Reykv. í því sambandi.
Það er rétt hjá honum að hér er lagt til, að heldur minna verði skertar í lögum heimildir til sérstakrar óbeinnar fyrningar heldur en gert var náð fyrir í upphafi. En hins vegar er þess að gæta að hér er um að ræða till. um að skerða ákvæði daga um heimildir til óbeinnar fyrningar frá því sem áður gilti í lögum. Það hefur gerst tvennt. Annars vegar það, að Alþb. var í ríkisstj., og hins vegar það, að nú er Sjálfstfl. kominn í ríkisstj. Þegar Alþb. var í ríkisstj. voru skerðingar heimilar allt að 100%, en nú er verið að leggja til að þau verði lækkuð í 70%. (Gripið fram í: Hver eru áhrif Sjálfstfl?) Ja, þetta tvennt hefur skeð og menn verða svo að draga ályktanir af því hvers vegna. En það er nú svo undarlegt að meðan Alþb. var í ríkisstj. voru þau ákvæði í lögum sem nú er verið að gera till. um að breyta. (Gripið fram í: Framsfl. hafði náttúrlega enga stefnu um þetta efni.) Framsfl. á sinn þátt í því að hér er verið að breyta til, og þessar staðreyndir, sem ég hef hér minnt á, haggast ekki þótt hv. 3. þm. Reykv. leggi nú til að miða við 50 % heimild, því að það er óhagganleg staðreynd að þegar Alþb. var í ríkisstj. voru lögin á þann veg að þessi heimild var miðuð við 100%, en nú er lagt til að hún verði miðuð við 70%. Á þetta vil ég nú minna í fullri vinsemd.
Það eru nokkur nýmæli í þessum till. sem hér liggja fyrir, þ. á m. nýmæli um skyldusparnað. Um þetta atriði segir svo í grg. um frv., með leyfi hæstv. forseta:
„Með skyldusparnaði þeim, sem hér er lagt til að upp verði tekinn, er stefnt að því að jafna sem sanngjarnast þeim byrðum sem þjóðin í heild hlýtur nú að taka á sig um leið og aflað er innlends fjármagns til þess að standa undir nauðsynlegum framkvæmdum ríkisins. Líklegt er að mestum hluta þessa fjár mundi ella varið til einkaneyslu eða til fjárfestingar, en hjá ríkissjóði kemur fé þetta í stað erlends lánsfjár. Þetta er í fyrsta sinn sem almennum skyldusparnaði er beitt hér á landi.“
Það er að vísu rétt að hér er ekki um ýkjastórt mál að ræða í sjálfu sér. En hér er um stefnumarkandi mál að ræða. Hér er verið að taka í lög skyldusparnað sem ekki hefur áður verið festur í lög hér á landi. Hér er að vísu, eins og kunnugt er, og hefur verið um alllangan tíma skyldusparnaður ungmenna, en almennur skyldusparnaður hefur ekki áður verið færður hér í lög. Ég tel þetta merkt nýmæli og raunar hefði e. t. v. verið ástæða til þess að íhuga hvort ekki hefði komið til greina að lögfesta ákvæði sem hvetja menn til frjáls skyldusparnaðar. Þetta hafa sumar aðrar þjóðir gert, eins og t. d. Vestur-þjóðverjar og að ég hygg norðmenn. Vestur-þjóðverjar a. m. k. hafa þau ákvæði í lögum að ef menn leggja inn vissa fjárhæð á banka og festa hana þar í tiltekinn tíma, þá fái þeir frádrátt frá skatti. Þetta er gert til að hvetja menn til sparnaðar. Og mér er sagt, að vestur-þjóðverjar hafi byggt upp byggingarsjóð sinn í húsnæðismálum að verulegu leyti með þessari aðferð. Ég álít að það kæmi vel til greina að lögfesta ákvæði sem hvetja menn til frjáls sparnaðar.
Það er erfitt að ræða um efnahags- og atvinnumál án þess að gera sér grein fyrir þróun mála undanfarin missiri. Það hefur komið fram áður í umr. hvað einkennt hefur þessa þróun. Það er aðallega þrennt sem hefur einkennt hana: Í fyrsta lagi alveg óvenjuleg hagsveifla í efnahagslífi þjóðarinnar, einstæð hagsveifla, sem er þannig vaxin að útflutningsafurðir hafa farið lækkandi, en á sama tíma hafa nauðsynjar, sem íslendingar þurfa að kaupa inn til landsins frá öðrum þjóðum, stórhækkað í verði. Þessi hagsveifla er talin hafa numið á árinu 1974 30% verri viðskiptakjörum í árslok heldur en þau voru í ársbyrjun. Þetta er býsna óhagstæð þróun og eðlilegt að hún komi erfiðlega niður og þurfi að gera ráðstafanir í efnahagsmálum til þess að hamla gegn slíkri þróun.
Þá er ástæða til þess í öðru lagi að geta þess að á árum 1973. 1974 og 1975 mun verða varið rúmlega 4 milljörðum kr. til þess að greiða bætur vegna náttúruhamfara í Vestmannaeyjum og í Neskaupstað. Á árinu 1974 nam þessi upphæð 2 milljörðum 200 millj. kr. í árslok og á árinu 1975 mun hún að líkindum nema um 1 920 millj. eða samtals 4.1 milljarði.
Í þriðja lagi er ástæða til að minna á kjarasamningana sem gerðir voru í febr. 1974, Þessir kjarasamningar hafa aukið stórkostlega á erfiðleikana í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það var viðurkennt af báðum aðilum þegar lokið var gerð kjarasamninganna að þeir væru verðbólgusamningar. Það þarf ekki að beita öðru en heilbrigðri skynsemi til þess að gera sér grein fyrir því að 40–50% kauphækkun á einu ári er ofviða efnahagskerfinu, raunar hvaða efnahagskerfi sem er. Og þetta hefur mjög aukið á verðbólguna og valdið vaxandi erfiðleikum varðandi þróunina í efnahagsmálum.
Öll hefur þessi þróun haft slæm áhrif á gjaldeyrisstöðuna, eins og kunnugt er. Nú er staðan þannig í gjaldeyrismálum. Viðskiptahallinn á árinu 1974 varð neikvæður um 15 milljarða og 500 millj. kr. Þessi þróun varð mjög ör og miklu örari á síðari hluta ársins heldur en menn áttu von á á miðju ári. Menn spáðu því að viðskiptahallinn mundi verða um 12.4 milljarðar, en hann ver 3.1 milljarði óhagstæðari þegar upp var staðið. Hér er um að ræða mjög alvarlegt ástand eins og öllum er kunnugt. Erlendar skuldir til eins árs og lengri tíma námu í árslok um 40 milljörðum og greiðslubyrðin, þ. e. a. s. hlutfallið á milli greiðslu, afborgana og vaxta af lengri lánum en til eins árs til útlanda og tekna vegna sölu vara og þjónustu til útlanda, nam á árinu 1974 um 11.3%. Á árinu 1973 var greiðslubyrðin 9%, á árinu 1975 verður hún að líkindum 15% og fer svo hækkandi og nær a. m. k. 20% um árið 1979 að því er spáð er. Þessi háa greiðslubyrði hlýtur óhjákvæmilega að draga úr möguleikunum til öflunar fjármagns til nýrrar fjárfestingar á komandi árum og gætir þess raunar þegar. Gjaldeyrisstaðan er um þessar mundir neikvæð um líklega 1900–2000 millj. kr. og í kassanum ef svo má að orði komast, mun vera um 21/2 milljarður til ráðstöfunar. Þannig er auðvitað mjög þröngt í búi í þessum efnum á allar hliðar eins og sjá má. Þessar staðreyndir sýna ljóslega hve svigrúm til efnahagsaðgerða hefur þrengst til mikilla muna á seinustu mánuðum að ég tali nú ekki um missiri.
Stjórnarskiptin urðu 28. ágúst 1974. Sú þróun, sem viðgekkst þegar fyrrv. ríkisstj. var við völd, hélt auðvitað eitthvað áfram. Lífið stöðvast ekki, þó að ráðherraskipti verði og þess vegna verða fráfarandi ráðh. að gæta að því að þeir bera að hluta pólitíska ábyrgð á þróun mála næstu vikur og mánuði eftir að þeir yfirgefa ráðherrastólana. Þetta er augljóst mál. Þessi ríkisstj. hefur setið síðan, eims og kunnugt er, og gert ýmsar efnahagsráðstafanir. Það hefur verið gagnrýnt að hún hefur gripið til gengislækkana í sambandi við efnahagsráðstafanir. Gengislækkanir eru ekki nýtt fyrirbrigði, nema síður sé. Á fyrri hluta árs 1974 varð raunveruleg gengislækkun um 15%. Gengið var látið síga sem nam um 15%. Í viðræðunum í sumar, þegar stjórnmálaflokkarnir ræddu saman um möguleika á stjórnarmyndun, voru allir stjórnmálaflokkar, að ég hygg, sammála um að ekki yrði komist hjá gengislækkun. Ég held ég fari rétt með það að hv. 2. þm. Austurl. hafi sagt opinberlega að Alþb. hefði fyrir sitt leyti getað fallist á 15% gengislækkun ef orðið hefði af stjórnarmyndun með þátttöku þess. Síðan þetta var hefur þróunin í gjaldeyrismálum og viðskiptakjörum farið versnandi, eins og kunnugt er, og versnað um a. m. k. 10%. Þannig er það í raun og veru framhald af því sem áður var, að núv. ríkisstj. hefur gripið til gengislækkunar fyrir skömmu. Um það má sjálfsagt deila hve mikil gengislækkun hefði þurft að koma til, en það virðist rökrétt að álíta að allir stjórnmálaflokkar hefðu gripið til gengislækkunar nú í febrúarmánuði ef þeir hefðu verið við völd og jafnvel Alþb. einnig, ef þessi mál eru rakin og skoðuð nánar.
Ríkisstj. hefur með þessum ráðstöfunum unnið að því að tryggja grundvöll atvinnuveganna og atvinnuöryggi í landinu, og það sem hefur kannske áunnist mest er að mínum dómi að það hefur tekist að halda uppi fullri atvinnu í landinu. Atvinnuleysi er nánast ekkert hér eða svipað því sem var á síðasta ári, og þetta hefur tekist þrátt fyrir mikla erfiðleika í efnahagsmálum. Þetta er auðvitað ákaflega þýðingarmikið atriði.
Þegar þróun efnahagsmála verður á þann veg sem ég hef verið að lýsa, til hins verra, vaknar spurningin: Hvernig á að bregðast við, hvað skal gera? Ein af þeim leiðum, sem til greina koma, er að minnka einkaneyslu í landinu. Önnur leið er að minnka samneyslu. Þessi tvö atriði eru mjög þýðingarmikil þegar menn velja milli leiða. Það er ómótmælanlegt að einkaneysla hér í landinu var á árinu 1974 geysilega mikil. Það nægir t. d. að minna á það að fyrstu 8 mánuði ársins 1974 voru, að ég hygg, fluttir inn 8000 bílar, — ég held að ég fari rétt með það, — 1000 bílar á mánuði, 35 bílar á dag ef menn hafa flutt inn bíla á sunnudögum einnig. Einkaneyslan í landinu var það mikil á síðasta ári að það er ekkert óeðlilegt, miðað við það hvernig þróunin hefur verið í efnahagsmálum, þó að dregið sé úr henni. Það kann að vera ágreiningur um hvort á að draga úr einkaneyslu eða hvort á að minnka samneysluna þegar þarf að draga saman almennt séð. Við í Framsfl. höfum lagt á það áherslu að reyna að halda uppi mikilli samneyslu og teljum að það sé eðlilegt eins og nú háttar að draga úr einkaneyslunni.
Ef litið er á fjárlögin frá því í vetur, þá bera þau þess vott að það hefur í raun og veru ekki verið breytt um stefnu í þessum efnum. Eins og hæstv. forsrh. tók fram í ræðu sinni í gærkvöld mun vera svipað hlutfall á milli þess fjár sem ráðstafað er til samneyslu nú eins og var á seinasta ári, miðað við tekjuöflun landsmanna.
Þá er ég kominn að því atriði, sem hér hefur verið mikið rætt um, þ. e. a. s. 1. gr. þessa frv. sem felur í sér heimild til lækkunar á útgjöldum ríkisins. Það er ástæða til þess að benda á að hér er aðeins um heimildarákvæði að ræða. Það er ekki verið að lögfesta niðurskurð. Hér er um að ræða heimildarákvæði. Og það er meira að segja þannig, að það er ekki á færi ríkisstj. samkv. 1. gr. frv., að skera niður ríkisútgjöld, heldur verður að samþykkja það af fjvn. (Gripið fram í: Er ekki meiningin að nota heimildina?) Þannig vil ég undirstrika það að á þessu stigi málsins er hér um að ræða heimild, en ekki lögfestingu. Ég skal engu spá um það hvort heimildin verður notuð eða ekki, en á þessu stigi málsins standa mál á þann veg að hér er um heimildarákvæði að ræða.
Þá er mjög þýðingarmikið að halda áfram uppbyggingu atvinnulífsins. Ríkisstj. hefur unnið að því á undanförnum vikum að afla fjár til þess að hægt sé að halda áfram öflugri uppbyggingu í atvinnulífinu. Í seinustu till. stjórnarflokkanna er gert ráð fyrir að auka heimildir Framkvæmdasjóðs til lántöku úr 1200 millj. upp í 2 000 millj., einmitt í því skyni að beina þessu fjármagni áfram til fjárfestingarlánasjóðanna og til uppbyggingar í atvinnulífinu. Það er yfirlýst stefna stjórnarflokkanna að leggja áherslu á uppbyggingu vinnslustöðva bæði í sjávarútvegi og einnig í landbúnaði, halda áfram með framkvæmd hraðfrystihúsaáætlunarinnar og leggja áherslu á uppbyggingu vinnslustöðva í landbúnaði: mjólkurstöðva, sláturhúsa og fleiri vinnslustöðva.
Það er ekkert nýtt vandamál í sjálfu sér þó að erfitt sé að afla nægilegs fjár til atvinnulífsuppbyggingar. Það er ekki nýtt vandamál. Á hitt ber að líta, að möguleikar til þess að afla fjár til atvinnulífsuppbyggingar hafa óneitanlega þrengst frá því sem var t. d. á seinasta ári, að ég tali nú ekki um árið 1973. Þess ber að gæta að fjárfestingarlánasjóðirnir hafa ekki ýkja mikið eigið fé sem þeir geta lánað til. uppbyggingar í atvinnulífinu, og þess vegna er það að afla verður þeim lánsfjár.
Framkvæmdasjóður hefur verið miðsjóður í þessu kerfi og til hans hefur verið aflað fjár til að endurlána til fjárfestingarlánasjóðanna. Það er gert aðallega með fernum hætti: Í fyrsta lagi með eigin fé Framkvæmdasjóðs sem er ákaflega lítið, ekki nema um 140 millj. kr. á þessu ári. Síðan hefur í öðru lagi verið sá háttur á í mörg ár að Framkvæmdasjóður hefur tekið að láni frá viðskiptabönkunum upphæð sem svarar til 10% af innlánsaukningunni. Það lætur nærri að á þessu ári geti hér verið um að ræða upphæð einhvers staðar á milli 700 og 800 millj. kr. Í þriðja lagi hefur svo Framkvæmdasjóður farið inn á þann markað, lánamarkað, að afla fjár með lántökum úr lífeyrissjóðum landsmanna. Á seinasta ári voru aðeims 250 millj. kr. sem Framkvæmdasjóður aflaði með þessum hætti. Það væri að mínum dómi ákaflega þýðingarmikið að hægt væri að útvíkka þetta kerfi verulega frá því sem þá var. Að lokum eru svo erlendar lántökur.
Þetta eru í raun og veru þeir möguleikar sem um er að ræða til þess að afla fjár til uppbyggingar í atvinnulífinu, og það gefur auga leið þegar höfð er í huga hin óhagstæða þróum í efnahagsmálum að verulega hefur minnkað svigrúm til þess að afla fjár erlendis frá. Eins og ég sagði áðan eru horfur á því að greiðslubyrðin verði allt að 20% á árinu 1979 ef miðað er við þær skuldbindingar sem þegar hafa verið gerðar. Það hefur verið talið hámark í þessum efnum að greiðslubyrðin liggi einhvers staðar um 15%.
Auðvitað eru engin algild Móselög í þessu sambandi, en eitt er víst, og það er að hér hefur verið teflt á tæpasta vað eins og þróunin hefur orðið.
Sumar þjóðir nota ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í miklu ríkari mæli til þess að byggja upp atvinnulífið í landinu heldur en við gerum, eins og t. d. svíar sem ráðstafa líklega um 30–35% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna til uppbyggingar í atvinnulífinu. Við erum með sáralítinn hluta í þessu efni, og ég held eð það sé verðugt verkefni að vinna að því að hægt verði að beina miklu meira af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í landinu til atvinnuuppbyggingar heldur en verið hefur. Það væri ekkert óeðlilegt þó að á þessu ári væri lánað úr lífeyrissjóðakerfinu í þessu skyni allt að 2 milljörðum kr. eða um 30% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna.
Ég er þeirrar skoðunar að með þeim heimildum og þeirri stefnu, sem ríkisstj. er nú að marka í þessum efnum og verður gengið frá fljótlega, sé tryggð fjáröflun til uppbyggingar í atvinnulífinu í svipuðum mæli og verið hefur undanfarin ár. Það mun því verða haldið áfram með uppbyggingu vinnslustöðva sjávarútvegsins og einnig í vaxandi mæli með vinnslustöðvar í landbúnaði.
Hv. 3. þm. Reykv. vitnaði hér bæði í gær og einnig í dag til ræðu sem Ólafur Jóhannesson, formaður Framsfl., hélt á aðalfundi miðstjórnar flokksins nú um helgina þar sem hann sagði að Framsfl. ætti að gæta þess að ekki kæmi til niðurskurðar opinberra framkvæmda á landsbyggðinni. Hv. 3. þm. Reykv. taldi þetta til tíðinda og bera vott um að nú væru mikil átök í stjórnarflokkunum. Ég verð að segja það, að mér finnst það ekki mikil tíðindi þó að form. Framsfl. lýsi yfir að það sé stefna flokksins að stuðla að mikilli uppbyggingu úti um landsbyggðina vegna þess að byggðastefna hefur verið — ég vil segja einn sterkasti þátturinn í stefnu Framsfl. frá öndverðu. Í fyrsta tölublaði Tímans, sem Jónas Jónsson skrifaði 1917, var kjörorðið: „Framför alls landsins, allrar þjóðarinnar“, ef ég man rétt. Svo fróður maður í stjórnmálum sem hv. 3. þm. Reykv. er, þá undrar mig dálítið að hann skuli vera hissa á þessari yfirlýsingu. Hann getur verið alveg viss um að Framsfl. mun halda áfram að leggja áherslu á uppbyggingu úti um landsbyggðina og öfluga byggðastefnu. En það þarf ekki að bera vott um átök í stjórnarliðinu, þó að þessi sannindi um stefnu Framsfl. séu áréttuð.
Hv. 3. þm. Reykv. ræddi nokkuð um niðurskurð ríkisútgjalda og gagnrýndi það að til stæði að skera niður framkvæmdir. Ég vil minna hann á að í vetur, þegar við vorum að ræða hér á hv. Alþ. um frv. til l. um ráðstafanir til fjáröflunar til Viðlagasjóðs, flutti hv. 2. þm. Austurl., Lúðvík Jósepsson till. um það hvernig hann vildi haga fjáröflun í því skyni. Hann vildi haga fjáröflun þannig, að það væri ekki lagt á söluskattsstig til viðbótar til þess að afla fjár, heldur væru teknar úr ríkissjóði 400 millj. kr. til þess á þessu ári. Hv. 2. þm. Austurl. gerði aldrei grein fyrir því hvað ætti að skerða við þessa ráðstöfun því að ekki er hægt að taka 400 millj. kr. úr ríkissjóði án þess að það komi einhvers staðar niður. Hér er því um að ræða nokkra mótsögn í málflutningi þeirra félaga að minni hyggju. Þarna var um að ræða till. um raunverulegan niðurskurð, ekki heimild. Þess ber þó að geta að hv. Alþb.-menn greiddu að vísu flestir atkv. um söluskattsstigshækkun þegar til úrslita dró.
Það er gert ráð fyrir því á þskj. 441. brtt. frá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, að ríkisstj. sé heimilt að lækka almenn rekstrarútgjöld fjárl. ársins 1975 um allt að 1500 millj. kr., enda sé þess gætt að slík lækkun útgjalda hafi engin áhrif á fjárveitingar til verklegra framkvæmda né heldur á framlög til félagsmála. Það vantar nú heldur betur útskýringar á þessu atriði. Hv. 2. þm. Austurl. og hv. 3. þm. Reykv. hafa nýlega látið af ráðherrastörfum. Þeir hafa verið í ríkisstj. í landinu í þrjú ár, og nú gera þeir kröfur til þess að hægt sé að lækka rekstrarútgjöld ríkisins um 1500 millj. kr., þegar þeir nýlega hafa látið af störfum sem ráðherrar. Ég tek ekki alvarlega svona till. nema hún sé rökstudd, nema sé gerð grein fyrir því hvernig þetta megi verða og hvað það er sem þarna sé um að ræða, hvernig mögulegt sé að koma þessu við, nema slíkri till. fylgi rökstudd grg. Því álít ég að ekki sé hægt að taka svona till. alvarlega.
Ég minntist á það áður að fjárl. marka að minni hyggju ákveðna byggðastefnu, bæði að því er snertir opinberar framkvæmdir almennt svo og framlög til Byggðasjóðs. Það er gert ráð fyrir því í fjárl. að leggja til Byggðasjóðs sem nemur 2% af útgjöldum á fjárlfrv. Þessi upphæð er á fjárl. 877 millj. og er veruleg. Ef þessi stefna ræður ríkjum, t. d. næstu 10 árin, þá er þarna um að ræða upphæð sem svarar til um 9 milljarða kr. í Byggðasjóð til þess að standa undir uppbyggingu atvinnulífs og félagslegum framförum úti um landsbyggðina. Ég álít að þetta sé gagnmerk stefna sem þarna hefur verið mörkuð, vegna þess að áður var það svo að það var aðeins ákveðin upphæð á fjárl. sem ætluð var til Byggðasjóðs, 100 millj. kr. á ári, sem var góðra gjalda verð í byrjun. En með þessu ákvæði eða með þessum samningi milli núv. stjórnarflokka hefur tvennt verið gert. Í fyrsta lagi hafa verið stóraukin framlög til Byggðasjóðs, og í öðru lagi má segja að þessi framlög hafi verið verðtryggð, vegna þess að hér er miðað við 2% af útgjöldum fjárl.
Ég vil undirstrika það að ég álít að í þessu felist mjög öflug byggðastefna. Það kann vel að vera að skilyrði til þess að halda uppi miklum verklegum framkvæmdum úti um landsbyggðina séu misjafnlega hagstæð, það viðurkenna allir. En ég held að það fari ekki á milli mála að fjárl. og þetta ákvæði, sem ég hef nú verið að gera grein fyrir, ásamt fyrirætlunum um uppbyggingu atvinnulífsins, beri vott um öfluga byggðastefnu.
Það hefur nokkuð borið á því í málflutningi þeirra Alþb.-manna og skrifum að með tiltekinni fjárfestingu eða framkvæmdum hér á Suðvesturlandi sé verið að hverfa frá byggðastefnu. Það hefur verið talað um ýmislegt í því sambandi. Það hefur verið talað um miklar framkvæmdir í Þorlákshöfn. Það hefur verið talað um miklar framkvæmdir í Grindavík. Það hefur verið talað um járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði. Og það hefur verið talað um miklar framkvæmdir á Miðnesheiði, Keflavíkurflugvelli (Gripið fram í.) Jú, en ég vil minna hv. 3. þm. Reykv. á að framkvæmdirnar í Þorlákshöfn voru ákveðnar í tíð vinstri stjórnarinnar, framkvæmdirnar í Grindavík voru sömuleiðis ákveðnar í tíð vinstri stjórnarinnar. Og þá er ég kominn að járnblendiverksmiðjunni. Mér liggur við að segja: Í upphafi skapaði guð himin og jörð og Magnús Kjartansson málmblendiverksmiðjuna. Ég lít svo á að hann sé raunverulega faðir málmblendiverksmiðjunnar. Hann stóð fyrir samningum við Union Carbide í marga mánuði, — ég veit ekki hvort það voru mörg ár, en a. m. k. í marga mánuði, — og hann mun hafa lýst því yfir í sérstöku bréfi sem skrifað var á sínum tíma til Union Carbide að hann og ríkisstj. hefðu áhuga á að koma þessu máli í höfn. Það má sjálfsagt deila um samningana sem slíka, en ég hygg að það sé óhrekjanleg söguleg staðreynd að hv. 3. þm. Reykv. hafði forustu í þessu máli frá byrjun.
Um framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli er það að segja að ég er ekkert viss um að framkvæmdir verði þar meiri á þessu ári en þær voru á sumum árum vinstri stjórnarinnar. Það voru geysilegar framkvæmdir til dæmis þegar verið var að lengja flugbrautina á Keflavíkurflugvelli sem var mjög mikil framkvæmd. Ég hef að vísu engar tölur til þess að bera þetta saman, en ég er ekki viss um að á þessu ári verði meiri framkvæmdir þarna suður frá en voru stundum á árum áður.
Ég hef nú drepið á víð og dreif á ýmislegt sem borið hefur á góma í þessum umr. Ég vil að lokum leyfa mér að vísa hér til kafla úr stjórnmálaályktun aðalfundar miðstjórnar Framsfl. sem var samþ. á aðalfundinum núna um helgina og var svo hljóðandi, með deyfi hæstv. forseta:
„Það olli vonbrigðum að vinstri stjórnin varð að hverfa frá áður en hún hafði lokið verkefnum sínum. Fundurinn vonar að núv. ríkisstj. takist að leysa þann efnahagsvanda sem við er að fást. Ríkisstj. hefur síðan hún var mynduð unnið að því að tryggja afkomugrundvöll atvinnuveganna og atvinnuöryggi í landinu, í því skyni var gengisbreytingin í september framkvæmd og þær ráðstafanir sem henni fylgdu. En sökum síversnandi viðskiptakjara reyndust þær ráðstafanir ónógar og ný gengisbreyting í febr. varð óhjákvæmileg. Í kjölfar hennar fylgja ýmsar ráðstafanir í efnahagsmálum og fjármálum til þess að stuðla að jafnvægi í þjóðarbúskapnum og treysta undirstöðu atvinnu- og lífskjara.
Aðalfundur miðstjórnar Framsfl. 1975 lýsir stuðningi sínum við ráðstafanir ríkisstj. sem miða að því að dreifa þeim byrðum, sem bera þarf, sem réttlátast á þegna þjóðfélagsins og vinna sem fyrst bug á þeim erfiðleikum sem við er að búast.
Fundurinn telur þau viðbrögð réttust og stórmannlegust að sá samdráttur, sem nú um hríð er óumflýjanlegur eftir mikið þenslutímabil, komi að verulegu leyti fram í minnkandi einkaneyslu frekar en minni atvinnuuppbyggingu og opinberum þjónustuframkvæmdum.
Sem félagshyggjuflokkur hlýtur Framsfl. að vara við því, að tekjur ríkisins séu rýrðar með því að lengra sé gengið í lækkun skatta. Af því hlyti að leiða minni félagslegar framkvæmdir.
Fundurinn vill þó vekja athygli á því að enn er þörf frekari aðgerða á ýmsum sviðum ef tryggja á jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Fundurinn bendir á þann mikla vanda, sem leysa þarf áður en lög um launajöfnunarbætur falla úr gildi 1. júní n. k. Nauðsynlegt er að endurskoða tilhögun vísitölubóta á kaupgjald.
Fundurinn telur sjálfsagt að launþegar njóti verðtryggingar kaupgjalds, en það verður að gerast með þeim hætti að komist verði sem mest hjá skaðlegum áhrifum á verðlagsþróunina og það torveldi ekki almenna stjórn efnahags- og fjármála. Fundurinn telur ótækt að skattheimta til sameiginlegra þarfa þegnanna, sem ákveðin er af lýðræðislega kjörnum fulltrúum þjóðarinnar, hafi gegnum vísitölukerfið áhrif til almennar kauphækkunar.“