23.04.1975
Neðri deild: 72. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3183 í B-deild Alþingistíðinda. (2381)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Frsm. minni hl. (Magnús Kjartansson) :

Hæstv. forseti. í síðustu viku samþykkti Sþ. einróma ályktunartill. frá hv. þm. Páli Péturssyni. Þessi till. fjallaði um stækkun Áburðarverksmiðju ríkisins. Um hana hafði verið fjallað af atvmn. Sþ. N. mælti með því einróma að till. yrði samþ. og undir nál. skrifuðu hv. þm. Páll Pétursson; Jón G. Sólnes, Steingrímur Hermannason, Guðmundur H. Garðarsson og Gils Guðmundsson. Þessi till. var einróma samþ., eins og ég sagði áðan, hún hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta :

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta nú þegar gera könnum á því hvort ekki sé tímabært að hefjast þegar handa um stækkun Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi þannig að hún geti sem allra fyrst fullnægt þörfum landsmanna fyrir framleiðsluvörur verksmiðjunnar. Enn fremur verði gerð könnun á því hvort ekki komi til greina stækkun verksmiðjunnar með útflutning áburðar fyrir augum. Ef könnun þessi leiðir það í ljós, að stækkun verksmiðjunnar sé þjóðhagslega hagkvæm, felur Alþ. ríkisstj. að láta semja og leggja fram á Alþ. frv. um stækkun verksmiðjunnar. Könnun þessari verði hraðað svo sem frekast er kostur, þannig að niðurstöður hennar liggi fyrir áður en þeirri raforku, sem tiltæk verður í landinu í nánustu framtíð, er ráðstafað til annarra greina orkufreka iðnaðar.“

Það var samþ. hér á hinu háa Alþ. í síðustu viku að ekki mætti ráðstafa raforku til annarra greina orkufreks iðnaðar fyrr en þessi könnun hefði farið fram. Mér er spurn: Tekur Alþ. sig ekki alvarlega? Ég fæ ekki betur séð en þessi samþykkt Alþ. sé hreinlega frávísunartill. á því frv. sem hér liggur fyrir, Alþ. hefur samþ. einróma að það megi ekki ráðstafa orku til annars orkufreks iðnaðar fyrr en þessi könnun hefur farið fram.

Ég kynnti mér það þegar þessi till. kom fram hvaða gögn lægju fyrir um stækkun áburðarverksmiðjunnar jafnvel í því skyni að hefja útflutning, og það reyndist svo að stjórn Áburðarverksmiðjunnar hafði ekkert að þessu verki unnið. Það liggja ekki fyrir nein slík gögn, þannig að það er augljóst mál að ef á að taka Alþ. alvarlega hvað þessa ákvörðun Alþ. snertir þá tekur það æðilangan tíma að þessari könnun verði lokið. En á meðan má ekki ráðstafa orku til annars orkufreks iðnaðar að því er Alþ. sjálft hefur samþ. einróma. Ef það er gerður orkusölusamningur einhvern tíma á næstunni við hugsanlega kísiljárnverksmiðju, þá er að sjálfsögðu verið að ráðstafa raforku, jafnvel þótt hún verði ekki afhent fyrr en árið 1977, en samkv. þessari ákvörðun Alþ. er þetta óheimilt með öllu. Ég ætlast til þess að Alþ. hafi eitthvert samhengi í störfum sínum, að það geri ekki ráðstafanir eina vikuna sem ganga þvert á það sem Alþ. hefur samþ. vikuna á undan. Ég veit ekki af hverju þetta stafar. Ég veit ekki hvort hv. þm. Ingólfur Jónsson t. d. hefur ekki lesið þá þál., sem hann var sjálfur að samþykkja í síðustu viku, en ég get ekki betur séð en hér sé um hreina frávísunartill. að ræða. Þarna kemur fram hugmynd um það hvernig við eigum að nýta orku á Íslandi.

Ég hef hins vegar gert grein fyrir öðrum orkumarkaði sem ég tel vera enn þá brýnni, enn þá mikilvægari, hrópa enn meir á okkur, og það er að nýta raforku til húshitunar, til þess að láta innlenda orkugjafa koma í stað innfluttrar olíu sem er orðin ákaflega stórfelld efnahagsleg nauðsyn eftir að olía margfaldaðist í verði eins og menn vita. Ég hef flutt á þessu þingi fjölmargar till. um þetta efni, bæði sjálfstæðar till. og brtt. Ein slík till. var felld hér á þingi í gær. Ég lagði til að aflað yrði upphæðar, sem næmi einum milljarði í viðbót, til þess að flýta gerð stofnlína bæði milli Suðurlands og Norðurlands og enn fremur til Vestfjarða og til Austfjarða. Stjórnarliðið hefur ekki fengist til þess að fjalla um þessar till. mínar í neinni alvöru. Þær hafa ýmist verið felldar umræðulaust eða þær hafa verið svæfðar í n. Þess vegna bar ég fram fsp. til hæstv. iðnrh. til þess að fá vitneskju um hver væri stefna ríkisstj. sjálfrar á þessu sviði. Fyrst hún vildi ekki taka neitt tillit til till. okkar stjórnarandstæðinga að því er þetta atriði varðar, hvernig eigi að ráðstafa raforkunni, þá vildi ég fá vitneskju um hvernig ríkisstj. sjálf hugsaði sér að standa að þessu verkefni. Þessi fsp. var svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„1. Hvernig eru áætlanir ríkisstj. um hitaveituframkvæmdir um allt land, hverjir verða árlegir áfangar, hver verður árlegur kostnaður og hvernig verður hann fjármagnaður?

2. Hverjar eru áætlanir ríkisstj. um rafhitun húsa um land allt þar sem jarðvarmi er ekki tiltækur, hverjir verða árlegir áfangar, hver verður árlegur kostnaður og hvernig verður hann fjármagnaður?“

Þessari fsp. var dreift hér í Nd. Alþ. 28. febr. og það er ekki komið neitt svar við henni enn. Það eru liðnir tveir mánuðir síðan ég lagði þessa fsp. fram, einfalda fsp. um hvernig ríkisstj. sjálf hugsaði sér að standa að þessum verkefnum og hæstv. iðnrh. hefur ekki fengist til þess að svara. Ég spurði hæstv. iðnrh. um það fyrir páska hvort ekki mætti vænta þess að skýrsla hans um þessi efni færi að berast. Hann kvað svo vera, það væri að þessu unnið, en skýrslan er ókomin enn. Ætlun mín var sú að þessi skýrsla væri tiltæk alþm. til þess að hægt væri að nota hana til hliðsjónar í umr. um það, hvernig ætti að verja raforku okkar, og til samanburðar við frv. um hugsanlega byggingu kísiljárnverksmiðju. En þessi gögn eru ekki tiltæk, þau liggja ekki fyrir, við vitum ekkert um stefnu hæstv. ríkisstj. Raunar er þessi þögn hæstv. iðnrh. ákaflega glöggt dæmi um það að hann hefur enga áætlun um nýtingu innlendra orkugjafa í stað olíu. Það er ósköp auðvelt að standa hér, eins og hv. þm. Ingólfur Jónsson áðan, og fara um það almennum orðum að allir hefðu áhuga á þessu verkefni, allir vildu þetta o. s. frv., o. s. frv. En svona orð segja ekki nokkurn skapaðan hlut. Það þarf að marka tiltekna stefnu. Hæstv. iðnrh. hefur ekki markað neina slíka stefnu og ekki heldur hv. þm. Ingólfur Jónsson. Þeir hafa aðeins ákveðið það að óathuguðu máli, án þess að hafa kannað þau gögn sem ég hef verið að lýsa eftir hér, að kísiljárnverksmiðja skuli hafa forgang, án þess að líta á nokkur rök, án þess að meta hvað hagkvæmast er og skynsamlegt frá efnahagslegu og félagslegu sjónarmiði fyrir þjóðarheildina miðað við þær aðstæður sem nú blasa við okkur.

Ég vakti máls á þessu hér á þingi fyrir ári og flutti þá ályktunartill. um að slík áætlun yrði gerð. Því miður varð sú till. ekki afgreidd vegna þeirrar pólitísku ringulreiðar sem þá var hér á Alþ. En umskiptin urðu algerlega ljós um leið og núv. ríkisstj. tók við. Hæstv. iðnrh. lét hætta við þá áætlunargerð sem hafði verið hafist handa um meðan ég gegndi störfum iðnrh. Það var gerð grein fyrir þessari áætlun, fyrstu drögum hennar, í ítarlegri skýrslu sem ég lagði fyrir þing fyrir ári og allir þm. þekkja, afar fróðlegri skýrslu, og ætlast til þess að áfram yrði unnið að þessu verkefni. Þessu verkefni var hætt um leið og núv. ríkisstj. tók við.

Einn þáttur þess að hægt sé að koma á rafhitun húsa er að sjálfsögðu samtenging orkuveitusvæða. Í tíð fyrrv. ríkisstj. var tekin um það ákvörðun að leggja stofnlínu milli Suðurlands og Norðurlands. Ég hafði tryggt efni í þessa línu fyrri hluta ársins í fyrra og var ákveðið að hefjast handa um þessa framkvæmd í sept. í fyrra. Það var hætt við það að hefja framkvæmdir þá, um leið og núv. ríkisstj. tók við. Það er ekki fyrr en nú í vor sem þetta verk er hafið. Þau mál standa nú þannig að það er loksins núna verið að reisa þá tréstaura sem ég lét panta 1974 og átti að byrja að refsa þá um haustið. Ef haldið hefði verið þeim framkvæmdahraða sem ég hafði gert áætlanir um, þá hefði verið unnt að koma raforku allt að 10 mw. norður fyrir veturinn 1975–1976, þ. e. a. s. fyrir þann vetur sem nú er fram undan. Það hefði verið hægt að tryggja norðlendingum þessa orku fyrir næsta vetur og bæta þannig úr mjög háskalegum orkuskorti á næsta vetri og spara rándýra olíukyndingu. Ég vil einnig í því sambandi minna á ummæli Laxárvirkjunarstjórnar, sem birt var í fjölmiðlum í gær og í dag, um það hvernig ástandið er þar nyrðra vegna þess að þetta tækifæri var ekki notað. Það var vel hægt að koma raforkunni norður á þessum tíma, en hæstv. ráðh. hafði ekki áhuga á því, og nú er borin von, því miður, að þetta verði hægt. Línan kemur ekki í gagnið fyrr en haustið 1976. En þá er það hins vegar lágmarksskylda að línan verði lögð af fullum styrkleika, þannig að hún geti flutt fullt orkumagn eða 70–80 mw. eins og reiknað er með að hún geti flutt. Ef á að ganga frá línunni þannig, þá vantar fjármagn. Það verður að taka slíkar ákvarðanir núna, en till. um það að afla fjármagns var felld hér á Alþ. í gær.

Samhliða þessari línulögn, sem ég hef hér verið að tala um, þarf þegar í stað að undirbúa línulögn til Vestfjarða. Sérfræðingar telja að sú lína ætti að liggja frá Hrútafirði vestur í Dali, e. t. v. í Búðardal, þar sem spennt yrði af línunni fyrir Dali og fyrir Snæfellsnes. Síðan ætti línan að liggja í Króksfjarðarnes og vestur Reykhólasveitina og síðan kemur til greina að leggja hana norður Þorkafjarðarheiði, með tilliti til virkjana við Djúpið, eða leggja hana meðfram þjóðveginum um: Vattarnes að Mjólká og þaðan til Ísafjarðar.

En þetta eru því miður meira og minna almennar hugleiðingar. Hæstv. iðnrh. hefur ekki haft neinn áhuga á því að mæla fyrir um skipulega könnun og tryggja fé til hennar. Einu rannsóknirnar í sambandi við þetta línustæði hjá landshluta, sem býr við mikla erfiðleika í orkumálum, er að komið hefur verið upp einum tilraunaspenni milli Mjóafjarðar og Ísafjarðar, en slíkum könnunarstöðvum þarf að sjálfsögðu að koma upp víðar. Það er algerlega óhjákvæmileg nauðsyn að stofnlína til Vestfjarða verði komin ekki seinna en árið 1978, en þá þarf strax að hefjast handa um ákvarðanir á línustæði, um hönnun og annan undirbúning og pantanir á efni. En á þessum sviðum hefur ekkert verið gert og ég endurtek enn: Till. um fjárveitingu var felld hér á Alþ. í gær.

Þessi línulögn er óhjákvæmileg vegna þess að orkumál á Vestfjörðum standa þannig að segja má að vísu að hægt væri að ráðast í Dynjandisvirkjun með tiltölulega stuttum fyrirvara, Þar hafa verið gerðar verulegar rannsóknir. En ég er hræddur um að sú virkjunarhugmynd rekist æðiharkalega á sjónarmið náttúruverndarmanna og umhverfisverndarmanna. En ef ráðist yrði í slíka virkjun, þá gæti hún hugsanlega verið komin í gagnið árið 1980, ekki fyrr. Þess vegna verður stofnlínan að koma í seinasta lagi árið 1978.

Virkjunarstaðirnir við innanvert Djúp eru miklu skemmra á veg komnir. Það þarf að mæla og fá kort frá öllu svæðinu suður af Drangajökli. En jafnvel þó að allt reynist þar mjög álitlegt, þá yrði virkjun á þeim stað naumast komin í gagnið fyrr en 1983–1984, og því endurtek ég enn: stofnlína til Vestfjarða er brennandi nauðsyn.

Fyrst ég er farinn að tala um stofnlínur er rétt að minnast á línu til Austfjarða frá Kröflu.

Þar hefur ekki heldur verið gert neitt af hálfu hæstv. iðnrh. Það þarf að velja línustæði og framkvæma vissar athuganir. Um þessa línulögn er vissulega meira vitað heldur en um línulögn til Vestfjarða vegna fyrri áforma um að tengja Austfirði við Laxárvirkjun. En Krafla á að komast í gagnið 1976, eftir því sem Kröflunefnd segir okkur, og vonandi stenst það. Ef eitthvert vit hefði verið í vinnubrögðum, þá hefði línan til Austfjarða átt að vera tiltæk um sömu mundir svo að hægt væri að flytja orku til Austfjarða þar sem einnig er mjög alvarlegur orkuskortur, jafnvel þó að Lagarfossfossvirkjun sé tekin til starfa. Það er einnig borin von að þessi lína verði tiltæk um leið og virkjunin tekur til starfa. En þeim mun meiri ástæða er til að krefjast þess að nú þegar verði hafist handa um það að tryggja austfirðingum næga orku frá Kröfluvirkjun eins fljótt og nokkur kostur er.

Ég vil minna á það, í þessu sambandi, að það verður að halda áfram samtengingu. Það þarf að tengja Hornafjörð við Austfjarðasvæðið að öðru leyti og síðan er sjálfsagt að komi hringtenging, þ. e. a. s. tenging frá Hornafirði og til okkar hér á Suðurlandi sunnan jökla. Og á sínum tíma mun að sjálfsögðu koma stofnlína norður hálendið, en undirbúningsrannsóknir í því efni voru hafnar í tíð fyrrv. stjórnar og standa enn yfir, m. a. með mannaðri eftirlitsstöð. Það er brýn nauðsyn að það verði gerðar heildaráætlanir um þessar framkvæmdir allar, en að þeim hefur, eins og ég sagði áðan, ekkert verið unnið í tíð núv. ríkisstj.

Þetta er forsenda þess, að hægt sé að ráðast í rafhitun húsa. En hliðstæðu máli gegnir um dreifikerfin. Það þarf að styrkja þau til muna um land allt ef rafhitun á að koma til. Ég veit ekki til þess að hæstv. iðnrh. hafi falið Rafmagnsveitum ríkisins eða öðrum rafveitum að gera eitt eða neitt í þessu sambandi. Hann hefur greinilega engan áhuga á því að tryggja jafnrétti landsmanna á þessu sviði, hann hefur engan áhuga á nýtingu innlendra orkugjafa í stað olíu á þeim svæðum þar sem rafhitun þarf að koma til og raunar er það staðreynd að hæstv. núv. ríkisstj. hefur einnig hafið hitaveituframkvæmdir til mikilla muna umfram það sem áætlað var. M. a. er nú talað um að Hitaveita Suðurnesja eigi ekki að vera fullgerð fyrr en 1978, en var áætlað áður að hún yrði fullgerð árið 1976. Og þar virðist raunar vera komið að æðimiklum erfiðleikum vegna þess að skammsýnir alþm. hafa staðið gegn því að hér yrði samþ. það frv. sem legið hefur fyrir mörgum þingum um háhitasvæði og eignarrétt yfir þeim. Eru allar horfur á því að skammsýni þessara hv. þm., og þar á ég ekki síst við hv. þm. Ingólf Jónsson, komi til með að tefja og torvelda þessa framkvæmd til mikilla muna.

Þegar við ræðum um rafhitun húsa eru að sjálfsögðu ekki aðeins línulagnir mikilvægar, stofnlínur og dreifilínur, heldur eru virkjanir mjög mikilvægur þáttur í þessu máli. Ég hef margsinnis áður gert grein fyrir því að Sigölduvirkjun og Kröfluvirkjun geri ekki meira en rétt rúmlega að fullnægja rafhitunarmarkaðnum. Rafhitunarmarkaðurinn er 800 gwst. Framleiðsla Sigölduvirkjunar er 700 gwst. miðað við almenna notkun og húshitun og Kröfluvirkjunar milli 200 og 300 gwst. ef hún verður 70 mw. En hæstv. ráðh. hefur auglýst stefnuleysi sitt á þessu sviði á alveg furðulegan hátt frammi fyrir alþjóð. Ég heyrði viðtal sem átt var í sjónvarpi við hæstv. iðnrh. fyrir skömmu. Hann lýsti því yfir í upphafi viðtalsins að næsta virkjun, sem tæki til starfa á Íslandi, yrði á Norðurl. v., væntanlega Blönduvirkjun, þetta yrði næsta meiri háttar virkjun sem tæki til starfa á Íslandi. Í miðju viðtalinu talaði hæstv. ráðh. um að næsta meiri háttar virkjun yrði trúlega Hrauneyjarfossvirkjun, en í lok viðtalsins sagði hæstv. ráðh. að það væri vel hægt að reisa bæði Hrauneyjarfossvirkjun og Blönduvirkjun í einu og láta þær taka til starfa á sama tíma. Þessi ummæli hafa vakið furðu alþjóðar og bera því glöggt vitni að af hálfu ráðh. er ekki um að ræða neina stefnu og ekki neitt raunsæi á þessu sviði.

Í sambandi við Blöndu er rétt að geta þess að Orkustofnun telur að þar séu eftir tveggja ára rannsóknir og þær muni kosta 80 millj. kr. Á fjárl. þessa árs, eins og m. a. var frá þeim gengið af hæstv. iðnrh., var gert ráð fyrir því að varið yrði til þessara rannsókna 6–7 millj. kr. Sérfræðingarnir töldu að þessi upphæð væri svo lítil að það borgaði sig ekki að flytja bor á staðinn til þess að kanna málið. Ég vona að með þeim lögum, sem samþ. voru hér í gær, og lögum, sem áður hafa verið samþ., sé tryggt fjármagn til þessara framkvæmda á annan hátt en þann sem gert var í fjárl. En ef rannsóknir ganga vel getur hönnun hafist 1978 og með fyllsta hraða gæti Blönduvirkjun komið í gagnið 1982–1983.

Í sambandi við umtal um virkjanir fyrir norðan er rétt að menn átti sig á því að sú virkjun sem langmest hefur verið rannsökuð, er Dettifossvirkjun. Lokarannsóknarskýrsla um það er væntanleg alveg á næstunni, þannig að það væri hægt að taka ákvarðanir um hana með fullnægjandi þekkingu ef menn hafa áhuga á þeirri leið.

En ofan á þetta allt saman bætist það að ég þykist hafa orðið var við að það séu uppi deilur milli hæstv. iðnrh. og hæstv. viðskrh. um það hvort ráðast eigi í Blönduvirkjun eða í Jökulsárnar í Skagafirði og ef stjórnarflokkarnir deila um þetta atriði ofan á allt annað, þá flýtir það naumast fyrir ákvörðunum um þetta efni.

Í þessum málum öllum hefur það því miður komið í ljós að hæstv. iðnrh. er meira gefinn fyrir auglýsingamennsku á þessu sviði en alvarleg orð. Við höfum kynnst þessu áður á þessu þingi. Í vetur samþykktum við hér á þingi heimild til virkjunar Bessastaðaár. Hæstv. iðnrh. lagði á það óhemjulega áherslu að iðnn. flýtti störfum sínum, og var ekki talið að það mætti bíða eftir nauðsynlegum gögnum um það hversu skynsamleg þessi virkjun væri. Það var sagt að það þyrfti að samþykkja hér á þinginu þessa heimild til virkjunar til þess að friða austfirðinga í orkuskortinum í fyrravetur. Þessi hugmynd um virkjun Bessastaðaár var byggð á prófritgerð eftir ungan mann sem vafalaust hefur verið vel unnin miðað við þær aðstæður sem honum voru þá kunnar. En forsendurnar skorti. Þau yfirlitskort, sem nú hafa verið teiknuð, sýna að landslagið er allt annað en reiknað hafði verið með.

Lögunin á landinu veldur því að miðlun nær mun minna vatni en reiknað var með og virkjunin verður því ekki eins hagkvæm og reiknað hafði verið með. Einnig er ljóst að þessa virkjun verður að tengja við framtíðaráform um virkjanatilhögun á þessu svæði og slík áætlun er ekki heldur tiltæk. Við sáum það í sjónvarpinu fyrir nokkrum dögum, ef ég man rétt, hvernig sérfræðingar Orkustofnunar, Sigurjón Rist, og félagi hans, fóru að leita að Bessastaðaá. Þeir grófu sig niður eina 10–15 metra gegnum snjóinn og fundu ekki deigan dropa, enda er alkunna að í henni er ekki vatn nema 3–4 mánuði á ári. Þessi virkjunarhugmynd byggðist einvörðungu á miðluninni og miðlunin er háð landslaginu, og það er rangt, sem sagt hefur verið stundum, að þessi miðlun komi Lagarfossvirkjun að einhverju gagni sem heitir. Hún gerir það ekki. Það er fallhæðin sem þarna skiptir máli í sambandi við Bessastaðaárvirkjum, ekki vatnsmagnið þannig að ábatinn fyrir Lagarfossvirkjun er afar takmarkaður. En í þessu dæmi kom fram alkunn sýndarmennska þessa hæstv. ráðh. Ef hægt væri að virkja hana, þá væri kannske hægt að halda einni pólitískri ljósaperu glóandi svolítinn tíma.

Sá ágreiningur, sem ég hef lagt áherslu á í sambandi við þetta mál, er að við verðum að gera upp við okkur hvernig við ætlum að nýta orku okkar, fjármagn og vinnuafl á næstu árum. Eigum við að einbeita okkur að því að fullnægja þörfum hins almenna markaðar senn hefur gerbreyst eftir að olían margfaldaðist í verði? Eigum við að keppa að því að nýta innlenda orkugjafa í stað olíu eða eigum við að láta verksmiðjurekstur hafa forgang að því er varðar orku, fjármagn og vinnuafl? Sú kenning hefur komið upp og verið boðuð sérstaklega af hv. þm. Steingrími Hermannssyni, og kom raunar upp einnig í ræðu hv. þm. Ingólfs Jónssonar, að það sé hægt að gera hvort tveggja í senn. Um þetta hefur iðnn. fengið gögn frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens. Þar er gerð grein fyrir orku og afli á árunum 1977–1980, og hagnýtingu þess til almennra þarfa til húshitunar og til orkufreks iðnaðar. Þessar tölur eru þó því miður einvörðungu skrifborðsvinna. Þær eru ekki miðaðar við neina eðlilega verkáfanga að því er varðar húshitun vegna þessa að þær áætlanir eru ekki til. Ef miðað er við sveiflur og öryggisstuðla í því sambandi, þá kemur í ljós að þegar á árinu 1978 gæti þurft að nýta varmaafl, á árinu 1979 eru líkurnar á því mun meiri og árið 1980 skortir bæði orku og afl til þess að fullnægja þessum markaði. Skýrslan segir þar berum orðum: Árið 1980 skortir bæði afl og orku til þess að fullnægja þessum markaði.

Í þessu dæmi eru vissulega nokkur óvissuatriði að því er varðar fyrirkomulag á húshitun sums staðar, t. d. á Akureyri. En það breytir ekki þeirri augljósu niðurstöðu að árið 1980 yrði ný meiri háttar virkjun að vera komin í gagnið, ekki aðeins ákveðin, heldur taka þá til starfa. Og þarna er ekki um að ræða neina virkjun nema Hrauneyjarfossvirkjun. Hún ein er tilbúin til útboðs þannig að hægt væri að ráðast í hana beint í kjölfar Sigölduvirkjunar, svo að við bættist enn ein stórvirkjun á litlum bletti hér á Suðvesturlandi.

Vissulega má færa veigamikil rök fyrir því að næst skuli ráðist í Hrauneyjarfossvirkjun. Það eru einnig til veigamikil rök gegn því, bæði frá byggðasjónarmiði og frá því sjónarmiði að því fylgi nokkur fræðileg hætta að hafa allar helstu stórvirkjanir okkar á sama svæði, við hina virku gossprungu. Ég ætla ekki að ræða rök og gagnrök í þessu máli, en ég vil aðeins að hver einasti þm. geri sér það ljóst að með því að samþykkja að ráðist verði í kísiljárnverksmiðju eru menn einnig að samþykkja að Hrauneyjarfoss verði næsta meiri háttar virkjun á Íslandi, nema þeir vilji dæma orkuskort og sívaxandi aðstöðumun yfir verulegan hluta landsbyggðarinnar. Þetta verða allir þm. að gera upp við sjálfa sig og ekki síst fulltrúar Vestfjarða, Norðurlands og Austfjarða. Menn mega ekki blekkja sig á þessu, þessi dæmi eru í samhengi.

Enda þótt þannig væri hægt, með því að ráðast í Hrauneyjarfossvirkjum um leið og Sigölduvirkjun er lokið, fræðilega að tryggja næga orku til þess að framkvæma hvort tveggja í senn, verksmiðjuáformin og húshitun, þá kemur miklu fleira til. Þar koma til fjármunir og þar kemur til vinnuafl. Ég held að hver einasti maður hljóti að gera, sér grein fyrir því að við höfum ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að leggja um 7 milljarða kr. í kísiljárnverksmiðju, fjármagna á sama tíma stofnlínuframkvæmdir og dreifikerfi og fjármagna þar að auki nýja stórvirkjun. Við getum ekki ráðist í þetta allt í senn. Ég held að hver raunsær maður hljóti að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd.

Þegar hv. þm. Ingólfur Jónson var áðan að bollaleggja um kísiljárnverksmiðjuna og fjármögnun til hennar, þá hélt hann því fram að hún mundi ekki takmarka lántökumöguleika okkar á öðrum sviðum, við yrðum eiginlega bara að leggja fram okkar hluta af hlutafénu en síðan fjármagnaði verksmiðjan sig sjálf með erlendum lánum. Hv. þm. sagði: Það verður ekki farið fram á neina ríkisábyrgð. — Er hv. þm. ekki ljóst að þarna er verið að ræða um ríkisverksmiðju, um verksmiðju sem íslenska ríkið á að eiga meiri hl. í? Af því leiðir af sjálfu sér að ríkið ber ábyrgð á verksmiðjunni. Það er ekki að óska neinnar ábyrgðar. Ríkið ber ábyrgð á verksmiðju sem það á. Ég veit ekki hvaða hugtakarugl þetta er í hv. þm. að flytja svona fjarstæðufullar kenningar hér. Auðvitað takmarka lántökur til þessarar verksmiðju, sem íslenska ríkið á að eiga meiri hl. í, möguleika okkar til að taka lán á öðrum sviðum. Þetta liggur í hlutarins eðli. Það verður hver maður að viðurkenna. Ég er algerlega sannfærður um að þess er enginn kostur að afla þeirra fjármuna sem þyrfti til þess að ráðast í öll þessi stórvirki á sama tíma. Og allra síst er þetta kleift þegar núv. ríkisstj. hefur tekist að sólunda allri gjaldeyriseign landsmanna þannig að við lifum nú á neyslulánum. Gjaldeyrisskuld Seðlabankans er nú um 2 milljarðar kr. Menn skulu ekki halda að lánastofnanir standi galopnar fyrir óskum viðskiptavina sem þannig er ástatt um. Við skulum einnig muna eftir því að það er takmarkaður mannafli á Íslandi og það er ekki síst takmarkaður sérhæfður mannafli sem gæti starfað að verkefnum eins og þessum. Og allra síst er þetta allt saman kleift þegar ríkisstj. lýsir yfir því í tíma og ótíma og síðast í gær með miklum áhersluþunga að takmark hennar sé að draga úr framkvæmdum á Íslandi. Þetta fer sannarlega ekki heim og saman.

Það getur ekki verið neitt deilumál að hér erum við að velja og hafna. Við erum að ákveða að nýta orkuna annaðhvort til rafhitunar og annarra almennra nota eða til verksmiðjuframleiðslu. Við erum að velja og hafna. Þeir menn, sem það viðurkenna ekki eru að blekkja sjálfa sig. Ég er þeirrar skoðunar að hinn almenni markaður eigi að ganga fyrir af öllum ástæðum. Þar er bæði um að ræða stórfellt fjárhagsmál fyrir þjóðarheildina, mjög mikinn gjaldeyrissparnað, og einnig að við megum ekki vera of háðir öðrum aðilum um orku okkar því að það getur teflt sjálfstæði okkar og öryggi í hættu. Þarna er einnig um að ræða það að landsmenn allir þurfa að geta setið við sama borð á þessu sviði, að það verði tryggt, jafnrétti þegnanna á þessu mjög svo mikilvæga sviði. Þess vegna er megintill. mín að það frv., sem hér liggur fyrir, verði afgreitt með rökstuddri dagskrá sem svo hljóðar:

„Þar sem íslendingar þurfa á næstu árum að hagnýta alla tiltæka orku, fjármagn og vinnuafl til þess að nýta innlenda orkugjafa í stað olíu, m. a. með rafhitun húsa, telur d. allar forsendur skorta til þess að koma upp orkufrekum iðnaði meðan svo er ástatt og tekur fyrir næsta mál á dagskrá“

Ég vil enn leggja á það þunga áherslu að þarna eru þm. að velja og hafna, þarna eru þm. á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum að taka ákvarðanir um vandamál sem snerta fólkið í þeirra byggðarlögum.

Það er oft minnst á þá röksemd í þessu sambandi að við þurfum að stuðla að iðnþróun á Íslandi. Ég er vissulega þeirrar skoðunar að það verðum við að gera. Við verðum að finna leiðir til þess að nýta orkulindir okkar einnig til framleiðslu, þegar við erum búnir að uppfylla þær frumþarfir sem ég hef verið að ræða um hér. En það eru sem betur fer margar leiðir opnar til þess að stuðla að iðnþróun þótt þessu stóra verkefni sé ekki sinnt núna. Ég vil minna á það að í iðan. liggur fullfrágengin áætlun um tilraunaverksmiðju á Reykjanesi til eð undirbúa að þar verði komið upp sjóefnavinnslu. Það var búið að ganga frá öllum könnunum um þetta efni. Það var búið að fara í gegnum hreinsunareld hjá öðrum sérfræðingum en þeim, sem unnið höfðu rannsóknirnar. Og það var ætlun mín að slíkri tilraunaverksmiðju, sem ekki kostar neitt mikla fjármuni, yrði komið upp á þessu ári. Ég held að það hefði verið viðráðanlegt fyrir okkur, bæði á forsendum vinnuafls og fjármagns, að ráðast í þessa framkvæmd. Hún var alveg viðráðanleg og hún er mjög mikilvæg fyrir allar iðnþróunarhugmyndir okkar. Það kemst ekkert að hjá honum annað en kísiljárnverksmiðja. Hann lítur ekki á aðra kosti. Hann fæst ekki til þess að líta á málin á raunsæjan hátt.

Í ræðu sinni áðan vék hv. þm. Ingólfur Jónsson nokkuð að þeim miklu umr., sem orðið hafa hérlendis að því er varðar mengun og náttúruvernd. Það er sannarlega engin furða þótt um þau mál sé mikið rætt hér því að við höfum af því mjög slæma reynslu hvernig að þeim málum hefur verði staðið í sambandi við kísilgúrverksmiðjuna, þar sem við hegðum okkur alveg eins og börn, í sambandi við álbræðsluna, þar sem það var knúið fram þrátt fyrir aðvaranir að verksmiðjan fengi að starfa án nokkurs hreinsibúnaðar. Ég verð því miður að segja það, að mér virðist að viðbrögð Heilbrigðiseftirlits ríkisins hafi ekki verið til þess fallin að vekja traust manna eftir að hafist var handa um könnun á þessu máli af núv. ríkisstj. Ég þekki forstöðumann Heilbrigðiseftirlitsins, hef unnið með honum. Ég veit að það er duglegur og kappsfullur maður. En því miður hefur þessi kappsemi í þessu máli virst fá á sig pólitískan blæ. Þessi ágæti embættismaður hefur komið fram eins og hann væri áróðursaðili fyrir hæstv. iðnrh. Hann hefur mætt með honum á áróðursfundum, hann hefur skrifað áróðursgreinar í blöð og menn hafa heyrt í honum áróðurstóninn í útvarpi. Þetta eru vinnubrögð, sem því miður eru ekki til fyrirmyndar og vekja ekki tiltrú.

Í þessu sambandi vil ég minna á það, að meðan ég gegndi störfum heilbrrh. beitti ég mér fyrir því að sett yrði reglugerð um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna, mjög ströng reglugerð sem gefur Heilbrigðiseftirlitinu úrslitavald. Í þessari reglugerð segir svo í 4. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Ef reisa á verksmiðju eða iðjuver, sem ætla má að falli undir ákvæði 1. gr., — þ. e. a. s. um verksmiðjur sem geti mengað umhverfi sitt, — má eigi ákveða staðsetningu hennar, gerð né búnað fyrr en að fengnu leyfi heilbrrh.“

Það má ekki ákveða að velja verksmiðjunni stað fyrr en Heilbrigðiseftirlitið er búið að samþykkja. Hér liggur fyrir frv. um að staðarval verði lögfest áður en þetta starfsleyfi er fengið. Ég tel mjög alvarlegt mál ef Alþ. ætlar sér að brjóta reglugerð sem við eigum mikið undir að haldi gildi sínu sem allra best. Við ætlumst til þess að einkaaðilar virði þessa reglugerð í hvívetna og þá á Alþ. ekki að ganga á undan með því að brjóta hana. Að sjálfsögðu getur Alþ. brotið reglugerðina, lög eru æðri en reglugerð. En það er gert ráð fyrir því að Heilbrigðiseftirlitið kanni þessa þætti ákaflega nákvæmlega.

Í 9. gr. segir svo: „Heilbrigðiseftirlit ríkisins skal senda Eiturefnanefnd, Náttúruverndarráði, Siglingamálastofnun ríkisins og Öryggiseftirliti ríkisins umsóknir um starfsleyfi til umsagnar ef ástæða telst til.“

Og enn segir svo í 10. gr.: „Þegar Heilbrigðiseftirlit ríkisins hefur fengið þau gögn um starfsleyfisumsókn, er það telur þurfa og kannað þau skal það gera till. sínar um afgreiðslu hvers máls. Skal þess sérstaklega gætt að eiturefni og hættuleg efni frá verksmiðjum og iðjuverum valdi ekki tjóni á mönnum, dýrum eða plöntum né mengi loft, láð eða lög. Leggja má til að ákveðin starfræksla verði alls ekki leyfð eða einungis að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, svo sem um hreinsunar- eða varnarbúnað eða sérmenntun tæknilegra stjórnenda. Í till. skal greina hæfilega fresti til úrbóta og fyrirmæli um á hvern hátt úrbætur skulu gerðar. Till. skulu rækilega rökstuddar og fram tekin mengunarmörk. Till. sínar skal Heilbrigðiseftirlitið senda heilbrrh. sem skal endanlega úrskurða málið:

Þetta á allt að gerast áður en starfsleyfi er gefið út. Rökstudd grg. um starfsemi verksmiðju eins og þessarar og alla staðla, sem setja þarf í því sambandi, þetta er óhemjulega mikið verk ef þar er um að ræða vinnu sem einhver maður á að taka mark á. Og þetta starfsleyfi á samkv. reglugerðinni að gefa út áður en verksmiðjunni er valina staður. Þetta verk hefur alls ekki verið unnið, því fer ákaflega fjarri. Þvert á móti virðist Heilbrigðiseftirlit ríkisins hafa haft þá afstöðu að vilja helst ekki láta vinna þetta verk. Ég hef hér í höndunum bréf sem Heilbrigðiseftirlitið sendi heilbr.- og trmrh., hæstv. ráðh. Matthíasi Bjarnasyni, og dagsett er 18. febr. 1975. Það er annað bréf en það sem hv. þm. Ingólfur Jónsson vitnaði í áðan. Þetta bréf er eldra. Þar er sagt í fyrsta lagi að það hafi komið fram till. um að fá umsögn svokallaðra hlutlausra aðila og þá væntanlega Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um mengunarhlið málsins. Heilbrigðiseftirlit ríkisins leggst gegn því að þetta verði gert. Heilbrigðiseftirlitið segir enn fremur í þessu bréfi að það sjái ekki ástæðu til þess að lenta eftir sjónarmiðum aðila utan Heilbrigðiseftirlits ríkisins, svo sem Náttúruverndarráðs, Eiturefnanefndar, Hafrannsóknastofnunar og fleiri. Það segist ekki sjá ástæðu til þess að leita til þessara aðila. Og það fer út í lagaskýringar í þessu sambandi. Það segir m. a., með leyfi hæstv. forseta, um ákvæði náttúruverndarlaga að leita skuli álits Náttúruverndarráðs: „Það má segja að þetta ákvæði náttúruverndarlaga stangist nokkuð á við 9. gr. reglugerðar nr. 164 1972, um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna, og ef þar verða árekstrar kann svo að fara að dómstólar verði að skera þar úr, því að samkv. 9. gr. reglugerðar um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegna efna er Náttúruverndarráði aðeins ætlað að gefa umsögn ef ástæða þykir til.“ Heilbrigðiseftirlit ríkisins er að færa rök að því að það sé ekki ástæða til þess að leita til Náttúruverndarráðs. Hugsið þið ykkur viðhorfið hjá þessari stofnun sem á að tryggja það að þarna sé gætt ítrustu kröfugerðar um hollustuhætti og heilbrigði. Það er að færa rök að því að það megi ekki kalla til þá sérfræðinga, sem við eigum hæfasta, og þær stofnanir, sem um þetta eiga að fjalla. Og svo er rökstuðningurinn svo frumlegur að það er talað um að það rekist á lög og reglugerð og telur reglugerðirnar þá æðri.

Þetta bréf var skrifað heilbr.- og trmrh. Matthíasi Bjarnasyni 18. febr. Svo er að sjá að hæstv. ráðh. hafi ekki litist allt af vel á þetta því að daginn eftir, 19. febr., gerast þau tíðindi að þessir aðilar, sem forstöðumaður Heilbrigðiseftirlitsins taldi að ekki væri ástæða til að leita til, fá allt í einu bréf og eru beðnir að lýsa áliti sínu á línu. Og nú eiga að vera snör handtök, þeir eiga að skila áliti eftir viku.

Ég hef hér í höndum bréf frá öryggismálastjóra, þar sem hann svarar þessu bréfi og segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:

„Með fskj. þeim, sem mér hafa nú borist, tel ég ekki vera fyrir hendi upplýsingar sem byggt verði á til umsagnar um framanskráð enda mun naumast ætlast til þess að umsögn Öryggiseftirlitsins um þessi mál yrði afgreidd á einni viku, jafnvel þótt fullnægjandi upplýsingar lægju fyrir.“

En í bréfinu er farið þess á leit að umsögnin verði send til iðnn. Alþ. ekki síðar en 27. febr. n. k. Bréfið var skrifað 19. febr.

Ég hef hér í höndum mínum annað bréf, frá siglingamálastjóra, sem einnig á að kalla til samkv. reglugerðinni. Hann segir að hann hafi fengið bréf dags. 19. febr. og segir svo orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Þar eð ekki fylgdu bréfi Heilbrigðiseftirlitsins nánari upplýsingar eða grundvallargögn um málmblendiverksmiðjuna, þá er útilokað að gefa umsögn um verksmiðjuna, enda mundi auk þess slík umsögn krefjast meiri tíma en fjögurra vinnudaga, jafnvel þótt fullkomin gögn lægju fyrir. Siglingamálastofnun ríkisins sér því enga möguleika á að verða við þessari ósk um umsögn nema það fengi send fullkomin gögn um framleiðsluhætti, staðsetningu, afköst og fyrirkomulag verksmiðjunnar og alls ekki nema hafa rýmilegan tíma til þess að fara yfir slík gögn. Til þess mundu 4 dagar alls ekki nægja: “

Ég hef hér í höndum bréf frá þriðja aðilanum. Eiturefnanefnd, sem fékk sömu óskina um að afgreiða málið innan einnar viku. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Eiturefnanefnd er þess vanbúin að gefa umsögn um fyrsta málaskjalið að framan þar eð n. hefur ekki fengið upplýsingar sem nauðsynlegar eru til þess að slík umsögn verði einhvers virði, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar nr. 164/1972.“ Og enn segir n.: „Frestur sá, sem gefinn er samkv. 4. málsskjali að framan, er óhæfilega skammtur, Hefur Eiturefnanefnd áður tekið eftir því að Heilbrigðiseftirlit ríkisins ætlar n. mjög skamman tíma til þess að meta viðamikið mál. Fer n. þess á leit að Heilbrigðiseftirlitið taki tillit til þess að vikutími er mjög skammur tími til athugunar á málum þar sem allrar gerhygli er þörf.“

Þetta segja þessir aðilar sem Heilbrigðiseftirlitið átti að leita til samkv. reglugerðinni, en þrjóskaðist við í lengstu lög, virtist svo fara eftir fyrirskipun frá hæstv. heilbrrh., en gaf þá vikufrest.

Náttúruverndarráð fékk enn eitt bréfið af þessu tagi en Náttúruverndarráð brást nú þannig við því að það hafði að engu þessi fyrirmæli um að vinna verkið innan viku. Það hélt áfram, að starfa að verkinu af sinni hálfu og gerði það af miklum myndarskap að minni hyggju. Þær umr., sem við áttum í n. við menn úr Náttúruverndarráði, voru til fyrirmyndar hvað þetta snertir. Þar voru menn sem ekki höfðu tekið afstöðu fyrir fram. Þar voru menn sem lögðu fram ýmsar hliðar þessa máls, bentu á það sem rökstuddi það að ekki væri veruleg hætta af slíkri verksmiðjustarfsemi, en bentu einnig á annað sem ekki væri búið að leysa enn þá og þyrfti að leysa áður en starfsleyfi yrði gefið út.

Náttúruverndarráð hefur unnið myndarlega eins og ég sagði áðan. Heildarálit Náttúruverndarráðs hefur verið birt í fjölmiðlum og ég sé því ekki ástæðu til þess að lesa það upp hér. En það er einn þáttur í því sem er ákaflega mikilvægur og ekki hefur fengist nein viðhlítandi skýring á enn þá. Í bréfi, sem Náttúruverndarráð sendi iðnrn. 9. apríl s. l., vekur það sérstaka athygli á einni ábendingu í heildarskýrslu sinni og sú ábending er þessi, með leyfi hæstv. forseta:

„Með pokasíum hefur tekist að taka fyrir sýnilegan rykútblástur frá bræðsluofnunum. En þá kemur upp sá vandi að losna á viðunandi hátt við rykið sem þannig safnast fyrir. Ráðið hefur um það upplýsingar tæknimanna í Noregi að endurnýting sé miklum vandkvæðum háð og hafi afköst stofnana og þar með orkunýting lækkað um 8–10% þegar það hefur verið reynt og jafnframt safnaðist fyrir úrgangsefni í því ryki sem fer í endurnýjunarhringrás. Virðist raunar auðséð að fullkomin endurnýting sé tæknilega og fræðilega óhugsandi og spurningin aðallega, hversu mikið sé hægt að endurnýta og hversu mikið verði að losna við á annan hátt og þá hvernig. Um þetta atriði sýnist Náttúruverndarráði ekki hafa borist nægilega skýrar upplýsingar að því er fyrirhugaða verksmiðju í Hvalfirði varðar.“

Náttúruverndarráð sendi heilbrrn. annað bréf af þessu sama tilefni og óskar þar eftir því að Náttúruverndarnáð fái að hafa nána samvinnu við rn. og Heilbrigðiseftirlitið um það hvaða skilyrði verði sett fyrir veitingu starfsleyfis samkv. reglugerð nr. 164 1972. Þeir fulltrúar Náttúruverndarráðs, sem mættu á fundi í iðnn., m. a. formaður Náttúruverndarráðs, Eysteinn Jónsson, hafa lýst yfir þeirri afstöðu sinni að það sé ekki tímabært, ekki hægt að veita starfsleyfi fyrir þessari verksmiðju fyrr en búið er að ganga augljóslega úr skugga um hvernig þessu ryki verður ráðstafað. Þetta ryk er alveg óhemjulegt magn. Þarna er um að ræða 20–25 þús. tonn ári, 20–25 þús. rúmmetra á ári. Hv. þm. Ingólfur Jónsson sagði réttilega að fulltrúar frá Union Carbide telji að hægt sé að endurnýta allverulegan hluta af þessu ryki. En þeir byggja þetta á tilraunum sem þeir hafa verið að gera núna undanfarna tvo mánuði og Náttúruverndarráð og Heilbrigðiseftirlitið hafa engar sjálfstæðar heimildir um þetta mál.

Það er ekki hægt að meta vandamál af þessu tagi nema á sjálfstæðum forsendum, ekki með því að taka einhvern aðila trúanlegan. Þeir vísindamenn okkar, sem um þetta fjalla, verða að hafa aðstöðu til þess að vega það og meta á sjálfstæðan hátt.

Hv. þm. Ingólfur Jónsson sagði einnig að í Noregi hefði tekist að nýta hluta af þessu ryki í sambandi við sementsframleiðslu og þetta kynni að vera hægt hér líka. Það er rétt, þetta kann að vera hægt en um það liggja engin gögn fyrir. Samsetning okkar sements er önnur en sements sem framleitt er í grannlöndum okkar. Það er ekki hægt að ganga úr skugga um þetta nema með tilraunum. Sementsverksmiðjan hefur hug á því að vinna að slíkum tilraunum, en það er ekki búið að gera það, og meðan það hefur ekki verið gert er þessi vitneskja ekki tiltæk. Það eru uppi bollaleggingar um að það kunni að vera hægt og við það hef ég ekkert að athuga. En það er engin vitneskja um þetta og starfsleyfi fyrir slíka verksmiðju verður að byggjast á vitneskju og engu öðru en vitneskju.

Það tókst að fá Heilbrigðiseftirlitið til þess að hverfa frá því sjónarmiði sínu að leita ekki til neinna annarra aðila í þjóðfélaginu sem fjalla um þessi mál, enda þótt það eigi að gera það samkv. eðli málsins og samkv. reglugerðinni. Það tókst einnig að tryggja það að hingað var fenginn sérfræðingur frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni til þess að gefa okkur góð ráð í þessu sambandi. Hann kom hingað, hann fjallaði um þessi mál. En það er engin skýrsla komin frá honum. Ef við köllum til erlendan sérfræðing og ætlumst til þess að hann gefi okkur góð ráð, þá verðum við að gera svo vel að taka tillit til þess sem hann kann að segja. Annað er ekkert annað en sýndarmennska. Þessi skýrsla er ekki komin.

Ég hef fjölyrt um þetta atriði vegna þess að þetta hefur verið verulegt deilumál hér á Íslandi. Ég tel algerlega nauðsynlegt að frá þessu máli verði þannig gengið að það verði í einu og öllu hlítt þeim reglum sem við höfðum um þetta sett. Þess vegna hef ég í brtt., sem ég flyt og koma til atkv. ef ekki verðum fallist á hina rökstuddu dagskrá mína, lagt til að við 1. gr. frv., þar sem kveðið er á um að kísiljárnverksmiðjan skuli reist og rekin á Grundartanga í Hvalfirði, bætist: „Staðarval skal þó háð því að uppfyllt séu ákvæði 29. gr. l. um náttúruvernd og ákvæði 4., 9. og 10. gr. reglugerðar um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna nr. 164/1972.“ Þar með væri Alþ. að lýsa yfir því að þessi verksmiðja yrði að lúta sömu reglum og aðrar verksmiðjur, að það mætti ekki ganga endanlega frá staðsetningu, hvað þá öðrum hlutum, fyrr en þessar heimildir, sem unnar yrðu af okkar hæfustu sérfræðingum með þeirri aðstoð sem þeir kynnu að þurfa á að halda, liggi fyrir. Og ég vil vænta þess að hv. alþm. fallist á það með mér að þannig verði haldið á þessu máli. Slíkir staðlar verða að sjálfsögðu að vera unnir á sjálfstæðan hátt út frá íslenskum forsendum og þeir verða að taka mið af því sérstæða lífríki sem er á þessari eyju okkar hér við norðurskaut, við Íshaf. Það þýðir ekkert að apa eftir einhverja erlenda stuðla. Við verðum að taka tillit til lífríkisins eins og það er í okkar eigin landi.

Hv. þm. Ingólfur Jónsson vitnaði áðan í skýrslu frá Þjóðhagsstofnun um þessa verksmiðju. Það er nú svo um þessa verksmiðju að ég hafði hugsað mér að um hana yrði höfð sams konar vinnubrögð og ég hafði áður beitt í sambandi við þörungavinnslu og í sambandi við hugsanlega sjóefnaverksmiðju á Reykjanesi. Þau vinnubrögð voru þau að þegar þeir íslensku sérfræðingar, sem að þeim störfum höfðu unnið, höfðu skilað álitum sínum, þá sendi ég þær skýrslur í umsögn til óháðra aðila, bæði verkfræðilegra aðila og til Þjóðhagsstofnunar. Þetta var gert í sambandi við þörungavinnsluna. Sú skýrsla, sem Rannsóknaráð skilaði, var send íslenskri verkfræðiskrifstofu og Þjóðhagsstofnun og þær skiluðu báðar álitsgerðum um efnið áður en nokkur ákvörðun var tekin. Slíkt hið sama var gert í sambandi við sjóefnavinnsluna. Einnig hún var send Þjóðhagsstofnun annars vegar og hins vegar Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens sem fékk sér til ráðuneytis bandarískt verkfræðifyrirtæki og þessir aðilar fjölluðu á gagnrýninn hátt um niðurstöður Rannsóknaráðs ríkisins. Ég held að þessi vinnubrögð séu algerlega sjálfsögð. Maður dregur að sjálfsögðu ekki í efa að þeir, sem að slíkum undirbúningsstörfum vinna, geri það af fyllstu samviskusemi. En það er ákaflega mikilvægt að fá gagnrýni frá sérfróðum aðilum sem óháðir eru.

Ég hef alltaf hugsað mér að áformin um kísiljárnverksmiðju yrðu afgreidd á hliðstæðan hátt og frá því skýrði ég formanni viðræðunefndar um orkufrekan iðnað margsinnis. En þetta hefur ekki verið gert. Verkfræðiþátturinn í sambandi við þetta mál hefur ekkert verið skoðaður. Þjóðhagsstofnun fékk hins vegar 10. jan. á þessu ári fsp. um tvö tiltekin atriði sem hv. þm. Ingólfur Jónsson gerði grein fyrir áðan sem er aðeins lítill hluti af því verkefni sem hér er um að ræða, enda kemur það í ljós í skýrslu Þjóðhagsstofnunar að það er ákaflega margt sem hún telur sig ekki geta lagt mat á.

Um stofnkostnaðaráætlun segir Þjóðhagsstofnun m. a.: „Hins vegar er ljóst að þau gögn, sem Þjóðhagsstofnun hefur haft undir höndum um stofnkostnaðaráætlun fyrirtækisins, veita ekki möguleika á mati eða endurskoðun þessara áætlana.“

Um hráefnisliðinn segir: „Ekki hefur verið unnt að kanna þennan lið nánar.“

Um orkukostnaðinn, á hann er lagt mat og Þjóðhagsstofnun segir: „Ljóst er að orkukostnaður verksmiðjunnar virðist tiltölulega lágur í samanburði við heildarframleiðsluverð eða um 18.5% á hvert tonn framleiðslunnar.“

Um söluverðið segir Þjóðhagsstofnun: „Af þeim markaðsupplýsingum, sem hér hafa verið nefndar, verður ekki mikið ráðið um framtíðarþróun kísiljárnverðs, en verðið hefur hækkað afar mikið undangengin missiri og er varla ástæða til að búast við framhaldi slíkrar þróunar, heldur hinu gagnstæða. Eins virðist eðlilegt að gera ráð fyrir að kísiljárnsmarkaður sé háður sveiflum í járn- og stálframleiðslu eins og bent er á í skýrslu viðræðunefndar um orkufrekan iðnað frá því í nóvember, en um þetta hafa ekki fengist miklar upplýsingar.“

Um markaðsforsendur segir í þessari skýrslu Þjóðhagsstofnunar: „Í söluáætlun er hins vegar gert ráð fyrir útflutningi helmings stálframleiðslu verksmiðjunnar til Bretlands og helmings til meginlands Evrópu.“ — Og enn fremur segja þeir að áætlunin um útflutning til Bretlands byggist annars vegar á því, að vegna nýrra innflutningstolla gagnvart löndunum utan Efnahagsbandalagsins muni Union Carbide hætta að flytja ferrasilikon til Bretlands frá verksmiðju í Kanada til sölu til breska járnsteypuiðnaðarins, en selja þangað ferrosilikon frá Íslandi í staðinn, og hins vegar á áætlun um sölu til breska stáliðnaðarins, einkum til ríkisfyrirtækisins British Steel Corporation. Samkv. eigin upplýsingum hefur Union Carbide Corporation ekki komið að ráði við sögu á meginlandsmarkaðnum fyrir ferrosilikon og ekki að sjá að fyrirtækið hafi þar neina hlutdeild í markaði, en á það er bent að vegna stærðar þessa markaðar hlytu að vera verulegir sölumöguleikar á meginlandinu. Enn fremur segir um þetta atriði, um markaðsforsendur og markaðsmöguleika hinnar íslensku framleiðslu: „Styrkur þeirra virðist annars vegar vera fólginn í ríkri markaðshlutdeild og reynslu Union Carbide Corporation á Bretlandsmarkaði og hins vegar stærð meginlandsmarkaðsins. Veikleiki þeirra kann að vera annars vegar hve áætluð sala er háð Bretlandsmarkaði, að verulegu leyti einu fyrirtæki, því langstærsta þar í landi.“

Og svo segir Þjóðhagsstofnunin í lokin: „Ástæða gæti verið til þess að spyrja, hvort ekki gæti reynst nauðsynlegt að tryggja fasta sölusamninga til langs tíma, t. d. við British Steel Corporation, þegar fjárútvegun til framkvæmda hefst fyrir alvöru.“ — Þetta er atriði, sem mér finnst að þyrfti að huga að áður en ákvarðanir eru teknar í þessu efni. Þetta breska stórfyrirtæki, sem á að kaupa verulegan hluta af framleiðslunni, er ríkisfyrirtæki og ég fæ ekki betur séð en það hefði átt að vera mjög nærtækt fyrir íslenska ríkið að taka upp beina samninga við ríkisfyrirtæki í Bretlandi og tryggja þannig með samningum sölu á verulegu magni. Ég sé ekki betur en með þessu móti hefði verið unnt að komast hjá því að stórhækka söluumboðið til Union Carbide, eins og gert hefur verið, með því að íslenska ríkið semdi beint við bresk ríkisfyrirtæki. Mér finnst þessi ábending Þjóðhagsstofnunar vera ákaflega mikilvæg og ég er dálítið undrandi á því að henni skuli ekki vera veitt meiri athygli.

Um arðsemina, þá gagnrýnir Þjóðhagsstofnun það mjög harðlega að áformin um höfn skuli ekki vera tekin inn í dæmið, Þjóðhagsstofnun segir orðrétt: „Hér ber þó að athuga að ekki hefur verið tekið tillit til fjárfestingar í höfn og vegi og hlýtur það að orka nokkurs tvímælis. Ljóst er að hafnargerðin er alger forsenda fyrirtækisins. Hins vegar er alls óvíst hver önnur not verða af höfninni og má telja líklegt að hún muni þjóna málmblendiverksmiðjunni því nær eingöngu. Nálægð annarra hafna í Reykjavík og Akranesi skiptir hér meginmáli fyrir þörf og hugsanleg not annarra fyrirtækja af höfninni. Eðlilegt virðist einnig að líta svipuðum augum á kostnað við vegalagningu.“ En hér mun um að ræða endurbætur vegar upp af þjóðveginum til verksmiðjulóðarinnar. Sem sé, Þjóðhagsstofnun telur eðlilegt að þessir verkþættir séu reiknaðir með og gagnrýnir þannig þennan þátt í áætluninni. Í lok þessa kafla í áliti Þjóðhagsstofnunar segir að enda þótt deila megi um að hve miklu leyti eigi að skrifa hafna- og vegareikning þennan á kostnað málmblendiverksmiðjunnar einnar fæst naumast rétt mynd af arðgjöf fyrirtækisins nema að teknu einhverju tilliti til þessa kostnaðar.

Það er margt fleira í þessari álitsgerð sem fróðlegt hefði verið að rekja, en ég skal ekki gera nema að litlu leyti frekar. M. a. segir í lok þessarar skýrslu: „Rekstrarskilyrði fyrirtækisins ráðast að sjálfsögðu að verulegu leyti af orkuverðinu, en um það liggja fyrir drög að orkusölusamningi, og af ákvæðum samninga um tækniþjónustuþóknun og sölulaun til Union Carbide Corporation auk skattákvæðadraga að aðalsamningi. Um þessa þætti rekstrargrundvallar fyrirtækisins verður ekki fjallað hér sérstaklega, enda munu þessi atriði verða tekin sérstaklega til athugunar af öðrum. Hér er og víðast um hrein samningsatriði að ræða.“ — Þjóðhagsstofnun telur sér sem sagt ekki kleift að leggja neitt mat á þessa mikilvægu þætti í þessu dæmi. Hún treystir sér ekki til þess að leggja neitt mat á þetta.

Svo eru síðustu orðin í þessari álitsgerð Þjóðhagsstofnunar: „Hin eiginlega áhætta íslendinga er þannig fyrst og fremst í því fólgin hvort ferrosilikonframleiðslan stenst til frambúðar samjöfnuð við annan orkufrekan iðnað eða aðra orkunotkun á næstu árum og áratugum.“ — Þjóðhagsstofnun telur sem sé að þarna þurfi að bera saman hvernig á að nýta orkuna. Hún hefur ekki forsendur til þess að kveða neina dóma um þetta sjálf, en hún segir að þetta sé forsenda þess að hægt sé að taka slíkar ákvarðanir.

Á þskj. 453 hef ég flutt nokkrar brtt. við frv. eins og það liggur nú fyrir. Ég er áður búinn að fjalla um 1. brtt. sem snertir mengun og vistfræði og nauðsynlegar öryggisráðstafanir í því sambandi sem ég tel að verði að hlíta.

2. till. mín er um að íslendingar haldi þeirri stefnu sem mörkuð var í fyrri samningum að eiga 65% þessa fyrirtækis. Á það hafði verið fallist og ég tel þetta ákaflega veigamikið atriði. Ég dreg enga dul á það, að ég tel að við séum þarna að leggja út á braut þar sem allrar gætni er þörf. Við erum þarna í samstarfi við auðhring sem að sjálfsögðu reynir að tryggja hagsmuni sína til hins ítrasta, og það verður mikill vandi fyrir okkur, ef við förum í slíka samvinnu, að treysta hag okkar eins og þarf að treysta hann. Ég er þeirrar skoðunar að það sé hluti af því öryggiskerfi að meiri hl. okkar þarna sé a. m. k. 65%. Við erum að veikja aðstöðu okkar til mikilla muna með því að draga úr þessum eignarhlut okkar og við erum að styrkja viðsemjendur okkar að sama skapi, auðhringinn Union Carbide. Ég er á móti því að þessi breyting sé gerð og flyt því till. um að ef í þetta verði ráðist í ef Alþ. ákveði það, þá verði eignarhlutur íslendinga 65%. Í þessu sambandi er ástæða til að minna á það, að því er haldið fram af sérfræðingum að arðsemi fyrirtækisins hafi því nær tvöfaldast frá því að rætt var um það í upphafi, og ég á dálítið erfitt með að sjá hvers vegna þá á að minnka eignarhlut íslendinga ef arðsemin er orðin svona feiknalega miklu meiri.

Ég vitnaði áðan í álit Þjóðhagsstofnunar um höfn og vegalagningu. Um það er fjallað í 3. gr. frv. í 2.–5. lið. Þar er heimildin til að kaupa jarðnæði, til að að láta byggja og reka höfn, til að sjá um að leggja veg og að leggja raflínu í 5. lið. Ég legg til að við þetta bætist nýr tölul. sem verði 6. liður: „Að gera samning við verksmiðjuna sem tryggi að hún greiði allan kostnað við framkvæmdir þær sem um getur í 2.–5. lið:

Hv. þm. Ingólfur Jónsson vék dálítið að höfninni og vandamálum hennar í ræðu sinni áðan og hann greindi réttilega frá því að við fengum samgrh. og ráðuneytisstjóra í samgrn. til þess að ræða við okkur um þetta vandamál. Við óskuðum þess í iðnn. að fá rekstraráætlun fyrir höfnina endurskoðaða miðað við kostnaðarliði nú og því var lofað. Við þetta loforð hefur ekki verið staðið. Við höfum ekki fengið neina slíka rekstraráætlun. Við fengum hins vegar lauslegar tölur frá hv. þm. Ingólfi Jónssyni áðan, afar lauslegar tölur, en þær sýndu að það yrði verulegur halli á rekstri hafnarinnar næstu árin a. m. k. Og mér er spurn, hver á að standa undir þessum halla? Eiga sveitarfélögin, sem verða formlegur eigandi hafnarinnar, að standa undir hallarekstri á þessari höfn um fyrirsjáanlegan tíma? Það er alveg rétt, sem þm. sagði, að hæstv. samgrh. var með allmiklar bollaleggingar um að þarna gæti orðið innflutningshöfn og mætti búast við því að þessi höfn tæki verkefni frá Reykjavík í verulegum mæli og frá öðrum höfnum. Ef svo er, ef þetta er áætlunin, þá hugsa ég að menn þurfi að hugsa sig um dálítið líka. Ég veit ekki betur en Reykjavíkurhöfn sé nú þegar í æðimiklum vanda vegna þess að aðstaða hennar er ekki nýtt á skynsamlegan hátt og eins og þarf að gera til þess að standa undir hagkvæmum rekstri. Ef á að koma upp annarri höfn tiltölulega skammt frá Reykjavík til þess að taka við verkefnum sem Reykjavíkurhöfn hefur nú, hvaða vit er í því frá þjóðhagslegu sjónarmiði? Hvaða vit er í því frá þjóðhagslegu sjónarmiði að nýta ekki þá aðstöðu sem komið hefur verið upp í Reykjavík með ærnum tilkostnaði, ætla að koma upp höfn sem á að eiga framtíð sína undir því að taka til sín verkefni frá Reykjavík? Mér finnst þetta vera hrein fjarstæða. En þetta sagði hæstv. samgrh. vegna þess að hann fann ekki neitt annað til þess að rökstyðja það að hægt væri að reka þessa höfn með hagnaði. Auðvitað er eina rökrétta leiðin sú að það yrði gerður samningur við verksmiðjuna að not hennar af höfninni standi undir rekstrarkostnaði. Ég held að við í n. höfum allir verið sammála um þetta nema þá hv. þm. Ingólfur Jónsson. Ég heyrði þessi viðhorf hjá öllum öðrum nm., enda hefur hv. þm. Bragi Sigurjónsson borið fram formlega till. sem gengur í sömu átt og till. mín. Þetta viðhorf kom einnig fram hjá flokksbróður hv. þm. Ingólfs Jónssonar, Lárusi Jónssyni. Hann hafði áhyggjur af þessu máli. Ég er alveg sannfærður um að það var mikill meiri hl. í n. fyrir að hafa þennan hátt á. En það kom upp það viðhorf hjá hv. þm. Ingólfi Jónssyni að það mætti ekki breyta einu eða neinu, hvað svo sem það væri.

Ég hef borið fram till. um að stjórnendur fyrirtækisins yrðu kosnir í Sþ. eins og tíðkast um öll hliðstæð fyrirtæki á Íslandi. Það er til fyrirtæki sem íslenska ríkið á að meiri hl. til, en erlendur aðili á minni hl. Stjórnendur þess eru kosnir hér á þingi. Það er Kísiliðjan við Mývatn. Ég sé ekki nokkur rök gegn því að sami háttur sé hafður á um þetta atriði, að Alþ. kjósi þessa stjórnarnefnd. Mér finnst það vera sjálfsagt mál. Sama viðhorf hefur hv. þm. Bragi Sigurjónsson og ég gat ekki heyrt annað á nm. en þeim þætti þetta ákaflega eðlileg skipan. En það kom bara upp að það virðist svo sem hv. þm. Ingólfur Jónsson hafi haft um það fyrirmæli frá einhverjum aðila að ekki mætti breyta einum einasta stafkrók.

Svo eru í frv. ákaflega óeðlileg ákvæði í 7. og 8. gr. Þar stendur: „Eftirfarandi reglur skulu gilda gagnvart hlutafélaginu að því er varðar skatta á nettótekjur og aðra skatta, sem að neðan greinir, án tillits til breytinga sem verða kunna á almennum lögum um þá skatta: — Hvernig er hægt að setja svona ákvæði í lög? Hvernig er hægt að ákveða það með lögum núna að það megi ekki gera síðar breytingar sem hafa áhrif á stöðu þessa fyrirtækis? Hér er um að ræða íslenskt fyrirtæki. Það lýtur íslenskum lögum í einu og öllu. Auðvitað er það Alþingis að ákveða hvernig háttað er skattamálum þess, ekki aðeins nú heldur einnig síðar. Við getum ekki bundið hendur næsta þings, ætli það að taka einhverjar aðrar ákvarðanir. Lagasetning af þessu tagi er hrein endileysa. Hún stenst ekki einu sinni. Ég geri ráð fyrir að bak við þetta standi það að tryggja eigi hagsmuni samstarfsaðila okkar á einn eða annan hátt í þessu skyni. En auðvitað verður að gera það með samningum. Það verður að ganga frá þessu með samningum við þennan aðila, en ekki með því að setja lög af þessu tagi þar sem mælt er fyrir um að lög, sem síðar verði sett, megi ekki hafa áhrif á þetta. Þetta er ekki hægt, þetta stenst ekki stjórnlagalega einu sinni. Og sama máli gegnir um hliðstætt ákvæði í 8. gr., að þar segir: „Í samræmi við framanritað skulu eftirfarandi reglur gilda gagnvart þessum aðilum án tillits til breytinga á íslenskum skattalögum.“ — Það er ekki hægt að samþykkja svona ákvæði, enda standast þau ekki. Næsta þing hefði möguleika á að breyta þeim aftur. Við getum ekki sett nein lög hér sem bindi Alþ. ótiltekinn tíma í framtíðinni, það er alger fjarstæða. En viðhorfið er greinilega það að hv. þm. Ingólfur Jónsson og hæstv. ríkisstj. virðast halda að við séum að ganga frá einhverri hliðstæðu við álbræðslusamninginn um árið. Þar var um það að ræða að samningur, sem gerður var við erlenda aðila, fékk lagagildi á Íslandi. Hér er ekki um neitt slíkt að ræð. Hér er um það að ræða að stofna íslenskt fyrirtæki. Þetta íslenska fyrirtæki gerir svo samning við erlenda aðila um minnihlutaþátttöku. Ef þarf að tryggja hagsmuni þessa erlenda aðila á einhvern hátt, þá verður að gera það með samningum, en ekki með svona almennum ákvæðum í lögum. Þetta er hrein fjarstæða eins og allir þm. hljóta að sjá. En kannske má ekki einu sinni breyta þessu.

Ég á eftir að gera grein fyrir einni ákaflega mikilvægri brtt. Það er till. um samninga þá sem hæstv. ríkisstj. er heimilað að gera samkv. 6. gr. Ég legg þar til að við fyrri mgr. bætist: „Þó skal greiðsla fyrir tækniþjónustu Union Carbide í formi hlutabréfa ekki vera hærri en 2.3 milljónir dollara, meðalsölulaun ekki hærri en 3% og meðalraforkuverð fyrstu 8 árin ekki lægra en 8 mill kwh.“ — Þetta eru ákaflega veigamikil atriði sem ég tel að Alþ. íslendinga þurfi að taka afstöðu til. Það er alkunna að áformin um byggingu þessarar verksmiðju hafa breyst ákaflega mikið síðan frá þeim var gengið á sínum tíma. Stofnkostnaður verksmiðjunnar hefur tvöfaldast, byggingarkostnaður hennar hækkað um 150% og það stendur raunar ekki steinn yfir steini af þeim fyrri tölum sem reiknað var með í þessum áætlunum. Þess vegna þarf að meta þetta allt saman upp á nýtt og þá með hliðsjón af því mati sérfræðinga að arðsemin hafi því sem næst tvöfaldast, þ. e. a. s. hækkað úr 10.2% í liðlega 20% að því er varðar fjárfestingu fyrir skatta.

Ég gagnrýndi áðan að það væri á þessum forsendum algerlega röng stefna að heimila Union Carbide að auka eignarhlutföllin úr 35% í 45%. En þetta er gert á ákaflega ódýran hátt fyrir auðhringinn — ákaflega ódýran hátt. Tækniþjónustan, tækniþekkingin, einkaleyfin eru bara reiknuð upp um 900 þús. dollara, bara hækkuð í verði með einu pennastriki. Það eru engin rök fyrir þeirri breytingu. Það er bara verið að færa Union Carbide á silfurbakka þessa upphæð sem þeir geta svo notað til þess að auka hlutafé sitt í verksmiðjunni. Þetta er atriði sem hv. þm. Jón G. Sólnes ræddi sérstaklega í Ed. Alþ. og lýsti sérstakri undrun sinni yfir og á þessu hafa ekki fengist neinar viðhlítandi skýringar.

Sama máli gegnir um hækkunina á söluþóknun. Það var búið að fallast á það af hálfu Union Carbide að söluþóknunin yrði 3% og þessi 3% höfðu nú aldeilis hækkað í verði á milli þessara tveggja áætlana vegna þess hve varan sjálf hafði hækkað. 3% þýddu miklu, miklu fleiri dollara en áður hafði verið reiknað með vegna þess að kísiljárnið hafði hækkað í verði um hvorki meira né minna en 150%. Engu að síður er á það fallist að þessi sölulaun hækki úr 3% í 3.9%. Þessi hækkun frá fyrri drögum jafngildir upphæð sem er hvorki meira né minna en 783 þús. dollarar á einu ári. Árlegur arður Union Carbide vegna aukinnar arðsemi og vegna þessarar auknu hlutafjáreignar verður í samanburði við fyrri drög 2 millj. 102 þús. dollarar. Aukin arðsemi Union Carbide af þessari samvinnu, þessir 4 þættir sem ég hef nefnt: tækniþekking, söluþóknun, tækniþjónusta og arður, hafa hækkað um 4 millj. 306 þús. dollara miðað við eitt ár. Þetta fær Union Carbide í sinn hlut. Það borgar ekkert fyrir þennan eignarhluta sinn. Það getur tekið sinn hluta af auknum arði sínum þegar á fyrsta ári. Þetta finnst mér algerlega hraklegir samningar og hafa ekki verið færð nein rök fyrir þeim breytingum sem hér hafa verið gerðar og allar eru íslendingum mjög í óhag. Einu rökin, sem þar hafa verið nefnd, eru þau að verð á raforku hafi þó verið hækkað um 35% ef miðað er við fyrstu 8 árin. Hv. þm. Ingólfur Jónsson vildi telja að það væri raunar 42% og ég skal ekki deila við hann um það atriði. En hitt er alveg ljóst, að hvor talan sem notuð er hækkar orkuverðið miklu minna en allir aðrir þættir í þessu dæmi. Ég rakti áðan að stofnkostnaðurinn hefur hækkað um 100%, byggingarkostnaður um 150% o. s. frv., en orkugreiðslan á aðeins að hækka um 35–42% eftir því hvernig þetta er reiknað. Nú er það staðreynd að einmitt á þessu tímabili hefur ekkert hækkað eins mikið í heiminum og orkan og ef þessi áætlun hefði verið endurskoðuð út frá breyttum forsendum, út frá staðreyndunum eins og þær blöstu við, þá átti orkuþátturinn auðvitað að hækka meina en annað. Það liggur í hlutarins eðli, enda sérstaklega á þetta bent í álitsgerð Þjóðhagsstofnunar eins og ég var að gera grein fyrir áðan.

Ég tel að hæstv. iðnrh. hafi haft ákaflega góð tök á því að standa á kröfum um verulega hækkun á þessu raforkuverði einmitt vegna þessarar auknu arðsemi sem við höfum verið að tala um hér. Það er mjög auðvelt að reikna það dæmi út, að ef miðað hefði verið við þá arðsemi sem Union Carbide var áður búið að fallast á, þá hefði verið hægt að greiða fyrir raforkuna 10.4 mill að meðaltali á fyrstu 8 árunum, helmingi meira en nú á að semja um. Með þessu héldist sama arðsemi og búið var að reikna með í fyrri drögum, og þarna tel ég að hæstv. ráðh. hafi haft ákaflega sterk vopn á hendi — vopn sem hann hagnýtti sér ekki. En því miður kemur það fram í þessu eins og löngum áður í sambandi við Sjálfstfl. að hann er undarlega ósjálfstæður í samskiptum við erlenda aðila. Hann á ákaflega erfitt með að standa á sínu ef um erlenda aðila er að ræða hvort sem um er að ræða auðhring eða erlent stórveldi. Það kemur ákaflega glöggt fram t. d. í þessum umr. og sérstaklega í máli Ingólfs Jónssonar áðan að hann á ákaflega erfitt með að hugsa eins og íslendingur um að þetta er íslenskt fyrirtæki sem þarna er verið að fjalla um. Við erum ekki að selja útlendingum neina raforku, við erum að reyna að stofna íslenskt fyrirtæki. Þess vegna tel ég að það væri eðlilegt að Alþ. tæki sér ráðrúm til þess að fjalla dálítið betur um þetta mál og flýtti sér ekki við ákvörðun sína um það. Mér er kunnugt um að Union Carbide telur að það þurfi að flýta sér vegna markaðsaðstæðna, vegna þess að það kunni að eiga í höggi við erlenda keppinauta o.s.frv. og vafalaust eru þessi rök haldgóð á sinn hátt. En að sjálfsögðu eigum við að meta þessi vandamál einvörðungu frá íslenskum sjónarhóli. Möguleikarnir á nýtingu orku hlaupa sannarlega ekki frá okkur. Og ég held að hv. þm. Ingólfur Jónsson ætti að minnast þess þegar hann stóð í þessum ræðustól fyrir svo sem 10 árum og hélt því fram að það væru allra síðustu forvöð að koma orku íslendinga í verð, hún væri að verða algerlega verðlaus á alþjóðlegum markaði, kjarnorkan gerði hana algerlega verðlausa, við yrðum að flýta okkur til að fá eitthvað fyrir hana, eitthvert smáræði, hversu lítið sem það væri, því að annars hlypi tíminn frá okkur. Þetta var sá boðskapur sem Sjálfstfl. boðaði hér fyrir 10 árum og hefur væntanlega trúað. En staðreyndirnar segja sannarlega aðra sögu. Þessar auðlindir hlaupa ekkert frá okkur, við þurfum ekki að ana að neinu, við getum haft þá röð á okkar verkefnum sem okkur hentar sjálfum.

Hv. þm. Ingólfur Jónsson var áðan að tala um álsamninginn og hann nefndi það enn sem fyrr að hann hefði verið hagkvæmur fyrir þjóðina. Ég er nú orðinn dálítið leiður á því að deila við hv. þm. um þetta. Ég er dálítið undrandi á því að hann skuli halda áfram að berja höfðinu við steininn hvað þetta atriði varðar. Ég tók eftir því að nýlega var þessum hv. þm. falið það ábyrgðarmikla verk að taka þátt í viðræðum við Alusuisse um endurskoðun á þessum raforkusamningi vegna þess að Landsvirkjun og allir eru komnir að þeirri niðurstöðu að þessi raforkusölusamningur hafi verið smánarlega lélegur og við höldum áfram að tapa meira og meira á honum og það séu fyllstu almenn rök fyrir því að endurskoða hann. Þessi hv. þm., Ingólfur Jónsson, var settur í þessa viðræðunefnd, en á sama tíma stendur hann í þessum ræðustól og segir: Þetta orkuverð er alveg ágætt, við getum verið alveg fullkomlega ánægðir. — Hvaða samningsaðstöðu hefur þessi maður? Viðmælendur hans þurfa ekki annað að gera en vitna í hans eigin orð, enda skilst mér að það sé ekki um annað rætt í þessum viðræðum en það að skipta á orkuverðinu og framleiðslugjaldinu, að lækka fram leiðslugjaldið svo að hægt sé að hækka orkuverðið. Við eigum sem sé að færa úr hægri vasa okkar yfir í þann vinstri. Þetta á nú að verða allur árangurinn, þetta er nú reisnin, þetta er að nota þá aðstöðu sem við höfum á sviði orkumála. Við höfum ákaflega sterka samningsaðstöðu á þessu sviði og við eigum ekki að misnota hana með svona lágkúrulegum sjónarmiðum.

Hv. þm. Ingólfur Jónsson sagði, eins og ákaflega margir menn höfðu tönnlast á, að ég hafi skipt um skoðun, eins og það sé eitthvað meiri háttar afbrot að skipta um skoðun. Var ekki einhver sem sagði að sumir menn gengju með steinbarn í hjartanu og þeir gætu aldrei upp úr því vaxið? Það eru aðstæðurnar sem hafa breyst. Það eru allt aðrar aðstæður núna en vorið 1974. Þær aðstæður eru komnar upp að það er markaður fyrir alla orku Sigölduvirkjunar, tiltækur markaður, markaður sem hrópar á eftir okkur og þá eigum við að ráðstafa orku fyrst til hans, það liggur í hlutarins eðli. Ég hef hins vegar ekki skipt neitt um skoðun á þeim pólitísku grundvallaratriðum sem ég mótaði meðan ég gegndi starfi iðnrh., þ. a. s. að þegar við förum að nýta orku til framleiðslu, til vöruframleiðslu, þá verður að vera um að ræða íslensk fyrirtæki með meirihlutaeign ríkisins, fyrirtæki sem lúti í einu og öllu íslenskum lögum. Þetta er algert grundvallaratriði í mínum huga og atriði sem getur ráðið úrslitum um alla þróun þessa þjóðfélags. Þess vegna tel ég skipta ákaflega miklu máli að við fáum yfirlýsingar frá öllum stjórnmálaflokkunum um það hvernig þeir hugsi sér að staðið verði að þessu grundvallaratriði.

Hæstv. iðnrh. hefur lýst því yfir í sjónvarpi frammi fyrir alþjóð að hann sé orðinn þeirrar skoðunar að íslendingar eigi að eiga meiri hl. í öllum slíkum fyrirtækjum. Hv. þm. Ingólfur Jónsson lýsti hér áðan gagnstæðri skoðun. Hann sagðist telja að það kæmi til greina að hleypa hér inn fleiri og fleiri erlendum fyrirtækjum. Ég er þeirrar skoðunar að við höldum ekki efnahagslegu fullveldi okkar, efnahagslegu sjálfstæði okkar, ef við látum yfirráð yfir atvinnutækjum okkar í hendur útlendinga í þeim mæli sem hv. þm. Ingólfur Jónsson talar um. Þá erum við að flytja efnahagslegt vald út úr landinu til annarra aðila sem t. d. Alþ. íslendinga ræður ekki yfir.

Þetta er svo örlagaríkt mál að mér finnst það vera skylda allra stjórnmálaflokkanna að gera grein fyrir afstöðu sinni til þess einmitt í sambandi við afgreiðslu þessa máls og um þetta eiga menn að fjalla á þann hátt að sökkva sér ekki niður í neitt lágkúrulegt pex, ekki reyna að koma persónulegu höggi hver á annan, heldur verður þjóðin að fá að vita um afstöðu allra stjórnmálaflokkanna um þetta meginatriði. Um þetta mega ekki koma nein hálf svör, heldur skýr stefnumörkun, og eftir það geta menn svo haldið áfram að pexa.