23.04.1975
Neðri deild: 72. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3209 í B-deild Alþingistíðinda. (2384)
149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Magnús T. Ólafason:
Hæstv. forseti. Það má segja að einkum, sé tvenns konar meginefni í umr. manna um það mál sem hér liggur fyrir. Öðrum þræði hafa umr. um það snúist hvort orkufrekur iðnaður í einhvers konar félagi við þau erlend fyrirtæki sem ráða yfir þeirri tækni sem slíkum iðnaði er eiginleg, sé heppilegur og réttlætanlegur hér á landi. Hins vegar hafa umr. einnig snúist um það hvort það fyrirtæki og sá atvinnurekstur, sem um ræðir í frv. til l. um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, sé tímabær og heppilegur. Sýnist þar nokkuð sitt hverjum, þeim sem telja að orkufrekur iðnaður í félagsskap við erlenda aðila geti í sjálfu sér vel komið til greina eða verið sjálfsagður.
Þegar að því er hugað hvers konar orkufrekur iðnaður sé einkum álitlegur til þess að nýta íslenskar orkulindir, þá má skipta þeim iðnaði, sem til greina kemur, í stórum dráttum í tvo flokka: Annars vegar er þar um að ræða málmiðnað og hins vegar efnaiðnað. Fyrir mitt leyti tel ég að það sé einsýnt að ef við íslendingar ætlum að hagnýta til nokkurrar hlítar þann orkuauð sem landið hefur að bjóða, bæði í fallvötnum og jarðvarma, þá þarf að einhverjum hluta að veita þeirri orku til iðnaðar sem orkufrekur er talinn, og það því fremur sem orka sú, sem við ráðum yfir og getum ráðið yfir í vaxandi mæli eftir því sem tímar líða og virkjunum miðar áfram, verður æ ábatavænlegri eftir því sem orkugjafar af kolefnisætt, bæði kol og olía, verða torgætari og dýrari. Þetta kemur ekki aðeins til af því að það geti verið ábatavænlegt fyrir okkur sjálfa að verja einhverju af orkuforða okkar til slíks atvinnurekstrar heldur helgast það einnig af því að mínum dómi, að það hlýtur að vera keppikefli okkar að hagnýta þær náttúruauðlindir, sem við höfum umráð yfir, ekki aðeins til ábata fyrir okkur, heldur einnig til að uppfylla þarfir sem tvímælalaust er um að ræða í nágrannalöndunum og í heiminum yfirleitt. Ég held að við munum þegar til lengdar lætur komast að raun um það að ríkur skerfur okkar smáu þjóðar til framleiðslu- og atvinnukerfis heimsins mun verða sá að hagnýta orkulindir landsins til ýmissa þarfa sem þær eru til fallnar og verða í vaxandi mæli til fallnar eftir því sem aðrar orkulindir gerast dýrari. En okkur hlýtur einnig að vera það mikið keppikefli að við getum losnað í sem mestum mæli við hvimleiða fylgifiska iðnvæðingar og stóriðju, það sem einu nafni er nefnt mengun og er undið af mörgum þáttum sem ekki er ástæða til að rekja hér. Með tilliti til þess tel ég einsýnt að einkum komi til greina af okkar hálfu að sækjast frekar eftir málmiðnaði þeim, sem orkufrekur er talinn, en efnaiðnaði. Reynslan er sú að efnaiðnaðurinn veldur miklu meiri mengun og sú mengun, sem hann gefur frá sér, er erfiðari við að eiga heldur en sú sem málmiðnaðinum fylgir, og skal ég þó ekki gera lítið úr þeim vandamálum sem upp geta komið við að halda mengun af slíkum iðnaði í lágmarki.
Það er einn ríkasti þáttur þeirra bollalegginga og deilna sem farið hafa fram um orkufrekan iðnað í landinu hversu háttað skuli vera eignarhaldi á slíkum fyrirtækjum sem talið er rétt af öðrum ástæðum að rísi í landinu. Þar halda menn ýmist fram þeirri skoðun að best sé og affarasælast að útlendir aðilar eigi slík fyrirtæki að fullu og öllu og taki af þeim ábata og áhættu, en þáttur okkar sé sá einn að selja orkuna sem þarf til að knýja þær verksmiðjur sem um er að ræða. Þetta er að minni hyggju röng stefna og stórhættuleg ef henni væri fylgt fram í miklum mæli. Þá yrði niðurstaðan sú að verulegur hluti af atvinnulífi landsins væri í eigu erlendra aðila og þar á ofan væri okkar þáttur í þessum atvinnurekstri að leggja fram vinnuafl og orku. En við hlytum að eiga allmjög undir högg að sækja með verðlagningu á þessum framleiðsluþáttum þegar framleiðslutækin sjálf væru algerlega undir yfirráðum erlendra aðila. Því er ég eindregið fylgjandi þeirri reglu að þegar þykir koma til greina að koma upp orkufrekum iðnaði í landinu sem þarf að hafa tiltæka tækni sem ekki fæst nema í félagi við þá erlendu aðila sem hana hafa þróað á löngum tíma með miklum kostnaði og yfir henni ráða. Þá eigi það að vera reglan að íslendingar eigi frá öndverðu meiri hl. í slíkum fyrirtækjum og hafi þar með meirihlutaáhrif á stefnu þeirra og hirði meiri hluta ábatans en taki auðvitað líka meiri hluta áhættunnar að sama skapi. En einmitt þess vegna veltur á miklu að fyrirtæki og framleiðslugreinar séu þannig valin að markaður sé sem öruggastur og áhættan, sem fylgir meirihlutaeign slíkra fyrirtækja, sem minnst.
Það er skjótt frá að segja að ekki er nema í tvö hús að venda í stórum dráttum um félagsskap við erlenda aðila. Þar er annars vegar um að ræða stór fyrirtæki hins vestræna heims, þau sem kölluð eru ýmist auðhringar eða fjölþjóðafyrirtæki. Þetta er annar aðilinn í heiminum sem ræður yfir fullkomnustu tækni í orkufrekum iðnaði. Hinn aðilinn eru ríkissamsteypur sósíalistísku landanna sem einnig hafa slíka tækni á valdi sínu og hafa nokkuð gert að því að leita félagsskapar við ríki utan þeirrar ríkjablakkar sem þau hafa myndað.
Hvað það snertir hvor hópurinn er vænlegri til samvinnu við smáþjóð eins og okkur íslendinga til slíkrar framleiðslusamvinnu, þá tel ég að munurinn geti orðið harla lítill. Hvorir tveggja þessir aðilar hafa sýnt það bæði fyrr og síðar að þeir eiga til að vera harðir í viðskiptum, og mikil þörf er fyrir smáar þjóðir, sem ganga til félagsskapar við þá, að gæta vel hagsmuna sinna í öllum skiptum við slíka risa. En þó er í þeim efnum ætið traustasta vörnin sú, að ekki sé gengið til neinnar sameiginlegrar stofnunar fyrirtækja nema það sé þegar tryggt fyrir fram, ekki aðeins að íslendingar hafi meirihlutaeign og meirihlutavald yfir fyrirtækjunum, heldur einnig að hinir erlendu aðilar, sem til samvinnunnar ganga, fallist skýlaust á það að um allt, sem á kann að greina, skuli íslensk lögsaga gilda. En það er einnig afar þýðingarmikið að orkuverðið sé þannig ákveðið að það styrki íslenska orkuvinnslu, ekki aðeins til frekari stórfyrirtækja sem til greina kynnu að koma, heldur einnig þá orkuvinnslu og orkudreifingu sem gerð er til íslenskra þarfa eingöngu.
Það skiptir mjög miklu máli að áhrifin af slíkum atvinnurekstri og slíkum orkufrekum iðnaði verði þau að halda niðri innlendu orkuverði. Og arðurinn, sem í hlut íslendinga kemur, kann auðvitað ýmist að koma í mynd orkuverðs eða í vörusölu. Vörusöluarðinum þarf að deila með erlendum aðilum sem eru sameignaraðilar. Þetta sjónarmið gerir enn brýnna að tryggilega sé frá því gengið að orkuverðið sé reiknað fyllilega á því raunverulega verðgildi sem það hefur miðað við orkuverð á heimsmarkaði til svipaðs atvinnurekstrar.
Nú hafa mál þróast svo að aldrei hefur verið meiri þörf á því en nú að huga sérstaklega að orkuþörf okkar sjálfra fyrir þann atvinnurekstur, sem fyrir er í landinu, og til margvíslegra heimilisþarfa. Aðkeypt orka hefur stigið óstjórnlega í verði en jafnframt ríkir það ástand í raforkumálum landsins að ég tel réttmætt að kveða svo að orði að orkusvelti ríki í þrem landsfjórðungum. Það fylgir einnig þeirri mynd sem ég tel að líta verði á að þær stóru virkjanir, sem gerðar hafa verið, hafa risið svo til á sama stað, á Suðvesturlandi, en aðrir fjórðungar eru afskiptir enn sem komið er.
Þá hlýtur einnig að þurfa að taka mið af framkvæmdagetu landsmanna. Sá mannafli, sem íslendingar leggja af mörkum við smíði slíkra fyrirtækja og rekstur þeirra, má ekki vera svo mikill að hann raski heilbrigðri þróun annars atvinnulífs sem fyrir er í landinu. Þá hlýtur einnig að verða að líta til þess hver áhrif fjármagnsútvegun erlendis til orkufreks iðnaðar, til fyrirtækja, sem stofnuð eru í félagsskap við útlendinga, hefur á aðra fjármagnsútvegun ríkisins í eigin þágu eða í þágu atvinnuveganna. Nú hagar svo til að hér á landi hefur skapast efnahagsástand sem að dómi hæstv. ríkisstj. hefur leitt til þess að óhjákvæmilegt sé að skera niður verulega þjóðþrifaframkvæmdir sem þegar hafa verið ákveðnar á fjárl. yfirstandandi árs, m. a. með þeim rökum að erlendar skuldir þjóðarinnar séu orðnar hættulega miklar. Þá hlýtur það að koma mönnum spánskt fyrir sjónir að jafnframt sé stofnað til atvinnurekstrar í stórum stíl ásamt erlendum meðeignaraðila, og sá rekstur sé af íslendinga hálfu hafinn algerlega í skuld.
Hv. 1. þm. Suðurl., frsm. meiri hl. iðnn., lýsti því í alllöngu máli í framsöguræðu sinni að hafnargerð á Grundartanga vegna fyrirhugaðrar járnblendiverksmiðju mundi á engan hátt bitna á öðrum hafnarframkvæmdum úti á landsbyggðinni. Hann skýrir frá því að þessi höfn skyldi gerð samkv. hafnalögum þar sem ríkið leggur til 3/4 af 500 millj. stofnkostnaði og greindi frá því að það fjármagn yrði tekið að láni. Það er hægt að segja það á þessari stundu að slík hafnargerð og slík lántaka muni engin áhrif hafa á hafnarframkvæmdir að öðru leyti á komandi árum. En ég tel útilokað að reynslan verði sú. Það hlýtur að hafa áhrif á getu ríkissjóðs til fjárframlaga í þágu hafna um landið allt að þurfa að standa undir 375 millj. kr. láni til hafnar á Grundartanga og það því fremur sem ekki liggja fyrir neinar líkur, hvað þá vissa um að þessi höfn fái í fyrirsjáanlegri framtíð nein önnur verkefni en að annast flutninga til og frá fyrirhugaðri járnblendiverksmiðju. Eins og hv. 1. þm. Sunnl. lýsti, hrökkva þær tekjur ekki einu sinni til að standa að fullu undir útgjöldum þeirrar hafnar sem þarna á að gera.
Nú kann að vera að það væri hægt að gera þessa höfn arðbæra, t. a. m. með því að fá henni stórt verkefni sem sinna þarf áður en langt um líður, og þá á ég við hvar valinn verður staður fyrir þá olíuhöfn sem tvímælalaust þarf að rísa á næstunni hér suðvestanlands. En ég hygg að það sé fullur vilji forráðamanna Reykjavíkurhafnar að sitja að þeim tekjustofni sem meginolíuflutningar til landsins eru og muni því stjórnendur Grundartangahafnar eiga mjög undir högg að sækja ef þeir reyna að bæta hag sinnar hafnar með því að róa á þessi mið.
Ég hef tekið þetta hafnarmál sem dæmi um það hversu vafasamt er að reikna með því að framkvæmdir á Grundartanga við járnblendiverksmiðju verði, þegar allt sem á heima í dæminu er talið þar með, jafnarðbærar og látið er í veðri vaka. Ég tel að það hefði verið hið eina rétta að reikna þennan hafnarkostnað með í stofnkostnaði þessa fyrirtækis því að ég hef ekki enn séð nein rök fyrir því að þessi höfn fái eða eigi von á nokkrum öðrum sjáanlegum verkefnum en að þjóna fyrirhugaðri járnblendiverksmiðju. En það eru auðvitað önnur sjónarmið sem enn meira máli skipta, þegar þetta mál er skoðað í heild, heldur en hafnargerðin ein. Mestu máli skiptir auðvitað hversu við verjum þeirri orku, sem Sigölduvirkjun mun færa okkur, best þjóðarheildinni til hagsbóta. Að því eru færð rök í fskj. frv. um járnblendiverksmiðju á Grundartanga að þetta fyrirtæki sé á ýmsan hátt arðvænlegt og því sé álitlegt fyrir íslenska ríkið að ráðast í stofnun þess ásamt Union Carbide. Án þess að þeir útreikningar séu í sjálfu sér í efa dregnir, og þó að ég hafi reynt að sýna fram á það með tilvitnun í hafnargerðina að reikningana mætti setja upp á annan hátt en gert er í fskj., þá er það álit mitt að orkunni frá Sigöldu væri enn betur varið til að leysa úr orkuskortinum sem ríkir í þrem landsfjórðungum, eins og ég nefndi í upphafi.
Víst og satt er að ýmislegt er ógert áður en unnt er að veita þessari orku til þeirra viðtakenda sem mesta þörf hafa fyrir hana. En það er enginn kominn til að segja að ekki mætti gera meira en gert er í þeim efnum og ég tel reyndar einsýnt að þar hafi ýmislegt verið látið ógert sem þegar mætti vera komið á skrið eða jafnvel lokið. Þar er fyrst og fremst um að ræða að hraða framkvæmdum við lögn byggðalínunnar frá Suðurlandi til Norðurlands, síðan hefja af fullum krafti undirbúning að línulögnum út frá henni til þeirra svæða sem verst eru sett, Austurlands og Vestfjarða, síðan að gera áætlanir um það hversu unnt sé að styrkja raforkudreifikerfið um landið allt, svo að það geti annað orkuflutningi til húshitunar sem brýn þörf er á hvarvetna um byggðir landsins þar sem ekki er fyrirsjáanlegt að jarðvarmi geti bætt úr húshitunarþörfinni.
Það er að mínum dómi að bjóða heim mjög hættulegu ástandi í landinu að ætla sér að vinna næstum einhliða að því að koma upp orkufrekum iðnaði sem síðan hafi máske í för með sér og hefur í för með sér að ýmissa dómi, að því komið hefur fram, að næsta stórvirkjun í landinu þurfi óhjákvæmilega að rísa á sama svæði og þær sem fyrir eru, þar hljóti Hrauneyjarfossvirkjun að vera efst á blaði. Það er að mínum dómi mjög háskalegt að halda svo á málum að landsfólkið þurfi á stórum svæðum að búa við orkuskort, sem ekki sér á nokkurn hátt fram á hvenær úr verður bætt, jafnframt því sem reistur er með miklum kostnaði orkufrekur iðnaður hér suðvestanlands. Ef vel á að fara þarf það að haldast í hendur að við gerum þær ráðstafanir, sem okkur þykja hagkvæmar, til að nýta orku sem við þurfum ekki sjálfir á að halda til eigin þarfa, til þess að koma upp nýjum atvinnugreinum og að bætt sé á þeim skemmsta tíma, sem unnt er, úr orkuskortinum á landsbyggðinni. Ella er verið að magna andstæðurnar milli þéttbýlissvæðisins annars vegar og strjálbýlisins hins vegar.
Hvaða útreikningar sem sýndir eru um arðsemi fyrirtækis eins og járnblendiverksmiðju á Grundartanga, jafnframt því að fólk í þrem landsfjórðungum býr við orkuskort og hátt orkuverð án þess að sjá fram á úrbætur í þeim efnum, verða aðeins til þess að þessu fólki þykir enn frekar gengið á sinn hlut en áður, að það skuli búa við annan og lakari hlut en aðrir landsmenn hvað snertir að uppfyllt sé þörfin á nægri orku við lægsta verði sem aðstæður leyfa.
Það bætir svo ekki úr skák að ljóst er að tilhneiging ríkir til að gera nýtingu Sigölduorkunnar til Grundartangaverksmiðju að meginröksemd fyrir því að Hrauneyjarfossvirkjun hljóti að verða næsta stórvirkjun sem við tekur. Með þessu er þannig í pottinn búið að strjálbýlisfjórðungunum þrem hlýtur að finnast að þeir séu gerðir æ afskiptari. Af þessari ástæðu, fyrst og fremst vegna áhrifa þessara fyrirhuguðu framkvæmda á byggðaþróun og byggðajafnvægi í landinu eins og nú standa sakir, getum við samtakamenn ekki léð þessu máli fylgi þótt, eins og ég hef áður tekið fram, megi viðurkenna það að ýmis þjóðhagsleg rök geti mælt með slíkum framkvæmdum við réttar aðstæður.
Það væri að mínum dómi illa farið ef ráðist yrði í þetta fyrirtæki við þær aðstæður að miklum hluta þjóðarinnar þætti það gert og til þess stofnað á sinn kostnað. Nóg var að gert þegar álverksmiðjan var stofnuð, þar sem nú er af öllum viðurkennt að orkuverðið var ákveðið of lágt og þar sem undanþága var veitt frá íslenskri lögsögu. Ég teldi mjög illa farið ef vegið væri í sama knérunn með stofnun járnblendiverksmiðjunnar í Hvalfirði.