23.04.1975
Neðri deild: 72. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3209 í B-deild Alþingistíðinda. (2383)
149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Páll Pétursson:
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að lengja þessar umr. að marki. En vegna sérstakra ástæðna get ég ekki verið viðstaddur lokaafgreiðslu þessa máls á föstudaginn — og því miður mun ekki verða atkvgr. um málið í kvöld — þá vil ég taka það fram að ég er enn sömu skoðunar og ég var þegar ég gerði grein fyrir afstöðu minni við 1. umr. þessa máls og sagðist vera á móti þessu máli og ætla að segja nei þegar það kæmi til atkvgr. Enda hefur málið ekki skipt neitt um svip að marki jafnvel þó að forustumaður Heilbrigðiseftirlitsins hafi upplýst okkur opinberlega að Fróðárundrin hafi verið taugaveikifaraldur!
Ég vil nota þetta tækifæri til þess að spyrja flokksmenn hæstv. fjmrh. — ég sé að hann er ekki hér í salnum — hvað vextir og afborganir af erlendum lánum muni nema mörgum prósentum af þjóðartekjum á þessu ári þegar allar samþykktar lántökuheimildir hafa verið notaðar og hvað þær muni verða þegar lántökur vegna járnversins hafa hlaðist ofan á. Núna í morgun vorum við að samþykkja hér í hv. d. 31/2 milljarðs niðurskurð á fjárl. Ég vil láta þess getið að hönd mín verður treg til að rétta hana upp til þess að samþykkja niðurskurð á lífsnauðsynlegum framkvæmdum á Norðurl. v., ekki síst þar sem nú virðist vera fyrir hendi, að dómi hæstv. fjmrh., fjármagn eða lántökumöguleikar til þess að ráðast í framkvæmd eins og þessa.