25.04.1975
Neðri deild: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3297 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)
20. mál, upplýsingaskylda stjórnvalda
Eins og fram kemur á þskj. 398 bendir n. á 6 atriði sem til athugunar þurfa að koma að hennar mati. Með þeim ábendingum vill hún að þessu frv. verði vísað til ríkisstj. til frekari skoðunar. Ég vil leyfa mér að lesa þessar ábendingar sem hljóða þannig:
„1. Kanna þarf rækilega sambærilega löggjöf á hinum Norðurlöndunum og reynsluna af framkvæmd hennar. Athuga þarf að hve miklu leyti sú reynsla hæfir íslenskum aðstæðum og íslensku stjórnkerfi.
2. Vafasamt er að hafa í slíkri löggjöf eins ítarlega upptalningu á undanþágum og gert er í 2. gr. frv. Má nánast segja, að sá réttur, sem getið er í 1. gr., sé afturkallaður með undanþágum í 2. gr. og verði í raun mun þrengri en hann er í framkvæmd nú, án löggjafar. Að mati n. kemur til álita að sleppa slíkri upptalningu (2. gr.), en hafa undanþágurnar almennari. Eins og frv.er nú bera undanþágurnar aðalregluna ofurliði,
3. Fram þarf að koma, að upplýsingaskyldan geti verið mismunandi, með hliðsjón af því, hve veigamiklir hagsmunir eru í húfi.
4. Skilgreiningar skortir á ýmsum hugtökum, svo sem hvað sé stjórnvald og hvenær sú skylda hvílir á stjórnvöldum og ríkisstofnunum að skýra óumbeðið opinberlega frá störfum og vitneskju.
5. Í frv. er rætt um „skjöl“, en ekki er minnst á, að hægt sé að geyma vitneskju á annan hátt, svo sem á segulböndum, myndum, tölvum o. s. frv. Að þessu leyti virðist frv. vera of takmarkað.
6. N. telur eðlilegra að úrskurðarvald sé í höndum dómstóla en ráðh., sbr. 12. gr.“
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum til útskýringar á þessum ábendingum.
Það liggur fyrir að frv. í núverandi búningi hefur verið samið eða þýtt nánast nokkuð hrátt úr löggjöf annarra Norðurlanda og virðist ekki hafa verið gætt nægilega að því að einstakar gr. og einstök ákvæði lytu að íslensku stjórnkerfi eða íslenskum aðstæðum. Það hefur líka komið fram að sambærileg löggjöf á Norðurlöndum er nú til endurskoðunar og er sjálfsagt fyrir okkur, sem nú erum í fyrsta skipti að setja slíka löggjöf, að taka mið af þeirri endurskoðun og þeirri reynslu sem hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa af löggjöf um þetta efni.
Þá hefur aðalathugasemdin og aðalgagnrýnin komið fram á upptalningu á undanþágum í 2. gr. frv. Það er mat mjög margra embættismanna, sem n. hefur fengið umsagnir frá, að með slíkum undanþágum og svo nákvæmri upptalningu yrði tilhneiging hjá embættismönnum og stofnunum að leita að slíkum undanþágum og finna heimildir til þess að neita upplýsingum. Yrði þannig í raun minna um það að opinberir aðilar veittu upplýsingar frá því sem nú er. Um upplýsingaskyldu hefur skapast nokkur venja, ákveðin hefð, og það er mat margra að frv. mundi raska þessari hefð og upplýsingaskyldan yrði í reynd þrengd. Auðvitað er það ekki það sem að er stefnt með slíkri löggjöf. Þess vegna hefur komið til álita að fella niður svo nákvæma upptalningu eins og um ræðir í 2. gr., hafa þess í stað þessar undanþágur almennari og láta það vera síðan mat viðkomandi aðila og svo með áfrýjunarrétti, hvort stætt sé á að neita um upplýsingar þegar um þær er beðið. Þá hefur í því sambandi líka verið bent á að það sé eðlilegt og rétt að hafa mismunandi reglur um upplýsingaskyldu með hliðsjón af því hversu mikilvægir hagsmunir séu í húfi. Um það er ekki nægilega rætt í frv. og ekki heldur um það atriði, sem auðvitað kemur hér til álita, að embætti, opinberar stofnanir, veiti upplýsingar óumbeðnar. Oftast er viss skylda sem hvílir á opinberum stofnunum að láta frá sér fara upplýsingar um verkefni eða ákvarðanir, en það er ekki gert og liggur oft í þagnargildi ýmislegt sem skiptir almenning miklu máli. Væri sjálfsagt a. m. k. hugsanlegt að taka ákvæði inn í þetta frv., þessi lög, sem gerðu opinberum stofnunum að skyldu að veita upplýsingar um störf, um ákvarðanir, án þess að endilega sé beðið um það. Þá er bent á minni háttar atriði einsog það að frv. þurfi að vera nokkru víðara hvað snertir geymslu vitneskju eða þekkingar, því að nánast einvörðungu er talað um skjöl í frv., en ekki gert ráð fyrir því að hægt sé að geyma vitneskju á segulböndum eða í myndum og öðrum slíkum tækjum. Þetta þyrfti að athuga.
Að lokum hefur komið fram mjög ákveðin gagnrýni á 12. gr. sem snertir áfrýjunarrétt og úrskurð æðra stjórnvalds. Þar segir í 12. gr.:
„Hafi stjórnvald synjað tilmælum um afhendingu opinbers skjals og telji umsækjandi, að sá úrskurður eigi ekki stoð í lögum, skal honum heimilt eftir nánari reglum að kæra úrskurðinn til stjórnvalds í næstu embættisröð fyrir ofan stjórnvaldið, sem synjaði afhendingu skjalsins. Úrskurður ráðh. á þessu sviði er fullnaðarúrskurður.“
Það er nokkuð samdóma álit allra þeirra, sem um þetta hafa fjallað, svo og hefur það komið fram í umr. hér á þingi að menn vilja að þessi áfrýjunarréttur, þessi fullnaðarúrskurður, sé ekki í höndum ráðh., heldur gangi hann eðlilega leið í gegnum dómstóla sem mundu þá fjalla um efnið og úrskurða hvort upplýsingaskyldan sé fyrir hendi eða ekki.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða miklu frekar um þetta frv. Hér er athyglisvert mál á ferðinni, mál sem flestir, sem um það hafa rætt, eru sammála um að eigi rétt á sér. Löggjöf sem þessi væri til öryggis fyrir almenning og gott aðhald fyrir stjórnvöld. Hins vegar er vandi að útbúa þessa löggjöf, ekki síst þar sem við erum hér að stiga þetta skref í fyrsta skipti. N. er áhugasöm um framgang þessa máls og vildi fyrir sitt leyti ekki enn einu sinni láta þingi ljúka án þess að það væri tekið einhverjum fastari tökum en verið hefur að undanförnu og vildi því leggja fram þessar ábendingar. N. er ljóst að þær eru hvergi tæmandi og má kannske um þær deila en þær eru þó nokkur leiðarvísir fyrir hið háa rn. og fyrir hæstv. ráðh. til að fara eftir ef og þegar þetta mál er endurskoðað betur. Það er sem sagt till. n. að frv. sé vísað til ríkisstj. með framangreindum ábendingum.