28.04.1975
Efri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3382 í B-deild Alþingistíðinda. (2477)
134. mál, launasjóður rithöfunda
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Form. menntmn. hefur nú flutt hér hugðnæma ræðu um gildi hins skrifaða orðs og get ég vissulega tekið undir það þegar hann sagði að orðsins list hefði þróast hér með okkur í aldir. Það er alveg rétt. Sumum finnst sumt af þeim öngum, sem út úr þeirri þróun hafa komið, ekki mikils virði og lítt lesið og lítt á það hlustað í dag. Hins vegar vil ég undirstrika það að að mínu mati er tónlistin æðst allra lista og höfðar til manns hvort sem maður er blindur, læs, hvítur eða svartur, gulur eða brúnn. Og tónlistin er notuð alls staðar og það njóta allir tónlistar, ungir sem gamlir. Og þeir sem skapa tónverkin, eiga þeir einskis að njóta að mati hins hv. Alþingis anno domini 1975 fram yfir lítilsháttar listamannalaun sem veitt eru í fjárlögum? Og það er það sem ég er að gagnrýna í þessu frv. að við skulum ekki hafa meiri manndóm í okkur en það að samtímis því að við viljum veita rithöfundum sómasamlega og eðlilega viðurkenningu, sem ég dreg ekkert úr, þá erum við að gera á ósanngjarnan hátt að mínu mati upp á milli listgreina alveg að ástæðulausu, ef hinir fylgja ekki með, ella styð ég frv. ekki.
Hitt skal ég viðurkenna að rithöfundar hafa verið aðgangsharðari að fá sinn rétt viðurkenndan, og má segja að það sé bara gott um það að segja, en það segir alls ekki að Alþ. megi ekki muna eftir öðrum í leiðinni. Það er öðru nær. Það yrði örugglega til lyftingar tónsmíða hér innanlands ef við myndum eftir þeim mönnum sem við þetta fást. Þeir eru ekkert síður illa haldnir en rithöfundarnir og þurfa að semja sér til lífsviðurværis, eins og fram kom í tilvitnun ræðumanns í orð eins skáldsins í vísuformi áðan. Þess vegna trúi ég ekki öðru en að einhverjir vilji fylgja því að hjálpa þessum mönnum um leið. Ég trúi því ekki fyrr en á reynir, ég segi það alveg eins og er.
Þetta eru ekki stórar upphæðir ef við á annað borð viljum veita mönnunum þetta, að þeir megi njóta sinna hugverka alveg samtímis og við viðurkennum hugverk í rituðu máli, — ef við á annað borð viljum þetta skref, en ég vil ekki taka þetta skref nema báðir njóti jafnréttis. Deilan snýst um það að mínu mati. Ég vil ekki fara að samþykkja hér að þegar tveir menn sitja hlið við hlið og annar er að semja ljóð, eins og einhver drap á áðan, hinn er að semja tónverk og síðan er það sett hlið við hlið í búðinni, að annar fái viðurkenningu, hinn fái ekkert. Ríkissjóður fær það sama frá báðum. En alþjóð mun í mörgum tilfellum njóta starfa þess, sem ekkert fær, í miklu, miklu ríkara mæli, ungir sem gamlir, ólæsir sem læsir og jafnvel blindir. Þetta tel ég hreinlega ranga þróun og ekki viðeigandi í dag, alveg sama hvað hefur skeð í gegnum aldirnar og hversu mjög íslenska þjóðin í dag má þakka sínum rithöfundum sem hafa hvatt hana til dáða og eiga sinn stóra þátt í því að við getum lifað hér og höfum lifað hér í landinu. Það skiptir engu máli. Hér erum við að semja lög sem eiga að verka í framtíðinni, en ekki gagnvart því liðna, að mínu mati. Og við eigum að viðurkenna þá, er fást við tónsmíðar, ekkert síður en hina og sjá sóma okkar í því samtímis því sem við viljum rétta hinum eðlilega viðurkenningu er starfa að mótun hins ritaða orðs. Þess vegna ber ég þessa till. fram og þess vegna leita ég stuðnings við þetta sjónarmið hjá hv. þd. og ég trúi því ekki fyrr en á reynir að einhverjir vilji ekki veita þessum mönnum, tónsmíðum, jafna viðurkenningu og rithöfundum.