28.04.1975
Efri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3378 í B-deild Alþingistíðinda. (2475)

134. mál, launasjóður rithöfunda

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Eins og ég gat um við 2. umr. féllst ég á að taka brtt. mína aftur til 3. umr. í von um að n. ætti kost á því að koma saman í millitíðinni. Það reyndist ekki svo. En ég vil aðeins minna hv. þdm. á það að þó hér sé um ákveðið samkomulagsmál að ræða, þá segir á bls. 2 í grg. að samkv. þál. skuli veita í fjárl. ákveðna upphæð, sem þar hefur verið veitt, um 12 millj. En til þess að hafa það á hreinu að Alþ. vilji viðurkenna ákveðin laun til rithöfunda í virðingarskyni fyrir útlán á bókum þeirra í gegnum sennilega bókasöfn o. fl. og að hluta vegna þess að söluskattur er innheimtur af bókum, þá hefur verið niðurstaða á fjárl. að veita 12 millj. nú tvívegis. Hér er þess vegna leitast við í þessu frv. að mæta þeirri ályktun sem var gerð á sínum tíma vegna eðlis málsins, en það stendur hvergi og alveg ástæðulaust að blanda því inn að það sé einhver hindrun í veginum að viðurkenna hugverk rithöfunda sem eru líka til almenningsnota.

Þetta á við um tónskáld ekkert síður en rithöfunda, þannig að ég tel alveg einsýnt, þegar Alþ. vill viðurkenna hugverk með þessum hætti og miða við að þetta sé í bókasöfnum og til almenningsnota og söluskattur sé innheimtur af verkum þessara manna, að ekki megi mismuna þeim. Þessu má stilla þannig upp eins og það er í dag: Tveir menn sitja hlið við hlið, annar er að semja ljóð, hinn er að semja tónverk. Ljóðið er gefið út og tónverkið er gefið út, þau seljast hlið við hlið í bókabúðinni og það er lagður á þau 20% söluskattur. Annar á nú að fá viðurkennd um óákveðinn tíma laun fyrir starf sitt, þ. e. rithöfundurinn, en maðurinn, sem er að semja tónverkið, fær ekkert.

Ég tel að það sé ekki rétt að búa til svona löggjöf. Þetta er hreinlega ekki rétt. Þess vegna ber ég fram þessa brtt. að við gerum þessa menn jafnréttháa í þjóðfélaginu. Fyrir mig er tónlistin meira tómstundaefni heldur en hið almenna, ritaða orð. Það er mismunandi eins og gengur og ekkert við því að segja. Mjög skemmtilegt er að geta litið í góða bók og geta hvílt sig við það og ekkert síður hlýtt á gott ljóð. En að mismuna þessum mönnum fyrir sín hugverk nú og gera það um óákveðinn tíma og hafna því að taka bæði inn, segjandi að tónskáldin geti komið með sína till., þau geti gert þetta og þetta og kannske þurfi þau þetta ekki og svona og svona, það tel ég ekki viðeigandi. Ég er alveg tilbúinn að hækka þessa upphæð. Ef svo sýnist að nauðsynlegt sé að bæta við tveimur eða þremur milljónum vegna þess að tónskáld fljóti hér með, þá skal ég standa að því. En ég stend ekki að löggjöf sem mismunar mönnum fyrir hliðstæð störf, alls ekki. Þá verð ég á móti þessu þegar að því kemur að lokum. Við erum alltaf að tala um vaxandi jafnrétti í þjóðfélaginu, við erum að tala um frelsi manna til athafna og orðs og æðis og svo erum við að stuðla að því að mismuna mönnum mjög fyrir hliðstæð hugverk. Ég kalla það hliðstæð hugverk hvort maðurinn er að semja ljóð eða skáldverk eða tónlist. Þess vegna hvet ég menn til að hugleiða þetta rólega og taka afstöðu samkvæmt því.