28.04.1975
Neðri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3404 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)

93. mál, iðnfræðsla

Frsm. (Ingvar Gíslason) :

Herra forseti. Menntmn. hefur haft til meðferðar það frv. sem nú er til umr. og varð niðurstaða n. eftir ítarlega athugun að rétt væri að málinu væri vísað til ríkisstj.

Mér þykir rétt að geta þess að n. leitaði m. a. umsagnar hjá allmörgum aðilum eða óskaði eftir umsögnum allmargra aðila um þetta frv. og ráðgaðist við ýmsa og skriflegar grg. komu frá a. m. k. iðnfræðsluráði og iðnfræðslulaganefnd í sambandi við málið, var álit bæði iðnfræðsluráðs og iðafræðslulaganefndar að ekki væri rétt að samþykkja þetta frv.

En n. sem sagt athugaði málið gaumgæfilega og kynnti sér það m. a. að iðnskóli starfar á Patreksfirði og hefur gert það lengi, líklega yfir 30 ár, og ég hygg að það hafi komið í ljós við okkar athugun að þessi skóli hafi gegnt þar mjög mikilvægu hlutverki, um það er ekkert að efast. En það stendur nú svo á raunar um fleiri iðnskóla en þennan eina á Patreksfirði, sem hefur nokkuð veika lagalega stöðu, að vissulega gegna þeir mikilvægu hlutverki, en búa þó við nokkra óvissu um framtíð sína vegna þess hvernig gildandi lög eru nú. Ég nefni í því sambandi, eins og tekið er fram í grg., iðnskólana í Borgarnesi, Stykkishólmi, Siglufirði, Seyðisfirði og Húsavík, en á öllum þessum stöðum er ekki um að ræða aðaliðnskóla í merkingu iðnfræðslulaga og þess vegna búa þessir skólar við nokkra óvissu líkt og er um þann skóla sem sérstaklega er fjallað um í þessu frv. En það, sem frv. felur fyrst og fremst í sér, er að breyta iðnfræðslulögunum í þá átt að Barðastrandarsýslur verði sérstakt iðnskólaumdæmi. En það sem ég held að hafi ráðið úrslitum um afstöðu menntmn. í þessu efni er að það starfar nú sérstök n. að endurskoðun iðnfræðslulaganna, og á meðan sú endurskoðun stendur yfir og beðið er eftir till. frá þeirri n., þá finnst menntmn. ekki rétt að gera eins veigamiklar breyt. á iðnfræðslul. og þetta frv. gerir ráð fyrir. Hins vegar vil ég taka það alveg skýrt fram í þessu sambandi að menntmn. er ekki að leggja neinn endanlegan dóm á það hvað rétt sé að gera í sambandi við framtíðarskipulagið í þessu efni. Það má vel vera að það sé rétt og eðlilegt, eins og lagt er til í þessu frv., að Barðastrandarsýslur verði sérstakt iðnskólaumdæmi. En við teljum í menntmn. að það sé rétt og eðlilegt að bíða þess að iðnfræðslulaganefnd skili áliti, og þess vegna var það niðurstaða okkar að leggja til að málinu yrði vísað til ríkisstj.

Ég vil taka það fram að undir nál. skrifa allir nm. að undanteknum einum fulltrúa, Svövu Jakobsdóttur, sem var ekki viðstödd þegar málið var endanlega afgr. úr nefnd.