26.04.1975
Neðri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3348 í B-deild Alþingistíðinda. (2451)
149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Frsm. minni hl. (Magnús Kjartansson) :
Hæstv. forseti. Við höldum fund á næsta óvenjulegum vinnudegi á Alþ. og á næsta óvenjulegum tíma. Slíkir fundir eru naumast haldnir nema undir þinglok þegar allt er komið í eindaga. En ástæðan til að við höldum þennan fund á þessum degi og á þessum tíma, er sú að allt er komið í eindaga. Hæstv. iðnrh. er búinn að boða hingað fulltrúa frá Union Carbide og á að skrifa undir samninginn um stofnun þessa fyrirtækis á mánudaginn. Þess vegna liggur svona mikið á og þess vegna má ekki samþykkja hér eina einustu brtt., ekki einu sinni till. sem greinilega er meiri hl. fyrir hér í þingdeildinni, ekki till. um atriði eins og það að stjórn þessa fyrirtækis skuli Alþ. kjósa, sem ég er alveg sannfærður um að meiri hl. þm. aðhyllist, og ekki heldur till. um að gengið verði tryggilega frá höfninni, bæði fjármögnunar- og rekstrarvandamálum hennar. Ég er sannfærður um það að meiri hl. þm. vill líka fá þessa breytingu. En nú liggur á. Nú á Alþ. ekki að ráða. Það er búið að ákveða að undirrita þennan stofnsamning á mánudaginn kemur.
Mig langar í því, sem ég segi hér, að víkja dálítið að grundvallaratriðum sem hefur loksins borið á góma í síðari hluta þessarar umr. Ég lauk máli mínu við 2. umr. með því að leggja áherslu á nauðsyn þess að allir stjórnmálaflokkar lýstu grundvallarskoðunum sínum að því er varðar meginstefnur í iðnþróun í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Ég rifjaði það upp að ég hefði mótað þá stefnu meðan ég gegndi störfum iðnrh. að slík iðnþróun yrði að vera íslensk, öll fyrirtæki í orkufrekum iðnaði að verulegum meiri hl. í eigu íslenska ríkisins og lúta íslenskum lögum í einu og öllu, taka einvörðungu mið af íslenskum hagsmunum, félagslegum sjónarmiðum okkar sjálfra, ströngustu kröfum um vistfræðilegar reglur í samræmi við íslenskt lífríki. Þetta er stefnumörkun sem skiptir sköpum að minni hyggju og ræður úrslitum um það hvernig það þjóðfélag verður sem íslendingar lifa í eftir tiltölulega skamman tíma. Ef erlend stórfyrirtæki flæða yfir landið, erum við að afsala okkur efnahagslegu fullveldi í sama mæli. Ég tel það þjóðarnauðsyn að hlaðinn verði varnarmúr gegn þeirri óþjóðhollu stefnu svo að allir, sem tryggja vilja efnahagslegt fullveldi, standi saman án tillits til ágreinings um framkvæmdaatriði í einstökum tilvikum. Þess vegna lagði ég áherslu á að allir stjórnmálaflokkar skýrðu afstöðu sína til þessara örlagaríku meginatriða — ekki með hálfum svörum, ekki með persónulegu pexi, heldur ótvíræðri stefnumörkun.
Þrír þm. hafa orðið við þessari ósk minni, hv. þm. Bragi Sigurjónsson, hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir og hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir sem lýsti yfir áðan afdráttarlaust að hún væri alfarið á móti erlendri stóriðju á Íslandi og það er yfirlýsing sem ég vil alveg sérstaklega fagna.
Í ræðu sinni á miðvikudagskvöldið lýsti hv. þm. Bragi Sigurjónsson hins vegar yfir því að það væri meginstefna Alþfl. að meiri háttar fyrirtæki í orkufrekum iðnaði á Íslandi ættu að vera að fullu og öllu í eigu útlendinga. Ég veit að hv. þm. Bragi Sigurjónsson er svo grandvar maður að hann er ekki að lýsa einkaskoðun sinni, heldur afstöðu Alþýðuflokksforustunnar. Sú stefna kemur raunar ekki á óvart. Alþfl. stóð að álsamningunum illræmdu, og enginn hefur gert skýrari grein fyrir óþjóðhollri stefnu á þessu sviði en hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason í hinni frægu ræðu sem hann flutti á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins. Þar líkti þm. Íslandi við smákænu sem yrði að koma taug í stórt hafskip ef við ættum ekki að dragast aftur úr. Uppistaðan í ræðunni voru þau fleygu ummæli sem hv. þm. hafði að einkunnarorðum: „Besta ráðið til að tryggja sjálfstæði þjóðar er að farga sjálfstæði hennar.“ Þm. hafnaði að fullu hinum fornu sjálfstæðishugmyndum íslendinga og taldi að þær væru líkt og gripir sem ætti að varðveita á þjóðminjasafni. Það væri ekki um annað að ræða en að Ísland tengdist stórri heild og lyti forsjá hennar.
Yfirlýsing hv. þm. Braga Sigurjónssonar sannar að Alþfl. hefur ekkert lært og engu gleymt. Stefnumörkun hans sýnir glöggt hversu fjarlægir forustumenn Alþfl. eru orðnir fyrstu brautryðjendum jafnaðarstefnu og verkalýðshreyfingar á Íslandi en viðhorf þeirra voru í hinum nánustu tengslum við sjálfstæðisbaráttuna eins og m. a. kemur glögglega fram í hinni miklu ævisögu Jóns Guðnasonar um Skúla Thoroddsen sem fléttaði saman félagslegar hugsjónir alþýðu og ítrustu sjálfstæðiskröfur í órofa heild.
Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir lýsti í ræðu sinni á miðvikudagskvöldið og í orðum, sem hún lét falla hér áðan, fullkominni andstöðu við það ákvæði frv. að íslenska ríkið ætti 55% í fyrirhugaðri kísiljárnverksmiðju. Hún kvaðst vilja að íslendingar ættu sem minnst í fyrirtækinu og helst ekki neitt heldur yrði að þessu máli staðið eins og álbræðslunni í Straumsvík. Röksemdir hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur voru þær að það væri of áhættusamt fyrir íslendinga að takast á við slíkan atvinnurekstur, við værum svo fáir, fátækir og smáir að við gætum ekki risið undir þeirri áhættu, við mundum lenda í vanda bæði að því er varðar mannafla, fjárútvegun og sölu, þess vegna væri það rétt stefna í sambandi við iðnþróun að lúta forsjá útlendinga.
Þetta eru gamalkunnar röksemdir, þær eru ívaf í allri sögu íslenskrar sjálfstæðisbaráttu frá því að hún hófst í öndverðu. Meðan sjálfstæðisbaráttan við dani stóð, voru hér alla tíð merkir og málsmetandi menn sem töldu að það væri fullkomlega óraunsætt að ímynda sér að lítil þjóð eins og sú íslenska gæti staðið á eigin fótum á sviði efnahagsmála og atvinnumála. Þeir töldu allt of áhættusamt að flytja verslunina inn í landið, við mundum ekki ráða við það verkefni. Þeir töldu allt of áhættusamt að íslendingar réðu sjálfir yfir atvinnulífi sínu, þróuðu það og efldu, undir því gætum við ekki risið. Það voru ekki aðeins íslendingar hallir undir dani sem þannig töluðu, heldur einnig ýmsir bestu vinir okkar í Danmörku. Í því sambandi man ég eftir bréfi sem Georg Brandes skrifaði Matthíasi Jochumssyni og raunar greinum sem Brandes birti í danska blaðinu Politiken. Þar taldi hann hugmyndir íslendinga um sjálfstæði innantóman hroka sem stangaðist á við augljósustu efnahagsleg rök. Hann líkti sjálfstæðisbaráttu íslendinga við það ef eyjan Amager sem er hluti af Kaupmannahöfn, gerðist fullvalda ríki, og hann fjallaði um sjálfstæðishugmyndir okkar af logandi háði.
Reynslan hefur nú skorið úr um þennan ágreining. Úrtölumennirnir höfðu ekki gert sér grein fyrir því að sjálfstæði og stjórnarfarslegt frelsi leysa úr læðingi andlega orku sem breytist í áþreifanlegt félagslegt og efnahagslegt vald. Sigrar okkar í sjálfstæðisbaráttunni hafa orðið til þess að íslenska þjóðin hefur á tiltölulega fáum áratugum stokkið úr miðaldamyrkri inn í nútímann. Við höfum lent í margháttuðum erfiðleikum á þessu tímabili. Við höfum beðið marga ósigra, við höfum fengið að kenna á því að víst áttu efasemdirnar um getu okkar við ærin rök að styðjast. En sigrar okkar hafa verið miklu meiri. Ég dreg raunar í efa að í heiminum finnist nokkurt þjóðfélag sem á jafnskömmum tíma hefur náð jafnmiklum árangri á sviði félagsmála, efnahagsmála og atvinnumála. En þessi þróun hefur orðið öll önnur en menn ímynduðu sér í upphafi þessarar aldar. Þá var vaxandi borgarastétt burðarás framfaranna. Menn, sem trúðu á framtak einstaklingsins, héldu að hagkerfi kapítalismans gæti leyst vandamál íslendinga, tryggt vaxandi öryggi, framfarir og sjálfstæði. Þessi borgarastétt var þá öflugt framfaraafl á Íslandi. Hún treysti á getu okkar. Hún hafnaði þeirri kenningu að við værum of fáir, fátækir og smáir til þess að ráða atvinnumálum okkar sjálfir. Í hópi þessara manna voru sumir feður eða afar margra þeirra sem eiga nú sæti hér á Alþ.
En hið kapítalíska kerfi reyndist þess ekki megnugt að ná þeim markmiðum, sem að var stefnt, þegar á reyndi. Því ollu ekki aðeins innri andstæður kerfisins, heldur og hitt að það gat á engum forsendum hentað hinu smáa íslenska þjóðfélagi. Hér gat ekki orðið um að ræða þá samþjöppun á auði, þau stóru einkafyrirtæki sem eru burðarásar kapítalísks þjóðfélags. Kerfi einkaframtaksins hrundi gersamlega í heimskreppunni miklu á fjórða áratug þessarar aldar og það hefur aldrei beðið þess bætur hér á Íslandi. Síðan hafa almannavaldið, ríki, sveitarfélög, samvinnuhreyfing og hliðstæð samtök forustu í sívaxandi mæli. Nú er svo komið að ríki, sveitarfélög og samvinnuhreyfing eiga um 60% af öllum framleiðslufjármunum í landinu. Öll stærstu fyrirtæki á Íslandi hafa verið þjóðnýtt og einkakapítalistarnir, hinir margrómuðu frjálsu framtaksmenn, hafa ríkisvaldið að eilífum bakhjarli, koma hlaupandi .til stóru mömmu í hvert skipti sem á bjátar. Ég hef áður kallað þetta kerfi pilsfaldakapítalisma.
Einmitt nú lifum við tímabil þegar ríkisstj. og Alþ. sinna því einu að færa til fjármuni til að bjarga einkaframtakinu svokallaða, bjarga hverjum skussa og hverjum fjárglæframanni á kostnað almennra lífskjara og samneyslu í landinu. Á síðustu fjórum áratugum hefur það orðið algerlega ljóst að þau markmið, sem að var stefnt í sjálfstæðisbaráttunni, verða aðeins tryggð fyrir tilstilli almannavaldsins með sameiginlegu átaki þjóðarheildarinnar, með sívaxandi ríkisrekstri, bæjarrekstri og samvinnurekstri. Þetta eru forsendur efnahagslegs sjálfstæðis á Íslandi og þróunin mun óhjákvæmilega þoka okkur til sívaxandi félagshyggju, til sósíalisma í samræmi við íslenskar aðstæður ef við fáum sjálf að ráða málum okkar.
Það eru einmitt þessar staðreyndir sem valda því að innan þess flokks, sem kennir sig við sjálfstæði, hefur orðið mikil hugarfarsbreyting á undanförnum áratugum. Forráðamenn flokksins hafa gert sér það ljóst í æ ríkari mæli að hugmyndir þeirra um þjóðfélag einkakapítalisma geta ekki ræst ef íslendingar ráða málum sínum sjálfir. Þess vegna hefur sú hugmynd leitað æ fastar á að láta erlent auðvald taka að sér þau verkefni sem íslenskir einkakapítalistar geta ekki risið undir. Verslunarráðið, Morgunblaðið og fleiri vildu að Ísland gengi í Efnahagsbandalag Evrópu þegar á árinu 1960. Álbræðslan í Straumsvík átti að verða upphaf að þeirri þróun að erlent auðvald yrði burðarásinn í framtíðarþróun á Íslandi — að hliðstæð fyrirtæki yrðu ein 20 á næstunni eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson lýsti sem hugsjón sinni í frægu sjónvarpsviðtali. Þessi viðhorf eru til marks um það að ráðamenn Sjálfstfl. voru reiðubúnir til að fórna efnahagslegu sjálfstæði Íslands fyrir pólitískar kreddur sínar. Hugmyndir þeirra um hagkerfi einkagróðans skipuðu miklu hærri sess en efnahagslegt fullveldi íslands. Þessi viðhorf eru greinilega óbreytt enn innan þessa flokks.
Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir lýsti yfir því í ræðu sinni að með ákvæðum um meirihlutaeign íslendinga, íslenska ríkisins, í fyrirhugaðri kísiljárnverksmiðju væri stefnt að meiri og stórfelldari þjóðnýtingu á Íslandi en nokkru sinni fyrr og sá þáttur frv. væri þjóðhættulegur.
Hæstv. ráðh. Gunnar Thoroddsen sat hér þögull það kvöld, sá sér hvorki fært að svara mér né öðrum og viðurkenndi með þögn sinni sjónarmið hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur þótt hann sé samkv. ummælum hennar sjálfur í hópi hinna þjóðhættulegu manna þar sem hann er flm. þessa frv. ásamt hæstv. ríkisstj. Þessi hæstv. ráðh. hefur raunar áður verið flokkaður í hóp þjóðhættulegra manna í sambandi við hermálin en hann hefur bætt úr því síðar. Slíkt er að sjálfsögðu hægt að endurtaka. Það verður hverjum að list sem hann leikur.
Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir sagði í ræðu sinni að ef íslendingar þyrftu endilega að eiga einhvern hlut í fyrirtækinu þá vildi hún heldur að það yrðu einstaklingar en ríkið ætti þá að hjálpa einstaklingunum til að eignast þennan hlut. Hér kemur fram bónbjargasjónarmið einkaframtaksins íslenska. Það skortir alla getu en vill fá ríkið til að hjálpa sér til að komast yfir eignir, vill fá að nota fjármuni almennings. Þetta hefur áður gerst hér á Íslandi. Þegar íslendingar komu upp áburðarverksmiðju á sínum tíma fékk ríkið lán hjá Alþjóðabankanum, en láninu fylgdu þau ósæmilegu skilyrði af hálfu Alþjóðabankans að áburðarverksmiðjan mætti ekki vera ríkisfyrirtæki, hún yrði að vera hlutafélag. Þá var tjaslað upp á hið getulausa einkaframtak, því voru afhentar 2 millj. kr. svo að það gæti eignast hlutabréf að nafninu til. Einkaframtakið lagði hins vegar ekkert fram í raun, enga fjármuni, engar athafnir. Allt var unnið fyrir almannafé. Síðan ætluðu þessir hluthafar að heimta að svokallaður eignarhlutur þeirra í fyrirtækinu ykist sem hlutfall af sívaxandi einkafjármunamyndun þess. Þetta varð þvílíkt hneyksli og gekk svo í berhögg við siðgæðisvitund landsmanna að samþ. var hér á hinu háa Alþ. að losa áburðarverksmiðjuna við hina svokölluðu einkahluthafa, og svo mikil var kaldhæðni örlaganna að það verkefni lenti á hv. þm. Ingólfi Jónssyni.
Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir sagði að sú regla um meirihlutaaðild ríkisins, sem ég mótaði á sínum tíma, væri hættuleg vegna þess að í henni fælist stórfelldari þjóðnýting en nokkru sinni fyrr, hér væri verið að festa í sessi ríkiskapítalisma. Þetta má vissulega til sanns vegar færa. Hin mikla samfélagslega eign á Íslandi á atvinnutækjum er ríkiskapítalismi vegna þess að hin félagslega eign hefur ekki enn öðlast félagslegt inntak í vitund meiri hl. þjóðarinnar. Á þessu stigi er ríkiskapítalismi hins vegar mikilvægur vegna þess að hann er eina leiðin til að tryggja sjálfstæði Íslands á sviði efnahagsmála og atvinnumála. Einkaframtakið skorti áður getu og nú hefur það ekki einu sinni vilja. Hins vegar er ríkiskapítalismi sannarlega ekkert markmið í mínum huga. Hann kemur fyrir lítið ef ekki er hægt að glæða hann lýðræðislegu inntaki. Samfélagsleg eign á atvinnutækjum á aðeins að vera áfangi á þeirri braut að hver einstaklingur fái sívaxandi efnahagsleg völd, að komið sé á því kerfi að verkafólkið sjálft ráði yfir þeim fyrirtækjum sem það starfar við, ekki aðeins í orði, heldur og í verki — að það ráði yfir þeim arði sem það skapar með vinnu sinni. Einmitt í þessu dæmi hefur orðið alger stöðnun í flestum þeim ríkjum sem kenna sig við sósíalisma. Þau hafa komið á ríkiskapítalisma, en hafna raunverulegu lýðræði. Ég aðhyllist ekki slíka stefnu. Ég tel að þær hugmyndir, sem nú eru uppi m. a. í verkalýðshreyfingunni í Vestur-Evrópu um raunverulegt efnahagslegt lýðræði sé eitthvert merkilegasta verkefni sem nú er unnið að á sviði félagsmála í heiminum, og ég tel að eðli og hefð hins íslenska þjóðfélags sé slík að við séum flestum öðrum þjóðfélögum betur til þess fallnir að tryggja slíkum hugmyndum framgang.
Ég hef fjölyrt um þessi atriði vegna þess að hér tel ég vera vatnaskilin í íslenskri þjóðmálabaráttu. Forsenda þess, að við getum haldið áfram að takast á um hagkerfi og stjórnarfar og aðra þætti félagsmála hér á Íslandi á frjálsan hátt, er að ákvörðunarvaldið sé í höndum okkar sjálfra, að okkar eigin reynsla og lýðræðislegar ákvarðanir skeri úr, að valdið í atvinnumálum sé íslenskt. Ef valdið yfir fyrirtækjunum, þeim sem mest fjármagn er bundið í, færist í hendur útlendinga erum við að svipta okkur frelsi til lýðræðislegra ákvarðana á sviði efnahagsmála. Verkamenn takast þá ekki lengur á við íslenska atvinnurekendur sem þrátt fyrir allt eiga rætur sínar í þessu þjóðfélagi, heldur verða hin erlendu fyrirtæki ófreskjur sem stjórnað er af mönnum úti í hinum stóra heimi, — mönnum sem aðeins hafa áhuga á hámarksgróða, en bera hvorki ábyrgð á hinu íslenska þjóðfélagi né hafa nokkurn jákvæðan áhuga á gengi þess. Þá ráðum við ekki lengur við þróun þjóðfélagsmála á Íslandi, heldur verðum við aðeins halaklettur á stórri heild. — Því held ég enn áfram að lýsa eftir afstöðu flokka til þessa stórmáls. Forustumenn Framsóknar féllust á þá stefnumörkun sem frá var gengið í tíð fyrrv. ríkisstj. að meirihlutaeign íslenska ríkisins yrði að vera ótvíræð í öllum slíkum tilvikum. Ég vil beina þeirri spurningu til hæstv. viðskrh., form. Framsfl., hvort sú afstaða flokksins sé ekki óbreytt, af þeim tilefnum sem komið hafa fram í þessum umr. (Dómsmrh.: Algerlega óbreytt.) Algerlega óbreytt, segir hæstv. ráðh. (Gripið fram í.) Ég tel það mjög mikilvæga yfirlýsingu og vænti þess að við hana verði staðið að fullu. En þá kemur í ljós að þarna er uppi mjög alvarlegur ágreiningur á milli stjórnarflokkanna um þetta grundvallaratriði.
Þessar hugleiðingar mínar um grundvallaratriði breyta að sjálfsögðu engu um þá afstöðu sem ég hef gert grein fyrir til járnblendiverksmiðjunnar eins og nú standa sakir enda þótt þar sé enn gert ráð fyrir meirihl. eign íslenska ríkisins, stórlega skert þó. Ég tel að við eigum að meta það einvörðungu í samræmi við íslenskar forsendur hverju sinni hvort og hvernig við ráðumst í orkufrekan iðnað. Eins og ég rakti við 2. umr. í ítarlegu máli og þarf ekki að endurtaka hér, hafa forsendurnar gerbreyst með margföldun á olíuverði þannig að það er í senn þjóðhagsleg og félagsleg nauðsyn að láta jafnrétti allra byggðarlaga og húshitunarmarkaðinn ganga fyrir næstu árin. En um hitt verður ekki deilt, að þeir tímar renna fljótlega að við nýtum orkugjafa okkar til sívaxandi iðnaðarframleiðslu, og því er það skylda allra flokka að gera nú þegar grein fyrir framtíðarstefnu sinni, afstöðu sinni til þeirra örlagaríku kosta sem ég hef hér reynt að gera grein fyrir.
Ég ætla ekki að orðlengja um þetta mál, ég gerði mjög ítarlega grein fyrir sjónarmiðum mínum við 2. umr. En ég vil benda á það að við atkvgr. hér áðan kom mjög greinilega fram að það er margvíslegur óhugur í hv. þm. í sambandi við þetta mál. Hv. þm. Sverrir Hermannsson sagði að það væri ljóst að með þeim breyt., sem gerðar hafa verið á samningsdrögunum, hefði viðsemjandi okkar heldur betur matað krókinn. Og annar þm. úr Framsfl., hv. þm. Ingvar Gíslason, lýsti því yfir að þetta mál hefði ekki fengið eðlilega þinglega meðferð. Það hefði verið eðlilegra að fresta afgreiðslu þess fram til haustsins svo að hægt væri að kanna þar ýmsa hluti betur.
Það er ýmislegt sem ekki hefur komið hér fram enn þá. Við 2. umr. málsins, þegar rætt var hér um höfnina, hvernig ætti að fjármagna hana, hver ætti að greiða hallan af rekstrinum, þá lýsti hv. þm. Ingólfur Jónsson yfir því að um þetta mál yrði fjallað í sérstakri yfirlýsingu frá hæstv. samgrh. Við höfum ekki enn fengið að heyra þessa yfirlýsingu, og ég vænti þess að við fáum að heyra það að hv. þm. Ingólfur Jónsson hafi verið að segja rétt frá þegar hann gaf þessa yfirlýsingu við 2. umr.
Hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir sagði að hún væri ekki ánægð með öll ákvæði samninganna og teldi að þar mætti breyta mörgu, og hún hélt að enn væri fullt ráðrúm til þess. En eins og ég sagði áðan virðist eiga að ganga frá stofnuninni á mánudaginn kemur þannig að ég er hræddur um að hv. þm. hafi ekki mikil tök á að koma röksemdum sínum á framfæri á meðan það er hægt.
Að öðru leyti ætla ég ekki að endurtaka það sem ég sagði hér við 2. umr. Það er búið að fella hér allar till. sem fluttar hafa verið til þess að breyta málinu, til að gera það eðlilegra fyrir okkur íslendinga, m. a. til þess að hækka raforkuverðið. Við 2. umr. lét hv. þm. Ingólfur Jónsson þess getið réttilega að raforkuverðið hefði verið hækkað, en það hefur ekki hækkað í neinu samræmi við annan tilkostnað. Hv. þm. notaði það reikningsdæmi þegar hann var að fjalla um greiðslu fyrir tækniþekkingu að hann miðaði hana við stofnkostnað verksmiðjunnar og sagði að þótt hún hefði hækkað mjög verulega frá fyrri drögum, þ. e. a. s. úr 2.3 millj. í 3.2 millj., þá væri hún núna færri prósent af stofnkostnaði fyrirtækisins. Auðvitað er hægt að reikna svona. Menn geta glöggvað sig á málinu með því að reikna svona. En ef við reiknum orkuverðið svona, þá kemur í ljós að miðað við stofnkostnað fyrirtækisins hefur það ekki hækkað, heldur lækkað um 30–40% vegna þess að dæmið er sett upp þannig að orka hafi hækkað minnst af öllu í heiminum að undanförnu þó að allir viti að staðreyndirnar eru þveröfugar, að það hefur ekkert hækkað eins mikið og orkan.
Af þessum ástæðum öllum saman mun ég að sjálfsögðu greiða atkvæði gegn þessu frv.