25.11.1974
Neðri deild: 11. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (246)
20. mál, upplýsingaskylda stjórnvalda
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Eins og fram hefur komið, hefur þetta frv. verið lagt fyrir á Alþ. áður, reyndar tvisvar sinnum. Fyrst mun frv. hafa verið lagt fram það síðla þings að ekki vannst mikill tími til að kynna sér það, en á síðasta þingi var það lagt nokkuð snemma fram í þessari hv. d. og allshn. d. fékk málið til meðferðar.
Það veldur mér nokkrum vonbrigðum bæði sem dm. hér og sem nm. í hv. allshn. að sjá að þetta frv. er lagt fram, að ég held, óbreytt frá því sem hefur sést hér áður. Þetta segi ég vegna þess að frá því að þetta frv. var samið, að ég hygg endanlega frá því gengið 1872, þá hefur orðið mjög veruleg breyting, mjög áberandi þróun í þá átt að opna frekar aðgang að skjölum og upplýsingum frá stjórnvöldum. Þessi þróun hefur ekki aðeins verið sjáanleg hér á landi, heldur athyglisverð um a.m.k. nálæg lönd og í Vesturheimi. Ég er í engum vafa um að þessi þróun er jákvæð og hún er til þess að skapa aukið aðhald að stjórnvöldum og opna augu almennings fyrir því, hvernig stjórnsýslan fer almennt fram.
Vonbrigði mín stafa jafnframt af því að þegar þetta mál fékk meðferð í allshn., þá komu þar fram umsagnir frá ýmsum aðilum og þær umsagnir voru allar neikvæðar eða mjög sterk gagnrýni á frv. eins og það lá fyrir. Annars vegar var reyndar sú gagnrýni eða þær athugasemdir, sem fram komu í þessum umsögnum, í þá áttina að frv. gengi of langt og hins vegar gagnrýni um að það gengi of skammt. Það er athyglisvert að sú gagnrýni, sem hljóðaði um að frv. gengi of langt, kom einkum frá embættismönnum, en gagnrýni þess eðlis, að frv. gengi of skammt, var fyrst og fremst frá blaðamönnum.Ég hefði því haldið að rn. hefði átt að taka til athugunar þessar aths. og jafnframt skoða þá þróun sem átt hefur sér stað á undanförnum 2–3 árum og reyna að breyta frv. í samræmi við þá þróun. En það má vel vera að það sé rétt af hinu háa rn. að leggja þetta frv. óbreytt fram vegna þess skoðanamunar og mismunandi sjónarmiða sem fram koma í umsögnum og láta það verða verk alþm. sjálfra að kveða upp úr um hvaða stefnu á að taka.
Ég vildi við þessa 1. umr. láta það koma fram, enda þótt ég eigi sæti í hv. allshn. áfram, að ég er mjög hlynntur því að slík löggjöf verði samþ. og ég mundi fyrir mitt leyti vilja gera flest til þess að frv. í þessa átt verði að lögum. Ég held að það sé kominn tími til þess að stjórnsýslan sé opnuð og svipt sé af að nokkru leyti þeim hjúpi sem hvílt hefur yfir ákvarðanatekt og yfir vinnubrögðum hjá hinu opinbera, — ekki vegna þess að ég telji að þar sé um annarleg vinnubrögð að ræða, heldur vegna þess að ég tel að embættismenn eigi að bera ábyrgð á gjörðum sínum með sama hætti og þingkjörnir eða þjóðkjörnir aðilar. Eftir að almenningur hefur uppgötvað að völdin eru nú ekki eingöngu hjá Alþ. og ríkisstj., heldur og í stjórnsýslukerfinu og hjá embættismönnum, þá hefur athyglin beinst að þessum aðilum og er ekki óeðlilegt þó að komi vaxandi kröfur fram í þjóðfélaginu um að þeir starfi meira fyrir opnum tjöldum.
Vegna þeirra athugasemda sem fram komu hjá hv. 8. landsk., Sighvati Björgvinssyni, vil ég að mörgu leyti taka undir þær. Þá hugleiddi ég hvernig með skyldi fara það vandamál sem fram kemur í 12. gr. um það, hvort ekki mætti skjóta málinu til enn annars stjórnvalds eða jafnvel til dómstóla ef upp kemur sú staða að ráðh. synjar um leyfi til þess að opinbera skjöl. Í því sambandi minni ég á að hér hefur komið fram frv. um umboðsmann Alþ. og ég tel ekki óeðlilegt að það sé tengt að einhverju leyti hvort öðru, sú stofnun og þessi löggjöf sem hér er um að ræða. Ég hef líka stundum velt fyrir mér hvort ekki séu möguleikar á því að efla og styrkja stöðu Alþ. til þess að hafa aðgang að skjölum stjórnsýslunnar. Það kemur fram í stjórnarskrá okkar, í 39. gr., að hvor þd. geti skipað n. innandeildarþm. til að rannsaka mikilvæg mál er almenning varða og þd. getur veitt n. þessum rétt til að heimta skýrslur, munnlegar og bréflegar, bæði af embættismönnum og einstökum mönnum. Nú hefur það verið svo í framkvæmd að þetta ákvæði hefur ekki verið mjög virkt og má sjálfsagt rekja ástæðurnar fyrir því til þess að þegar till. eru bornar fram um skipan slíkra n. eru þær oftast af pólitískum toga spunnar og hafa þar af leiðandi ekki náð fram að ganga, oftast nær a.m.k., hér á hinu háa Alþ. En ef hægt væri að hefja það yfir pólitíska togstreitu og ágreining okkar þm. að slíkar n. skyldu skipaðar undir sérstökum kringumstæðum, þegar um er að ræða brýn hagsmunamál almennings, þá held ég að það geti orðið til mikilla bóta bæði hvað snertir þessa svonefndu upplýsingaskyldu svo og veg Alþingis.
Það er mitt mat að það þurfi að fara að skoða það mjög alvarlega, hvort Alþ. geti ekki veitt meira viðnám gagnvart vaxandi völdum og áhrifum sem eru í höndum embættismanna og stjórnsýslunnar. Þetta á ekkert sérstaklega við um Ísland þetta er því miður þróunin víða um heim, að vald þjóðkjörinnar samkundu eins og Alþ. hér á Íslandi fer minnkandi og slíkar stofnanir eða samkundur ern taldar afgreiðslustofnanir stjórnvalda. Ég held að það sé að vísu stundum ofsagt. En það má vissulega athuga það mjög vandlega hvort ekki sé hægt að finna leiðir fyrir Alþ., fyrir lýðkjörnar samkundur sem þessa til að sporna við of miklum völdum hjá þeim aðilum sem ekki eru kjörnir af þjóðinni sjálfri, þannig að störf þeirra og ábyrgð a.m.k. sé meira í sviðsljósinu og meira fyrir opnum tjöldum en verið hefur hingað til.