26.04.1975
Neðri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3344 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)

149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Hæstv. forseti. Ég hafði ætlað mér að segja nokkur orð hér við 2. umr., en þar sem áliðið var orðið kvölds og mér var tjáð að fleiri mundu verða á mælendaskrá hér við 3. umr., þá lét ég það bíða, en ég skal ekki verða langorð hér. Það hafa langar og miklar umr. orðið um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði og eru nú komnar á lokastig. Það eru aðeins nokkur atriði sem ég vil tjá mig um.

Ég vil fyrst taka það fram að ég er alfarið langt frá því að vera ákafur talsmaður erlendrar stóriðju á Íslandi, vildi gjarnan að við gætum vísað þeim kaleik frá okkur og búið einir að þeim auðlindum sem landið hefur að bjóða. Allt um það hygg ég það þó rétt mat að vegna þess hve atvinnuvegir okkar eru einhæfir og sveiflukenndir og þá ekki hvað síst okkar aðalatvinnugrein, sjávarútvegur og fiskveiðar, þá beri brýna nauðsyn til að renna fleiri stoðum undir atvinnulíf þjóðarinnar, eins og oft hefur verið orðað, með framtíðarhag landsmanna fyrir augum. Tilfinningaleg afstaða til íslensks þjóðernis og sjálfstæðis, hversu mjög sem hún á rétt á sér, má auðvitað ekki leiða okkur af vegi skynsemi og raunsæis og blinda okkur frammi fyrir staðreyndum í kringum okkur. En að sjálfsögðu ber okkur að fara með ítrustu varfærni og gát í þessum efnum og einblína ekki um of á arðsemissjónarmiðin með auraglýju í augum, hún gæti fyrr en varir orðið að blindu.

Ég fyrir mitt leyti mun því styðja þetta frv. um járnblendiverksmiðju á Grundartanga sem heild þó að ég sé alls ekki ánægð með það í öllum atriðum. Ég styð það vegna þess að ég tel að við eigum ekki annars kost, eins og í pottinn er búið, án þess að baka okkur þjóðhagslegt tjón sem við síst megum við nú, svo illa sem við erum stödd efnahagslega. Ég sagði að ég væri ekki fyllilega ánægð með allar gr. frv., þar vil ég sérstaklega tiltaka 3. gr., 7. og 8. gr., og greiddi því hvorki atkv. með né móti þeim brtt. sem komu þar fram. En ég vil leyfa mér að líta svo á, samkv. 6. gr. frv., að samningar í þessu máli séu ekki fullfrágengnir fyrr en frv. er orðið að lögum á Alþ. þannig að við kynnum enn að eiga nokkra möguleika á að koma okkar ár betur fyrir borð en mér sýnist að komi fram í frv.

Ég viðurkenni að efasemdir mínar um ýmsar gr. þessa frv. kunna í sumum tilvikum að stafa af of lítilli þekkingu minni og því minni reynslu í milliríkjasamningum og viðskiptum og af heldur takmarkaðri innsýn í hinar tæknilegu hliðar málsins. Ég hef þó reynt að kynna mér málið eftir bestu getu með aðstoð mér fróðari manna og ýmissa sérfróðra manna sem ég treysti til að komast að réttum skilningi á hinum ýmsu hliðum málsins.

Hin fyrstu rök fyrir því að við förum út í þessa framkvæmd nú tel ég þau að við erum ekki tilbúin til að nýta þá orku sem Sigölduvirkjunin fullbúin mun bjóða til þeirra framkvæmda sem við kysum helst, þ. e. til rafhitunar húsa til að létta af hinum gífurlega olíukostnaði. Við erum ekki tilbúin að nýta hana vegna þess að okkur vantar í senn mannafla og fjármagn til að byggja stofnlínur og dreifilínukerfi til að leiða rafmagn í húsin innan þess tíma sem orkan er föl til nýtingar. Að þessu hafa verið færð skýr rök margsinnis í umr. hér. á hæstv. Alþ. að undanförnu og er óþarfi að ég endurtaki þau hér. Staðhæfingar og stóryrði í gagnstæða átt virðast mér út í bláinn. Með þeim fyrirvara, sem ég vil jafnan hafa á óskeikulleik sérfræðinga, hlýt ég þó í þessu máli að taka meira mark á athugunum þeirra og niðurstöðum heldur en orðaflaumi pólitíkusa sem eiga það til í sölum Alþ. að bregða sér nokkuð á svig við staðreyndir eftir því sem hentar hverju sinni.

Um staðsetningu verksmiðjunnar hér á Faxaflóasvæðinu til viðbótar við álverksmiðju, sementsverksmiðju, áburðarverksmiðju og fjöldamargar aðrar stórframkvæmdir vil ég segja það að við þurfum ekki að undrast þótt fólk úti á landsbyggðinni líti með nokkrum ugg til þessarar þróunar og óttist að áframhald í sömu átt hljóti að leiða til byggðaröskunar í landinu þvert á fyrirheit allra íslenskra stjórnmálaflokka um framkvæmd byggðastefnu og jöfnun á atvinnustöðu landsmanna. Vitneskjan um það að önnur stórvirkjun við Hrauneyjarfoss skammt frá Sigöldu mun nú svo til fullhönnuð og tilbúin til framkvæmda dregur síst úr þeim ugg að þarna sé enn eitt stóriðjuver í uppsiglingu hér syðra á meðan allir aðrir landshlutar búa við stórfelldan orkuskort og allt að því óbærilegan kostnað við olíuhitun íbúðarhúsnæðis.

Ég vona og ég treysti því að þessi uggur reynist ástæðulaus og að núv. ríkisstj. standi fast við gefin heit um að rafvæðing landsins alls verði forgangsverkefni næstu ára. Og með atvinnujöfnunarsjónarmið fyrir augum vil ég vænta þess að næsta stóriðjuver, sem kann að verða reist hér á landi, verði staðsett einhvers staðar annars staðar á landinu þar sem möguleikar eru fyrir hendi til slíks rekstrar.

Hinir ýmsu landshlutar eru býsna misjafnlega settir hvað snertir vatnsvirkjunarmöguleika annars vegar og jarðhita hins vegar. Beislun jarðhita er að sjálfsögðu margfalt fljótvirkari framkvæmd og um leið ódýrari og því sjálfsagt að nýta þennan hitagjafa til hins ítrasta enda eru á döfinni stórfelldar framkvæmdir á því sviði. Það kom fram í ræðu hæstv. orkumrh., Gunnars Thoroddsens, við 1. umr. þessa máls að síðustu niðurstöður gæfu til kynna að 70–80% allra landsmanna geti notið hitaveitna frá jarðvarma innan tiltölulega skamms tíma. Þetta er vissulega mjög notaleg tilhugsun og gefur ástæðu til að ætla og vænta þess eindregið að einskis verði látið ófreistað til þess að hin 20–30% af íslendingum, sem ekki eru svo heppnir að hafa þessi hlunnindi við húsvegginn, verði ekki látnir kúra í kuldanum lengur en óhjákvæmilegt er.

Það fer ekki hjá því að mér komi Vestfirðir sérstaklega í hug í þessu sambandi. Þar háttar svo til að fyrir hendi eru litlir möguleikar til nýtingar jarðvarma til húsahitunar. Þó hefur það alls ekki verið rannsakað sem skyldi og kemur mér þá í hug heitt vatn í dalnum inn af Bolungarvíkurkaupstað. Svipaða sögu mun vera að segja um Austfirði. Á Vestfjörðum er þar að auki erfitt um virkjunarframkvæmdir, en haft er þó fyrir satt að nóg vatnsmagn sé til staðar til að fullnægja orkuþörf landshlutans. Það sem vantar á í dag er fé og mannafli til rannsókna, vatnsmælinga og kortalagningar og að hrinda í framkvæmd þeim virkjunum — þær eru í rauninni fáar — sem nú eru ýmist á undirbúnings- eða framkvæmdastigi.

Hv. 3. þm. Reykv., Magnús Kjartansson, gerði við 2. umr. þessa máls s. 1. miðvikudag orkumálum Vestfjarða allítarleg skil og taldi að með framkvæmd við járnblendiverksmiðju væri verið að leiða orkuskort yfir Vestfirði sem og aðra orkuþurfandi landshluta. Ég kann hv. þm. þakkir fyrir áhuga hans og skilning á brýnni orkuþörf Vestfjarða. Enn þakklátari væri ég honum ef þessa áhuga hefði séð frekar stað á meðan hann var ráðh. orkumála. (Gripið fram i.) Já, það er líka svo til hið eina. Allt hefur verið látið danka nema Mjólkárvirkjun, en ekki eru allir sammála um að sé hagkvæmlega að unnið frá upphafi. Ég er heldur alls ekki sannfærð um að hv. 3. þm. Reykv. hafi bent á hagkvæmustu og fljótvirkustu lausnina með lagningu stofnlinu um Hrútafjörð nú sem forgangsverkefni fremur en að einbeita sér að héraðsveitum og nýtingu allrar tiltækrar orku innan landshlutans. Það er að mínu áliti aðkallandi að kanna þessar tvær leiðir til hlítar með tilliti til kostnaðar og hagkvæmni og ekki síst með tilliti til hvor leiðin mundi fyrr geta létt af hinum þungbæra kostnaði við olíuhitun. Ég er í sjálfu sér hlynnt því að stofnlínan komi og tengi rafveitukerfi Vestfjarða inn í landskerfið, en ég tel um leið stórlega varhugavert að treysta um of á háspennulínu yfir fjöll og heiðar Vestfjarða sem eru ekkert lamb að leika sér við að vetrarlagi ef til bilana og viðgerða kemur. Ég held því að með því að byrja á að leggja stofnlínuna værum við að byrja á öfugum enda.

Ég vil benda á í þessu sambandi að áætlanir og tölur um hagkvæmni byggðalinu fram yfir smærri landshlutaveitur, sem tengdar væru saman og á síðara stigi málsins tengdar byggðalínunni, virðast mér byggðar á harla hæpnum forsendum og útreikningum, að ekki sé meira sagt. Vil ég í því sambandi benda sérstaklega á nýútkomna skýrslu um raforkuöflun fyrir Vestfjarðaveitu sem unnin er fyrir Rafmagnsveitur ríkisins af tveimur byggingaverkfræðingum, vel að merkja byggingaverkfræðingum frá verkfræðifyrirtæki sem kallar sig Almennu verkfræðistofuna. Þessi skýrsla heldur mjög ákveðið fram yfirburðum byggðalínustefnunnar sem hagkvæmustu lausn á orkuöflun fyrir Vestfirði. Að sama skapi er lítið gert úr hagkvæmni smærri virkjana innan landshlutans og þá sérstaklega Suður-Fossá á Rauðasandi sem er raunar eina virkjunin á Vestfjörðum í dag sem bíður þess svo til fullhönnuð og undirbúin að hafist verði handa við um framkvæmdir, — langþráð framkvæmd þeirra Vestur-Barðstrendinga.

Um kostnaðarhliðina hefur Almenna verkfræðistofan, þ. e. tilnefndir tveir byggingaverkfræðingar, áætlað eftirfarandi og ég vil vekja sérstaka athygli á þessum tölum: 200 km löng háspennulina, byggðalinan frá Brú í Hrútafirði til Ísafjarðar með 132 kílóvolta spennu, áætla þeir að muni kosta 720 millj., en 16 km löng lina með 20 kílóvolta spennu frá Patreksfirði að Suður-Fossá á að kosta 76 millj. Hefur þá kostnaður við þá línu, þ. e. a. s. Suður-Fossárlínuna, áttfaldast miðað við fyrri áætlun frá árinu 1971. Það þarf ekki meiri speking en mig í raforkumálum og reikningslist til að sjá strax að eitthvað er meira en lítið „brogað“ í þessu reikningsdæmi og mér segir illa hugur um raforkuframkvæmdir fyrir vestan í framtíðinni ef byggja skal á slíkum forsendum. En það er skylt að geta þess í leiðinni að verkfræðingarnir tveir taka jafnframt fram í skýrslu sinni að þeir hafi haft nauman tíma til verksins og að ýmsa frumþætti, sem notaðir voru við útreikning á orkuverði, þurfi að kanna frekar en tök voru á að gera að þessu sinni. Ég vil bæta því hér við einnig að ég hef bæði heyrt og séð frá hendi sérmenntaðra orkufræðinga með langa verkreynslu töluna 1190 millj. sem sennilegan kostnað við umrædda byggðalínu til Vestfjarða, þá sömu og áætluð var 720 millj. í skýrslu Almennu verkfræðistofunnar, svo að dálítið ber hér á milli. Maður hefur líka heyrt og séð þá tölu að línan frá Kröflu til Akureyrar muni kosta um 6–7 millj. á hvern km, þannig að við mættum kannske staldra ofurlítið við kostnaðarins vegna þegar staðhæft er að langlinur með háspennu um landið þvert og endilangt séu hagkvæmasta lausn okkar í orkumálum. Ég hef bent á þetta dæmi hér. Ég býst við að það kunni að vera til hliðstæð dæmi úr orkuspám fyrir Austur- og Norðurland. Ég bendi á það vegna þess að mér sýnist augljós nauðsyn á að þetta dæmi, með Vestfirðina þá sérstaklega í huga, verði reiknað upp á nýtt af þar til hæfum mönnum sem ekki hafa fyrir fram bitið sig í eina ákveðna lausn sem hina einu réttu án þess að grundvölluð sé á hlutlægri og vandlegri athugun.

Ég held það væri okkur happadrjúgt — og ég lýsi yfir fullu trausti á núv. hæstv. ráðh. orkumála — að horfið verði frá þeirri allsherjar miðstýringu raforkumála sem boðuð var í tíð fyrri vinstri stjórnar, í beinni andstöðu við vilja sveitarfélaganna í landinu almennt og einnig Sambands íslenskra rafveitna.

Ég er e. t. v. komin hér nokkuð út fyrir það mál, járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, sem hér er til umr. En það hafa þá aðrir gert á undan mér fyrr við umr. um þetta mál, og í raun snertir auðvitað orkusala til stóriðjurekstrar hvar sem er á landinu framvindu orkumálanna í heild.

Mig langar að lokum til að víkja fáeinum orðum að meintri mengunarhættu frá þessari umræddu verksmiðju. Ég þarf ekki að vera langorð um það atriði, enda mikið rætt og reifað áður frá öllum hliðum. Það segir sig auðvitað sjálft að gera verður kröfur til ströngustu mengunarvarna og ganga hart eftir fullum efndum á fyrirheitum og skuldbindingum Union Carbide félagsins í þeim efnum. Ég viðurkenni það að ég geri ekki ráð fyrir að við eða þeir auðvitað fyrst og fremst, sem koma til með að vinna í þessari verksmiðju, sleppi algerlega við ýmis óþægindi, hávaða og óloft sem sennilega hljóta að fylgja slíkri verksmiðjuvinnu. En hve víða mætum við ekki þess konar óþægindum í iðnvæddu nútíma samfélagi? Hvað um vélsmiðjurnar okkar og þann hávaða, reyk og eimyrju sem vinnandi menn verða að þola þar ásamt stórhættulegu glóandi neistaflugi? Hvað um hávaðann í vinnusölum hraðfrystihúsanna okkar? Eða allt hið baneitraða útblástursloft 34 þús. bifreiða á götum Reykjavíkur? Þeim fjölgaði nú aðeins um einar litlar 8 þús. á átta mánuðum þegar hæstv. vinstri stjórn var hvað áköfust í að flytja inn bíla. Það má líka spyrja: Hvað um allar heyrnarskemmdirnar af öllum popphljómsveitunum okkar sem unglingarnir sækja í eins og flugur í hunang? Þarna gætum við lengi haldið áfram að telja. Og hvernig stendur á því að mannvinirnir og hreinlætispostularnir, hv. 5. þm. Vesturl. og 5. Norðurl e., hirða ekki hót um að reyna að verja okkur landa sína og vernda gegn öllum þessum ófögnuði sem vafalaust styttir líf okkar meira en marga okkar grunar? Ætli við hljótum ekki að taka þá hræðilega alvarlega og heiminn eins og hann kemur fyrir hverju sinni? Hitt skal ég þó játa, að ég vil fara með allri gát að því að byggja stórverksmiðjur á við járnblendiverksmiðjuna hér á Íslandi vegna þess að mér er ekki sama um hreina og tæra loftið okkar sem við eigum umfram alla aðra jarðarbúa sem við siðmenningu búa. Þess vegna er ég ákveðinn málsvari sterkra mengunarvarna og varfærni í að innleiða hér of margar slíkar verksmiðjur.