25.04.1975
Efri deild: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3292 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)
204. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Herra forseti. Ég mun fyrst og fremst svara fsp. sem til mín hefur verið beint.
Hv. 5. þm. Norðurl. v. spurðist fyrir um það hvort það væri ætlun ríkisstj. að Seðlabankinn yfirtæki hlutverk stjórnar Framkvæmdastofnunar í tilefni af því að hagfræðideild Seðlabankans hafði útbúið vinnuplagg varðandi útlán fjárfestingarlánasjóða. Ég svara þessari fsp. neitandi Á hinn bóginn er það skýringin á eðlilegum afskiptum og vinnu Seðlabankans í þessum málum að hann hefur safnað upplýsingum um útlánaáform allra fjárfestingarlánasjóðanna, m. a. byggingarsjóðanna annars vegar og atvinnuvegasjóðanna hins vegar, og það er því eðlilegt að þau gögn komi saman í eina skýrslu. Hér er um vinnuplagg fyrst og fremst að ræða. Það mun vera skýringin á því að endanlegar tölur hafa ekki verið gefnar upp í fjh.- og viðskn að stjórn Framkvæmdastofnunarinnar og Framkvæmdasjóðs hefur ekki fjallað um útlánaáformin endanlega þótt margir fundir og mikil vinna hafi í þeirri stofnun verið lögð í rannsókn og undirbúning málsins. En þrátt fyrir það að hv. nm. hafi ekki talið sig fá nægilega góðar upplýsingar, sem ég út af fyrir sig harma, þá hygg ég þó að þeir hafi allir, sem hér hafa talað, komist nokkuð nálægt því sem hlýtur að verða, miðað við þær lánsheimildir sem gert er ráð fyrir í frv., bæði að því er snertir heildarútlán, útlánaáform sjóðanna og jafnvel skiptingu milli einstakra sjóða.
Hv. 5. þm. Norðurl. v. taldi fjáröflun og útlánaáform fjárfestingarlánasjóðanna skorin við nögl, eins og ég hygg hann hafa komist að orði. Ég vil í því sambandi taka það fram að skv. þeim lánsheimildum, sem um er að ræða, er gert ráð fyrir því að útlánaáformin verði 54% hærri á þessu ári, en raun bar vitni um á síðasta ári. Er það allveruleg hækkun og mun meiri hækkun en á milli árranna 1973 og 1974, en þá var hún 25.2%, þannig að þegar hv. þm. gerir kröfu til aukinna útlána þessara sjóða gerir hann meiri kröfur en sú stjórn gat staðið undir sem hann studdi á síðasta ári. Íbúðalánasjóðirnir auka útlán sín um 57.9%, þar af Byggingarsjóður ríkisins um allt að 67.6% sem er langveigamesta hlutdeildin í íbúðalánasjóðunum. Atvinnuvegasjóðirnir auka útlán sín um 52% og Byggðasjóður um nær 70%. Það er rétt áætlun að Byggðasjóður muni ekki lána til Stofnlánadeildarinnar meira væntanlega en 100–150 millj. kr., eins og búið var að setja á blað af hálfu Byggðasjóðs án skuldbindingar á því stigi. En með þeim hætti hygg ég að við getum gert ráð fyrir því að útlán Stofnlánadeildar landbúnaðarins aukist nokkuð e. t. v. um 250 millj. eða svo frá því sem var á síðasta ári, og á síðasta ári tvöfölduðust útlán Stofnlánadeildarinnar frá árinu á undan. Ég býst líka við því að við förum langt í það að með þessum lánsfjárheimildum nálgist útlán Fiskveiðasjóðs mjög það sem stjórn þess sjóðs taldi nauðsynlegt þó að bilið verði ekki brúað að fullu.
Ég er þeirrar skoðunar að það megi frekar gagnrýna þessi útlánaáform fyrir það að þau séu of há heldur en fyrir það að þau séu of lág. En hér er stefnt að því að skapa möguleika og skilyrði fyrir því að lánað verði til nauðsynlegra framkvæmda sem þegar eru í gangi og ástæða er til að ætla að geti komið að notum til gjaldeyrisöflunar og framleiðsluaukningar í þjóðfélaginu.
Hv. 1. landsk. þm., Jón Árm. Héðinsson, spurði hvernig ætti að ráðstafa 500 millj. kr. lækkun í söluskatti. Um það hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun. Það er um ýmsa valkosti þar að ræða, en það fer eftir því með hvaða móti þetta frv. verður að lokum afgr. frá Alþ. Sérstök vandamál eru í framkvæmd niðurfellingar söluskatts á kjötvörum, sem mörgum þykir næst liggja við. Ég býst við að þessar vörutegundir, sem einkum verða teknar til athugunar, — og segi ég það með öllum fyrirvara um hverjar verði endanlega valdar, nýir ávextir, grænmeti, brauð og kaffi, te, kakó, haframjöl, hveiti, hrísgrjón o. fl. kornvörur. Ég ítreka: þetta er sagt með fyrirvara og þarf að skoðast betur áður en skuldbinding er gefin um þessi eini.
Þá spurði hv. 1. landsk. þm. Jón Árm. Héðinsson, hver væri ætlun ríkisstj. um skattalögin og endurskoðun þeirra. Ég hef gefið þá yfirlýsingu að breyting sú á skattalögum og skattakerfi, sem hér er um að ræða, er aðeins þáttur í þeirri endurskoðun sem nú fer fram og verður haldið áfram og miðar einkum að því á öðru stigi málsins að kanna möguleikana á því, að taka enn eitt skref til samræmingar á tryggingakerfinu og tekjuskattskerfinu. Í öðru lagi mundi endurskoðunin miða að því að koma á sérsköttun hjóna sem báðir stjórnarflokkarnir hafa í raun lýst sig fylgjandi. Í þriðja lagi mundi þessi endurskoðun fjalla um skattamál fyrirtækja, um endurskoðun fyrningareglna og meðferð fyrninga í sambandi við sölu á fyrnanlegum eignum, svo að ég nefni nokkra höfuðþætti sem áfram verður umnið að. Ég geri mér vonir um að breyting á skattal. verði fyrr á ferðinni á næsta þingi en nú og tek undir þá gagnrýni, sem hér hefur verið lýst, á því hve seint þessar breytingar eru á ferðinni.
Þá vil ég segja það að ég er þeirrar skoðunar að okkur beri að fara mjög varlega í erlendar lántökur og sú lántökuheimild, sem hér er um að ræða, er fremur of há en lág og því er ég andvígur brtt. þm. Alþb. um hækkun á lánsfjárheimild erlendis. Við þurfum að skapa skilyrði fyrir fjármagnsöflun hér innanlands. Reynslan sýnir að lífeyrissjóðirnir telja hagsmunum sínum og umbjóðenda sinna, félaga í lífeyrissjóðum, ekki borgið nema fá fulla verðtryggingu á lánsfjármagni sem þessir sjóðir láta af hendi. Af því og erlendum lántökum leiðir að útlán fjárfestingarlánasjóðanna verða að miðast við þau kjör sem fjáröflun þeirra byggist á. Við verðum því í einu eða öðru formi að taka upp verðtryggingu eða gengisáhættu í tengslum við útlán þessara sjóða, ella stöndum við frammi fyrir varanlegu vandamáli raunverulegrar sjóðþurrðar í þjóðfélaginu.
Ég vil svara hv. 11. landsk. þm., Geir Gunnarssyni, sem spurði um það í gær hvernig á því stæði, að lánsheimildir til landshafna í Keflavík og Njarðvíkum og Rifi hefðu lækkað um 15 millj. kr. Þetta mun hafa byggst á framkvæmdaáætlun þessara landshafna, þegar frv. var í smíðum. En ég vil lýsa því yfir, að ef einhver fjárvöntun verður til þess að brúa þetta bil, sem seinna kemur fram á þessu ári, þá mun ríkisstj. beita sér fyrir því að sú fjárvöntun verði ekki til þess að framkvæmdir gangi hægar en ella.
Ég hygg að fleiri beinar fsp. hafi ekki komið fram og læt því máli mínu lokið.