26.04.1975
Neðri deild: 74. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3341 í B-deild Alþingistíðinda. (2439)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég hef að vísu margt út á þetta frv. að setja og mun taka mína endanlegu afstöðu hér til þessa máls þegar til lokaafgreiðslu kemur. Hins vegar eru þær röksemdir fyrir þessari rökstuddu dagskrá, sem ég felli mig ekki að öllu leyti við og er ekki við því búinn að taka undir, og ég mun því við þessa atkvgr. segja nei.