28.04.1975
Neðri deild: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3407 í B-deild Alþingistíðinda. (2497)

93. mál, iðnfræðsla

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Mér finnst ræða hv. 9. landsk. einmitt undirstrika það sem ég sagði áðan að það hefði mátt ætla með hliðsjón af málinu og undirtektum að það hefði fengið jákvæðari afgreiðslu en menntmn. hefur gert ráð fyrir. Hún upplýsti að þörfin væri ótvíræð, — það er varla hægt að kveða sterkara að orði um þetta málefni heldur en hér er gert, og bætti svo við að heimamenn hefðu ástæðu til að ætla að menntmrh. tæki vel á málinu. Vel má það vera að það gerist og ég fagna því. En miklum mun betur hefði verið tekið á þessu máli hefði það fengið jákvæðari afgreiðslu í menntmn. og verið afgr. á þessu þingi. Ég var ekkert sérstaklega að fara fram á það við hv. n. að hún tæki frv. eins og það var lagt fram og samþykkti það óbreytt. Ég hefði ekkert haft á móti því að hún hefði tekið þá sex aðra skóla, sem svipað var ástatt um, eins og hér er gerð grein fyrir, og bætti þeim við. Þá var óskum allra aðila fullnægt. Hafi verið jafnótvíræð þörf á þessum sex stöðum og hér er viðurkennt af öllum, þá átti auðvitað fullan rétt á sér að taka þetta mál í heild á þeim grundvelli, og það hefði menntmn. auðvitað átt að gera.

Um það, að Vestfjarðaþm. að sjálfsögðu beiti sér fyrir þrýstingi á stjórnvöld að þessu leyti, þá skal ekki á mér standa í þeim efnum. Ég hefði þurft á meiri stuðningi annarra hv. þm. Vestfjarðakjördæmis að halda við mig á þessu stigi. Þó að svona hafi farið í fyrstu orrustu skal ekki á mér standa í þeirri næstu.