23.04.1975
Efri deild: 70. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3161 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)

246. mál, ættleiðing

Jóhannes Árnason:

Herra forseti. Frv. á þskj. 468 um breyt. á l. nr. 19 frá 11. febr. 1953. um ættleiðingu, sem hér er til 1. umr. og flm., hv. 10. þm. Reykv., hefur nú mælt fyrir, fjallar um breyt. á 1. gr. laganna frá 1953 og miðar að því að veita dómsmrh. í umboði forseta Íslands heimild til undanþágu frá því aldursmarki sem er samkv. gildandi lögum skilyrði fyrir því að aðili geti tekið að sér kjörbarn, en það er 25 ára aldur. Þó er samkv. gildandi lögum nægilegt að annað hjóna sé orðið 25 ára þegar hjón ættleiða barn. En það mun í reynd vera algengara að hjón ættleiði barn en einstaklingur, enda þótt sá möguleiki sé vissulega einnig opinn skv. gildandi lögum. Með þessu frv. er lagt til að þegar sérstakar ástæður eru fyrir hendi megi veita leyfi til ættleiðingar þegar annað hjóna hefur náð 20 ára aldri.

Gildandi lög um ættleiðingu, nr. 19 frá 1953. þykja vera vönduð og meðal merkari laga á sviði sifjaréttar hér á landi, enda er nauðsynlegt að vandað sé sérstaklega til lagasetningar á svo mikilvægu sviði sem þessu. Ekki er annað vitað en að lögin hafi reynst vel í framkvæmd á 22 ára gildistíma sínum og á þeim hefur aðeins verið gerð ein breyting. Það er á 6. gr. laganna þess efnis að samþykki foreldra þyrfti til að ættleiða barn þeirra yngra en 20 ára í stað 21 árs áður, sbr. um þetta lög frá 1969.

Við ættleiðingu eru bundin ýmis mikilvæg réttindi, bæði fyrir kjörbarn og kjörforeldri, svo sem foreldravald, erfðaréttindi o. fl., en hvað erfðaréttinn snertir er um að ræða gagnkvæm erfðaréttindi milli kjörbarns og kjörforeldra þess, þ. á m. kjörniðja annars vegar og kjörforeldra og ættingja þeirra skv. 2.–4. gr. erfðalaga hins vegar. Ættleiðing leggur einnig ríkar skyldur á herðar kjörforeldra og því er það að lögin gera stranga kröfur til þeirra er hyggjast taka að sér kjörbarn, og sérstaklega er vandað til undirbúnings áður en ættleiðingarleyfi er veitt, sbr. um þetta 8. gr. ættleiðingarlaganna frá 1953. Ræður þá eðlilega mestu það sjónarmið, sem ríkjandi er í norrænni löggjöf um réttarstöðu barna og foreldravald, að ráðstöfun skuli miðuð við það sem barninu er talið vera fyrir bestu.

Í fljótu bragði virðist aldurstakmarkið 25 ár fyrir þann, sem ættleiða vill barn, vera nokkuð eðlilegt sem meginregla og fyrir því eru ákveðin rök að aldursmarkið sé þetta hátt, enda er ekki gert ráð fyrir að breyta þessari meginreglu. En með breytingu þeirri, sem frv. gerir ráð fyrir að gerð verði á lögunum, kæmi til heimildarákvæði fyrir rn. til að gera undantekningar og veita ættleiðingarleyfi þegar hjón eiga í hlut og sérstakar ástæður eru fyrir hendi.

Hv. flm. gerði í ræðu sinni áðan grein fyrir nokkrum tilvikum og nefndi dæmi, sem vissulega er athyglisvert og kæmi örugglega til skoðunar fyrir rn. að veita slíkar undanþágur verði frv. þetta að lögum. Í þessu tilviki er nægilegt að annað hjóna hafi náð 20 ára aldri, þ. e. aldursmarkið er í þessu tilviki fært niður um 5 ár. Það yrði því matsatriði rn. í hverju einstöku tilviki hvort undanþágu skuli veita, en að öllu öðru leyti gilda ákvæði laganna að því er varðar veitingu ættleiðingarleyfis og undirbúning að slíkri veitingu. Ber því rn. eftir sem áður að afla sem gleggstra upplýsinga um hagi væntanlegra kjörforeldra og kjörbarna áður en tekin er ákvörðun um veitingu ættleiðingarleyfis. Einnig ber að leita umsagnar sóknarprests og barnaverndarnefndar. Ég vil leggja á það áherslu að á þessu sviði ber að huga sérstaklega vel að öllum breytingum áður en í þær er ráðist. Ég vil því leyfa mér að beina því til þeirrar þn. sem fær frv. þetta til meðferðar að lokinni þessari umr., væntanlega hv. allshn., að aflað verði gagna um veifingu ættleiðingarleyfa á undanförnum árum með sérstöku tilliti til aldurs þeirra er óska eftir að taka að sér kjörbörn og sömuleiðis í þessu sambandi að fá upplýsingar um niðurfellingu ættleiðingarleyfa bæði af hálfu rn. og dómstóla. Liggur væntanlega beinast við að aflað verði skýrslu dómsmrn. um þessi atriði áður en málið kemur til 2. umr. hér í hv. deild.

Ég vænti þess að slík vinnubrögð að fá þessa umsögn ættu ekki að verða til að tefja framgang málsins, enda þótt orðið sé áliðið þingtímans.