28.04.1975
Neðri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3387 í B-deild Alþingistíðinda. (2488)

Umræður utan dagskrár

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Ég hafði ekki ætlast til þess að þau yrðu ítarlegri en þau voru. Ég skil ákaflega vel að hæstv. ráðh. geri sér grein fyrir því í einstókum atriðum hvað hæstv. ríkisstj. kynni hugsanlega að vilja leggja fram til þess að koma stóru togurunum af stað. Hins vegar finnst mér að þetta mál hafi gengið ákaflega hægt. Eins og ég gerði grein fyrir áðan hófst þessi stöðvum 9. apríl, fyrir nærri þremur vikum, og ég veit ekki til þess að það hafi farið fram neinar alvarlegar og raunverulegar viðræður milli aðila í kjaradeilunni sem þar stendur á þessum tíma.

Ég er ansi hræddur um að það sé ekki rétt sem hæstv. ráðh. sagði að hér væri fyrst og fremst um kjaradeilu að ræða. Ég hygg að með þessari stöðvun séu þeir, sem gera út stóru togarana, að leggja áherslu á það að hinar almennu efnahagsráðstafanir hafi ekki verið fullnægjandi fyrir þessa stóru togara, eins og hæstv. forsrh. vék að í ræðu sinni hér áðan.

Ég ætla ekki hér utan dagskrár — mér finnst það ekki vera réttur tími — að ræða um skoðanir mínar á því hvernig taka ætti á þessum vanda. En ég vil leggja á það mjög mikla áherslu að öllum aðgerðum á þessu sviði verði hraðað ákaflega mikið og hæstv. ríkisstj, láti þessa stöðvun ekki standa nema tiltölulega skamman tíma enn.

Ég geri ráð fyrir því að margir hér hafi fylgst með viðtali sem var í sjónvarpinu á föstudaginn var við deiluaðila í hinni svokölluðu kjaradeilu þarna, þ. e. a. s. fulltrúa undirmanna og vélstjóra annars vegar og forstöðumanns togaraeigenda hins vegar. Mér virtist tónninn í þeim viðræðum vera sá að það væri viðurkennt af báðum aðilum að það ætti að vera hægt að leysa kjaraþátt málsins. Forustumaður togaraeigenda lýsti því hreinlega yfir að hann væri sammála því sem undirmenn á togurunum segðu, að þeir hefðu dregist aftur úr almennri launaþróun frá því að seinast var samið. Hana sagði að þetta væri algerlega óviðunandi af hálfu togaraeigenda einnig, þeir gætu ekki sætt sig við annað en að geta borgað hliðstætt kaup þeim mönnum, sem á togurunum starfa, og fólki sem vinnur í landi. Ef sjónarmiðin eru á þessa lund ætti að vera auðvelt að leysa sjálfa kjaradeiluna. Og ég vil enn ítreka það að mér finnst hæstv. ríkisstj. þurfa að gera þær ráðstafanir sem duga af hennar hálfu til að tryggja útgerð þessara togara. Það skiptir öllu máli að þeir taki til starfa, að þeir byrji að framleiða í þjóðarbúið. Síðan er hægt að fjalla um ýmsa þætti sem snerta rekstur þeirra sem kunna að vera skiptar skoðanir um á milli okkar hæstv. ráðh. hvernig haga skuli.