26.04.1975
Neðri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3355 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)
149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :
Forseti. Ég mun ekki við lokaumr. þessa máls fara út í almennar umr. Flest af því, sem hv. þm. Magnús Kjartansson hefur fært fram nú við 2. og 3. umr., kom fram við 1. umr. þessa máls hér í Nd. og svaraði ég því þá í allítarlegri ræðu. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það. Ég sé ekki heldur ástæðu til að fara út í almennar stórpólitískar eða heimspólitískar umræður við hv. þm. Magnús Kjartansson, en vil hins vegar vekja athygli á því að hann lýsti í ræðu sinni algerum vonbrigðum sínum með reynsluna af kommúnismanum þar sem í hinum kommúnistísku ríkjum hefði ekki tekist — og er þó komin yfir hálf öld þar sem þeir sums staðar hafa setið við völd — þeim hefði ekki tekist enn þá að færa yfirráðin yfir atvinnufyrirtækjunum í hendur verkalýðsins og þar ríkti ekki lýðræði. Þetta er ákaflega fróðlegt frá talsmanni þessarar stefnu eins og hv. 3. þm. Reykv. er.
Ástæðan til þess að ég fer upp í ræðustólinn nú, er eingöngu að ræða um sjálfa málsmeðferðina. Því er enn einu sinni haldið fram af hálfu hv. 3. þm. Reykv. að ýtt sé óeðlilega á þetta mál og þingið fái ekki nægilegan tíma til að kynna sér það. Hver er sannleikurinn í þessu máli? Þetta mál er búið að vera í full þrjú ár og í rauninni á fjórða ár til meðferðar. Í rauninni svo að segja allan tíma fyrrv. stjórnar var málið til rækilegrar skoðunar og fyrst og fremst undir forustu hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar. Málið var skoðað rækilega af viðræðunefnd um orkufrekan iðnað og af fyrrv. ríkisstj. Í maímánuði s. l. ákvað ríkisstj. samkv. bréfi frá þessum hv. þm. sjálfum að styðja þetta mál og fallast á þau samningsdrög sem þá lágu fyrir í öllum meginatriðum. Það, sem má segja að hafi breyst er aðallega — ég vil segja undur að tveir af þeim ráðh. í fyrrv. stjórn sem stóðu að þessari afstöðu, Magnús Kjartansson og Magnús Torfi Ólafsson, hafa nú á Alþ. snúist á móti málinu. Það er saga út af fyrir sig.
Þetta mál hefur því fengið þennan undirbúning að því er snertir málsmeðferðina: Í Alþ. er þessu frv. útbýtt 6. febr. s. l. Það var tekið til 1. umr. fjórum dögum síðar. i. umr. í hv. Ed., þar sem málið var lagt fyrir, stóð í 2 daga og síðan er málinu vísað til iðnn. hv. Ed. sem hefur málið í heilan mánuð til meðferðar og kallaði þar til fjölda sérfræðinga til þess að ráðgast við. Síðan kemur málið til Nd. og hv. iðnn. þessarar d. hafði málið einnig til meðferðar í einn mánuð. M. ö. o.: nefndir þingsins hafa haft málið hvor um sig til meðferðar í heilan mánuð eða tvo mánuði samtals. Fyrir þinginu hefur málið sem sagt legið formlega frá 6. febr. og nú í dag er 26. apríl. Ég fæ ekki séð að á nokkurn hátt sé hægt að rökstyðja það að óeðlilegur hraði hafi verið hafður eða sé hafður á þessu máli. Við þetta bætist það að viðræðunefnd um orkufrekan iðnað, sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi málsins í mörg ár, er skipuð mönnum úr öllum þingflokkum þannig að þingflokkarnir hafa einnig þar í gegnum sína fulltrúa eða menn sem þeir hafa sérstakan aðgang að, þ. e. a. s. flokksmenn sína, haft alla möguleika til að fylgjast rækilega með málinu.
Það mun hafa verið fyrir röskum mánuði að gert var ráð fyrir því að eitthvert tímamark yrði að setja um framgang þessa máls og var gert ráð fyrir því við samningsaðilann að ef Alþ. féllist á frv. yrði stefnt að því að undirrita samninga 28. apríl. Var það að allra dómi ekki óeðlilegur frestur miðað við allan þann tíma sem Alþ. mundi þá hafa haft málið til meðferðar. Það er því rétt að n. k. mánudag hefur verið ráðgert að undirrita samninga, auðvitað á þeirri forsendu að Alþ. verði þá búið að ganga frá málinu. Ef það verður ekki, þá auðvitað frestast sú undirritun að sjálfsögðu. En ég vil algjörlega andmæla öllum ásökunum í þá átt að Alþ. hafi ekki fengið nægan og eðlilegan tíma til þess að afgreiða málið.