25.04.1975
Neðri deild: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3337 í B-deild Alþingistíðinda. (2429)

66. mál, Sjóvinnuskóli Íslands

Frsm. (Pétur Sigurðsson) :

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft mál þetta til meðferðar og sent það til umsagnar allmargra aðila og er niðurstaða allra þessara aðila utan eins að mæla með samþykkt frv. Tveir aðilar gera þó nokkuð ítarlega grein fyrir skoðunum sínum og leggja til nokkrar brtt. Það eru Fiskifélag Íslands og Stýrimannaskólinn í Reykjavík. Einn aðili vill að frv. verði frestað og leggur mikla áherslu á að inn í það verði tekið ákvæði um skólaskip, en það er Farmanna- og fiskimannasamband Íslands. Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda mælir með frv., sömuleiðis Landssamband ísl. útvegsmanna. En í þessum tillögum eða aðfinnslum Stýrimannaskólans og Fiskifélags Íslands koma mörg þau hin sömu sjónarmið, og má segja að hv. sjútvn. hafi komið að mestu leyti til móts við skoðanir þessara tveggja aðila og þá kannske sérstaklega til móts við skoðanir Stýrimannaskólans. Þeir sem þar fjölluðu um málið eru kannske þeir sem best og mest vit hafa á þessum málum.

Ég skal þá, vegna þess að áliðið er orðið dags, reyna að fara fljótlega yfir þær brtt. sem n. er sammála um að gera.

Í 2. gr., í sambandi við markmið skólans, falli niður 5. og 6. liður, en efni þeirra liða má segja að finnist í öðrum gr. í frv.

Þá er einnig lagt til að fella niður 3. gr. því að það kom fram í athugasemd frá Stýrimannaskólanum að það væri of bundið fyrir skólann að ákveða í lögum að nemendur Stýrimannaskóla hefðu lokið námi frá sjóvinnuskóla á fyrsta námsári. Við þessari ósk var orðið, en í stað þessa var 8. gr. nokkuð aukin og þar komið til móts við skoðanir Fiskifélag Íslands.

Það kom líka fram hjá báðum þessum aðilum að ekki væri rétt að telja upp námsefni svo ítarlega sem gert er í 5. gr. frv., heldur væri réttara að láta það þróast með reynslunni, og þeir lögðu báðir til að þetta yrði ákveðið í reglugerð og féllst n. á það.

Ég var búinn að minnast á 8. gr. áður. Þar er lagt til, að fastsetja ekki skólatímann 3 mánuði, heldur eins og þar segir: „Skólinn starfar allt að 10 mánuði á ári og skal skólatími yfirleitt skipt í þriggja mánaða námskeið.“

Skv. ábendingu Stýrimannaskólans er lagt til að í stað þess að í 9. gr. segir: „skal hafa lokið námi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík“ komi: hafi lokið annars stigs prófi úr stýrimannaskóla. Þetta er alveg rétt ábending því að að sjálfsögðu á maður með hið meira fiskimannapróf að geta veitt slíkum skóla sem sjóvinnuskólanum er fyrirhugað að vera forstöðu. Og svo breytti n. því einnig að binda þetta eingöngu við Stýrimannaskólann í Reykjavík. Stýrimannaskólarnir eru tveir og það er engin ástæða til þess að binda þetta aðeins við annan skólann.

Svo má segja að meginbreytingin sé sú, að í frv. var lagt til að skólinn heyrði undir sjútvrn., en báðir þessir aðilar bentu á að réttara væri að skólinn heyrði undir menntmrn., m. a. vegna þess að allir aðrir skólar, sem veita fræðslu í sambandi við sjávarútveg, heyra undir menntmrn. Það varð úr að leggja þetta til og n. var sammála um þessa breyt.

Sömuleiðis er lagt til að í stað þess að Fiskifélagið tilnefni fimmta manninn í skólanefnd, þá skipi ráðh. hann án tilnefningar. Eins og Fiskifélagið réttilega benti á má segja að allir hinir aðilarnir, sem eiga að tilnefna í skólanefndina, séu aðilar að Fiskifélagi Íslands og eigi flestallir fulltrúa í stjórn Fiskifélagsins.

Ég sé, herra forseti, ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri, en eins og í nál. segir er n. sammála um að mæla með samþykkt frv. með þessum breyt., og þótt tveir nm. væru fjarverandi þegar málið var afgr., þá tjáðu þeir sig einnig samþykka afgr. málsins á þessum grundvelli.